Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Að minnsta kosti þrír menn létu lífið í óveðri sem
gekk yfir hluta Mið-Evrópu um helgina. Víða
flæddu ár yfir bakka sína en í þýsku stórborg-
inni Hamborg flæddi yfir götur og stræti við
fiskmarkað borgarinnar með þeim afleiðingum
og skemmdir urðu á bílum og húsnæði.
Víða var rafmagnslaust í Mið-Evrópu og olli
það seinkunum almenningssamgangna og um-
ferðar almennt.
AFP
Ár flæddu yfir bakka sína í óveðri í Mið-Evrópu
Illviðri og flóð valda tjóni víða á meginlandi Evrópu
Í það minnsta fjórtán eru látnir eftir
hryðjuverkaárás í höfuðborg Sómal-
íu, Mógadisjú, á laugardag en ekki
liggur fyrir hversu margir eru særð-
ir eftir árásina. Hryðjuverka-
samtökin Shabaab, sem eru nátengd
Al-Qaeda, hafa lýst yfir ábyrgð á
verknaðinum en árásin var gerð á
Nasa Hablod 2 hótelið í borginni.
Fórnarlömb árásarinnar eru
óbreyttir borgarar að sögn lög-
reglustjórans á svæðinu, Mohamed
Moalim Adan, en hótelið er vinsæll
gististaður. Systurhótel þess varð
fyrir árás um mitt síðasta ár og þá
létust 11 manns. Hryðjuverkaógnin
er mikil í landinu en fyrir tveimur
vikum var vöruflutningabíll
sprengdur í loft upp í miðborg
höfuðborgarinnar með þeim afleið-
ingum að 358 manns létu lífið.
Hryðjuverk
í Mógadisjú
AFP
Hryðjuverk Fórnarlömb árásar-
innar eru saklausir bogarar.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Fólk streymdi út á götur og stræti
borga og bæja í Katalóníu um
helgina, annars vegar til að mót-
mæla ákvörðun ríkisstjórnar Spán-
ar, sem svipti Katalóníu sjálfstjórn á
föstudaginn, og hins vegar til að
standa með sameinuðum Spáni.
Ekki hefur komið til neinna átaka
milli hópanna tveggja að sögn BBC.
Mörg hundruð þúsund manns
taka þátt í mótmælunum en erfitt er
að henda reiður á fjöldanum. Skipu-
leggjendur mótmælanna áætla að
um 1,1 milljón manns hafi gengið
um stræti og torg en lögreglan telur
að mótmælendur hafi ekki verið
mikið fleiri en 300 þúsund.
Krefjast fangelsunar
Í hópi mótmælenda sem mættir
voru til að styðja áframhaldandi
veru Katalóníu í Spáni var kallað
eftir því að spænsk stjórnvöld fang-
elsuðu Carles Puigdemont, forseta
héraðsstjórnar Katalóníu, sem sett-
ur var af á föstudag. Ríkisstjórn
Spánar hefur ákveðið að Puigde-
mont verði ákærður í vikunni fyrir
að efna til byltingar gegn stjórn-
völdum landsins.
Forsætisráðherra Spánar, Mar-
iano Rajoy, hefur lýst því yfir að
Katalónía fái sjálfstjórnarréttindi
sín aftur eftir að lögum og reglum
hefur verið komið á í héraðinu. Búið
er að leysa upp héraðsstjórn Kata-
lóníu og boða til kosninga í héraðinu
hinn 21. desember næstkomandi.
Spænska ríkisstjórnin kennir að-
skilnaðarsinnum um það ástand
sem nú er komið upp.
Sundrað sambandsríki
Í umfjöllun New York Times um
atburðarásina á Spáni er bent á að
landið skiptist í 17 héruð auk
tveggja borgarsvæði í Afríku, þ.e.
Ceuta og Melilla. Ágreiningurinn
um sjálfstæði Katalóníu getur að
sögn New York Times kallað á
þrýsting annarra héraða að fá aukin
sjálfstjórnarréttindi. Þannig njóta
Baska- og Navarra-héruðin meiri
sjálfstjórnar en önnur héruð á borð
við t.d. Andalúsíu og Galisíu. Flest
héruð fara sjálf með mennta- og
heilbrigðismál en Katalónía hefur
lengi sóst eftir því að vera með sjálf-
stæða efnahagsstjórn líkt og Baska-
hérað. Í Katalóníu búa 16% íbúa
Spánar, þar eru um 19% hagkerfis-
ins og 25% af útflutningi Spánar
koma frá héraðinu.
Enn mótmælt í Katalóníu
AFP
Fjöldi Talið er að allt frá 300 þúsund upp í 1,1 milljón hafi mótmælt.
Bæði sjálfstæðissinnar og sambandssinnar mótmæltu á Spáni um helgina
Hassan Rouhani,
forseti Írans,
segir framleiðslu
á eldflaugum til
að verja landið
ekki vera brot á
kjarnorku-
samkomulagi
landsins við al-
þjóðasamfélagið,
sem gert var árið
2015 undir for-
ustu Barack Obama, þáverandi for-
seta Bandaríkjanna.
Yfirlýsing Rouhani kemur stuttu
áður en bandaríska þingið tekur af-
stöðu til efnda Írans á samningnum.
Eftirlitsfulltrúi Sameinuðu Þjóð-
anna í Íran segir að landið hafi efnt
sinn þátt þess en Donald Trump,
forseti Bandaríkjanna, hefur ýjað
að því að Bandaríkin staðfesti ekki
að Íran hafi staðið við samninginn.
Það gæti leitt til riftunar sam-
komulagsins og frekari refsiað-
gerða gegn Íran.
Telja eldflaugar ekki
brot á samningi
Hassan
Rouhani
ÍRAN
Franskir neyt-
endur búa við
smjörskort að
sögn BBC en
víða eru tómar
smjörhillur í
kjörbúðum og
stórmörkuðum.
Gífurleg aukn-
ing hefur orðið
á eftirspurn eft-
ir smjöri á
heimsmarkaði á sama tíma og
samdráttur hefur verið í fram-
leiðslu, m.a. í Nýja-Sjálandi, sem
er stærsti útflytjandi mjólkuraf-
urða í heiminum. Verð á tonni af
mjólkurafurðum á heimsmarkaði
hefur hækkað á einu ári úr 2.500
evrum eða um 300 þúsund krón-
um í 6.500 evrur eða tæpar 800
þúsund krónur.
Þar sem franskir bændur semja
um fasta verðlagningu á frönsk-
um markaði í þrjú ár telja þeir
hagstæðara að fara með afurð
sína á heimsmarkaðinn eins og
staðan er núna. Það verður því
minna smjör í franskri matargerð
á næstunni.
Smjörskortur í
Frakklandi
Framleiðsla á
smjöri ekki næg.
FRAKKLAND