Víkurfréttir - 03.05.2018, Side 18
18 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg.
Guðmundur Tyrfingsson ehf.
Grænir & Góðir
TM HÖLLIN KEFLAVÍK
30. MAÍ
31. MAÍ
LAUGARDALSHÖLLINNI
NÆLDU Þ
ÉR Í MIÐ
Á TIX.IS
„Að mínu mati erum við samkeppnishæfir við önnur lið í deildinni,“
segir Rafn Markús, þjálfari Njarðvíkinga.
Rafn Markús Vilbergsson tók við knattspyrnuliði Njarðvíkur árið 2016 og
tryggði Njarðvík sér sæti í Inkasso-deildinni í fyrra en óhætt er að segja að
Njarðvík hafi unnið aðra deildina með yfirburðum. Rafn segir að staðan á
hópnum sé góð og segir einnig að Njarðvík ætli sér að mæta sterkir til leiks
og vera áfram í deildinni í haust. Rafn svaraði nokkrum spurningum fyrir
Víkurfréttir um undirbúningstímabilið, leikmannahópinn og sumarið.
Hvernig hefur undirbúningstíma-
bilið gengið?
Undirbúningurinn hefur gengið vel,
við höfum æft við flottar aðstæður,
spilað marga leiki og fórum í góða
æfingaferð til Hollands fyrir stuttu.
Þannig að menn koma brattir til leiks.
Hvernig er staðan á hópnum?
Staðan á hópnum er góð fyrir utan
Styrmi Gauta sem á eitthvað í land
eftir að hafa meiðst á hné í febrúar.
Það hafa verið smávægileg meiðsli
hjá nokkrum en allir verða klárir
þegar deildin hefst á laugardaginn,
auk þess kom Helgi Þór heim um
helgina, úr námi frá USA og er hann
í feiknaformi. Þannig að við erum
enn að styrkjast.
Hvert er markmið sumarsins?
Það er mikill meðbyr með okkur og
mikilvægt að nýta hann vel. Að mínu
mati erum við samkeppnishæfir við
önnur lið í deildinni og komum vel
undirbúnir til leiks. Leikmanna-
hópurinn hefur lagt mjög hart að
sér og þeir þekkja hlutverkin sín
vel. Við gerum okkur grein fyrir því
að enginn leikur verður auðveldur í
þessari deild, markmiðið er að njóta
þess að spila. Við ætlum okkur að
mæta sterkir til leiks og vera áfram
í deildinni þegar flautað verður til
leiksloka í september.
Ætlið þið að fá fleiri leikmenn áður
en leikmannaglugginn lokar?
Það hafa verið minni breytingar á
okkar leikmannahópi en hjá flestum
liðum í deildinni en við erum ánægðir
með okkar stöðu. Við lögðum áherslu
á að byggja liðið í sumar á kjarna
þeirra leikmanna sem áttu stærstan
þátt í árangri liðsins í fyrra og bæta
við nokkrum flottum karakterum og
sterkum leikmönnum til að bæta liðið,
styrkja og stækka leikmannahópinn.
Breiddin í hópnum er meiri en í fyrra
en við leggjum áfram mikla áherslu
á samheldni innan hópsins, en hún
var eitt af megineinkennum liðsins
síðasta sumar. Það verða ekki miklar
breytingar á hópnum fyrir mót.
Ykkur er spáð neðarlega og jafnvel
falli í deildinni, hvað finnst ykkur
um það?
Spáin hefur í raun engin áhrif á okkur.
Stemningin innan leikmannahópsins
er mikil þar sem menn hafa mikla trú
á eigin getu og liðsins í heild. Við erum
meðvitaðir um að þetta verður mjög
krefjandi verkefni. Við teljum okkur
vera með vel mannaðan hóp sem er
tilbúinn að takast á við þær áskoranir
sem bíða okkar í deildinni. Við höfum
langt mikla áherslu á að koma vel undir-
búnir til leiks og afsanna spánna.
Hver er leiðtoginn í hópnum og heldur
leikmönnum saman?
Andri Fannar Freysson er fyrirliði
Njarðvíkurliðsins og fer fyrir liðinu.
Hann ásamt mörgum öðrum gefa
mikið af sér og fórna sér fyrir félagana
og félagið.
Skiptir stuðningurinn máli?
Fyrir okkur Njarðvíkinga er spenn-
andi sumar framundan og vonandi
verður áfram aukning á áhorfendum á
Njarðtaksvelli en hún var mikil í fyrra.
Með betrum bættri áhorfendaaðstöðu
á Njarðtaksvelli verður enn skemmti-
legra að mæta á leiki. Ekki skemmir
fyrir að leiktímar á okkur heima-
leikjum verða mun betri en í fyrra
og auðveldara fyrir stuðningsmenn
og áhugamenn um knattspyrnu að
mæta á völlinn.
Hver er ykkar styrkleiki/veikleiki?
Við mætum vel undirbúnir til leiks.
Við erum með öfluga liðsheild og
breiðan hóp leikamanna sem eru
spenntir að selja sig dýrt og sanna
sig í Inkasso-deildinni.
„Stuðningurinn mun skipta okkur
miklu máli í sumar“
„Hópurinn er ungur og hefur spilamennskan verið vaxandi,“ segir Ray Anthony, þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í knattspyrnu
Ray Anthony Jónssson tók við kvennaliði Grindavíkur í knattspyrnu í vetur og er hann á
sínu fyrsta tímabili sem þjálfari liðsins. Margar af reynsluboltum Grindavíkur lögðu skóna á
hilluna eftir síðasta tímabil og á ungt og efnilegt lið Grindavíkur ærið verkefni fyrir höndum
í Pepsi- deildinni í sumar en liðið náði sjöunda sæti í deildinni í fyrra og hafa spekingar hafa
spáð þeim falli í sumar. Ray svaraði nokkrum spurningum fyrir Víkurfréttir um sumarið,
undirbúningstímabilið og leikmennina.
Hvernig hefur undirbúningstíma-
bilið gengið?
Við höfum verið að æfa vel í vetur
og byrjuðum að æfa um miðjan
nóvember, þær hafa verið duglegar
en fáar. Úrslitin hafa alls ekki verið
okkur í hag í æfingarleikjunum
en það hafa samt verið margir
ljósir punktar í þessum leikjum
hjá okkur.
Hvernig er staðan á hópnum?
Staðan á hópnum er fín, hópurinn
er ungur eins og ég sagði og hefur
spilamennskan verið vaxandi. Þegar erlendu
leikmennirnir okkar koma þá verðum við til-
búin í þetta verkefni og verður gaman að sjá
hversu langt ungu stelpurnar eru komnar eftir
fínan vetur.
Hvert er markmið sumarsins?
Markmiðið er að halda okkur í deildinni og
reyna að byggja upp góðan kjarna til fram-
tíðar. Þegar það tekst eftir nokkur ár, þá verður
kannski markmiðið okkar eitthvað stærra.
Ætlið þið að fá fleiri leikmenn áður en leik-
mannaglugginn lokar?
Já við ætlum að reyna finna einn til tvo leik-
menn til að styrkja hópinn en ef það tekst ekki
þá eru þessar ungu og efnilegu stelpur alveg
nógu góðar til að takast á við þetta.
Ykkur er spáð neðarlega og jafnvel falli í deild-
inni, hvað finnst ykkur um það?
Okkur er spáð neðarlega og er það alveg skiljan-
legt held ég, við misstum marga
reynda leikmenn frá síðasta tíma-
bili og eftir eru ungar og efnilegar
stelpur sem eiga eftir að standa
sig í sumar.
Er einhver leikmaður sem þú vilt
nefna sem hefur sýnt framfarir í
vetur eða bindur miklar vonir við?
Ég get ekki tekið eina út því þær
verða nokkrar sem eiga eftir að
láta ljós sitt skína, í bland við er-
lendu leikmennina sem eru bara
nokkrum árum eldri en þær.
Hver er leiðtoginn í hópnum og heldur leik-
mönnum saman?
Við erum með Ísabel sem gerir það og er hún
jafnframt fyrirliðin okkur og svo er Viviane að
koma sterk inn.
Skiptir stuðningurinn máli?
Stuðningurinn mun skipta okkur miklu máli
í sumar. Að fá fleiri til að koma á völlinn og
styðja við bakið á okkur ætti að gera lið okkar
ennþá betri.
Hver er ykkar styrkleiki/veikleiki?
Styrkleikinn okkar mun vera samvinnan, við
erum öll í þessu saman og ef við náum að virkja
allar sem eru í þessu 100% á það eftir að fleyta
okkur langt.
Veikleikarnir verða kannski að við erum ekki
með nógu margra eldri og reynslumikla leik-
menn en ég held að það eigi ekkert eftir að hrjá
okkur of mikið.
„Markmiðið er að njóta
þess að spila“