Morgunblaðið - 30.10.2017, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
rsk@rsk.is
Nánari upplýsingar á rsk.is
Álagningu opinberra gjalda
á lögaðila árið 2017 er lokið
Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef
ríkisskattstjóra á rsk.is og skattur.is.
Álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á
viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega
auglýstum stöðum dagana 30. október til 13. nóvember 2017
að báðum dögummeðtöldum.
Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem
álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 29. desember 2017.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt 98. gr. laga nr. 90/2003.
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:0
442 1000
KOSNINGAR 2017
telur líklegastan til að mynda ríkis-
stjórn umboð og eða formanni
stærsta stjórnmálaflokksins.“
Birgir telur að það velti á því hver
fái umboðið hvort hér verði hægri
eða vinstri miðjustjórn en möguleik-
arnir séu óvenjumargir. Stutt sé síð-
an formenn flestra flokkanna áttu í
viðræðum og því þurfi ekki að byrja
málefnaviðræður frá grunni.
Eva Heiða segir engan flokk
standa með pálmann í höndum en
Miðflokkurinn og Flokkur fólksins
megi vel við una og Samfylkingin
hafi bætt töluvert við sig.
„Nýju flokkarnir eru sigurvegar-
arnir. Endurkoma Samfylkingar-
innar er glæsileg og Vinstri græn
komu vel út,“ segir Birgir.
Einlægni Ingu skilaði árangri
Birgir og Eva Heiða telja það ekki
ólíklegt að framganga Ingu Sæland,
formanns Flokks heimilanna, í kapp-
ræðum RÚV á föstudaginn hafi átt
sinn þátt í góðri útkomu flokksins.
„Inga var einlæg og ástríðufull og
hún sýndi meiri tilfinningar en
stjórnmálamenn almennt gera. Það
má ekki gleyma því að flokkurinn
mældist með 8-10% í upphafi kosn-
ingabaráttunnar en missti fylgið um
tíma. Flokknum tókst að koma bar-
áttumálum sínum fyrir þá sem höll-
um fæti standa á dagskrá á loka-
metrunum,“ segir Eva Heiða. Birgir
segir að Inga hafi sýnt raunverulega
umhyggju fyrir þeim sem bágast
standa og það hafi fallið í góðan jarð-
veg.
Óþarflega almenn
Að mati Birgis vann Sjálfstæðis-
flokkurinn varnarsigur en hart var
sótt að flokknum og Eva Heiða segir
Sjálfstæðifslokkinn fastan í sínu
kjarnafylgi. Það sama megi segja
um Framsóknarflokkinn og Birgir
bætir við að margir framsóknar-
menn virðist hafa skilað sér heim.
„Vinstri græn voru á gríðarlegu
flugi. Þau gerðu þau mistök að vera
óþarflega almenn og urðu þar af
leiðandi ekki nógu sannfærandi. En
þau mega vel við una,“ segir Birgir.
Eva segir Vinstri græn ekki
standa uppi sem sigurvegara þrátt
fyrir að vera næststærsti flokkurinn.
Þau hafi fengið sviðið, talað of al-
mennt og því ekki haldið sviðinu í lok
baráttunnar. „Miðflokkurinn má vel
við una. Hann er stofnaður nokkrum
vikum fyrir kosningar, fær strax
10% í könnunum og heldur því,“ seg-
ir Eva Heiða og Birgir bætir við að
flokkurinn höfði til framsóknar-
manna og yfir á hægri miðjuna.
„Skelegg forysta og nýir talsmenn
gáfu Samfylkingu góða endur-
komu,“ segir Birgir. Eva Heiða seg-
ir að Samfylkingin hafi verið við það
að þurrkast út en stillt upp nýju
fólki, náð upp góðri stemningu og
náð vopnum sínum á ný.
Birgir og Eva eru sammála um að
Píratar hafi misst fylgi til Samfylk-
ingarinnar og vaxandi tiltrú á gömlu
flokkana spili þar inn í.
Viðreisn missti flugið en náði
fylginu upp þegar skipt var um for-
mann, segir Eva Heiða og Birgir
bætir við að Viðreisn hafi sótt á
sömu mið og Samfylkingin.
Tveir valkostir fyrir forsetann
Góð kjörsókn jákvæð Náðu að kveikja í kjósendum Ný og auðmjúk nálgun Flókin staða og
margir möguleikar Nýju flokkarnir sigurvegarar Endurkoma, varnarsigrar og heimkoma
Morgunblaðið/Eggert
Leiðtogar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er hér vel merktur eftir koss á kinn frá Katrínu Jak-
obsdóttur, formanni Vinstri grænna, eftir umræður í sjónvarpssal. Nú er spurning hvort þeirra fær umboðið fyrst.
Athygli vakti að bæði Samfylking og
Miðflokkur fengu fleiri greidd at-
kvæði á landsvísu en Framsóknar-
flokkurinn en færri þingmenn.
Þannig fékk Samfylking 12,1 pró-
sent greiddra atkvæða og sjö þing-
menn, Miðflokkurinn 10,9 prósent og
sjö þingmenn en Framsóknarflokk-
urinn 10,7 prósent og átta þingmenn.
Þetta ræðst m.a. af því að þó fjöl-
mennari kjördæmi hafi á að skipa
fleiri þingmönnum er það ekki í hlut-
falli við íbúafjölda. Á bak við hvern
þingmann í Suðvesturkjördæmi eru
5.300 kjósendur en aðeins 2.960 í
Norðvesturkjördæmi. Þannig eru
80% fleiri kjósendur á bak við hvern
þingmann í Suðvesturkjördæmi.
Jöfnunarmenn og d’Hondts
Kjördæmissætum er úthlutað með
svokallaðri reglu d’Hondts þar sem
atkvæðatölum er deilt með heiltöl-
unum 1, 2, 3 o.s.frv. Við það verður til
tafla með útkomutölunum úr deiling-
unni fyrir hvern lista. Síðan er geng-
ið á allar útkomutölurnar eftir stærð
og sæti úthlutað í hvert sinn þar til
öllum sætum viðkomandi kjördæmis
hefur verið ráðstafað.
Kjörnir eru 63 þingmenn á Alþingi
en þar af eru 54 kjördæmakjörnir og
9 jöfnunarsæti. Þannig gefur fjöldi
þingmanna í kjördæmi ekki rétta
mynd af vægi atkvæða. Jöfnunar-
sætum er úthlutað til flokka í sam-
ræmi við fylgi á landsvísu og þannig
fá þeir flokkar sem fengið hafa fæsta
kjördæmakjörna þingmenn, miðað
við atkvæðamagn, flesta jöfnunar-
þingmenn. Jöfnunarþingmenn leið-
rétta því þá skekkju sem er á vægi
atkvæða milli kjördæma. Þó getur
gerst að flokkur með færri atkvæði
hljóti fleiri þingsæti vegna fyrir-
komulagsins.
Tekið er á heildarskiptingu jöfn-
unarsæta með d’Hondts-reglu á
sama hátt og við úthlutun kjör-
dæmissæta
Morgunblaðið/Ómar
Tölur Framsókn fékk fleiri þing-
menn en Samfylking en minna fylgi.
Minna fylgi en fleiri
þingmenn til X-B
Flókið en samt einfalt kosningakerfi
Skoðanakannanir sem gerðar
höfðu verið fyrir þingkosning-
arnar um helgina voru nokk-
uð langt frá úrslitum í flest-
um tilvikum. Þegar
meðalfrávik eru skoðuð var
það könnun Gallup fyrir RÚV
sem að jafnaði komst næst
því að spá rétt um niðurstöð-
urnar.
Á eftir Gallup kom MMR,
þar á eftir Zenter, Félags-
vísindastofnun HÍ og loks
365 miðlar, en frávik þeirrar
könnunar voru að jafnaði
mest miðað við úrslit kosn-
inganna á laugardaginn.
Þess ber að geta að allar
kannanir voru með skekkju-
mörk fyrir fylgi hvers flokks.
Nokkuð langt
frá úrslitum
SKOÐANAKANNANIR
Eva Heiða
Önnudóttir
Birgir
Guðmundsson
BAKSVIÐ
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Eva Heiða Önnudóttir, doktor í
stjórnmálafræði, og Birgir Guð-
mundsson stjórnmálafræðingur eru
sammála um að aukin kosningaþátt-
taka á laugardaginn sé jákvæð. Sér-
staklega í ljósi þess að stutt sé liðið
frá síðustu alþingiskosningum.
„Nafnlausar auglýsingar á netinu
sem beindust aðallega að Vinstri
grænum, en einnig Sjálfstæðis-
flokknum, eru það neikvæða við
kosningabaráttuna og ekki lýðræð-
inu til framdráttar. Það gætti tauga-
titrings í baráttunni. Skýringin á því
gæti verið að flokkarnir voru settir í
stöðu sem þeir gerðu ekki ráð fyrir
að vera í og það mikla álag sem
fylgir kosningabaráttunni,“ segir
Eva Heiða.
Birgir segir að þrátt fyrir að stutt
sé frá síðustu kosningum hafi flokk-
arnir náð að kveikja í kjósendum.
„Það er bæði jákvætt og neikvætt
hversu margir flokkar buðu fram.
Jákvætt að leyfa mörgum að spreyta
sig en neikvætt þegar kemur að skil-
virkni í stjórn landsins,“ segir Birg-
ir.
Eva Heiða segir þjóðina ekki vera
að koma einum skilaboðum á fram-
færi með atkvæðum sínum. Þegar
fleiri flokkar bjóða fram séu kjós-
endur tilbúnir að kjósa aðra flokka
en fjórflokkinn og fleiri kjósendur
séu tilbúnir að fylgja nýjum flokk-
um. Birgir segir skilaboðin blendin
en skýrt komi fram að stjórnmálin
þurfi að tala betur saman á nýjum og
auðmjúkari nótum. Birgir og Eva
Heiða eru sammála um að staðan sé
flókin við myndun ríkisstjórnar.
Hægri miðja eða vinstri
Eini möguleiki á þriggja flokka
stjórn er að bæði Vinstri græn og
Sjálfstæðisflokkurinn verði í henni
að mati Evu Heiðu.
Hún segir forseta Íslands hafa tvo
kosti varðandi stjórnarmyndun.
„Hann getur veitt þeim sem hann