Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017
Er bíllinn tilbúinn
TUDOR TUDOR
TUDOR er hannaður til þess að þola
það álag sem kaldar nætur skapa.
Forðastu óvæntar uppákomur.
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start me
ð
TUDOR
fyrir kuldann í vetur?
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur þolinmæði og vilja til þess
að framkvæma erfitt en jafnframt nákvæmt
verkefni í dag. Þú átt að koma til dyranna
eins og þú ert klædd/ur.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert fullkomlega fær um að taka
hverri þeirri áskorun sem á vegi þínum verð-
ur. Ekki halda aftur af þér, þú kannt að verða
hissa á því hversu fljótir aðrir eru til að sam-
sinna þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu varkár og reyndu að lesa sem
best í samstarfsmenn þína; einhverjir vinna
gegn þér, en fara dult með það. Láttu lítið á
þér bera, ef hægt er.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú mátt ekki vanmeta vinsældir þínar
en mátt heldur ekki misnota þér velvild ann-
arra. Mundu að ekki er allt sem sýnist; það
getur átt við fólk, eins og annað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt hlutirnir líti vel út á pappírnum er
ekki þar með sagt að þeir séu borðleggjandi
gróði. Farðu vel með vald sem þér er falið.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Skrifaðu niður allt sem þú þarft að
gera og raðaðu svo verkefnunum eftir mikil-
vægi þeirra. Leiðtogahæfileikar og ráðsnilld
koma að góðum notum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að falla ekki í þá gryfju að líta á
þá sem standa þér næst sem sjálfsagða. Að-
gát skal höfð í nærveru sálar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Mótspyrnan sem þú hefur fund-
ið fyrir, hverfur um leið og þú eykur kraftinn.
Einstaklingar rísa upp úr mannhafinu og
mæla af visku sem virðist ætluð þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hlutirnir rúlla fínt núna og því er
rétti tíminn til að leggja til hliðar: peninga í
banka, mat í búrið. Nú skalt þú gera upp for-
tíðina svo hún verði þér til friðs.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það eru stundum margar hliðar á
málum og ekki gott að ráða í, hvað rétt er. Nú
er komið að því að sinna þessum málum og
leiða þau til lykta.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef aðstæður valda þér óþæg-
indum skaltu endilega endurskoða þær og nú
með hjartanu en ekki skynseminni. Breyting-
arnar bíða handan hornsins og það skiptir
öllu máli að standa sig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ef þú hefur þín takmörk á hreinu
mætirðu skilningi annarra á leið þinni. Mundu
að reiði þjónar engum tilgangi öðrum en að
gera alla dapra, slakaðu bara á.
Páll Imsland heilsar „leirliði ísumarframlengingunni (og á
ég þá ekki við Ingunni)“:
Bóndi var Þorkell á Þröm
með þrjár gráar merar í höm:
ein þar af dauð
og önnur hver rauð.
Hin þriðja var taktlaus en töm.
„Halda að sér höndum strákar!“
er áminning Gústa Mar á Leir á
fimmtudag:
Heftir marga hamslaus þrá
holdsins hvatir erta.
Ei má banna auga að sjá
þó ekki megi snerta.
Guðmundur Arnfinnsson segir
frá Veiðivatnaferð á Boðnarmiði:
Sveinar draga björg í bú,
blautir vaga um sanda,
hálfir slaga hér og nú,
hella í magann landa.
Byggðu á sandi veiðivon,
við á sandi hafast,
lítilla sanda lon og don
loks í sandinn grafast.
Hér yrkir hann um Árnastaði –
og er stuðlasetningin með sínu
lagi!:
Í brekkuhalla eru Árnastaðir
og heim að bænum liggja langar traðir,
en Árna finnst það satt
að segja ansi bratt
og seinfært, enda átján barna faðir.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir yrk-
ir hér um Costco:
Ég ætla að versla hér eins og ég get
um annað er tæplega að ræða.
Því meir sem ég drekk og því meir
sem ég ét
þess meira hlýt ég að græða.
Ragnar Gunnlaugsson sagði að
hún væri góð þessi – „og fer nærri
þjóðarsálinni“!
Veðrið er alltaf vinsælt yrkisefni
og sannast á Pétri Stefánssyni:
Það er rok og regn í bland,
raun er af og mæða.
Önug gengur yfir land
áttin vestanstæða.
Úti geisar illskutíð.
Öldur stórar freyða.
Vestanáttin vond og stríð
veldur mönnum leiða.
Gunnar J. Straumland tók undir:
Váleg mín er veðrasýn
er vel ég rýni alltumkring.
Í vindi hrín, í Kára hvín
er hvæsinn brýnir útsynning.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þorkell á Þröm
og Veiðivatnaferð
GAMLA GÓÐA TERÚTÍNAN: GÓÐUR BOLLI,
SLÆMUR BOLLI.
„ÞÚ ERT BÚINN MEÐ ALLAR GRÆNU
PILLURNAR ÞÍNAR. VILTU TAKA EINA BLÁA
OG EINA GULA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar ekkert fær þig
til að hætta að brosa
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞEF
UPPFINNING TÚNFISKS-
MJÓLKURHRISTINGSINS
„STÓRATBURÐIRÍ
KATTKYNSSÖGU“…
ÞETTA VORU „STÓRATBURÐIR
Í KATTKYNSSÖGU“
HÚN ÞARF
KANNSKI Á
HÁRSNYRTINGU!NEI!
GARÐABRÚÐA, GARÐABRÚÐA! SENDU
HÁR ÞITT NIÐUR!
Fólk af erlendum uppruna er í aðal-hlutverki svo dampur haldist í
frumvinnslugreinum, verktaka-
starfsemi og þjónustugreinum. Í
mörgum sjávarplássum úti á landi
hefur myndast alþjóðleg deigla með
menningarstraumum víða að úr ver-
öldinni. Í einstaka hverfum á höfuð-
borgarsvæðinu, svo sem Breiðholt-
inu, eru nýir Íslendingar líka mjög
áberandi. Meginmálið er þó það að án
framlags þessa vinnufúsa fólks væri
atvinnulífið stopp. Hafa mætti það
sjónarmið í huga þegar stjórnvöld af-
greiða dvalarumsóknir fólks frá fjar-
lægum löndum sem kemur til Íslands
á öldum örlaganna: við þurfum ein-
faldlega enn fleiri vinnufúsar hendur.
x x x
Miklu skiptir að nýbúar – hvaðansem þeir úr veröldinni koma –
aðlagist íslensku samfélagi fljótt,
annað er uppskrift að félagslegri ein-
angrun þess. Vissulega er fjölmenn-
ing hljómfagurt orð, en að á einstaka
svæðum eða fríríki myndist menning-
arleg fríríki af erlendum stofni býður
hættum heim. Í því efni má hafa í
huga frásagnir af vesturförum, sem
ætluðu að skapa sína eigin íslensku
fósturjörð á víðfeðmum sléttum Kan-
ada. Það vissulega tókst í svolítinn
tíma, en svo fór að ræturnar við
gamla landið rofnuðu og í ýmsu efni
var bókstaflega klippt á þráðinn.
Enda er það nú svo að kerfið virkar
best þegar fólkið er í sama takti og
hefur svipaðan skilning á grunn-
gildum þess.
x x x
Á fáum árum hefur heimurinnminnkað og leiðir eru greiðar.
Fyrir vikið mun fólk af erlendum
uppruna sem aldrei fyrr stefna til Ís-
lands, sem í mörgu tilliti er land tæki-
færa. Að hingað komi flóttamenn og
hælisleitendur eru því á margan hátt
meðmæli með samfélagsgerðinni sem
hér er við lýði. Aðlögun tekur alltaf
tíma, en eftir því sem fjölbreytnin
eykst hættum við smám saman að
velta fyrir okkur uppruna fólks eða
draga það í dilka sem t.d. Valsara,
KR-inga, íhald eða komma. Strák-
urinn frá Afríku, sem afgreiðir Vík-
verja svo oft í Krónunni í Nóatúni,
kurteis og brosandi, er ábyggilega
ekkert af þessu. vikverji@mbl.is
Víkverji
Leitið Drottins meðan hann er að
finna, ákallið hann meðan hann er
nálægur (Jesaja 55:6)