Feykir - 07.11.2013, Qupperneq 3
42/2013 Feykir 3
Sérfræðikomur
í nóv. og des.
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Haraldur Hauksson,
alm/æðaskurðlæknir / 11. og 12. nóv.
Sigurður Albertsson,
alm. skurðlæknir / 18. og 19. nóv.
Orri Ingþórsson,
kvensjúkdómalæknir / 21. og 22. nóv.
Bjarki Karlsson,
bæklunarlæknir / 2. til 4. des.
Haraldur Hauksson,
alm/æðaskurðlæknir / 9. og 10. des.
Orri Ingþórsson,
kvensjúkdómalæknir / 12. og 13. des.
Sigurður Albertsson,
skurðlæknir / 16. og 17. des.
Tímapantanir í síma 455 4022
www.hskrokur.is
Skipulögðu hrekkjavöku
Þrjár framtakssamar stúlkur
á Hvammstanga, þær Ásdís
Aþena Magnúsdóttir, Bryndís
Jóhanna Kristinsdóttir og
Rakel Gígja Ragnarsdóttir
tóku sig til og skipulögðu
hrekkjavöku á sjálfan
hrekkjavökudaginn, 31.
október sl. Stúlkurnar eru
allar í 4. bekk Grunnskóla
Húnaþings vestra og eru því
10 ára gamlar.
Stúlkurnar klæddu sig upp í
viðeigandi hrekkjavökubún-
inga og héldu til fundar við
Skúla Þórðarson, sveitarstjóra
Húnaþings vestra og fengu
leyfi til að halda hrekkjavöku.
Því næst ræddu þær við Sigurð
Þór Ágústsson, skólastjóra, til
að vera vissar um að þeim væri
leyfilegt að hafa samkomu-
staðinn á skólalóðinni.
Þrjár framtakssamar stúlkur á Hvammstanga
Það voru því ýmsar kynja-
verur sem hittust við grunn-
skólann á Hvammstanga á
hrekkjavökunni sl. fimmtu-
dag. Þær röltu svo á milli húsa
á Hvammstanga í von um að
finna þar eitthvað gotterí. Vel
var tekið á móti þeim á
ýmsum stöðum er kynjaver-
urnar heimsóttu, meðal
annars Selasetur Íslands og
Kaupfélag Vestur-Húnvetn-
inga. Norðanátt sagði frá
þessu. /KSE
Mynd: Irina Kamp
Klikkun
!
Það er snjallt að gerast áskrifandi að Feyki núna!
• 15 króna afsláttur af bensín og dísellítra í 10
hvert skipti sem dælt er 25 lítrum eða meira
með ÓB lyklinum til einstaklinga.*
• 10 krónu afsláttur af hverjum bensín og dísellítra
í fyrstu þrjú skipti.*
• 10 krónu afsláttur af hverjum bensín og dísellítra
á afmælisdegi ÓB-lykilhafa.*
• 7 krónu afsláttur af hverjum bensín og dísellítra
hjá ÓB og Olís.
• 10 krónu afsláttur af hverjum bensín og dísellítra
á tilboðsdögum hjá ÓB og Olís.
• Saga Club félagar fá 15 Vildarpunkta fyrir
hverjar 1.000 krónur á öllum Olís- og ÓB-
stöðvum.
Feykir er félagi sem þú vilt ekki vera án!
Blaðið kemur út 48 sinnum á ári og
jafnan stútfullt af fréttum og dægurefni
frá Norðurlandi vestra!
Verð til áskrifenda er kr. 450.-
* Tilboðið gildir til 6. desember 2013
Nánari upplýsingar um tilboðið má sjá á Feykir.is
* Sérafslættir gilda eingöngu fyrir einstaklinga og koma ekki til viðbótar við aðra afslætti eða önnur viðskiptakjör.
Ekkert pin-númer, ekkert vesen Meðal afsláttarkjara má nefna...
Olís-
lykill
10.000
króna inneign
Feykir býður nú upp á snilldar áskriftartilboð
í samstarfi við verslanir Olís um allt land.
100 fyrstu nýju áskrifendurnir* að Feyki
fá Olís-lykilinn með 10.000 króna inneign.
Nýir áskrifendur skuldbinda sig til áskriftar á Feyki
í a.m.k. eitt ár.
Þú hringir í áskriftarsíma Feykis - 455 7171 -
eða sendir póst á feykir@nyprent.is
og færð sendan Olís-lykil og viðskiptakort.
Það eina sem þú þarft að gera er að virkja lykilinn og njóta afsláttanna sem lykill-
inn býður upp á og 10.000 krónu inneignarinnar... – já og að sjálfsögðu Feykis!
Eldri áskrifendur geta líka dottið í lukkupottinn!
Þrír tryggir áskrifendur verða dregnir út
og fá einnig Olís-lykil með sömu afsláttarkjörum.
Ein milljón safnaðist
Hún var heldur betur
rausnarleg gjöfin sem
nemendur 7. og 8. bekkjar í
Varmahlíðarskóla afhentu
Krabbameinsfélagi
Skagafjarðar síðastliðinn
þriðjudag sem var afrakstur
söfnunar þeirra síðustu vikna
en alls safnaðist ein miljón
króna. Þann 29. október sl.
hlupu krakkarnir Hegranes-
hringinn svokallaða gegn
áheitum en hann telur alls 65
km.
Á heimasíðu Varmahlíðar-
skóla segir að fyrstu krakk-
arnir hafi lagt af stað í hlaupið
kl. 9:40 í glampandi sól sem
fylgdi hópnum þar til hún
hneig til viðar bak við
Vesturfjöllin. Hlaupið var út
Sauðárkróksbraut, yfir Hegra-
nesið, fram Blönduhlíð og
síðasti hópurinn mætti að
skólanum um 18:45 í nær
svarta myrki, ef frá eru talin
blikkandi ljós þeirra fjölda
bíla sem fylgdu hópnum
síðustu kílómetrana.
Margir lögðu áheitahlaup-
inu lið á einn eða annan hátt
og eru þeim færðar þakkir frá
nemendum. /PF
Rausnarleg gjöf áheitahlaupara
Dalla Þórðardóttir varaformaður Krabbameinsfélags Skagafjarðar og Gígja Sigurðardóttir
gjaldkeri, taka við glæsilegri gjöf 7. og 8. bekkjar í Varmahlíðarskóla. Mynd: Íris Olga