Feykir - 07.11.2013, Blaðsíða 2
2 Feykir 42/2013
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Jólin eru bara
alveg að koma
Mér hefur oft verið bent á að ég sé hundleiðinlegur þegar
kemur að jólaundirbúningi hvort sem ég er heima eða heiman.
Ég efast ekki um að það sé rétt enda finnst mér sá tími ótrúlega
leiðinlegur. Fimmtíu til sextíu daga fyrir jól fara jólalög og
auglýsingar að gjalla í útvarpi og jólagjafirnar er algerlega
ómissandi að kynna svo maður verði ekki búinn að eyða
peningunum í einhvern óþarfa þegar sjálf aðventan hefst.
Margir setja sér háleit markmið með jólaþrifin, rífa allt út úr
skápunum og þrífa hátt og lágt, eru jafnvel fram á nætur því
vinnan vill gjarna slíta í sundur frítímann. Nú svo þarf að baka
heil ósköp því mamma gerði það alltaf svo ég tali nú ekki um
hana ömmu sem vippaði þrjátíu sortum upp á jólafatið ásamt
tertunum sem enginn gat hent tölu á. Ef amma gat þetta með
Rafha eldavélinni sinni hlít ég að geta það með mínum
eðalgræjum, gæti einhver sagt. Nú það þarf líka að kíkja á
jólatónleika, jólahlaðborð, jólaglögg, jólamarkað, jólahitt og
jólaþetta, kaupa happdrættismiða af tuttugu og sjö góðgerða-
samtökum sem öll vinna að göfugum mannúðarmálum,
jólakort og jólapappír og svo þarf náttúrulega að hengja upp
bansettar seríurnar sem maður er búinn að sanka að sér í
gegnum tíðina og skipta út þessum hundruð pera sem hafa
sprungið og kosta meira en seríurnar sjálfar.
Ég veit ekki af hverju mér leiðist þetta. Kannski er það af því að
boðskapurinn vill gleymast í fárinu hvort heldur sem fólk
fagnar fæðingu frelsarans eða sigri ljóssins yfir myrkrinu.
Kannski leiðist mér þetta af því að ég get fagnað án þess að
missa mig í ruglinu að eigin áliti og reyni að sneiða framhjá öllu
jólamarkaðsbullinu. Ég verð þó að viðurkenna að ég féll í eina
jólagildruna þegar ég kom frá Riga í síðustu viku því sextíu
dögum fyrir jól keypti ég mér jólabjór í Tollinum og er þegar
byrjaður á honum. Efast stórlega um að hann endist fram að
jólum en markaðsöflin segja mér þá líklega að fá mér annan
kassa því hann sé ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum.
Páll Friðriksson
Fækkar um einn í A-Hún
Eins og greint hefur verið frá í
fjölmiðlum undanfarið er
fækkun sjúkrabíla á lands-
byggðinni hluti af þeim
sparnaðaraðgerðum sem
ríkisstjórnin hefur boðað,
ásamt sameiningu heil-
brigðisstofnana, sem nokkuð
hefur verið fjallað um í Feyki
að undanförnu. Feykir hafði
samband við forsvarsmenn
heilbrigðisstofnana á
Norðurlandi vestra og
spurðist fyrir um hvernig þessi
fækkun kæmi niður á hverju
svæði fyrir sig.
Að sögn Valbjörns Stein-
grímssonar, forstjóra Heilbrigð-
isstofnunarinnar á Blönduósi,
eru þrír bílar sem heyra undir
Blönduós og verður þeim fækk-
að um einn, en það er bíllinn á
Skagaströnd sem lagður verður
niður. Valbjörn segir að fækkun
bíla geti í einhverjum tilfellum
lengt útkallstíma en að öllu
jöfnu komi hvort eð er bíll frá
Blönduósi samhliða bílnum á
Skagaströnd, þegar um F1
útköll er að ræða, þar sem
læknirinn komi með bílnum frá
Blönduósi.
Valbjörn telur sparnaðinn
sem af þessu hlýst óverulegan.
„Það er ljóst að ekki er verið að
spara miklar fjárhæðir með því
að leggja af sjúkrabíl á
Skagaströnd því þar voru menn
Fækkun sjúkrabíla á landsbyggðinni
Hitaveita formlega tekin í notkun
Ný hitaveita var tekin form-
lega í notkun á Skagaströnd
síðast liðinn föstudag, þegar
stjórnarformaður RARIK, Árni
Steinar Jóhannsson, að
viðstöddum gestum í
dæluhúsinu við Sólarveg á
Skagaströnd, hleypti vatni á
dreifikerfið. Tenging húsa við
kerfið er hafin.
Sveitarfélagið Skagaströnd
og RARIK ohf. undirrituðu
samning 30. desember 2011 um
lagningu hitaveitu til Skaga-
strandar og 22. maí s.l. var fyrsta
skóflustungan tekin fyrir dreifi-
kerfi hitaveitu RARIK á Skaga-
strönd. Hitaveitan á Skagaströnd
er stækkun Blönduósveitu sem
nær yfir veitusvæði á Blönduósi
og Skagaströnd, auk hluta af
dreifbýlinu milli Blönduóss og
Skagastrandar.
Hleypt var á stofnæðina til
Skagastrandar fyrir nokkrum
dögum. Þá var opnað fyrir til
reynslu í dælustöðinni á Skaga-
strönd og búnaður prófaður.
Hitastig vatnsins reyndist 61°C
og mun hækka með aukinni
notkun. Íbúar á Skagaströnd
geta því tengt hús sín við veituna
og eru hvattir til að tengjast sem
Merk tímamót á Skagaströnd
Ekki greitt fyrir
aukasmalanir
Erindi frá Jóni Gíslasyni f.h.
fjallskiladeildar Auðkúlu-
heiðar, sem kynnt var á fundi
sveitarstjórnar Húnavatns-
hrepps 9. okt. sl. og frestað
afgreiðslu á var tekið fyrir á
síðasta fundi hreppsnefndar.
Erindið varðar afstöðu
sveitarstjórnar til þess hvort
sveitarfélagið komi með
einhverjum hætti að greiðslu
kostnaðar við aukasmalanir í
haust vegna óveðursspár og
farið var í að tilmælum
sveitarstjórnar.
Sveitarstjórnin telur ekki
rétt að taka þátt í kostnaði
vegna aukasmalana í haust í
ljósi álits Bændasamtaka
Íslands, sem leitað var eftir og
óskar eftir því að fjall-
skiladeildir í sveitarfélaginu
útbúi aðgerðaráætlanir um
smalanir vegna hugsanlegra
náttúruhamfara sem upp geta
komið. /PF
Fjallskiladeild Auðkúluheiðar
Sýnir Algjöra súpu
Leikflokkurinn á Hvamms-
tanga frumsýnir Algjöra súpu
föstudaginn 8. nóvember kl. 20
í félagsheimilinu á Hvamms-
tanga en þar fá leikhúsgestir
súpu, brauð og kaffi en 5
stjörnu kokkur matreiðir
súpuna sem liprir þjónar bera
fram með glensi og gríni.
Allskonar uppákomur og
skemmtileg atriði verða á
meðan á máltíð stendur, þar
sem þjónar sýna á sér
ótrúlegar hliðar, eitthvað sem
fólk er kannski ekki vant er
það fer út að borða.
Höfundar verksins eru
leikhópurinn sjálfur og leik-
stjórinn, Ingrid Jónsdóttir /PF
Leikflokkurinn á Hvammstanga
Árni Steinar Jóhannsson hleypti vatni á dreifikerfi hitaveitunnar á Skagaströnd
síðastliðinn fimmtudag.
fyrst. Heita vatnið kemur frá
Reykjum í Húnavatnshreppi.
Boruð var ný vinnsluhola til að
mæta auknu álagi og stofnpípa
til Blönduóss endurnýjuð, en sú
framkvæmd var á dagskrá
burtséð frá hitaveitunni á
Skagaströnd.
Að undanförnu hefur verið
unnið að frágangi á tengi-
grindum og uppsetningu mæla
fyrir hitaveituna á Skagaströnd.
Nýjustu tækni er beitt við mæl-
ingu og álestrar verða rafrænir
og því verða allir reikningar
byggðir á raunverulegri notkun,
í stað þess að áætla milli álestra
eins og algengast var. Sama
gjaldskrá mun gilda fyrir allt
veitusvæðið.
Samhliða lagningu dreifi-
kerfis hitaveitu um Skagaströnd
voru lögð rör fyrir ljósleiðara í
öll hús sem tengjast hitaveit-
unni og má reikna með að
ljósleiðaratengingar verði til
staðar fyrir þá sem þess óska í
byrjun næsta árs.
Heildarkostnaður við verkið
var áætlaður um 1.117 mkr, þar
af var kostnaður við borun og
virkjun nýrrar holu að Reykjum
um 160 mkr og endurnýjun
stofnpípu frá Reykjum til
Blönduóss um 346 mkr. /KSE
ekki á sólahrings vöktum.“
Hann telur þó ekki endilega að
öryggi íbúanna sé ógnað með
þessum breytingum. „Segja má
að hluta til búa íbúar við falskt
öryggi því bíll t.d. á Skagaströnd
er lítið notaður og menn því
ekki í eins góðri þjálfun og
æskilegt væri.“
Heildarkostnaður við sjúkra-
flutninga hjá HSB er u.þ.b. 17 til
20 millj. kr. á ári. Valbjörn segir
erfitt er að reikna kostnað við
einn stakan bíl þar sem þeir bílar
sem í rekstri eru samanstanda af
teymi manna sem starfa á
bílunum. „Því er erfitt að alhæfa
um slíkt. Hvað varðar bílinn á
Skagaströnd sérstaklega, þá mun
sparast við að leggja hann af 1/2
til 1 milljón á ári ef endur-
menntunar og þjálfunarkostn-
aður er ekki talinn með, en hann
er verulegur. Þá mun koma inn
nýr kostnaður í stað þess sem fer
ef sett verður upp svokallað
„First Responder kerfi.“
„Fækkun um einn sjúkrabíl
á Hvammstanga mun jafnvel
hafa meiri áhrif á sjúkrabíla-
rekstur á Blönduósi en fækkun
á Skagaströnd, því um leið og
bíll á Hvammstanga fer úr
héraði þá er Blönduósbíllinn
kominn á vakt þar og það er um
töluvert stórt svæði að vakta,
A-Hún og V-Hún saman,“
sagði Valbjörn. /KSE