Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 25

Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017 ✝ Eiríkur PállSveinsson fæddist í Neskaup- stað 12. nóvember 1934. Hann lést 9. október 2017 á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Móðir hans var Sveinbjörg Eiríks- dóttir, verslunar- rekandi og hús- móðir, f. í Sandvík undir Gerpi 20. janúar 1900, d. á Akureyri 28. desember 1972. Faðir Eiríks var Sveinn Þor- steinsson, sjómaður og banka- starfsmaður, f. á Kljáströnd 1. desember 1903, d. á Akureyri 19. júlí 1980. Eiginkona Eiríks er Rannveig Ingvarsdóttir, hjúkrunarfræð- ingur og húsmóðir, f. á Ísafirði 13. júlí 1936. Börn þeirra eru fimm. 1) Ingvar, f. 1961, sam- býliskona hans er Anne Mette Jensen. Börn Ingvars og Karen- ar Hansen eru Þorkell og Rann- veig. 2) Sveinn, f. 1963, er kvæntur Svanfríði Birgisdóttur. Dætur þeirra eru Sara, Sunna og Si- gyn. Sunna er gift Johan Amnebratt og eiga þau tvö börn, Atla og Írisi. Sambýlismaður Si- gynjar er Gustav Andersson. 3) Björg, f. 1967, er gift Árna Valdi- marssyni. Börn þeirra eru Eva, Ei- ríkur Árni og Rún. 4) Baldur, f. 1969, er kvæntur Guðfinnu Höllu Þorvaldsdóttur. Þeirra börn eru Rannveig Dóra og Þor- valdur Tumi. 5) Anna Sigríður, f. 1972, á einn son, Brynjar Pál. Eiríkur var elstur þriggja systkina. Hann ólst upp í Nes- kaupstað og Akureyri, nam læknisfræði við Háskóla Íslands og í Falun í Svíþjóð og starfaði sem háls-, nef- og eyrnalæknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri allan sinn starfsaldur. Eiríkur Páll verður jarðsung- inn frá Akureyrarkirkju í dag, 30. október 2017, klukkan 13.30. Elsku pabbi og afi, okkur langaði að kveðja þig með þessum orðum. Kveðja. Tíminn flaug frá mér. Ég tók aldrei eftir því, ekki fyrr en þú fórst, þegar þú fórst yfir móðuna miklu. Margs er að minnast margs er að sakna. En við gleðjumst yfir góðum stundum. Hafðu þökk fyrir allt, allt sem þú gafst okkur. allt sem þú deildir með okkur, á meðan dvöl þín stóð yfir. Söknuður og góðar minningar hreiðra sig um hjarta okkar. Takk fyrir allt og allt, vertu sæll elsku pabbi og afi. (AS) Anna Sigríður og Brynjar Páll. Stór maður hefur lokið lífs- göngu sinni. Eiríkur tengdafað- ir minn var áberandi maður, há- vaxinn maður og myndarlegur. Stundum svolítið oddhvass á yf- irborðinu en undirlagið var dún- mjúkt og hlýtt og faðmlögin þéttari en nokkurs staðar. Hann var metnaðarfullur fyrir sig og sína, stórtækur og með afger- andi skoðanir sem varð ekki auðveldlega breytt, íhaldsmað- ur eins og þeir gerast bestir. Ég kynntist Eiríki fyrir næstum 30 árum og okkur kom vel saman frá fyrstu tíð (það var bara þetta eina skipti með bjúg- un, sem verður ekki rætt hér). Sumt áttum við sameiginlegt eins og svolitla stjórnsemi, að kunna illa að meta hálfkák og geta auðveldlega gengið fram af öðrum með offorsi. Samskiptin einkenndust alla tíð af hlýju og gagnkvæmu trausti milli okkar, við vorum í sama liði. Eiríkur var dellumaður og hafði ótal mörg áhugamál. Lax- veiði, nýjustu græjum, trjárækt og blómarækt, íþróttum af flestu tagi, kofasmíði, glæpa- sögum og ættartölum, öllu sinnti hann af ákefð. Honum varð mikið úr verki og tókst alltaf að fá mestu berjaupp- skeruna og mesta vöxtinn í trén. Hann hafði fallega rithönd og var skrásetjari af lífi og sál. Hélt nákvæma dagbók og orti vísur og ljóð og á tímabili hafði honum næstum tekist að prenta út allt internetið og setja í möppur. Kæruleysi var fjarri honum en ábyrgðarkenndin þeim mun meiri. Húsbóndi á sínu heimili, sá vel fyrir sér og sínum. Hugnaðist ekki að geyma til morguns það sem hægt var að gera í dag og fannst yfirleitt öruggast að bú- ast við hinu versta. Verkaskipt- ingu hans og Rönnu, konunnar sem hann var alltaf jafn skotinn í þurfti ekki að ræða. Ranna var ástin í lífi hans, það duldist engum. Samband þeirra var einstaklega hlýtt og öðrum til eftirbreytni. Fjöl- skyldan, heimilið, börnin og barnabörnin skiptu hann mestu í lífinu. Hann fylgdist með hverju skrefi þeirra, hafði metnað fyrir þeirra hönd, var strangur en virti á sama tíma þeirra val og óskir. Fannst mik- ið til um íþrótta- og námsafrek afkomendanna og allt var skráð samviskusamlega í bók. Ég kveð Eirík með virðingu og miklum söknuði en með ánægju yfir að hafa fengið að vera í hans liði öll þessi ár og fylgja honum á leiðarenda. Það er nýtt að skrifa um hann í þátíð en hann hafði sannarlega skilað sínu ævistarfi og undirbúið brottför sína úr þessum heimi vel í langan tíma. Hann var tilbúinn að kveðja og halda í aðra veröld, þar sem hann vissi að vel yrði tekið á móti honum. Við hin yljum okkur við góðar minningar og skemmtilegar sögur, sem nóg er af og minn- umst hans örugglega og alltaf þegar Eiríkssonarsyndrómið dúkkar upp. Halla Þorvaldsdóttir. Þegar kær vinur er kvaddur er litið yfir farinn veg og minn- ingarnar hrannast upp. Það eru liðnir margir áratug- ir síðan ég kynntist Eiríki frænda mínum, en hann og eig- inmaður minn voru samnem- endur í læknadeildinni. Fljót- lega komumst við Eiríkur að skyldleika okkar og vorum við frændi og frænka æ síðan. Góð kynni tókust innan hóps læknanemanna og makanna. Oftar en ekki var hist hjá Eiríki og Rönnu á Nesveginum. Þar var glatt á hjalla og þar kynnt- umst við fyrst þeirra einstöku gestrisni. Það var glaður hópur sem út- skrifaðist í febrúarmánuði 1965, en eftir það skildu leiðir og hóp- urinn dreifðist. Eiríkur og Ranna fóru til Svíþjóðar og við til Bandaríkjanna. En samband fjölskyldna okkar rofnaði ekki og var skrifast á milli heimsálfa. Næst hittum við Eirík og Rönnu á Akureyri. Við vorum flutt heim og þau komin til Ak- ureyrar eftir sérnám Eiríks, fimmta barnið var á leiðinni og hafin var bygging á glæsilegu húsi í Beykilundinum. Þangað lá leiðin oft yfir árin, eftirminni- legar eru árlegar skíðaferðir til Akureyrar og fylgdu gjarnan veislur hjá þeim hjónum. Og ekki fækkaði heimsóknum okk- ar til Eiríks og Rönnu eftir að við eignuðumst okkar annað heimili á Akureyri. Þegar börnin voru flogin úr hreiðrinu keyptu Eiríkur og Ranna minna hús handan fjarð- arins og nefndu Breiðablik. Ei- ríkur taldi það mikið lán að eignast hús á ófrágenginni lóð, en þar var aðeins urð og grjót. Var nú tekið til hendinni og upp reis sannkallað töfraland, þar sem landslagið fékk að njóta sín með gróðurlundum, stígum og pöllum. Hann tók jafnframt til við trjárækt inni í Eyjafirði, ræktaði þar mikinn skóg og byggðu þau hjónin þar upp sannkallaða sumarparadís sem þau kölluðu Urðarmörk. Einstök atorka einkenndi Ei- rík og áhugamálin voru fjöl- mörg. Hann var glæsilegur maður og góður íþróttamaður, varð reyndar íþróttakennari fyrir læknisnámið. Hann var fé- lagslyndur og gott skáld og fékk undirrituð oft góða vísu í tölvupósti á afmælisdaginn. Hann hélt myndskreytta dag- bók í áratugi og var þar haldið til haga málefnum dagsins og merkisatburðum í lífi fjölskyld- unnar, vina og ættingja. Eiríkur og Ranna voru ein- staklega samhent hjón. Hann var mikill fjölskyldumaður, fylgdist vel með afkomendunum og á síðari árum naut hann ná- inna samvista við yngsta barna- barnið, Brynjar Pál. Fyrir fáum árum fluttu Ei- ríkur og Ranna aftur yfir fjörð- inn, í Brekatún, en þar er fagurt útsýni til allra átta. Þar voru þau góð heim að sækja sem fyrr, en nú var ég ein á ferð. Margt var enn rætt og alltaf gleði og hressileiki í fyrirrúmi. Eiríkur barðist harðri bar- áttu við óvæginn sjúkdóm og hafði lengi vitað hvert stefndi. En áhuginn og lífsorkan fylgdu honum til æviloka, til skamms tíma fór hann í ræktina, á föstu- dagsfundina á spítalanum og inn í Urðarmörk svo lengi sem heilsan leyfði. Langri og gifturíkri lífsgöngu frænda míns er nú lokið. Mér er efst í huga þakklæti fyrir ein- staka vináttu. Elsku Ranna og fjölskylda, megi ljúfar minningar milda sorg ykkar. Þorbjörg Þóroddsdóttir. Litadýrð haustsins umlykur okkur og bendir okkur á að sumri halli og nú fari vetur að ráða för. Í þessari litadýrð kveður okkur góður vinur og fé- lagi, sem unni gróðri og hefði að öðru jöfnu verið að undirbúa ræktun sína til að mæta vetri, en svo varð ekki á þessu hausti. Nú hefur hann kvatt okkur eftir erfiða baráttu við illvígan sjúk- dóm og hverfur á braut til þess bústaðar sem bíður hans. Glað- lyndi hans, hlýlegt bros og lífs- kraftur lifir með okkur sem minnumst hans og þökkum fyrir að hafa haft Eirík að samferða- manni. Í góða fjóra áratugi hafa leið- ir okkar legið saman og stuðn- ingur hans við mig frá upphafi þess tíma hefur verið mér ómet- anlegur og dýrmætari eftir því sem árin líða. Sem leiðtogi í félagsstarfi reyndist hann ráðsvinnur og hafði ótakmarkaðan áhuga á því sem hann tók sér fyrir hendur. Eljusemi hans var öðrum fyr- irmynd og hvatning. Hann hik- aði ekki við að segja meiningu sína og hafði sterkar skoðanir. Hann tók þátt í bæjarmála- pólitík á Akureyri um skeið. Var á lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningum 1982 og 1986 og sinnti fjölþættum nefndarstörfum, mest á sviði heilbrigðis- og umhverfismála. Eiríkur starfaði mikið innan Frímúrarareglunnar á Íslandi og sinnti þar fjölmörgum og ábyrgðarmiklum störfum. Frí- múrarabræður kveðja þennan góða bróður og forustumann með þakklæti og virðingu. Við Þórunn kveðjum kæran félaga sem við fengum tækifæri til að vera með í félagsstarfi og vinnu. Eftir standa ljúfar minn- ingar liðinna tíma. Þó skuggar sorgar hvíli nú yfir við fráfall Eiríks mun um síðir það ljós sem okkur lýsir umbreyta sorg í minningar sem með okkur lifa. Rannveigu og fjölskyldu vott- um við okkar dýpstu samúð. Sigurður J. Sigurðsson. Það kom mér ekki á óvart þegar ég frétti um andlát vinar míns Eiríks. Við höfðum nokkru áður hist og sagði hann þá að þetta yrði sennilega síðasti hitt- ingur okkar. Þegar ég hóf störf hjá lögreglunni árið 1964, barn- ungur, var Eiríkur búinn að ljúka læknanámi og fullnuma læknir. Á þessum árum voru bæði læknar og lögreglumenn fáir hér í bæ þannig að yfirleitt myndaðist góður vinskapur á milli þessara stétta. Báðar stéttirnar þurftu á hinni að halda. Þegar við komum með slasað fólk á sjúkrahúsið að næturlagi voru starfsmenn fáir og ekki ósjaldan hjálpuðum við lögreglumenn til við minni að- gerðir. Síðar áttum við Eiríkur eftir að verða stúkubræður í Frímúrarareglunni og þar átt- um við mikið og gott samstarf um margra ára skeið. Ég læt hér fylgja með ljóð eftir gamlan Akureyring sem mér finnst vera við hæfi á þessari kveðju- stund. Harmafregn í hlustum dynur horfinn okkar góði vinur, gengin burtu guðs á fund. Harmi lostin hjörtun tifa hlýjar minningarnar lifa lýsa og létta sorgarstund. Tíminn mælir æviárin engin skilur sorgartárin, æviskeið sitt eingin veit. Regluspor í vitund vaka völdin minningarnar taka, þökkin ríkir hrein og heit. (HZ) Að lokum vil ég senda eig- inkonu Eiríks og börnum þeirra og fjölskyldum ásamt systkin- um Eiríks og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur og er það ein- læg ósk mín að hinn hæsti höf- uðsmiður himins og jarðar vaki yfir velferð þeirra í ókominni framtíð. Ólafur Ásgeirsson. Þá skuggar hverfa úr skógarrein, er þögnin titrar svo tær og hrein. Og holtin anga við hæðardrög þar harpa vorsins sín hljómar lög. (Páll frá Breiðabliki.) Svo kvað Eiríkur Sveinsson í ljóðinu Vormorgunn sem hann birti undir dulnefni í Lækna- nemanum árið 1964. Áður hafði hann átt í blaðinu önnur ljóð, m.a. einlæg ástarljóð. Eiríkur lauk embættisprófi í læknis- fræði frá Háskóla Íslands í febrúar 1965 og lauk því næst kandídatsári og héraðsskyldu á Akureyri. Hlaut almennt lækn- ingaleyfi á Íslandi í ágúst 1966. Það varð mikið happ fyrir Norð- lendinga þegar Eiríkur að loknu sérfræðinámi í háls-, nef- og eyrnalækningum í Svíþjóð ákvað að setjast að á Akureyri árið 1971. Hann varð frum- kvöðull í sérgrein sinni, bæði innan Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og í lækningaferðum sínum á aðra þéttbýlisstaði á Norður- og Austurlandi. Eirík- ur vildi samt gjarnan halda því til haga að hann væri ekki fyrsti HNE-læknirinn á Akureyri, minnti á að Victor Gestsson hafði verið þar starfandi í grein- inni árin 1939-1944. Á sjúkra- húsinu gegndi Eiríkur fyrst stöðu sérfræðings í HNE-lækn- ingum. Síðar gegndi hann stöðu yfirlæknis HNE-deildar FSA frá janúar 1988, þegar sú staða var heimiluð, þar til hann lauk störfum vegna aldurs í desem- ber 2003. Eiríkur hafði einnig gegnt starfi yfirlæknis við heyrnardeild Heilsuverndar- stöðvar Akureyrar frá janúar 1977 til ársloka 1982. Hann setti rör í eyru barna fyrstur lækna á Akureyri. Eiríkur var stunda- kennari við Háskólann á Akur- eyri 1987-1995. Í læknisstarfinu var Eiríkur farsæll. Í aðgerðum á sjúkling- um var hann velvirkur og hrað- virkur, hafði verklag sem HNE- læknar af hans kynslóð þurftu að temja sér meðan svæfinga- tækni var ófullkomnari en nú tíðkast. Meðal samstarfsfólks og sjúklinga hans var hann þekktur fyrir stundvísi og að vilja hafa hlutina í röð og reglu. Í hópi lækna var hann góður fé- lagi, jafnan glaðbeittur og hress í bragði. Hann lagði áherslu á að læknar stæðu saman við að efla hag sjúkrahússins og gæði þjónustunnar. Hann reyndi jafnvel að fá þá til að hreyfa sig meira, t.d. með því að kenna þeim golfíþróttina. Eftir starfslok sótti Eiríkur fræðslufundi læknaráðs sjúkra- hússins allt fram á þetta ár. Í samræmi við stundvísi hans og þörf fyrir röð og reglu mætti hann oftast fyrstur manna og sat ævinlega í sama stólnum. Hann virtist njóta eftirlaunaár- anna og í viðtali við blaðið Viku- dag fyrir tveim árum er haft eftir honum að hann finni voða- lega lítið fyrir aldrinum. Við vottum eiginkonu Eiríks Sveinssonar, börnum þeirra og öðrum aðstandendum samúð vegna fráfalls hans og leyfum honum sjálfum að hafa síðasta orðið: Gældu oft við gleðina giftu mun það skapa, því samningsleit við sorgina sífellt muntu tapa. Fyrir hönd stjórnar Lækna- ráðs Sjúkrahússins á Akureyri og gamalla samferðamanna úr hópi lækna á Akureyri, Ragnheiður Halldórsdóttir formaður. Eiríkur Páll Sveinsson Ástkær systir okkar, móðir, amma og langamma, KRISTÍN ERIKA TYNAR húsmóðir í Los Angeles, Bandaríkjunum, áður Laugarási við Múlaveg, lést 23. september 2017 á hjúkrunarheimili í Los Angeles, Kaliforníu, Bandaríkjunum. Aðstandendur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALDIMAR ÞÓR HERGEIRSSON, fyrrverandi yfirkennari við Verzlunarskóla Íslands, lést í faðmi fjölskyldunnar þann 28. október á líknardeild Landspítalans. Útförin verður auglýst síðar. Ragnar Þór Valdimarsson Brynja Baldursdóttir Alda Björk Valdimarsdóttir Guðni Elísson Örn Valdimarsson Aðalheiður Ósk Guðbjörnsdóttir Brynja Tomer og barnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minning- argreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerf- inu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda mynd- ina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjón- armenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.