Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 9

Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is HS Orka hefur auglýst útboð á bygg- ingu mannvirkja og tækjakaup vegna Brúarvirkjunar í Bláskóga- byggð. Raunar hófust undirbúnings- framkvæmdir í sumar, vegarlagning og aðstöðusköpun. Ásgeir Margeirs- son forstjóri segir að framkvæmdir hefjist í haust og virkjunin hefji framleiðslu á fyrrihluta árs 2019. Brúarvirkjun verður tæplega 10 MW vatnsaflsvirkjun í efrihluta Tungufljóts, fyrir landi Brúar. Aðal- og deiliskipulag gerir nú ráð fyrir virkjuninni og ráðist var í mat á um- hverfisáhrifum þótt virkjunin sé undir mörkum og orkufyrirtækið hefði getað sleppt að fara í mat. Í áliti sínu taldi Skipulagsstofnun að helstu neikvæðu áhrif fyrirhug- aðrar framkvæmdar fælust í breyttri ásýnd framkvæmdasvæðis og lands- lagi þess. Svæðið er að mestu leyti ósnortið og einkennist af Tungufljóti og vel grónum bökkum þess. Að framkvæmdum loknum mun svæðið einkennast af misumfangs- miklum mannvirkjum, að mati Skipulagsstofnunar, og verulega skertu rennsli í Tungufljóti á um þriggja kílómetra löngum kafla. Tek- ið er fram að framkvæmdasvæðið er í nokkurri fjarlægð frá fjölförnum vegum og ferðamannastöðum og nei- kvæð sjónræn áhrif verða mest á frí- stundabyggð í nágrenninu. Það er mat Skipulagsstofnunar að áhrif á ásýnd og landslag fyrirhug- aðra framkvæmda verða talsvert neikvæð. Tengd við Reykholt Skipulagsstofnun taldi að gera ætti að skilyrði að í framkvæmda- leyfi verði gerð grein fyrir hvernig staðið verður að endurheimt gróður- lendis og birkikjarrs og að fuglalíf í fyrirhuguðu lónstæði verði rannsak- að. Eitt af markmiðum með byggingu virkjunarinnar er að stuðla að auknu raforkuöryggi í uppsveitum Árnes- sýslu. Rafmagnið verður flutt með jarðstreng frá stöðvarhúsi að spenni- stöð við Reykholt. Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri Bláskógabyggðar, bendir á að þaðan fái garðyrkjustöðvarnar sitt raf- magn. Þá segir hann að framkvæmd- in skapi störf og umsvif í sveitarfé- laginu, á meðan á henni stendur. Í matsskýrslu kemur fram að áætlað er að 65 til 70 ársstörf verði til við byggingu virkunarinnar. Framkvæmdaleyfi fyrir virkj- unina var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn Bláskógabyggðar. Hægt er að kæra ákvörðunina til úr- skurðarnefndar umhverfis- og auð- lindamála. Byrja á Brúarvirkjun á næstunni  Framkvæmdaleyfi HS Orku samþykkt  Mannvirki og tæki boðin út  Framleiðsla hefst árið 2019 Ljósmynd/HS Orka Brúarvirkjun HS Orka samdi nýverið við Arion banka um fjármögnun verk- efnisins. Höskuldur Ólafsson frá Arion og Ásgeir Margeirsson frá HS Orku. Hörður Arnarson Hlutverk Landsvirkjunar – fjárhagsleg staða – endurnýjanleg orka Úlfar Linnet Áhrif bráðnunar jökla á íslenska orkukerfið Ásbjörg Kristinsdóttir Bætt nýting auðlindar við Búrfell Ljósafossstöð – Endurnýjanleg orka í 80 ár Einar Mathiesen Hvernig tryggjum við endingu aflstöðva? Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir Samspil orku og ferðamála Kröflustöð – Vagga jarðvarma á Íslandi í 40 ár Valur Knútsson Sjálfbær nýting jarðvarma á Þeistareykjum Ragnheiður Ólafsdóttir Kolefnishlutlaus Landsvirkjun árið 2030 Fljótsdalsstöð – Orkuvinnsla og sjálfbærni í 10 ár Þórólfur Nielsen Endurnýjanleg raforka á heimsvísu Birna Ósk Einarsdóttir Markaðssetning endurnýjanlegrar raforku Ragna Árnadóttir Endurnýjanleg orka er verðmætari Verið öll velkomin Skráning á www.landsvirkjun.is #lvhaustfundur Landsvirkjun hefur frá upphafi unnið endurnýjanlega orku. Vitundarvakning um umhverfis- og loftslagsmál hefur aukið verulega verðmæti slíkrar raforku. Á haustfundinum fjalla sérfræðingar okkar um þessi verðmæti frá ýmsum hliðum. Greint verður frá því hver áhrif loftslagsbreytinga hafa verið á orku- vinnslu og nýtingu íslenska kerfisins, hvernig endurnýjanleg orka er orðin eftirsóttari og hvernig nýta má hana á ábyrgan og sjálfbæran hátt. HAUSTFUNDUR LANDSVIRKJUNAR Silfurberg í Hörpu Fimmtudagur 2. nóvember kl. 8.30–10.00 Morgunhressing í boði frá kl. 8.00 Endurnýjanleg orka er verðmætari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.