Morgunblaðið - 30.10.2017, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
0%
5%
0%
%
%
%
6
9,3%
7
10,9%
Úrslit kosninga 29. október 2016
Fylgi í % og fjöldi þingmanna
Fylgi í könnun frá 27. október 2017*
Fylgi í % og fjöldi þingmanna
Úrslit kosninga 28. október 2017
Fylgi í % og fjöldi þingmanna
10
14,5%
6
8,8%
6
9,2%
3
5,7%
10
15,3%
7
12,1% 10
15,9% 14
20,2%
11
16,9%
0,3% 0,2% 1,7% 0,1%
M Miðflokkurinn P Píratar S Samfylkingin V Vinstri græn
29. okt.
2016
28. okt.
2017
29. okt.
2016
28. okt.
2017
Úrslit kosninga Úrslit kosninga
R Alþýðu-
fylkingin
T Dögun
*Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið gerð dagana
22. til 25. október 2017
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Tólf nýir þingmenn og sjö „endur-
nýttir“, sem hafa verið í mislöngu hléi
frá þingstörfum, taka nú sæti á Al-
þingi. 14 þingmenn, sem gáfu kost á
sér náðu ekki endurkjöri.
Af nýju þingmönnunum eru flestir
í Miðflokknum og það eru þau Berg-
þór Ólason, Sigurður Páll Jónsson,
Anna Kolbrún Árnadóttir og Birgir
Þórarinsson. Þrír þingmenn Mið-
flokksins hafa áður setið á þingi fyrir
Framsóknarflokkinn; Þorsteinn Sæ-
mundsson, Gunnar Bragi Sveinsson
og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Samfylkingin á þrjá nýja þing-
menn; Helgu Völu Helgadóttur, Guð-
mund Andra Thorsson og Albertínu
Friðbjörgu Elíasdóttur. Einn þing-
maður flokksins hefur áður setið á
þingi, það er Ágúst Ólafur Ágústsson.
Halla Signý Kristjánsdóttir er nýr
þingmaður Framsóknarflokksins og
þrír þingmenn flokksins hafa áður
verið á þingi. Það eru þau Ásmundur
Einar Daðason, Willum Þór Þórsson
og Líneik Anna Sævarsdóttir.
Allir fjórir þingmenn Flokks fólks-
ins eru nýir. Það eru Inga Sæland,
Ólafur Ísleifsson, Karl Gauti Hjalta-
son og Guðmundur Ingi Kristinsson.
Enginn nýr þingmaður er í þing-
flokkum Sjálfstæðisflokks og Við-
reisnar. Það sama má segja um þing-
flokk VG en Ólafur Þór Gunnarsson,
sem áður hefur komið inn á þing fyrir
flokkinn sem varaþingmaður, var nú
kjörinn á þing og telst því nánast til
„endurnýttra“ þingmanna.
Náðu ekki endurkjöri
Nokkuð var um að þingmenn, sem
sóttust eftir endurkjöri féllu út.
Sjálfstæðisflokkurinn missti þann-
ig fimm þingmenn, þau Teit Björn
Einarsson, Valgerði Gunnarsdóttur,
Unni Brá Konráðsdóttur, Vilhjálm
Bjarnason í Suðvesturkjördæmi og
Hildi Sverrisdóttur.
Fjórir þingmenn Pírata féllu af
þingi; Eva Pandora Baldursdóttir,
Einar Aðalsteinn Brynjólfsson og
Gunnar Hrafn Jónsson. Þá var Ásta
Guðrún Helgadóttir, þingmaður í
Reykjavíkurkjördæmi suður, ekki í
framboði, og Píratar náðu ekki inn
manni þar. Viðreisn missti þrjá þing-
menn; Benedikt Jóhannesson, Jónu
Sólveigu Elínardóttur og Pawel
Bartoszek. Enginn þingmanna
Bjartrar framtíðar; Óttarr Proppé,
Nichole Leigh Mosty og Björt Ólafs-
dóttir, náði kjöri og fjórði þingmaður
flokksins, Theódóra S. Þorsteins-
dóttir, bauð sig ekki fram.
Þingmaður í skamma stund
Eins og venjan er á kosninganótt
voru allmargir frambjóðendur „þing-
menn í skamma stund“, eða þangað
til nýjar tölur bárust sem breyttu
stöðunni. T.d. fór Vilhjálmur Bjarna-
son, frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðvesturkjördæmi, tvisvar inn
á þing um nóttina uns leikar fóru
þannig að hann endaði úti. Sr. Hall-
dór Gunnarsson í Holti, sem leiddi
lista Flokk fólksins í Norðaustur-
kjördæmi var um tíma inni, einnig
Kristbjörg Þórisdóttir, sem skipaði
annað sætið á lista Framsóknar-
flokksins í Suðvesturkjördæmi, og
sömuleiðis Una María Óskarsdóttir,
sem var í 2. sæti hjá Miðflokknum í
sama kjördæmi.
Björn Leví Gunnarsson, þingmað-
ur Pírata, datt inn á þing á níunda
tímanum í gærmorgun og Andrés
Ingi Jónsson, þingmaður VG, kom
inn á lokametrunum sem kjördæma-
kjörinn þingmaður í Reykjavík norð-
ur.
Morgunblaðið/Eggert
Nýtt fólk Helga Vala Helgadóttir, Samfylkingunni, er nýr þingmaður.
12 nýir þingmenn
og 7 „endurnýttir“
setjast á Alþingi
Endurnýjun mismikil eftir flokkum
14 þingmenn náðu ekki endurkjöri
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Útstrikanir á einstökum fram-
bjóðendum höfðu engin teljandi
áhrif á niðurstöður kosninganna
2017 samkvæmt upplýsingum frá
yfirkjörstjórnum kjördæmanna.
Einungis fengust tölulegar upp-
lýsingar úr Suðurkjördæmi en
þar voru 534 útstrikanir á D-lista
Sjálfstæðisflokksins. Þar á eftir
var Samfylkingin með 50 útstrik-
anir en útstrikanir annarra
flokka voru mjög fáar. Það er
fjarri því að vera nógu mikið til
að uppröðun á listanum breytist
en til þess að fella mann í fyrsta
sæti niður um sæti þurfa 25%
kjósenda listans að strika út nafn
hans. Hlutfallið er 20% þegar
kemur að öðru sætinu en 14,3%
þegar kemur að því þriðja.
Ekki fengust heildstæðar tölur
um útstrikanir í Suðvestur-
kjördæmi heldur en Ástríður Sól-
rún Grímsdóttir, formaður yf-
irkjörnar Suðvesturkjördæmis,
segir að útstrikanir á D-lista hafi
verið tæplega 500 á formanni
Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Bene-
diktssyni.
„Þær voru svona tæplega 500,
eitthvað sem skiptir engu máli og
hefur engin áhrif. Eins var með
aðra sem voru strikaðir út. Það
hafði engin áhrif.“
Landkjörstjórn fundar í dag
Þórhallur Vilhjálmsson, ritari
landskjörstjórnar, segir að upp-
lýsingar um útstrikanir og fram-
gang kosningana hafi skilað sér
til landskjörstjórnar yfir daginn í
gær. Landskjörstjórn mun halda
vinnufund í dag þar sem farið
verður yfir öll gögn.
Landskjörstjórn mun síðan
boða til fundar eftir rúmlega
viku, þar sem niðurstöður verða
kynntar um frágang kosning-
anna. Má vænta þess að nöfn
frambjóðenda sem voru helst út-
strikuð verði ljós þá sem og
heildartölur.
Útstrikanir höfðu engin áhrif
534 útstrikanir
á D-lista í Suður-
kjördæmi
Morgunblaðið/Eggert
Kosningar 2017 Samkvæmt upplýsingum frá yfirkjörstjórnum kjördæm-
anna höfðu útstrikanir engin teljandi áhrif á röðun framboðslistanna.