Morgunblaðið - 30.10.2017, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
LISSABON
16. nóvember í 3 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
64.995
m/morgunmat
Borgarferð til
KOSNINGAR 2017
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
„Ég þakka þetta frábærum stuðn-
ingsmönnum og fólkinu okkar öllu,“
segir Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, spurð um ástæður mikillar
fylgisaukningar flokksins á laug-
ardag. Þegar talið hafði verið upp úr
kjörkössunum mældist flokkurinn
með 6,88% atkvæða, en hafði í nýj-
ustu könnunum mælst utan þings,
þ.e. með minna fylgi en 5%. Flokk-
urinn fékk fjóra þingmenn kjörna.
Framsaga Ingu í leiðtogaumræð-
um á RÚV degi fyrir kosningar vakti
athygli og hafa greinendur m.a. vís-
að til tilfinningaþrunginnar ræðu
hennar þegar rætt hefur verið um
fylgisaukningu flokksins. Aðspurð
segist Inga alls óvíst hvort orð henn-
ar á föstudag hafi aukið fylgið.
„Ég veit ekkert um það, það eru
vangaveltur sem við fáum aldrei
svar við. Hins vegar fengum við að
sjá að það er ekki allt gull sem glóir í
þessum skoðanakönnunum. Daginn
fyrir kosningar birtist skoðana-
könnun sem var okkur mjög óhlið-
holl, þar vorum við með 4,2 prósent
að mig minnir,“ segir hún.
Inga telur best ef skoðanakann-
anir yrðu ekki birtar síðustu vikuna
fyrir kjördag. „Ég hitti nokkra sem
treystu sér ekki til að kjósa flokkinn
vegna þess að við vorum undir fimm
prósentunum. Þetta hefur áhrif á
suma, því miður,“ segir hún.
„Gjörbreytt landslag“
Oddvitar Flokks fólksins í öllum
kjördæmum báru saman bækur sín-
ar í gærkvöldi, en fjórir þeirra eru
nú þingmenn. „Við þurfum að skoða
stöðu okkar og gjörbreytt landslag,“
segir Inga. „Markmiðið er að byggja
flokkinn aftur upp. Við eignuðumst
lítið barn í fyrra, Flokk fólksins og
hann vex, dafnar og styrkist. Því
fleiri sem hoppa á vagninn með okk-
ur því öflugri verður hann. Við þurf-
um að sýna að við séum traustsins
verð,“ segir Inga Sæland.
Flokkur fólksins tók stökk
Inga Sæland vill engar kannanir í vikunni fyrir kjördag
„Þurfum að sýna að við séum traustsins verð“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sigur Karl Gauti Hjaltason, t.v., nýr
þingmaður fyrir Flokk fólksins.
Miðflokkurinn, nýstofnaður flokkur
Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, kemur nýr inn á þing með
10,9% fylgi á landsvísu og fær sjö
menn kjörna á þing. „Ég er alveg
himinlifandi yfir fylgi flokksins og
óneitanlega er skemmtilegt að það
hafi komið á daginn að þetta sé
mesta fylgi sem nýtt framboð hefur
fengið, þó það muni ekki miklu á
okkur og Borgaraflokknum,“ segir
Sigmundur.
Að sögn Sigmundar var ná-
kvæmt fylgi Miðflokksins 10,87%
en fylgi Borgaraflokksins í kosn-
ingunum árið 1987 var 10,86%.
„Það er sérstaklega gaman í ljósi
þess að það hafa aldrei verið jafn
margir flokkar í þinginu þannig að
samkeppnin hefur ekki verið eins
mikil áður og við höfðum bara
nokkrar vikur til að gera allt til-
búið.“
Fyrir utan þingstörf og möguleg-
ar stjórnarmyndunarviðræður bíð-
ur Miðflokksins jafnframt mikil
vinna við skipulag flokksins en til
að mynda hefur enn enginn vara-
formaður verið kjörinn. „Nú tekur
við heilmikil vinna við að byggja
upp innviði flokksins. Við höfum
ekki haft hundrað ár til að undir-
búa okkur eins og gamli flokkurinn
minn. Þannig að það er að ýmsu að
hyggja núna í framhaldinu og það
verður vonandi skemmtileg vinna
því þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt fram að þessu.“
Fyrsti þingflokksfundur Mið-
flokksins verður haldinn í Alþingis-
húsinu kl. 9:15 í dag. „Það er til-
hlökkunarefni að hitta hópinn.
Hann hefur ekki komið allur saman
síðan á stofnfundinum,“ segir Sig-
mundur. gislirunar@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Himinlifandi Sigmundur hlakkar til
að hitta þingflokkinn í dag.
Slógu
metið
naumlega
Miðflokkurinn
fékk sjö menn kjörna
Gísli Rúnar Gíslason
Jón Birgir Eiríksson
Flokkur fólksins, Miðflokkur og
Samfylking eru þeir flokkar sem
bættu mestu fylgi við sig í þingkosn-
ingunum á laugardaginn. Sá fyrst-
nefndi komst yfir fimm prósenta
þröskuldinn eftir að hafa mælst utan
þings í skoðanakönnunum fram að
kjördegi. Samfylkingin rúmlega tvö-
faldaði fylgi sitt frá því fyrir ári þeg-
ar flokkurinn beið afhroð.
Framsóknarflokkurinn vann
varnarsigur og hélt sínum átta þing-
mönnum þrátt fyrir klofningsfram-
boð Miðflokksins. Á hinn bóginn töp-
uðu sjálfstæðismenn og Píratar
nokkru fylgi.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, gaf Morgun-
blaðinu ekki kost á viðtali í gær um
niðurstöður kosninganna. Í sjón-
varpsfréttum RÚV í hádeginu í gær
sagðist hann ánægður með að flokk-
urinn hefði mest fylgi í öllum kjör-
dæmum, en harmaði að í þingflokkn-
um hefði konum og ungum
þingmönnum fækkað.
Hefði kosið meira fylgi
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstrihreyingarinnar græns fram-
boðs, var ánægð með niðurstöður
kosninganna líkt og aðrir flokkar
sem náðu á þing. „Þetta er annar
besti árangurinn sem hreyfingin hef-
ur náð frá stofnun. Auðvitað var fólk
með væntingar, en ég sá frá byrjun
að það var gríðarleg hreyfing á
fylginu í könnunum. Þó að maður
hefði kosið að fá meira, þá vissi ég að
þetta gat farið hvernig sem var,“
sagði hún.
„Við erum annar stærsti flokkur-
inn og erum í sókn. Svo er mikilvægt
að halda því til haga að bæði við og
Samfylking, þessir hefðbundnu
vinstriflokkar, bætum við okkur.“
Svekkjandi jöfnunarkerfi
Niðurstöður kosninganna leggjast
vel í Loga Má Einarsson, formann
Samfylkingarinnar, en flokkurinn
bætti við sig fjórum þingmönnum.
„Þetta er náttúrlega rúmlega tvö-
földun á fylgi hjá okkur sem skapar
góðan grunn til að byggja endur-
reisnina betur á. Það verður nokk-
urra missera verkefni.“
Athygli hefur vakið að fylgi Sam-
fylkingarinnar var 1,4 prósentustig-
um meira en fylgi Framsóknar-
flokksins sem fékk þrátt fyrir það
einum fleiri þingmenn. „Auðvitað er
það pínu svekkjandi að vera þriðji
stærsti flokkurinn í prósentum og
horfa á eftir einum manni yfir til
flokks sem er tæpum tveimur pró-
sentustigum minni. En þannig er
bara kerfið okkar, þannig að við er-
um fjórði stærsti flokkurinn að þing-
styrk en þriðji stærsti í fylgi,“ segir
Logi og bætir við að það hafi ýmsar
hliðarverkanir í för með sér þar sem
til að mynda framlög ríkisins til
stjórnmálaflokka og röð ræðumanna
í fyrirspurnartímum fari eftir fjölda
þingmanna.
Höfðaði til nýrra kjósenda
Sigurður Ingi Jóhannsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, kveðst
ánægður með niðurstöður kosning-
anna. „Við erum ótrúlega ánægð með
niðurstöðuna, ég er stoltur af mínu
fólki sem sneri erfiðri stöðu á tveimur
vikum. Við höfum samheldinn, öflug-
an þingflokk sem aldrei fyrr,“ sagði
hann.
Sigurður Ingi segir kjósendur
treysta flokknum. „Ég held að við
höfum náð til margra nýrra kjós-
enda, annars vegar þeirra sem voru
ánægð með málin sem við lögðum
áherslu á, heilbrigðismál, sam-
göngu- og menntamál. Svo held ég
líka að frambjóðendurnir og forysta
flokksins sé fólk sem kjósendur
treysta. Þeir vita að við kunnum að
vinna og erum heiðarlegt og traust
fólk, það er ákall eftir slíku í íslensk-
um stjórnmálum.“
Áherslur Pírata nú á dagskrá
„Það er missir að þessum þing-
mönnum okkar en á sama tíma sýna
kosningarnar að við séum komin til
að vera, kjörin á þing í þriðja skipti
og erum einn af langlífustu nýju
flokkunum sem eru ekki fjórflokk-
urinn,“ segir Þórhildur Sunna Æv-
arsdóttir, aðalsamningamaður Pí-
rata. „Okkar markmið í stjórn-
málunum er að nást með því að koma
þeim á dagskrá hjá öðrum flokkum
líka. Við sjáum núna að margir flokk-
anna tala fyrir gagnsæi, upplýsinga-
frelsi, tjáningarfrelsi og nýja stjórn-
arskráin er líka komin á dagskrá.
Nútímalegri og betri stjórnmál eru
komin í umræðuna,“ segir hún.
Tala máli frjálslyndis
Fylgi Viðreisnar var ívið lægra en
nýjustu skoðanakannanir gerðu ráð
fyrir eða 6,7% á landsvísu. Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir, formaður
Viðreisnar, segist vera ánægð með
kosningarnar þrátt fyrir að hún sjái
á eftir þremur þingmönnum. „Það er
bara ljómandi hugur í manni eftir
niðurstöðurnar. Sérstaklega þegar
maður horfir á það hvernig þingið er
að breytast þá er mikilvægt að Við-
reisn hafi fjóra þingmenn á þingi
sem tala máli frjálslyndis, alþjóða-
hyggju og hafi kjark til að fara í
ákveðnar breytingar í samfélaginu.“
Spurð hvernig henni lítist á að hafa
átta flokka á Alþingi segir Þorgerður
að henni lítist ekkert illa á það.
„Kjósendurnir fengu valið, þetta
er niðurstaðan og það er stjórnmál-
anna að vinna úr því. Ég er ekkert
svartsýn á þetta, en það er alveg
ljóst að það er mjög stór og mikill
hugmyndafræðilegur ágreiningur
annars vegar af hálfu Viðreisnar og
hins vegar af hálfu annarra flokka,
þá ekki síst nýju flokkanna sem eru
að koma inn.“
Stjórnmálaleiðtogarnir
flestir sáttir með sinn hlut
Næstbesti árangur VG frá stofnun Framsókn hafi náð til nýrra kjósenda
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Iðnó Stuðningsmenn Vinstri grænna fögnuðu næstbesta árangri flokksins
frá stofnun en hreyfingin sem er næststærst á landsvísu bætti við sig manni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grand Sjálfstæðismenn fylgdust með kosningavökunni á Grand Hotel í
Reykjavík en flokkurinn sem er stærstur á landsvísu missti fimm þingmenn.