Víkurfréttir - 03.05.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 3. maí 2018 // 18. tbl. // 39. árg.
Rödd unga fólksins
býður fram í Grindavík
Rödd unga fólksins er nýr listi í Grindavík sem býður fram fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar, þar verður vettvangur fyrir ungt fólk til þess að
taka sín fyrstu skref í bæjarmálum, óháð stjórnmálaskoðunum og einn-
ig tækifæri til þess að læra inn á bæjarmálin án þess að svara fyrir sögu
rótgróinna flokka. Þetta segir í tilkynningu frá framboðinu. Þar kemur
einnig fram að þau sjái þetta sem hreyfingu til þess að málefni ungs fólks
og þeirra sýn komist á borðið.
„Fyrir jól hittumst við nokkur úr sama
árgangnum og ræddum bæjarmál.
Eftir miklar samræður komumst við
að því að við höfðum sterkar skoðanir
á ákvörðunartöku og málefnum sem
snéru að okkar bæjarfélagi. Vorum öll
sammála um að það væri gott að geta
haft áhrif og tekið þátt en enginn af
okkur var tilbúinn til þess að setjast
á lista hjá núverandi stjórnmála-
flokkum. Svo við ákváðum að stofna
flokk til sveitarstjórnarkosninga 2018
og fengum fullt af flottu fólki með
okkur sem gerðu flokkinn að veru-
leika,“ segir Inga Fanney Rúnarsdóttir,
formaður flokksins.
Helga Dís Jakobsdóttir skipar efsta sæti
listans, Helga Dís er 27 ára og hefur lokið
viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, hún
er mastersnemi í HÍ í þjónustustjórnun.
Helga Dís vinnur hjá Höllu þar sem hún
sér m.a. um bókhald. „Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á pólitík, við ákváðum
að stofna flokk fyrir ungt fólk til þess
að taka sín fyrstu skref í pólitík, óháð
rótgrónum flokkum,“ segir Helga Dís.
Helga segir einnig að málefni ungs fólks
og raddir þeirra skipti miklu máli þar
sem það sé oft að gera upp við sig hvort
það vilji setjast að í Grindavík eða ekki.
„Ég legg mikla áherslu á að Grindavík
verði þjónustumiðað bæjarfélag og að
öll starfsemi og umgjörð bæjarins verði
þjónustumiðuð.“
Sævar Þór Birgisson, hagfræðinemi
skipar annað sæti listans. Hann er 26
ára nemi við hagfræðideild Háskóla Ís-
lands og starfar sem umsjónarkennari í
Háaleitisskóla á Ásbrú. Sævar segist vera
mjög spenntur fyrir komandi tímum
og hefur mikinn áhuga á því að gera
góðan bæ betri.
Listinn í heild sinni:
1. Helga Dís Jakobsdóttir, viðskipta-
fræðingur og mastersnemi í
þjónustustjórnun.
2. Sævar Þór Birgisson, hagfræði-
nemi.
3. Sigríður Etna Marinósdóttir,
tómstunda- og félagsmála-
fræðingur.
4. Bjarni Þórarinn Hallfreðsson,
sagnfræðingur.
5. Lilja Ósk Sigmarsdóttir, tækni-
teiknari.
6. Ingi Steinn Ingvarsson, fram-
haldsskólanemi.
7. Inga Fanney Rúnarsdóttir, stuðn-
ingsfulltrúi.
8. Viktor Bergmann Brynjarsson,
námsmaður.
9. Alexandra Marý Hauksdóttir,
leiðbeinandi við leikskólann Laut
og nemi í leikskólakennarafræði.
10. Kolbrún Dögg Ólafsdóttir, fram-
haldsskólanemi.
11. Dagbjört Arnþórsdóttir, fram-
haldsskólanemi.
12. Rósey Kristjánsdóttir, uppeldis-
og menntunarfræðingur og um-
sjónarkennari.
13. Milos Jugovic, knattspyrnu-
þjálfari.
14. Kári Hartmannsson, eldri
borgari.
Þjónustan er opin öllum
Allir ættu að fara reglulega
til fótaaðgerðafræðings
Býð uppá naglaspöng án skurðaðgerðar og margt fl.
Verið hjartanlega velkomin!
FÆTURNIR
eru mikilvægasta faratækið!
Ásta Nordegulen Þórarinsdóttir
fótaaðgerðafræðingur hjá Snyrti Gallerý
Hafnargata 27a - 2. hæð. Sími 699 1826 og 781 9696
Einnig birt á
www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálfum,
sem hér segir:
Norðurvellir 42, Keflavík, fnr.
209-0193 , þingl. eig. Sigvaldi Arn-
oddsson, gerðarbeiðandi Lands-
bankinn hf., þriðjudaginn 8. maí
nk. kl. 09:00.
Hafnargata 24, Sveitarfélagið
Vogar, fnr. 209-6405 , þingl. eig.
Anna Gísladóttir, gerðarbeiðandi
Borgun hf., þriðjudaginn 8. maí
nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
30. apríl 2018,
Ásgeir Eiríksson,
staðgengill
sýslumanns.
UPPBOÐ
Auglýsing vegna sveitarstjórnarkosninga 2018
Skil á framboðslistum
Almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram þann 26. maí 2018.
Frestur til að skila framboðslistum er til kl. 12:00 á hádegi laugardaginn
5. maí 2018. Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar veitir framboðslistum móttöku á
bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 frá kl. 10:00 til 12:00 á hádegi
laugardaginn 5. maí 2018.
Mikilvægt er að skila framboðsgögnum á tölvutæku formi.
Athygli er vakin á lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998
með síðari breytingum, sérstaklega 21. gr., 22. gr. og 23. gr.
Jafnframt er vísað til upplýsinga og leiðbeininga á kosningavef dóms-
málaráðuneytisins, www.kosning.is, undir sveitarstjórnarkosningar 2018.
Kosið er í Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS). Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa
aðsetur í FS í stofu 221. Netfang hennar er yfirkjorstjorn@reykjanesbaer.is
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar,
Hildur Ellertsdóttir, Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir og Kristján Friðjónsson
REYKJANESBÆR
REY KJANESBÆR
Jóngeir Hjörvar leiðir L-listann í Vogum
L-listinn, listi fólksins, býður fram í Sveitarfélaginu Vogum í þriðja skipti
við sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí 2018 en í dag hefur L-listinn einn
bæjarfulltrúa.
Helsta markmið L-listans er að vinna
að hag íbúa í Vogum og gera gott
mannlíf betra. Með stækkun bæjar-
ins og fjölgun íbúa þarf að huga að
stækkun leik- og grunnskóla. Skoða og
meta þarf sérstaklega hvaða þýðingu
breytingar á íbúasamsetningu hafa
fyrir sveitarfélagið. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá L-listanum. „Við
viljum fullgilda barnasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna í Vogum sem felst
m.a. í að námsgögn í grunnskóla verði
án kostnaðar fyrir börnin. Tekju-
tengingu afsláttar fasteignagjalda
fyrir tekjulága einstaklinga þarf að
hækka. Einnig viljum við skoða hvað
er hægt að gera í viðhaldi hafnarinn-
ar í Vogum,“ segir í tilkynningunni.
L-listinn, listi fólksins 2018
1. Jóngeir Hjörvar Hlinason, hag-
fræðingur og bæjarfulltrúi.
2. Rakel Rut Valdimarsdóttir,
grunn- og framhaldsskólakenn-
ari.
3. Eðvarð Atli Bjarnason, pípu-
lagningarmaður.
4. Páll Ingi Haraldsson, leigubíl-
stjóri.
5. Kristinn Björgvinsson, þjónustu-
maður.
6. Anna Karen Gísladóttir, starfs-
maður á leikskóla.
7. Gunnar Hafsteinn Sverrisson,
tæknimaður.
8. Eva Rós Valdimarsdóttir, bókari.
9. Jakob Jörunds Jónsson, skip-
stjóri.
10. Ásdís Dröfn Valdimarsdóttir,
skólaliði.
11. Tómas Örn Pétursson, starfs-
maður Kölku Vogum.
12. Elín Ösp Guðmundsdóttir,
skólaliði.
13. Ryszard Kopacki, trésmiður.
14. Hanna Sigurjóna Helgadóttir,
matráður.
Björn Sæbjörnsson leiðir D-lista í Vogum
D listi Sjálfstæðismanna og óháðra mun bjóða fram í annað skipti til sveita-
stjórnarkosninga í Vogum í komandi kosningum. Í síðustu kosningum náði
framboðið við inn tveimur kjörnum fulltrúum og stefnir að því að gera en
betur núna, segir í tilkynningu.
„Á listanum er góð blanda af hæfu
fólki á breiðu aldursbili. Ánægjulegt
er hversu mikið af ungu fólki var til-
búið að ganga til liðs við okkur og
taka á sig ábyrð,“ segir jafnframt í
tilkynningunni.
D - listi Sjálfstæðismanna og
óháðra
1. Björn Sæbjörnsson, bæjarfulltrúi
/ sölu- og verslunarstjóri
2. Sigurpáll Árnason, verkefnastjóri
3. Andri Rúnar Sigurðsson, fisk-
eldisfræðingur
4. Anna Kristín Hálfdánardóttir,
nemi í hugbúnaðarverkfræði
5. Jóna Kristbjörg Stefánsdóttir,
flugverndarstarfsmaður
6. Kristinn Benediktsson, vara-
bæjarfulltrúi / framkvæmda-
stjóri
7. Sigurður Árni Leifsson,vara-
bæjarfulltrúi/ söluráðgjafi
8. Drífa Birgitta Önnudóttir, félags-
ráðgjafi
9. Hólmgrímur Rósenbergsson, bif-
reiðastjóri
10. Sigurður Gunnar Ragnarsson,
kerfisfræðingur
11. Hanna Stefanía Björnsdóttir,
starfsmaður á leikskóla
12. Óttar Jónsson, skipstjóri
13. Sigríður A. Hrólfsdóttir, bókari
14. Reynir Brynjólfsson, eldri
borgari
FRÉTTAVAKT
ALLAN SÓLARHRINGINN
898 2222