Feykir - 15.11.2012, Qupperneq 3
43/2012 Feykir 3
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
STARFSKRAFTUR
ÓSKAST
Kraftmikið og áreiðanlegt starfsfólk
óskast til starfa á þjónustustöð N1
Staðarskála. Um er að ræða almenna
afgreiðslu og þjónustu við viðskipta-
vini ásamt öðrum tilfallandi
verkefnum á stöðinni.
Allar nánari upplýsingar veitir
Svanhildur Hlöðversdóttir
stöðvarstjóri í síma 861 7756.
Áhugasamir geta einnig sótt um á
www.n1.is
N1 ÞJÓNUSTUSTÖÐ
STAÐARSKÁLI
WWW.N1.IS
Formleg opnun Framhaldsdeildar FNV á Hvammstanga
Góður andi
og velvilji
Framhaldsdeild FNV á
Hvammstanga var formlega
opnuð mánudaginn var og þá
skrifað undir samstarfs-
samning á milli Fjölbrauta-
skóla Norðulands vestra og
Húnaþings vestra um rekstur
og fjármögnun verkefnisins
til ársloka 2015. Áætlað er
að um 150 manns hafi
heimsótt deildina af þessu
tilefni.
Rakel Runólfsdóttir umsjón-
armaður framhaldsdeildarinnar
stýrði dagskránni en á mæl-
endaskránni voru Katrín
Jakobsdóttir menntamálaráð-
herra, Skúli Þórðarson sveitar-
stjóri Húnaþings vestra, Ingileif
Oddsdóttir skólameistari FNV
og Jón Freyr Gíslason sem flutti
erindi fyrir hönd nemenda
framhaldsdeildarinnar. Gunnar
Þórarinsson stjórnarformaður
Kaupfélags vestur Húnvetninga
greindi frá því að Kaupfélag
V-Hún ásamt Sláturhúsi KVH
og Kaupfélagi Skagfirðinga hefði
gefið deildinni stóla, borð og
munaskápa. Guðmundur
Haukur Sigurðsson afhenti
nemendum 50“ sjónvarp fyrir
Frá undirritun samstarfssamningsins.
hönd Lionsklúbbsins Bjarma á
Hvammstanga.
Ingileif skólameistari sagði
mjög góðan anda hafa verið í
húsinu. „Það var virkilega gott að
finna hve mikil ánægja er með
verkefnið og hvað það er mikill
velvilji í samfélaginu,“ sagði
Ingileif í samtali við Feyki. Hún
sagði að von væri á fjölgun í
dreifnáminu, en nokkrir krakkar
sem höfðu farið suður til
Reykjavíkur í skóla eru að flytja
aftur heim á Hvammstanga til að
fara í dreifnámið.
Ingileif sagði ákvörðunina
um dreifnámið hafði verið tekin
á vorönn og þá hófst skipu-
lagningin. „Það var lykilatriði að
allir myndu stefna að þessu
verkefni saman, þ.e. skólinn,
samfélagið og krakkarnir sjálfir.
Því var haldinn vinnudagur með
krökkunum og höfðu þeir mikið
að segja um hvernig fyrir-
komulagið yrði - ég tel að það
hafi verið mjög mikilvægt,“
útskýrði Ingileif. „ Þar sem
dreifnámið var nýtt fyrir okkur
bjóst ég við að upp myndu koma
allskonar vandamál, en raunin
varð allt önnur, það hefur allt
runnið svo ljúft,“ sagði hún. /BÞ