Morgunblaðið - 30.10.2017, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
KOSNINGAR 2017
30
25
20
15
10
5%
0
3,5%
0
4,2% 4
6,9%8
11,5%
5
7,9% 8
10,7%
7
10,5%
5
8,3%
4
6,7%
21
29%
17
24,5%
16
25,2%
4
7,2%
1,3% 1,2%
Niðurstöður alþingiskosninga 28. október 2017
A Björt framtíð B Framsóknarflokkur C Viðreisn D Sjálfstæðisflokkur F Flokkur fólksins
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Þrátt fyrir góða útkomu í könnunum
í vor fór heldur betur að halla undan
fæti hjá Flokki fólksins þegar nær
dró kosningum og allt leit út fyrir að
flokkurinn kæmi ekki mönnum á
þing. Inga Sæland, formaður flokks-
ins, gat því verið kampakát þegar
ljóst var að flokkurinn fengi tæp 7
prósent og fjóra menn á þing.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, kom einnig
verulega á óvart en nýr flokkur hans
fékk 10,9 prósenta fylgi í fyrstu til-
raun.
Framsóknarflokkurinn getur un-
að sáttur við sitt en flokkurinn held-
ur öllum sínum þingsætum frá síð-
ustu kosningum þrátt fyrir
klofningsframboð Sigmundar Dav-
íðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi for-
manns flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn er enn
stærsti flokkur landsins og fær
nokkuð betri kosningu en kannanir
gerðu ráð fyrir. Engu að síður missir
flokkurinn fimm þingsæti, eitt þing-
sæti í öllum kjördæmum nema kjör-
dæmi Guðlaugs Þórs Þórðarssonar
utanríkisráðherra þ.e. Reykjavíkur-
kjördæmi norður.
Samfylkingin nær vopnum sínum
aftur og rúmlega tvöfaldar fylgi sitt
og endar með 7 þingsæti. Vinstri
grænir, sem flugu hátt í könnunum
fyrir kosningar, bættu þó aðeins við
sig einum þingmanni og einu pró-
senti frá síðustu kosningum.
Viðreisn náði fjórum þingmönn-
um, þvert á kannanir um tíma.
Morgunblaðið/Eggert
Förðun Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, var hæstánægð með niðurstöðu kosninganna en hér er hún í viðtali við fréttamann RÚV í förðunarstólnum fyrir kosningasjónvarpið.
Flokkur fólksins kom
einna mest á óvart
Miðflokkurinn stal senunni en Framsókn heldur sínu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fagnað Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fagnar niður-
stöðu kosninganna ásamt sjálfstæðismönnum á Grand Hótel.
Meðalaldur nýrra alþingismanna
er 49,15 ár, sé miðað við hvað þeir
voru gamlir á kjördag. Á síðasta
þingi var þetta meðaltal 46,6 ár
sem var yngsta þing á lýðveldis-
tíma. Frá árinu 1978, þegar meðal-
aldur þingmanna á kjördag var
49,6 ár, hefur hann aðeins einu
sinni verið hærri en nú og það var
árið 1999 þegar hann var 49,9 ár.
Aldursforseti þingmanna verður
Ari Trausti Guðmundsson, þing-
maður VG í Suðurkjördæmi sem er
69 ára gamall og yngsti þingmað-
urinn Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir, 26 ára þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi norður.
Elstir í Suðurkjördæmi
Þegar aldur nýkjörinna þingmanna
er skoðaður kemur ýmislegt
áhugavert í ljós. Til dæmis að elstu
þingmennina er að finna í Suður-
kjördæmi, þar sem meðalaldur
þeirra er 52,6 ár. Þeir yngstu eru í
Reykjavíkurkjördæmi norður, en
meðaltalsaldur þeirra er tæp 43
ár. Meðalaldur þingmanna í
Reykjavíkurkjördæmi suður er 48
ár, í Suðvesturkjördæmi er hann
52 ár og í Norðvesturkjördæmi er
meðalaldur þingmanna tæp 49 ár.
Meðalaldur þingmanna Norðaust-
urkjördæmis er 50,4 ár.
Þingmenn Flokks fólksins skipa
elsta þingflokkinn, en þar er með-
alaldurinn 60 ár. Yngsti þingflokk-
urinn er Píratar, þar sem meðal-
aldurinn er 36 og hálft ár.
Átta þingmenn eru fæddir árið
1980 eða síðar og 19 þingmenn
eru fæddir árið 1960 eða fyrr.
annalilja@mbl.is
Meðalaldur alþingismanna
hækkar um tvö og hálft ár
MIKLU FLEIRI ERU FÆDDIR 1960 OG FYRR EN 1980 OG SÍÐAR
Morgunblaðið/Eggert
69 ára Ari Trausti Guðmundsson, þing-
maður VG, verður nú elstur þingmanna.