Feykir - 27.09.2012, Blaðsíða 2
2 Feykir 36/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Bændur á Stóru-Giljá
Sakna um 200 fjár
Útlitið er betra hjá Sigurði
Erlendssyni bónda á Stóru-
Giljá í Húnavatnshreppi en
leit út í fyrstu en hann geymdi
allt sitt fé í Sauðadal sem
fylltist af snjó í hretinu þann
10. september sl.
Í fréttum Ríkisútvarpsins um
sl. helgi kom fram að Sigurður
saknaði 400 lamba og nokkurs
af fullorðnu en síðan þá hefur
talsvert fé komið í leitirnar þegar
réttað var sl. mánudag. „Svo
verður smalað aftur um næstu
helgi og þá kemur vonandi fleira
í ljós,“ sagði Sigurður í samtali
við Feyki.
Sigurð vantar ennþá rúm
200 lömb og nokkrar ær og
gerir hann sér vonir um að
fleiri komi í leitirnar um
helgina. Aðstæður til smölunar
í Sauðadal segir hann hafa
lagast til muna, snjórinn
nánast að hverfa nema úr
stærstu giljum. Aðspurður um
hvort hann hafi fundið mikið
dautt segist hann hafa fundið
nokkra tugi. „Ég fann strax 25
kindur dauðar og svo hefur
smátt og smátt bæst við. Það
má vænta að sú tala hækki
eitthvað, það skýrist á næstu
vikum,“ sagði Sigurður.
Sigurður segir fleiri bændur
í Vatnsdal og Svínadal hafi
látið fé sitt ganga á Sauðadal og
þeim vanti þá einnig töluvert,
þó hefur eitthvað vænkast
hagur hjá þeim. Ljóst er þó að
flestir hafi lent í einhverju
tjóni. /BÞ
LEIÐARI
Skoðanakúgun
Í nútímasamfélagi hafa netmiðlar haslað sér völl svo um
munar á hraða ljóssins svo frétt morgunsins er orðin úrelt að
kveldi. Nú geta allir miðlað efni um netið, ekki einungis „þeir
stóru“. Samskiptamiðilinn Facebook hafa flestir séð og allir
heyrt um og fer ýmislegt misgáfulegt þar á öldur ljósvakans
líkt og hjá bloggurum landsins, margt gott, annað miður.
Svokölluð kommentakerfi, þar sem fólk getur sett skoðanir
sínar fram á því málefni sem til umræðu er, eru oft yfirfull af
vitleysu og rugli og virðist fólk vera óhrætt við að gagnrýna án
nokkurrar vitneskju um staðreyndir. Því miður virðist þetta
hafa áhrif á umræður hvort sem þær eru pólitískar eður ei og
sumir láta kúga sig til að segja eða þegja um eitthvað ákveðið
mál. Þetta þurfti Feykir.is að reyna í síðustu viku þegar fréttir
voru sagðar frá kvikmyndaatriði sem tekið var upp í
Sauðárkrókshöfn. Aðstandendur myndarinnar hræddust
neikvæða umfjöllun um hest á sundi svo mikið að þeir fengu
vilja sínum framgengt að Feyki.is tæki myndbandið af
atriðinu út af YouTube. Annað dæmi er að Feykir.is lenti á
frægum lista Hildar Lilliendahl „Karlmenn sem hata konur“
fyrir að mæla með lagi Chris Brown en sá hlaut dóm fyrir
nokkrum árum vegna ofbeldis gagnvart unnustu sinni. Ekki
var verið að fjalla um þann verknað og kúga átti vefinn til að
taka færsluna um lagið, sem mörgum finnst alveg ágætt, út
eða að minnsta kosti að skýra það hvers vegna væri verið að
hampa ofbeldismanni. Feykir.is varð ekki við þeirri ósk. En
kannski er þetta bara hinn nýi tími og best að sætta sig við
þetta strax... eða ekki!
Páll Friðriksson
ritstjóri
Óskilahross í
Skrapatungurétt
Örmerkt
en óskráð
Þrátt fyrir mikinn snjó og
vonda færð gekk
stóðsmölun á Laxárdal vel
um þar síðustu helgi,
samkvæmt Húna.is. Eftir
helgina kom þó í ljós að
tvö óskilahross voru í
stóðinu sem voru örmerkt
en óskráð.
Hrossaeigendur eru
beðnir um að skoða sín
örmerkingarblöð með það í
huga að finna þessi örmerki:
Rauðstjörnóttur hestur 2 v
örmerki 352206000076833.
Rauðskjótt hryssa 2 v
örmerki 352206000076867.
Upplýsingar í síma 865-2421.
/BÞ
Skagafjörður ábyrgist lán
Skagafjarðarveitna
Greiða upp
óhagstæðari
lán
Byggðarráð lagði til við
sveitarstjórn Svf. Skaga-
fjarðar á fundi sínum þann
20. september sl. að
sveitarfélagið gangist í
ábyrgð á óverðtryggðum
lánssamningi í íslenskum
krónum milli Arion banka
hf. og Skagafjarðarveitna
ehf. að lánsupphæð 250
millj. kr. til 24 ára.
„Byggðarráð leggur til við
sveitarstjórn að sveitarfélagið
gangist í einfalda ábyrgð á
greiðslum samkvæmt láns-
samningi þessum til lán-
veitanda,“ segir í fundargerð.
Þessum fjármunum er ætlað
til uppgreiðslu á öðrum
óhagstæðari lánum. /BÞ
Samkaup og Kaupfélag
Húnvetninga hafa skrifað
undir samning sem veita
félagsmönnum kaupfélagsins
2% afslátt af viðskiptum í
verslunum Samkaupa um allt
land, auk þess munu
Samkaup bjóða félagsmönn-
um reglulega tilboð með
verulega auknum afslætti.
Húni.is greinir frá þessu.
„Nýir félagar munu geta
skráð sig í kaupfélagið á
heimasíðu Samkaupa www.
samkaup.is og eins í verslunum
Úrvals á Blönduósi og á
Skagaströnd,“ sagði Ómar
Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri Samkaupa í samtali við
Húna.is.
„Í tilefni undirritunar
samningsins verða sérstök
tilboð fyrir félagsmenn í
verslunum á Blönduósi og á
Skagaströnd, um næstu helgi,“
bætti Ómar við. Núverandi
félagsmenn í kaupfélaginu
munu fá send sérstök afsláttar-
kort í pósti næstu daga.
Samkaup eru að stærstum
hluta í eigu kaupfélaga og rekur
félagið um 50 verslanir víða
um land, verslanir sem flestar
voru áður reknar undir merkj-
um einstakra kaupfélaga. /BÞ
Samkaup og Kaupfélag Húnvetninga
Veita félags-
mönnum afslátt
Rjúpnatíminn nálgast
Óbreytt veiði í ár
Umhverfis- og auðlinda-
ráðherra hefur ákveðið
fyrirkomulag rjúpnaveiða
haustið 2012, að fengnu mati
og tillögum Náttúrufræði-
stofnunar Íslands og
Umhverfisstofnunar. Veiðar
verða heimilar í níu daga líkt
og haustið 2011 og dreifist
veiðitímabilið á fjórar helgar.
Í mati Náttúrufræðistofn-
unar kemur fram að rjúpna-
stofninn sé nú á niðurleið um
allt land þrátt fyrir að viðkoman
2012 væri góð, sem bætir bága
stöðu stofnsins. Mælist hann
því stærri en haustið 2011 þrátt
fyrir minni varpstofn.
Umhverfisstofnun leggur til
að veiðifyrirkomulag verði
með sama hætti og 2011, þ.e.
níu dagar, sem dreifist á
eftirfarandi fjórar helgar:
Föstudagurinn 26. október
til sunnudagsins 28. október.
Laugardagurinn 3. nóvember
og sunnudagurinn 4. nóvember.
Laugardagurinn 17. nóvember
og sunnudagurinn 18. nóvember.
Laugardagurinn 24. nóvember
og sunnudagurinn 25. nóvember.
Umhverfisstofnun leggur
áherslu á að farið verði að
ráðgjöf Náttúrufræðistofnunar
um ráðlagða veiði upp á 34.000
fugla, sem geri um sex rjúpur á
veiðimann, miðað við þann
fjölda veiðimanna sem að jafn-
aði fari til rjúpnaveiða. /PF
Leikfélag Sauðárkróks
Fíasól á fjalirnar
Leikfélag Sauðárkróks er
tekið til starfa eftir sumarið
og vinnur nú að haustleikriti
leikfélagsins en þetta árið
varð barnaleikritið Fíasól fyrir
valinu, eftir Kristínu Helgu
Gunnarsdóttur.
„Þetta leikrit var m.a fyrir
valinu því það höfðar til breiðs
aldurhóps, það er einnig
skemmtilegt með grípandi
tónlist og ekki skemmir að
góður boðskapur leynist í því,“
segir Sigurlaug Dóra Ingi-
mundardóttir formaður LS.
Að sögn Sigurlaugar er búið
að manna öll hlutverk og er
leikhópurinn blandaður af
nýjum leikurum innan um
reynslubolta. „Einnig er góður
hópur bak við tjöldin og saman
myndast góð heild sem verður
til þess að allt gengur þetta upp
innan sviðs sem utan.
Leikstjórar að þessu sinni eru
heimafólkið Páll Friðriksson
og Guðný Axelsdóttir en þetta
er frumraun þeirra í að leik-
stýra en eru bæði miklir
reynsluboltar hjá LS,“ segir
Sigurlaug.
Æfingar eru komnar á gott
skrið en Fíasól verður frumsýnt
3. nóvember næstkomandi.
„Fíasól og félagar hlakka til að
sjá ykkur í leikhúsinu,“ segir
Sigurlaug í lokin. /BÞ
Körfuknattld. Tindastóls
Þröstur
formaður
Á aðalfundi körfuknatt-
leiksdeildar Tindastóls sem
haldinn var á mánudags-
kvöld var Þröstur Jónsson
kjörinn nýr formaður
deildarinnar.
Á heimasíðu Tindastóls
segir að lítilsháttar tap hafi
verið á rekstri meistara-
flokksins, eða upp á um 304
þúsund. /PF