Morgunblaðið - 30.10.2017, Page 11
11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
Mason Cash skál, 29 cm
Verð 5.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Til í mörgum stærðum og gerðum
Nuddpottar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
HVAÐ HENTAR
ÞÍNU STARFSFÓLKI?
Hjá okkur færðu ljúffengan mat
úr fyrsta flokks hráefni.
• Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti.
• llmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum.
• Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi.
• Brakandi fersk salöt og ávexti.
• Við komum til móts við ykkar óskir
kryddogkaviar.is
kryddogkaviar@kryddogkaviar.is
Sími 515 0702 og 515 0701
Fylgi Sjálfstæðisflokksins er sögu-
lega lágt þrátt fyrir að flokkurinn sé
enn stærstur á landsvísu með rúm-
lega fjórðung atkvæða. Flokkurinn
hefur því ekki náð fyrri styrk en í
fernum kosningum fyrir hrun er
meðalfylgi hans um 37 prósent en
hefur aðeins verið um 26 prósent í
fernum alþingiskosningum eftir
efnahagshrunið 2008.
Samfylkingin hefur ríflega tvö-
faldað fylgi sitt milli kosninga en
flokkurinn var með 5,7 prósent í al-
þingiskosningunum fyrir ári en fær
nú 12,1 prósent. Engu að síður er
flokkurinn langt frá því fylgi sem
hann var með frá stofnun til og með
kosninganna 2009.
Viðreisn bauð fram í annað sinn en
flokkurinn, sem var stofnaður fyrir
kosningarnar í fyrra, missir nokkurt
fylgi en heldur þó velli og tryggði sér
fjögur þingsæti.
Björt framtíð, sem fyrst bauð
fram í þingkosningum árið 2013, bíð-
ur afhroð, missir sex prósentustig og
fær eingöngu 1,2 prósenta fylgi.
Fylgi Framsóknarflokksins er
minna nú en oft áður en flokkurinn
heldur þó öllum þingsætum sínum
og vinnur réttnefndan varnarsigur í
ljósi klofningsframboðs Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi
formanns flokksins. Sigmundur
leiddi Miðflokkinn í 10,9 prósenta
fylgi. Glæsilegur árangur í fyrstu til-
raun.
Flokkur fólksins kemur einnig nýr
inn á þing með 6,9% fylgi. Forvitni-
legt verður að fylgjast með fylgi
þessara tveggja nýju flokka í næstu
kosningum. vilhjalmur@mbl.is
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Niðurstaða kosninga þeirra flokka sem boðið hafa fram 1995-2017 og náð þingmanni inn
1995 1999 2003 2007 2009 2013 20172016
40,7%
37,1%
23,3%
9,1%
33,7%
18,4%
8,8%
31%
23,7%
17,7%
14,3%
26,8%26,8%
36,6%
14,8%
11,7%
21,7%
29,8%
26,7%
24,4%
10,9%
12,9%
8,2%
5,1%
A Björt framtíð B Framsóknarflokkur C Viðreisn D Sjálfstæðisflokkur P Píratar S Samfylkingin V Vinstri-græn
25,2%
9,2%
10,7%
16,9%
6,7%
12,1%
1,2%
29%
14,5%
11,5%
15,9%
10,5%
5,7%
7,2%
Miðflokkurinn
Flokkur fólksins
10,9%
6,9%
Nýir þingflokkar 2017
Samfylkingin enn langt
frá sínu mesta fylgi
Fylgi Sjálfstæðisflokks um 26% að meðaltali frá 2008
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Viðreisn Þorgerður Katrín, for-
maður flokksins, á kosninganótt.