Víkurfréttir - 03.05.2018, Side 14
14 UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg.
BÍLAÞJÓNUSTA
SUÐURNESJA
(ÁÐUR LAGHENTIR) HEFUR OPNAÐ
Í GRÓFINNI 19 KEFLAVÍK,
ÞAR SEM SKIPTING VAR ÁÐUR TIL HÚSA.
BÍLAÞJÓNUSTA
S U Ð U R N E S J A GRÓFIN 19 • KEFLAVÍK • SÍMAR 456 7600 • 861 7600
Bjóðum upp á alla
r
almennar bílaviðge
rðir,
hjólbarða-, smur- o
g
varahlutaþjónustu
.
NÝTT NAFN
OG NÝR STAÐ
UR
MEÐ REYNSLU
!
VORFERÐ
Félags eldri borgara á Suðurnesjum 2018
Farin verður dagsferð um Hvalfjörð og
Borgarfjörð þriðjudaginn 29. maí n.k.
Lagt af stað frá Nesvöllum kl. 9:30 og gert ráð fyrir
að koma til baka um kvöldmat.
Hádegismatur innifalinn í verði,
sem er kr. 3.500 á mann.
Skráning og nánari upplýsingar hjá:
Margréti: 8963173 og Elínu: 8456740/4216010.
Skráningu lýkur 23. maí og þá tekið við greiðslu fyrir
ferðina, kl.16:00, að Nesvöllum.
Ljósleiðara heim til þín
Með þeirri mikilvægu
ákvörðun fyrir tíu árum
síðan að byggja upp
stærsta gagnaveraiðnað
landsins í Reykjanesbæ
var nauðsynlegt að fá
fjarskiptafyrirtæki til
að leggja ljósleiðara á
stofnleiðum. Þessa kosti
getum við nú nýtt okkur
til að tengja heimili í
Reykjanesbæ við há-
hraða netsamband með
ljósleiðara inn á hvert heimili.
Því er spáð að hvert heimili muni hafa
sex nettengd tæki á hvern íbúa strax
árið 2020. Hefðbundnir hlutir eins og
tölvur, farsímar, spjaldtölvur og nú sjón-
vörp, leikjatölvur og hljómflutningstæki
eru öll nettengd og notkun á þessum
tækjum er mest í gegnum þjónustur
á Internetinu. „Internet hlutanna“
eða Internet of Things (IoT) byltingin
er löngu hafin og enn fleiri tæki inni
á heimilum, í fyrirtækjum og stofn-
unum eru að nettengjast. Þannig eru
til dæmis ljósastýringar,
dyrabjöllur, öryggiskerfi,
þvottavélar, kaffikönnur
og ýmis heimilistæki nú
tengd við Internetið til að
gera okkur kleift að nýta
ýmiskonar þjónustur
eins og að fjarstýra, vakta
og framkvæma aðgerðir
hvaðan og hvenær sem er
yfir Internetið.
Nettengingar nútíma
heimila þurfa því að vera
afkastamiklar, áreiðanlegar og öruggar.
Alvöru ljósleiðaratengingar meira en
tífaldar hraða og afkastagetu þeirra
kopartenginga sem flest heimili nota í
dag. Á næstu tveimur árum er stefnt að
lagningu á slíkum tengingum inn á öll
heimili í Reykjanesbæ og því markmiði
ætlum við að ná. Til þess þurfa bærinn
og fjarskiptafyrirtæki að vinna saman.
Andri Örn Víðisson,
skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðis
flokksins í Reykjanesbæ.
Börnin áfram í fyrsta sæti
Öll viljum við tryggja börnum okkar farsæla framtíð. Það er þó ekki alltaf
þannig að börn hafi sömu tækifæri þegar kemur að námi, æfa íþróttir eða
stunda aðrar tómstundir. Fjárhagsstaða foreldra er mjög misjöfn en við teljum
mikilvægt að öll börn njóti sömu réttinda.
Í upphafi kjörtímabilisins var bæjar-
sjóður Reykjanesbæjar í mjög slæmri
stöðu. Eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaga var við það að taka yfir
rekstur bæjarins. Til að takast á við
fjárhagslegan vanda bæjarfélagsins var
nauðsynlegt að beita ströngu aðhaldi í
rekstri. Óhætt er að segja að núverandi
bæjarstjórn hafi tekist á við þetta verk-
efni af miklum metnaði og festu.
Gjaldfrjáls skólagögn
Þrátt fyrir kröfu um niðurskurð í
rekstri var velferð íbúa bæjarins sett í
forgang. Eitt af helstu baráttumálum
Samfylkingarinnar er einmitt velferð
barnafjölskyldna. Öll börn eiga rétt á
jöfnum tækifærum til náms. Gjaldfrjáls
skólagögn er dæmi um ákvarðanir sem
teknar voru í átt til jöfnuðar barna í
skólum Reykjanesbæjar og reyndist
sú ákvörðun mikil búbót fyrir margar
fjölskyldur.
Hvatagreiðslur þrefaldaðar
Hvatagreiðslurnar voru hækkaðar úr
9.000 kr í 28.000 kr. Hefur þetta gefið
fleiri börnum tækifæri til að stunda
íþróttir og á þessu ári voru hækkaðar
niðurgreiðslur til dagforeldra. Mikill
áhugi er á að gera enn betur í þessum
málaflokki. Þá má einnig nefna að fast-
eignaskatturinn var lækkaður til að
koma á móts við hækkandi fasteigna-
mat. Það hefur ekki síst komið sér vel
fyrir barnafjölskyldur.
Við höfum möguleika á að gera enn
betur. Höldum áfram að setja velferð
fjölskyldunnar í fyrsta sæti.
Sigurrós Antonsdóttir,
Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir, Guð
rún Ösp Theodórsdóttir og
Þórdís Elín Kristinsdóttir.
Höfundar skipa allir sæti á lista
Samfylkingarinnar og óháðra
í Reykjanesbæ
Bæta þarf Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
með nýjum lausnum
Á vormánuðum 2017
var gerð úttekt á
gæðum og öryggi
Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja, fyrir til-
stuðlan embættis
Landlæknis.
Niðurstöðurnar voru á
þá leið að Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
væri í miklum vanda
vegna skorts á stefnumörkun, engin
heildræn gæðastefna né umbótastarf
ætti sér stað innan veggja stofnunar-
innar. Ekki hafði verið gerð þjónustu-
könnun síðan árið 2012. Fagmönnun
er alls ekki góð, biðtími eftir læknum
of langur og ekki hægt að bjóða upp á
fasta lækna, biðtími fyrir þjónustu frá
geðteymi væri óásættanlega langur og
teymið ekki nógu vel mannað fagað-
ilum svo eitthvað sé nefnt. Landlæknir
lagði til eða hvatti framkvæmdastjórn
HSS til að setja fram skýra stefnu-
mörkun og tímasetta aðgerðaráætlun
til að sporna við þessum vanda. Þá að
vinna skipulega að því að stytta bið-
tíma og aðgengi að læknisþjónustu á
dagvinnutíma. Að endurskipuleggja
verkferla og taka upp teymisvinnu.
Einnig að grípa til að-
gerða hið fyrsta í því
skyni að styrkja geð-
teymið faglega.
Hver er staðan nú ári
síðar? Íbúar hafa alla
vega ekki fundið fyrir
því að eitthvað hafi
breyst því enn tekur
of langan tíma að fá
læknisþjónustu á dag-
vinnutíma og gæðastefna er ekki
sýnileg.
Hvað ef Reykjanesbær tæki yfir rekstur
HSS? Þá væri hægt að fara í heildstætt
ferli og endurskipulagningu með hlið-
sjón af skýrslunni. Nú er heilsugæslan
og aðrar sjúkrastofnanir einkareknar
á nokkrum stöðum á landinu, það er
gerður stofnana samningur frá ríkinu
um einkareksturinn þar sem fjármagn
fylgir frá ríkinu. Væri hægt að snúa
þessu ömurlega ástandi við, sem við
íbúar stöndum frammi fyrir er kemur
að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Árin í kringum 1987 áttum við frábæra
fæðingardeild þar sem konur flykktust
að, alls staðar af landinu til að fæða
börn sín á fæðingardeild HSS vegna
þess að fæðingardeildin bauð upp á
nýjungar í fæðingum og sængurlegu.
Væri það ekki frábært ef hægt væri
að bjóða upp á slíka þjónustu í fram-
tíðinni þar sem konur gætu fætt börn
sín í heimabyggð þar sem öryggi þeirra
væri tryggt. Væri ekki frábært að við
gætum boðið upp á faglega og góða
þjónustu á HSS. Væri það ekki frábært
ef við ættum fastan heimilislækni.
„Ég á mér draum,“ sagði Martin Luther
King og það er gott að eiga drauma
því þar fæðast hugmyndir sem gætu
kannski leitt til lausna á einhverju
vandamáli til framþróunar. Ég er líka
viss um að íbúar hér í Reykjanesbæ
eiga sér draum um betri heilsugæslu
hér á Suðurnesjum. Draumar geta ræst
ef fólk stendur saman, hefur kjark og
þor til að stíga út fyrir boxið og horfa
á framtíðarsýn með framtakssemi.
Leita þarf allra lausna til þess að bæta
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Við
Píratar viljum því leggja þessa óvenju-
legu stefnu okkar upp á borðið um að
kanna hvort Reykjanesbær gæti tekið
yfir rekstur HSS.
Margrét S Þórólfsdóttir
skipar 3. sæti Pírata í Reykjanesbæ
Af fólki og flokkum
„Þú veist að fólk
kemur til með að
teng ja Framsókn
við þína persónu-
legu ímynd,“ sagði
góð vinkona mín
þegar ég sagði henni
að ég hyggðist taka
að mér verkefni
sem kynningastjóri
Framsóknarflokksins
fyrir komandi bæjar-
stjórnarkosningar. Já, ég gerði mér
fyllilega grein fyrir því. Ég m.a.s. gerði
oddvita flokksins ljóst að ég myndi
senda frá mér opinbera tilkynningu
á vefsíðunni minni og Facebook þar
sem fram kæmi að þetta væri ekki
stuðningsyfirlýsing við flokkinn sem
slíkan. Ég vil að það sé á hreinu að ég
hef aldrei verið flokkspólitísk og sé
ekki fram á að það breytist nokkru
sinni. Og svo er þetta jú líka vinnan
mín.
Ég er þó þannig gerð að ég tek aldrei að
mér markaðssetningu á einhverju sem
ég hef ekki trú á. Og það er nefnilega
ekki flokkurinn sem slíkur sem ég hef
trú á. Ég hef trú á því fólki sem skipar
efstu sæti listans. Í sveitarstjórnar-
málum sérstaklega skiptir fólk meira
máli en flokkar. Maður er einfaldlega
að kjósa fólk. Persónulega finnst mér
löngu orðið tímabært að koma á per-
sónukjöri, en það er önnur saga.
Það mikilvæga við þennan hóp fólks
sem þarna er í forystu er að þau eru
velflest ný í stjórnmálum og því ekki
sýkt af þessari pólitísku veiki sem virðist
einkenna þá sem hafa verið í henni. Og
ég hef ekki trú á að þau muni sýkjast,
því þau tilheyra nýrri kynslóð. Kyn-
slóð breytinga. Kynslóð heiðarleika
og gegnsæis. Kynslóð sem trúir því að
flóðið lyfti öllum bátum og vinnur með
hagsmuni heildarinnar
að leiðarljósi. Kynslóð
sem að hlustar, tekur
rökum, skoðar allar
hliðar á málunum,
kann að vinna með
ólíku fólki með ólíkar
skoðanir. Kynslóð
sem kann gagnrýna
hugsun og fylgir ekki
foringjum og stefnum
í blindni.
Gagnrýnin hugsun er nauðsynleg í öllu
í lífinu. Það á líka við bæði þegar maður
starfar í pólitík en ekki síst þegar maður
kýs. Sem kjósandi þarf maður að skoða
málin gaumgæfilega, vega og meta en
ekki falla í þá gryfju að kjósa bara það
sem maður hefur alltaf kosið, eða það
sem pabbi kýs eða jafnvel afi. Maður
verður að hugsa sjálfur.
Það er kominn tími á nýtt blóð, ný
vinnubrögð og nýja tíma. Endurnýjun
er bæði holl og góð. Það er hollt að
fá inn fólk sem kann ekki reglurnar,
hefur aldrei leikið leikinn, því öðruvísi
breytast reglurnar og leikurinn aldrei.
Reynsla verður ekki mæld í árum heldur
lærdómi. Þú getur stundað sama starfið
í 40 ár en samt í raun bara haft eins árs
reynslu 40 sinnum. Og hvað segir það
um manns innri mann?
Þetta snýst ekki um flokka heldur fólk.
Það fólk sem þú treystir til að vinna
fyrir okkur öll. Þess vegna var ég til-
búin til að taka þá áhættu að tengja
mína ímynd við pólitík í þessu tiltekna
verkefni. Því ég veit að þessi hópur fram-
bjóðenda getur gert það sem þarf fyrir
bæinn okkar.
Þóranna K. Jónsdóttir er markaðsráð
gjafi og kynningarstjóri Framsóknar
flokksins í Reykjanesbæ fyrir sveitar
stjórnarkosningar 2018
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN 898 2222