Morgunblaðið - 30.10.2017, Side 12

Morgunblaðið - 30.10.2017, Side 12
Sjósund Vinsælt er að skella sér til sunds í ferðum Sigðurðar, eða Búbba frá Ísafirði. segir hann og bendir jafnframt á að hann hafi aldrei ætlað sér að verða ríkur á rekstrinum. „Auðvitaði geri ég mér grein fyrir því að í þessum rekstri eins og öðrum þarf að endurnýja tæki og halda rekstrinum við en grundvöllur rekstursins var aldrei að verða neitt voðalega ríkur. Fyrst og fremst hef ég gaman af starfinu.“ Jan Mayen og Grænland Í dag rekur Sigurður skúturnar Arktiku og Auroru og gerir út á Jök- ulfirði og Grænland með erlenda ferðamenn. Kyrrðin, fámennið og snjórinn er það sem ferðamennirnir sækjast eftir. „Þetta eru minnst fimm daga ferðir og allt upp í nokkrar vikur. Við höldum okkur hér á Vestfjörðunum en sækjum líka á austurströnd Grænlands,“ segir Sigurður en hann hefur einnig siglt með ferðamenn til Jan Mayen. „Já, það er rétt. Það er með allra lengsta móti enda þriggja daga sigl- ing. Við förum ekki mikið í slíkar siglingar. Alla jafna eru þetta styttri ferðir.“ Í lok október má segja að siglt sé inn í rólegri mánuði ferðaþjónust- unnar en strax í febrúar hefjast skíðaferðir Sigurðar en þá siglir hann með fólk um snæviþakkta firði og að sjálfsögðu eru skíðin tekin með. „Fólk getur gengið upp brattar hlíðar og fjöll og skíðað niður en uppistaða ferða hjá mér frá febrúar og eitthvað fram á vor eru skíðaferð- ir.“ Spurður hvort fólk þurfi að vera vant sjómennsku eða í hörku fjall- gönguformi segir hann þessar ferðir vera fyrir alla sem áhuga hafa á úti- vist og hreyfingu. „Fólk er í alls konar formi en þetta er helst fólk sem sækir í útivist og vill upplifa náttúruna með öðrum hætti en að keyra um landið,“ segir Sigurður og leggur áherslu á að gengið sé vel um náttúruna og af virðingu. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Fastir í viðjum væntingaannarra sitja margir ogtelja niður mínúturnar ívinnunni. Sigurður Jóns- son, sem jafnframt er þekktur sem Búbbi frá Ísafirði, er ekki einn af þeim. Allt sitt líf hefur hann átt í ást- arsambandi við sjóinn og fjöllin en fáir staðir á landinu bjóða upp á jafn náið samband fjalls og fjöru og Vest- firðirnir. Í því umhverfi hefur Sigurður byggt upp fyrirtæki í kringum áhugamál sín en hann hefur lengi rekið eigin skútu og nú býður hann ferðamönnum um borð og leyfir að njóta gestrisni sinnar. „Viðskiptavinurinn er gestur og ég kem fram við hann sem slíkan. Hann er í ferðalagi með mér,“ segir Sigurður sem lýsir skútinni sinni sem fljótandi fjallakofa sem notaður er til að komast á milli staða. Snýst ekki um peninga „Þetta snýst ekki bara um sigl- inguna heldur fjöllin og náttúruna. Skútan er því í raun fljótandi fjalla- kofi sem siglir milli áfangastaða þar Gerði áhugamálið að ævistarfi Sigurður Jónsson eða Búbbi frá Ísafirði kemur fram við viðskiptavini sína eins og góða gesti og sýnir þeim stórbrotna náttúru landsins frá sjón- arhorni sjómannsins. Þá eldar hann dýrindis mat ofan í alla úr hráefnum beint frá náttúrunni í kringum sig. Ævintýraferðir Stungið sér til sunds einhver staðar á afskektum stað. Fegurð Einstök náttúra og norðurljós sjást í einni af mörgum ferðum. Hvíld Það má líka stundum bara njóta í stað þess að þj́óta. Kvöldmatur Allir sitja saman til borðs og gæða sér á dýrlega góðri máltíð. sem hægt er að ganga á fjöll, fara á skíði eða njóta náttúrunnar með öðr- um hætti.“ Á kvöldin hefur skútu Sigurðar verið lýst sem úrvals veitingastað en hann eldar sjálfur og notar mikið hráefni úr umhverfinu, ferskan fisk, lambakjöt og grænmeti ásamt fersk- um kryddjurtum á borð við blóðberg og fleira. „Ég lít svo á að ég sé að bjóða fólki í heimsókn og upplifunin er slík. Þetta eru mínir gestir og ég kem fram við þá eins og við myndum öll gera þegar við fáum góðan gest í mat,“ segir Sigurður og bendir á að hluti upplifunarinnar sé þessi heim- ilislega stemming þar sem fólk upp- lifir helsta áhugamál Sigurðar. „Fyrst og fremst var ætlunin að gera eitthvað sem ég hef gaman af. Þetta byrjaði sem sumarvinna hjá mér árið 2005 en varð að heils- ársvinnu í kringum 2008. Ég er menntaður skipatæknifræðingur og ætlaði að starfa við það á veturna. Síðan kom bara sá tími að ég taldi mig ekki vera að sinna vetrar- né sumarvinnunni nægilega vel og varð að velja á milli.“ Áhugamálið varð ofan á og seg- ist Sigurður ekki sjá eftir því. „Þetta er það sem ég hef gaman af og geri í mínum frístundum. Allir dagar í vinnunni eru skemmtilegir,“ 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.