Morgunblaðið - 30.10.2017, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.10.2017, Qupperneq 8
Formenn Vinstri grænna og Sam-fylkingar hafa bent mjög á það eftir kosningar að stjórnarand- stöðuflokkarnir hafi náð meirihluta. Þar eiga þau við að Vinstri grænir, Samfylking, Framsókn og Píratar séu með 32 þingmenn.    Formennirnirtelja að þetta séu skilaboð um að reyna eigi að mynda ríkisstjórn stjórnarand- stöðunnar og benda líka á í því sambandi að ríkisstjórnarflokkarnir hafi misst marga þingmenn. En vand- inn við þessa kenn- ingu er meðal annars sá að stjórnarand- staðan bætti nánast engu við sig, aðeins einum þing- manni, og er nú með 32 menn.    Formaður Framsóknarflokksinsbenti réttilega á að ekki væri árennilegt að reyna stjórn með svo naumum meirihluta.    Annar vandi við kenningu for-manna Vinstri grænna og Sam- fylkingar er að þeir sem bættu við flestum þingmönnum eru Miðflokk- urinn og Flokkur fólksins.    Þessir flokkar eru nýir og þvíaugljóslega ekki hluti af stjórn- arandstöðunni.    Og góður árangur þeirra er ekkiheldur til marks um vinstri- sveiflu þó að formenn Samfylkingar og VG reyni að lesa hana út úr stöð- unni.    Staðreyndin er sú að vinstriflokk-unum mistókst – og vantar mik- ið upp á – að ná meirihluta á þingi þó að kannanir hafi fyrir nokkrum vikum bent til að svo gæti farið. Mistókst að ná meirihluta STAKSTEINAR 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017 ÚTGÁFUHÁTÍÐ ÍSAFNAÐARHEIMILI GRENSÁSKIRKJU | MÁNUD. 30. 10. KL. 20 VEITINGAR Í BOÐIÚTGEFANDA | ALLIR VELKOMNIR! GARÐAROLGEIRSSON / ÆVINTÝRI STEBBA GUÐFINNA S. RAGNARSDÓTTIR / SAGNAÞÆTTIR GUÐFINNU VALGEIR ÓMAR JÓNSSON / VITAVÖRÐURINN ÞÓRÐUR TÓMASSON / UMÞJÓÐFRÆÐIMANNSLÍKAMANS Sagnaþættir víðsvegar að af landinu, ættanna kynlega bland og stórbrotin örlög. Hugljúf barnabók þar sem veröld þjóðsagna og sveitalífs er kynnt yngstu kynslóðinni. Einstaklega frumleg og óvenjuleg nálgun í þjóðfræðinni þar sem horft er til siða og málfars tengt höfði mannsins og höndum. Sagan af vitaverðinum í Galtarvita sem hand­ tekinn var af breska hernum fyrir að skjóta skjólshúsi yfir þýskan flóttamann. Veður víða um heim 29.10., kl. 18.00 Reykjavík 8 alskýjað Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 8 skýjað Nuuk 6 rigning Þórshöfn 4 léttskýjað Ósló 7 heiðskírt Kaupmannahöfn 7 skúrir Stokkhólmur 4 skýjað Helsinki 1 snjókoma Lúxemborg 7 súld Brussel 9 skúrir Dublin 11 léttskýjað Glasgow 9 skýjað London 11 léttskýjað París 11 alskýjað Amsterdam 10 skúrir Hamborg 9 léttskýjað Berlín 7 léttskýjað Vín 10 skýjað Moskva 4 alskýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 13 heiðskírt Barcelona 21 heiðskírt Mallorca 22 léttskýjað Róm 16 léttskýjað Aþena 16 léttskýjað Winnipeg 3 skýjað Montreal 9 rigning New York 17 rigning Chicago 4 léttskýjað Orlando 18 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:06 17:18 ÍSAFJÖRÐUR 9:23 17:11 SIGLUFJÖRÐUR 9:06 16:53 DJÚPIVOGUR 8:38 16:44 Þrír þeirra sjö íslensku alþingismanna sem eiga sæti í Norðurlandaráðinu náðu ekki endurkjöri í nýafstöðnum kosningum, en 69. þing Norðurlandaráðsins hefst á morg- un, þriðjudag. Að sögn Steingríms J. Sigfússonar, sem á sæti í ráðinu, liggur fyrir forsætisnefnd- arsamþykkt þess eðlis að þeir aðal- og varamenn sem áttu sæti í síðustu forsæt- isnefnd haldi umboði sínu nái þeir endur- kjöri. „Þetta er sjálfsagt snúin staða, en við í VG erum dekkuð því það var ákveðið fyrirfram að Kolbeinn Óttarson Proppé tæki þetta að sér og hann er farinn út sem minn varamaður. Núna stefnir samt sem áður í það að ég fari út á þriðjudagsmorg- un en þá sem forseti Alþingis því ég er í raun orðinn forseti Alþingis þar sem sjálf- stæðismenn kusu að hafa Unni Brá ekki ofar á lista og hún náði ekki kjöri,“ segir Steingrímur. Teitur Björn Einarsson, Valgerður Gunnarsdóttir og Jóna Sólveg Elínardóttir eru þeir þingmenn sem eiga sæti í Norð- urlandaráðinu en náðu ekki endurkjöri og munu varamenn því sennilega fara í þeirra stað. Þar að auki á Sigurður Ingi Jóhanns- son sæti í ráðinu en ætla má að hann hafi öðrum hnöppum að hneppa í vikunni og sendi því einnig varamann. Það er því útlit fyrir að Brynjar Níelsson og Oddný G. Harðardóttir verði einu aðalmennirnir sem komist á 69. þing Norðurlandaráðs en auk þeirra tekur Bryndís Haraldsdóttir þátt þar sem hún situr í forsætisnefnd Vestnor- ræna ráðsins. Varamenn í Norðurlandaráð  Kolbeinn fór sem varamaður Steingríms, sem fer í staðinn sem forseti Alþingis Steingrímur J. Sigfússon Sérsveit ríkislögreglustjóra handtók tvo karlmenn og eina konu á níunda tímanum í gærkvöldi, sem höfðu ver- ið á ferð um daginn vopnuð hagla- byssu. Þau eru talin tengjast inn- broti þar sem skotvopni var stolið nýlega. Handtakan átti sér stað á sveitabæ í nágrenni við Stokkseyri en samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu var mikill viðbúnaður vegna málsins og sögðu vegfarendur sem mbl.is hafði samband við að nokkrir ómerktir bílar sérsveitarinnar hefðu keyrt austur yfir Hellisheiði fyrr um kvöldið. Fólkið sem var handtekið er talið hafa verið í mikilli neyslu og sagði Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, í samtali við mbl.is í gær að ákveðið hefði verið að gæta allrar varúðar við handtöku þeirra vegna ástands þeirra. Sagði Oddur að þó vitað hefði ver- ið af fólkinu með haglabyssu á ferð fyrr í gær hefði ekki verið talið að það hefði ógnað öðru fólki. Fólkið var flutt á lögreglustöð þar sem yfirheyrslur fóru fram. Fólkið hefur ekki komið áður við sögu hjá lögreglunni. Sérsveitin handtók vopnað fólk  Handtekið rétt hjá Stokkseyri í gær

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.