Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 1
M Á N U D A G U R 3 0. O K T Ó B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 255. tölublað 105. árgangur
SKÚTAN Í RAUN
FLJÓTANDI
FJALLAKOFI MEÐ KEPPNISRÉTT Á EM
ERU VETTVANGUR
LISTRÆNNA
GJÖRNINGA
HRAFNHILDUR LÚTHERSDÓTTIR ÍÞRÓTTIR TÖLVULEIKIR 35BÚBBI FRÁ ÍSAFIRÐI 12
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann-
esson, hefur boðað alla forustumenn
flokkanna, sem náðu kjöri til Alþing-
is um helgina, til fundar við sig á
Bessastöðum í dag.
Logi Már Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, telur nýja ríkis-
stjórn núverandi stjórnarandstöðu-
flokka vera í spilunum. Þá telur hann
að Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, eigi að fá stjórnar-
myndunarumboðið.
„Það myndar ágætis grunn fyrir
ríkisstjórn hvort heldur sem við er-
um fjórir flokkar eða tökum ein-
hvern með okkur í það samstarf,“
segir Logi.
„Traust ríkisstjórnar er ekki mælt
í fjölda flokka eða í þingstyrk,“ segir
Katrín Jakobsdóttir, spurð hvort
hún treysti sér til að leiða ríkisstjórn
núverandi stjórnarandstöðuflokka,
eða svokallaða VSBP-stjórn.
„Mér finnt það skynsamlegt að við
förum yfir það í okkar herbúðum
hvort við metum það sem vænlegan
kost,“ segir Katrín.
Framsóknarflokkurinn er í lykil-
stöðu, að sögn Sigurðar Inga Jó-
hannssonar, formanns flokksins, en
að hans sögn horfa kjósendur til
flokksins sem bæði kunni og geti
starfað í ríkisstjórn.
Átta flokkar taka sæti á Alþingi
eftir yfirstandandi kosningar og ljóst
að þröng verður á þingi. Helgi Bern-
ódusson, skrifstofustjóri Alþingis,
segir að fjöldi þingflokka skapi
vandamál og kalli á breytingar á
húsakynnum Alþingis.
Vilji fyrir viðræðum
stjórnarandstöðuflokka
Katrín óhrædd við að
leiða fjölflokkastjórn
Morgunblaðið/Eggert
MKosningar »2, 4, 6, 8, 10, 11, 14,
15, 16, 17 og 20
Húsakynnum þingsins
breytt vegna fjölda flokka
Allir formenn til Bessa-
staða á fund forseta í dag
Leiðtogar vinstriflokkanna féllust í faðma rétt áður en stigið var í myndver á kosninganótt en bæði Logi Már Ein-
arsson, formaður Samfylkingarinnar, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs,
geta vel við unað. Báðir flokkar juku fylgi sitt í kosningunum. Það dugar þó hvorki til myndunar tveggja né þriggja
flokka vinstristjórnar. Fundir þessara og fleiri leiðtoga gætu því orðið ansi margir á næstu dögum og vikum.
Katrín og Logi stungu saman nefjum á kosninganótt
Kjörsókn var ívið betri í alþingis-
kosningunum á laugardaginn en fyr-
ir ári. Alls kusu 81,2 prósent nú en
79,2 prósent fyrir ári. Eingöngu tólf
nýir þingmenn taka sæti á Alþingi í
fyrsta sinn, en það eru þónokkuð
færri en fyrir ári. Eftir þingkosning-
arnar í fyrra kom 31 nýr þingmaður
til starfa.
Ríkisstjórnarflokkarnir tapa 12
þingmönnum, Sjálfstæðisflokkur
tapar 5 þingmönnum og er með 16
þingmenn, en kosningin er sú næst-
versta í sögu flokksins.
Björt framtíð tapar 4 þingmönn-
um og dettur alveg út af þingi og
Viðreisn tapar 3 þingmönnum og er
með 4.
Framsóknarflokkur heldur sínum
8 þingmönnum, Píratar fá 6 þing-
menn, Vinstri græn bæta við sig ein-
um og fá 11, Samfylking fer úr 3 í 7
þingmenn. Flokkur fólksins fær 4 og
Miðflokkurinn 7 menn á þing.
A 1,2%
B 10,7%
C 6,7%
D 25,2%
F 6,9%
M 10,9%
P 9,2%
S 12,1%
V 16,9%
Fylgi flokkanna
0 8
4
16
47
6
7
11
Fjöldi
þingmanna
Aðrir flokkar eða framboð 0,3%
Nýliðun
minni en
fyrir ári
Stjórnarflokkar
missa allir þingmenn
Björt framtíð þarf á naflaskoðun
að halda að mati Óttars Proppé,
formanns flokksins. Kveðst hann
sjálfur sem formaður ekki vera
undanskilinn þeirri skoðun, en
flokkurinn hvarf af þingi í alþing-
iskosningum um helgina. Fékk
flokkurinn einungis 1,22% atkvæða
og missti alla fjóra þingmenn sína.
Í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Óttarr vera í stjórnmálum til að
gera gagn, en ekki út frá sinni eigin
persónu. „Ég mun eiga samtal við
mitt fólk og meta hvar maður gerir
mest gagn,“ segir hann.
„Við höfum auðvitað verið í þró-
un frá því flokkurinn var stofnaður,
en þetta þýðir auðvitað naflaskoð-
un og að við þurfum að skoða okkar
mál,“ segir Óttarr.
Björt framtíð hafði hafið undir-
búning fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingar á næsta ári, þegar síðasta rík-
isstjórn liðaðist í sundur. Óttarr
segist óviss um hvort niðurstaðan á
landsvísu hafi áhrif á fylgið í
sveitarstjórnarstarfinu. »10
Formaður BF segir flokkinn þurfa á nafla-
skoðun að halda eftir hvarf hans af þingi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fylgishrun Björt framtíð missti fjóra al-
þingismenn sína í kosningunum.
Konum á þingi fækkar í kjölfar
kosninganna um helgina, þær verða
38,1% í stað 47,6% áður og hefur
hlutfallið ekki verið jafn lágt í tíu ár.
Hlutfallið er afar mismunandi eftir
flokkum og kjördæmum, hæsta
hlutfall kvenna er í þingflokki
Framsóknarflokksins og lægst er
það í Miðflokknum, 14%. Gunnar
Bragi Sveinsson, þingmaður Mið-
flokksins, segir æskilegt að kynja-
hlutföllin séu sem jöfnust, en erf-
iðara hafi verið að fá konur en karla
í efstu sætin. Hann segist hafa upp-
lifað svipaða tregðu kvenna í gegn-
um tíðina á stjórnmálaferli sínum.
„Við erum meira en tilbúin að leita
allra leiða til að jafna þetta,“ segir
hann. »20
Konur ekki jafn fáar frá 2007
Hlutfall kvenna í þingflokkum
Eftir kosningarnar 2017
B Framsóknar-
flokkur
C Viðreisn D Sjálfstæðis-
flokkurinn
F Flokkur
fólksins
M Miðflokkurinn P Píratar S Samfylkingin V Vinstri græn
62,5%
50%
33%
14%
43% 55%
25% 25%
Þingkonum fækkar úr 47,6% í 38,1% Flestar í Framsókn