Morgunblaðið - 30.10.2017, Side 34

Morgunblaðið - 30.10.2017, Side 34
34 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Undirritaður fékk Móður-ástina upp í hendurnargegnum svolitlar króka-leiðir og var nokkuð uppveðraður þegar fyrsta lag fór í gang, enda hlakkaði hann talsvert til að heyra hana. Fyrsta lagið, „Aska“, setur dimman tón. Drunginn er allsráð- andi en þó skín fegurðin í gegn líkt og sólstafur á svörtun himni. Já, það er víst ekki hægt að minn- ast á fyrstu plötu Kötlu án þess að Sólstafir komi til tals því Guð- mundur Óli er jú maðurinn sem Sólstafir létu róa á nokkuð eft- irminnilegan hátt fyrir rúmum tveimur árum. Það fer hvergi á milli mála að þess- ar sveitir eru sam- stofna, enda skal engan undra eft- ir jafn langt samstarf að mennirnir sem sveitirnar skipa séu tónlistarlega innréttaðir á svipaðan hátt. Þegar undirritaður ákvað að dæma plötu Kötlu lét hann vaða í rennsli á á öllum plöt- um Sólstafa og komst að því að fyrri (og jafnframt þyngri) plötur Sólstafa eru vissulega keimlíkar Móðurástinni. Sólstafir eru svo, eins og greinarritari kost að orði eftir Eistnaflug, miklu þéttari en áður og Gummi að koma frá sér svona líka þrælgóðri plötu. Þegar öll kurl eru komin til grafar má jafn vel segja að tónlistarlífð hafi auðgast af þessari breytingu. En aftur að Móðurástinni. Plat- an er eins og áður sagði þrælgóð. Hún fer upp og ofan í flækjustigi útsetninga og þéttni og þyngd málmsins sem hún byggist á en er tvímælalaust plata sem hægt er að hlusta á í heild sinni. Þeir Guð- mundur og Einar Thorberg Guð- mundsson, einnig þekktur sem Eldur, hafa skapað mjög skemmti- legan hljóðheim. Sándið er grugg- Dimm en draum- kennd Móðurást Málmur Móðurástin bbbbn Móðurástin er fyrsta plata hljómsveit- arinnar Kötlu sem skipa þeir Guð- mundur Óli Pálmason trymbill og Einar Thorberg Guðmundsson sem leikur á rest. Upptökustjórar voru þeir Leigh Lawson, Einar Thorberg og Halldór Á Björnsson. Platan var gefin út af Proph- ecy í Þýskalandi 27. okt. 2017. HJALTI ST. KRISTJÁNSSON TÓNLIST hann á kjánalegan hátt, eða með bundið fyrir augun, og útkoman eitt- hvað allt annað en hönnuðir leiksins höfðu í huga. Dans og friður í bardagaleikjum Sem dæmi nefnir Jonatan ævin- týraleikinn Skyrim þar sem sögu- hetjan ferðast um miðaldaheim og notar galdra og vopn til að sigra alls kyns ófreskjur og ráða niðurlögum risavaxinna dreka. „Einn spilarinn veitti því athygli að flestar þær skip- anir sem hægt er að gefa í leiknum snúast um ofbeldi, s.s. að stinga, berja eða skjóta. En um leið komst hann að því að hægt var að finna frið- samlega lausn á öllum þeim þrautum sem leikurinn býður upp á. Hann ein- setti sér því að klára þennan stóra og flókna leik án þess að grípa til ofbeld- is. Þetta hefur örugglega ekki verið létt verk, og kannski tekið heilan mánuð að finna friðsama lausn á leiknum, en útkoman varð gjörningur með mjög kröftug skilaboð, þar sem megintilgangi leiksins er snúið á haus.“ Annað dæmi er tónlistar- myndbandið Dance, Voldo, Dance, sem kvikmyndagerðarmaðurinn og teiknimyndahöfundurinn Chris Brandt á heiðurinn að. Verkið er frá árinu 2003 og hefur verið sýnt í söfn- um víða um heim. „Hann hafði komist að því að í leiknum Soul Calibur, sem er baradagaleikur ekki ósvipaður Mortal Combat og Streetfighter, var hægt að láta bardagakempurnar á skjánum gera mjög tjáningarmiklar hreyfingar með því að gefa þeim bar- dagaskipanir. Hetjurnar á skjánum gátu ekki talað, en með fóta- og handahreyfingunum voru þær eins og dansarar, og ef hægt var að sam- ræma hreyfingar tveggja spilara gat útkoman orðið fallegur – og jafnvel ögn erótískur – dans,“ útskýrir Jon- atan. „Eftir langt og strangt listdans- hönnunarferli, og þrotlausar æfingar varð til dansverk sem umbreytir slagsmálaleiknum í eitthvað allt ann- að.“ Draumafjölskyldan rótar í ruslinu Gjörningarnir geta líka verið áhugaverð samfélagsádeila. Dæmi um þetta var þegar leikjahönn- unarnemi ákvað að sjá hvað gerðist þegar söguhetjur Sims voru gerðar heimilislausar. Fyrir þá sem ekki vita er The Sims n.k. lífsgæðakapp- hlaupshermir þar sem leikmaður býr til fjölskyldu, byggir fyrir hana og innréttar draumahúsið, og hjálpar fjölskyldumeðlimum að vaxa og dafna jafnt félagslega sem faglega. „Þessi nemi gerði tilraun með að spila leikinn með þeim hætti að gera fjöl- skylduna bæði heimilis- og peninga- lausa. Hann birti síðan svipmyndir af framvindu leiksins á bloggsíðu, og færði í sögubúning. Áhugaverðir Tölvuleikir eru orðnir vettvangur  Bardagahetjur breytast í dansara og eðlisfræði leikja er snúið á haus til að búa til „kattagosbrunn“  Skapandi fólk notar netið til að dreifa listrænum tilraunum í leikjaheimi til milljóna áhorfenda Boðskapur Heimilislaus tölvumanneskja í leiknum The Sims sem snýst um að láta neysludrauma rætast. Áhugaverð og átakanleg tilraun. Morgunblaðið/Eggert Tjáning „Eftir langt og strangt listdanshönnunarferli, og þrotlausar æfingar varð til dansverk sem umbreytir slags- málaleiknum í eitthvað allt annað,“ segir Jonatan um Dance, Voldo, Dance sem gerði bardagahetju að dansara. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Óhætt er að kalla marga tölvuleiki listaverk. Þó að miðillinn byggist á rökrásum í boxi og ljósum á skjá eru sumir tölvuleikir listræn stórvirki sem nota fallegt myndmál eða gríp- andi söguþráð til að hrífa spilarann með sér. Jonatan Van Hove segir kraft mið- ilsins meðal annars birtast í því að þegar fólk lýsir upplifuninni af tölvu- leik þá talar það í fyrstu persónu: Ég felldi drekann. Ég barðist við Svart- höfða. „Sá sem spilar tölvuleik upp- lifir sig ekki bara sem áhorfanda heldur sem hluta af sögunni, og er þetta eitthvað sem enginn annar mið- ill virðist geta státað af.“ Jonatan er leikjahönnuður, upp- runalega frá Belgíu en flutti til Ís- lands fyrir tveimur árum til að vera með íslenskri konu sem hann kynnt- ist fyrst fyrir tæpum átta árum. Hann kennir leikjahönnun við HR, er sjálfstæður verktaki og á m.a. heið- urinn af stofnun leikjafyrirtækisins Glitchnap þar sem hann gaf út með félaga sínum leikinn Invert. Á TEDxReykjavík ráðstefnunni sem haldin var í september flutti Jon- atan áhugavert erindi um tölvuleiki sem vettvang gjörningalistar. Hann bendir á að listamenn eru farnir að taka vinsæla tölvuleiki og nýta til list- sköpunar. Þegar að er gáð er gjörn- ingalist í tölvuleikjum ört stækkandi listform sem, þökk sé vefsíðum á borð við YouTube og Twitch, geta náð til margra milljóna áhorfenda. Fyrirbærið sem Jonatan hefur komið auga á felst í því að listamenn og áhugamenn taka upp á því að spila leiki með allt öðrum hætti en upp- haflega var ætlast til. Þeir ýta mögu- leikum leikjaheimsins út að ystu mörkum til að skapa eitthvað nýtt og áhugavert. „Í raun er hægt að spila sama leikinn á ólíkan hátt í hvert sinn. Það mætti t.d. reyna að spila

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.