Feykir - 21.03.2013, Qupperneq 10
10 Feykir 11/2013
Árshátíð Grunnskólans að Hólum
Fullt hús á
Ávaxtakörfunni
UMSJÓN
berglindth@feykir.is
Árshátíð Grunnskólans að Hólum var
haldin við húsfylli síðastliðið föstu-
dagskvöldið en þá settu nemendur
1.-7. bekkjar skólans á svið leikritið Ávaxtakörfuna. Að sögn
Árna Gísla Brynleifssonar starfsmanns við skólann var það
mat fólks að nemendur grunnskólans hafi staðið sig
frábærlega.
Eftir frábæran leik og söng krakkanna stóð foreldrafélagið fyrir
kaffi og kökuveislu. Nemendur og starfsfólk Grunnskólans vilja
þakka öllum sem lánuðu hluti/föt eða komu með einhverjum
hætti að sýningunni. Rósa María Vésteinsdóttir tók meðfylgjandi
myndir. Ávaxtakarfan er sígilt leikrit um yfirgangssemi og einelti sem á hvergi að líðast, ekki heldur í ávaxtakörfunni.
08/2013
Hipp og kúl í hálstauinu!
Tískudíva seinasta dálks,
hún Rita Didriksen, benti
Fröken Fabjúlöss pent á það
að Auður Aðalsteinsdóttir
lumaði á nokkrum mjög svo
áhugaverðum hillum í sínum
fataskáp og var Frökenin ekki
lengi að stökkva til og góma
hana Auði í smá fataskápafikt.
En hvað er það svo sem Ritu er
hjartfólgnara en annað innan
veggja fataskápsins?
Auður er Akureyringur sem á
rætur sínar að rekja í nokkrar
áttir, þar á meðal til Hafnarfjarð-
ar og Skotlands. Hún fluttist á
Krókinn árið 1997 frá Svíþjóð
þar sem hún hafði verið búsett í
9 ár.
Hvað er það svo í fataskáp
Auðar sem á hug hennar, hjarta
og sinni þessa dagana?
- Það sem er í uppáhaldi hjá mér
þessa dagana er hálstau sem ég
keypti á Akureyri í versluninni
Sirku á Skipagötunni. Það er
hannað af listakonu sem heitir
Ríkey og er m.a unnið úr dúkum
og blúndum... mjög skemmtilegt.
Best er að vera í einlitri flík undir
svo hálstauið njóti sín sem best.
Annars er skemmtilegt að
segja frá því að hún Auður er
mikill listunnandi og safnari og
á t.d. dágott safn af fataefnum
sem hún hefur sankað að sér
utan lands sem innan gegnum
árin og segir hún að hugmyndin
sé að skapa eitthvað geggjað í
hvert skipti sem efni er keypt!!
Tímaleysi hefur þó þvælst
umtalsvert fyrir henni og því fá
efnin að ligga í dvala og bíða.
„Mér þykir ekkert skemmtilegra
en að geta endurunnið flík og/
eða búið til hlutina sjálf. Þær
stundir koma inn á milli. Þá
verður ýmislegt til,“ segir þessi
sniðuga listakona.
En hver er það svo sem Auður
vill að Fröken Fabjúlöss lokki
næst út úr fataskápnum?
-Ég ætla að skora á Selmu
Barðdal að koma næst út úr
fataskápnum með eitthvað
skemmtilegt. Mér finnst hún
mjög frumleg í klæðaburði, fer
dálítið ótroðnar slóðir sem er
svo hressandi.
Fröken Fabjúlöss forvitnast í fataskápa: Auður Aðalsteinsdóttir
[ frokenfab@feykir.is ]
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir