Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 35

Morgunblaðið - 30.10.2017, Síða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017 ugra en oft má búast við á málm- skífu og trommurnar liggja aftar í mixinu en á þeim mörgum. Fyrir vikið verður sándið svolítið gam- aldags. Gítarar hljóma einna helst viðlíka og á plötunni Roots með Sepeltura, en sú plata kom út fyrir röskum 20 árum, eða 1996. Í öllu falli er sándið ekki alveg eins og maður á að venjast og er það vel. Eins og áður kom fram fer plat- an bæði hátt og lágt. Hún hefst á talsverðum drunga í inngangslag- inu og strax í kjölfar þess kemur eitt af sterkari lögum plötunnar, „Hyldýpi“. Það lag er í nokkuð stórri útsetningu, söngurinn draumkenndur og kraftmikill til skiptis og almennt ágætis keyrsla á laginu. Lögin „Hvíla“ og „Hreggur“ eru svo töluvert af- slappaðri, þó ekki þannig að skap- ist ládeyða. Þó ber að nefna sin- fónískar útsetningar „Hreggs“ og dásamlega groddalega gítarkafla sem eru heppilegir þeim sem rennur fljótandi málmur í æðum. Þessi lög gefa smá svigrúm fyrir titillagið sem er næst á plötunni en halda samt ekki alveg jafn vel og lögin á undan. Um textann má segja að það virðist sem hann sé skrifaður til höfuðs „Sofðu unga ástin mín“, lagið er margslungið og rís hæst í þrælgóðum „blast beat“ kafla um miðbikið og keyrir svo á fullri orku þar til það endar á upptöku af flutningi Laugheiðar Jónsdóttur og Svanlaugar Sigur- björnsdóttur á „Hvað syngur litli fuglinn“ frá árinu 1934. Platan endar svo á Laginu „Dulsmál“. Það lag er það fyrsta sem kom út af plötunni og verður það að telj- ast að sú birting hafi krafist kjarks þar sem lagið spannar hvorki meira né minna en tólf mínútur og þrjátíu og sex sek- úndur. Langir og stórir kaflar með píanói og miklum strengjaútsetn- ingum og allt í 11 eftir yfirvegaðan en kraftmikinn innagang. Svo skellur róin aftur á í lokin eins og skyndileg þoka á heitum degi. Lagið endar á síðasta erindinu með strengjaundirleik. Textarnir á pötunni eru svolítið dómsdagskenndir og síst til þess að vekja manni von í hjarta um stöðu mankyns. Þeir njóta sín hinsvegar vel í laglínunum og hljóðblöndunin er þannig að þeir heyrast vel. Með deluxe-útgáfu plötunnar fylgja endurhljóðblandanir (remix) af öllum lögunum sem er ekki við hæfi að fjalla um í dómi um plöt- una sem slíka. Þó er í lagi að benda á að Andvökunátta-remix hljómsveitarinnar Legend á „Nátt- haga“ er stórgott og vel þess virði að bera sig eftir. Þegar á heildina er litið er Móð- urástin stórgóð plata sem yrði prýði í hvaða plötusafni sem væri. Katla Guðmundur Óli Pálmason og Einar Thorberg Guðmundsson skipa dú- ettinn Kötlu sem gaf út sína fyrstu breiðskı́fu fyrir þremur dögum. Elly (Stóra sviðið) Fös 3/11 kl. 20:00 auk. Fim 23/11 kl. 20:00 30. s Fim 14/12 kl. 20:00 38. s Lau 4/11 kl. 20:00 24. s Fös 24/11 kl. 20:00 31. s Fös 15/12 kl. 20:00 39. s Fös 10/11 kl. 20:00 25. s Mið 29/11 kl. 20:00 32. s Lau 16/12 kl. 20:00 40. s Sun 12/11 kl. 20:00 26. s Fös 1/12 kl. 20:00 33. s Þri 26/12 kl. 20:00 41. s Þri 14/11 kl. 20:00 auk. Lau 2/12 kl. 20:00 auk. Mið 27/12 kl. 20:00 42. s Fim 16/11 kl. 20:00 auk. Sun 3/12 kl. 20:00 34. s Fim 28/12 kl. 20:00 43. s Fös 17/11 kl. 20:00 auk. Mið 6/12 kl. 20:00 35. s Fös 29/12 kl. 20:00 44. s Lau 18/11 kl. 20:00 27. s Fös 8/12 kl. 20:00 auk. Fös 5/1 kl. 20:00 53. s Sun 19/11 kl. 20:00 28. s Lau 9/12 kl. 20:00 36. s Lau 6/1 kl. 20:00 54. s Mið 22/11 kl. 20:00 29. s Sun 10/12 kl. 20:00 37. s Stjarna er fædd! Guð blessi Ísland (Stóra sviðið) Mið 1/11 kl. 20:00 5. s Sun 5/11 kl. 20:00 7. s Sun 26/11 kl. 20:00 9. s Fim 2/11 kl. 20:00 6. s Fim 9/11 kl. 20:00 8. s Fim 30/11 kl. 20:00 10. s Þetta er 11. september Íslendinga, gjörsamlega. Kartöfluæturnar (Litla sviðið) Fim 2/11 kl. 20:00 13. s Fim 16/11 kl. 20:00 16. s Sun 5/11 kl. 20:00 15. s Þri 21/11 kl. 20:00 aukas. Fjölskyldukeppni í meðvirkni! Natan (Litla sviðið) Mið 1/11 kl. 20:00 3. s Lau 4/11 kl. 20:00 5. s Fös 3/11 kl. 20:00 4. s Fim 9/11 kl. 20:00 6. s Hvers vegna drepur maður mann? Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 10/11 kl. 20:00 1. s Sun 19/11 kl. 20:00 6. s Fim 30/11 kl. 20:00 11. s Lau 11/11 kl. 20:00 2. s Mið 22/11 kl. 20:00 7. s Fös 1/12 kl. 20:00 12. s Sun 12/11 kl. 20:00 3. s Fim 23/11 kl. 20:00 8. s Lau 2/12 kl. 20:00 13. s Mið 15/11 kl. 20:00 4. s Fös 24/11 kl. 20:00 9. s Sun 3/12 kl. 20:00 14. s Lau 18/11 kl. 20:00 5. s Mið 29/11 kl. 20:00 10. s Fös 8/12 kl. 20:00 15. s Draumur um eilífa ást Úti að aka (Stóra sviðið) Lau 11/11 kl. 20:00 6. s Lau 25/11 kl. 20:00 7. s Sprenghlægilegur farsi! Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 25/11 kl. 13:00 1. sýn Sun 26/11 kl. 13:00 2. sýn Lau 2/12 kl. 13:00 3. sýn Tilnefnd sem Barnasýning ársins á Grímunni. Eingöngu sýnd á aðventunni. Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Þri 31/10 kl. 13:00 aukas. Fim 9/11 kl. 13:00 aukas. Sun 26/11 kl. 13:00 52. s Mið 1/11 kl. 13:00 aukas. Sun 12/11 kl. 13:00 50. s Sun 3/12 kl. 13:00 52. s Sun 5/11 kl. 13:00 49. s Sun 19/11 kl. 13:00 51. s Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor. KARTÖFLUÆTURNAR HHHHH |HHHHH|HHHH DV Morgunblaðið Fréttablaðið Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 5/11 kl. 13:00 Sun 12/11 kl. 16:00 Lau 30/12 kl. 13:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Faðirinn (Kassinn) Fim 2/11 kl. 19:30 Auka Fös 24/11 kl. 19:30 11.sýn Fim 7/12 kl. 19:30 Auka Fös 3/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 25/11 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/12 kl. 19:30 16.sýn Lau 4/11 kl. 19:30 9.sýn Fim 30/11 kl. 19:30 13.sýn Lau 9/12 kl. 19:30 17.sýn Mið 22/11 kl. 19:30 Auka Fös 1/12 kl. 19:30 14.sýn Lau 30/12 kl. 19:30 18.sýn Fim 23/11 kl. 19:30 10.sýn Lau 2/12 kl. 19:30 15.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Fös 3/11 kl. 19:30 4.sýn Lau 18/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/12 kl. 19:30 12.sýn Fös 10/11 kl. 19:30 5.sýn Fim 23/11 kl. 19:30 9.sýn Lau 9/12 kl. 19:30 13.sýn Lau 11/11 kl. 19:30 6.sýn Fös 24/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 29/12 kl. 19:30 14.sýn Fös 17/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/12 kl. 19:30 11.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Óvinur fólksins (Stóra sviðið) Lau 4/11 kl. 19:30 Lokas Eitt frægasta leikverk Henriks Ibsens í nýrri leikgerð Smán (Kúlan) Sun 5/11 kl. 19:30 15.sýn Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 1/11 kl. 20:00 Mið 15/11 kl. 20:00 Mið 29/11 kl. 20:00 Mið 8/11 kl. 20:00 Mið 22/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 25/11 kl. 11:00 291.sýn Sun 3/12 kl. 11:00 298.sýn Lau 16/12 kl. 11:00 307.sýn Lau 25/11 kl. 13:00 292.sýn Sun 3/12 kl. 13:00 299.sýn Lau 16/12 kl. 13:00 308.sýn Sun 26/11 kl. 11:00 293.sýn Lau 9/12 kl. 11:00 301.sýn Sun 17/12 kl. 11:00 310.sýn Sun 26/11 kl. 13:00 294.sýn Lau 9/12 kl. 13:00 302.sýn Sun 17/12 kl. 13:00 311.sýn Lau 2/12 kl. 11:00 295.sýn Sun 10/12 kl. 11:00 304.sýn Lau 2/12 kl. 13:00 296.sýn Sun 10/12 kl. 13:00 305.sýn Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 4/11 kl. 13:00 Lau 11/11 kl. 13:00 Lau 18/11 kl. 13:00 Lau 4/11 kl. 15:00 Lau 11/11 kl. 15:00 Lau 18/11 kl. 15:00 Lokas Brúðusýning Maður sem heitir Ove (Kassinn) Fös 10/11 kl. 19:30 57.sýn Sun 12/11 kl. 19:30 59.sýn Lau 18/11 kl. 19:30 61.sýn Lau 11/11 kl. 19:30 58.sýn Fös 17/11 kl. 19:30 60.sýn Sun 19/11 kl. 19:30 62.sýn Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Atvinna hlutir komu í ljós þegar leikur sem var hannaður til að herma eftir alls- nægtum var spilaður á þennan hátt. Fígúrurnar í tölvuleiknum tóku t.d. upp á því að róta í ruslinu eftir mat þegar þær höfðu ekkert að borða, en nágrannarnir sýndu líka náungakær- leik og reyndu að hjálpa þeim.“ Svo eru þeir sem fremja listræna gjörninga í tölvuleikjum með því að finna nýja fleti á eðlisfræðinni sem forrituð hefur verið inn í leikinn, líkt og áhugamaður um leikinn Minecaft gerði þegar hann smíðaði kattar- gosbrunn. Upptöku af gosbrunninum má finna á YouTube ef leitað er að „Catsplosion“. Minecraft er leikur þar sem spil- arinn getur mótað umhverfi sitt, höggvið niður heilu skógana, grafið djúpar námur, og smíðað stórar hall- ir. Þegar ákveðnum stillingum er breytt hefur leikmaðurinn fullt frelsi í þessum heimi og getur m.a. flogið og smíðað algjörlega að villd. „Meðal þess sem hægt er að gera í Minecraft er að taka að sér ketti. Og eins og köttum er líkt þá eru kettirnir í Mine- craft forritaðir til að elta eigendur sína. Ef eigandinn fer of langt í burtu þá einfaldlega „varpast“ kötturinn þangað sem eigandinn er,“ útskýrir Jonatan. „Einn leikmaður sá að þarna gafst tækifæri til frumlegrar sköpunar. Ef hann byggði nógu háa súlu, þá gat hann svifið yfir henni og látið leikinn varpa til sín köttunum sem hann hafði hænt að sér. Ef súlan var nógu mjó, þá komust kettirnir ekki fyrir á toppnum og ýttu hver öðrum af súlunni, en í stað þess að falla til jarðar vörpuðust kettirnir aft- ur á topp súlunnar þegar þeir voru komnir nógu langt frá eiganda sínum. Þannig var hægt að gera endalausan gosbrunn af köttum.“ Leikir sem laða fram sköpun Kannski finnst lesendum þau dæmi sem nefnd voru hér að ofan ekki beinlínis merkileg list, og jafnvel eitthvað bogið við að setja sniðugar tilraunir í tölvuleikjaheimum á sama stall og t.d. gjörninga í galleríum og listasöfnum. Jonatan bendir á að það rýri ekki gildi listrænna gjörninga í tölvuleikjum að miðillinn skuli vera nýr af nálinni og rafrænn. Ekki nóg með það heldur hefur þetta nýja list- form burði til að ná til mun fleiri áhorfenda en „hefðbundnir“ gjörn- ingar og gefa fleiri tækifæri á að koma sköpun sinni á framfæri. „Og þetta er listform sem getur verið mjög arðbært fyrir listamanninn, enda hægt að endurskapa listaverkið endalaust í tölvuheimi. Í dag hefur t.d. myndbandið með kattargos- brunninum verið skoðað 650.000 sinnum, og jafnvel ef sá sem smíðaði gosbrunninn og setti upptöku af gjörninginum á netið fær ekki nema einn dollar í auglýsingatekjur fyrir hverjar þúsund birtingar, þá fær hann þó meira en ekkert fyrir verk sitt. Er þá eftir að tala um alla þá sem hafa atvinnu af að spila tölvuleiki fyr- ir áhorfendur, eins og t.d. YouTube- stjörnuna Pewdiepie, sem stunda það yfirleitt að bregða einfaldlega á leik með sniðugum uppátækjum á meðan tölvuleikir eru spilaðir.“ Jonatan nefnir líka hvernig tölvu- leikir eins og Minecraft, sem voru hannaðir gagngert til að leyfa fólki að skapa, geta leyft hverjum sem er að þroska hjá sér listrænu hæfileikana. „Ég held að fullorðna fólkið geri sér ekki grein fyrir hversu mörg börn eru að nota leikinn til að skapa heilu söfnin sem þau svo bjóða vinum sín- um að skoða á netinu.“ listrænna gjörninga Jonatan segir íslenska tölvu- leikjageirann mjög öflugan miðað við smæð landsins. Góður andi er á milli tölvuleikjafyrirtækjanna og fólkið í greininni duglegt að styðja við bakið hvað á öðru. Sjálfur segir Jonatan að einn af hápunktum mánaðarins hjá honum séu fundir leikjasmiða þar sem fólk héðan og þaðan úr íslenska leikjageiranum kynnir verkefni sín og ræður ráð- um sínum. Hann segir að þrátt fyrir að flest íslensku leikjafyrirtækin séu mjög smá þá standi það ekki í vegi fyrir að á Íslandi verði til áhugaverðir leikir. „Tæknin hefur breyst og leikjasmiðir hafa fengið ný verk- færi í hendurnar á undanförnum 5- 10 árum sem gerir það mun ódýr- ara og einfaldara að gera leiki. Er raunar hægt að segja að núna geti hver sem er gert leik, svo lengi sem viðkomandi er reiðubúinn að leggja á sig nægilega mikla vinnu.“ Fyrir vikið er hægt að gera til- raunir með ótal „litla“ leiki, sem sumir slá í gegn og aðrir ekki. „Ef leikur skilar þó ekki sé nema 10- 20.000 dölum í tekjur þá er það alveg nóg til að standa undir nokk- urra mánaða þróunarvinnu,“ segir Jonatan. Það er þessi tilraunastarfsemi sem getur af sér suma merkileg- ustu leikina. „Þetta eru leikir sem eru gerðir af fólki sem vinnur af ástríðu og hugsjón og leyfir sér að gera djarfa hluti. Það er hjá litlu sjálfstæðu leikjaframleiðendunum sem við sjáum mjög áhugaverða leiki verða til, því stóru fyrirtækin sem verja jafnvel mörgum tugum og hundruðum milljóna í að gera einn leik þurfa að sýna meiri aðgát og geta ekki tekið áhættu þegar kemur að spilun og söguþræði.“ Sköpunargleðin ræður ferðinni hjá litlu leikjaframleiðendunum SMÆÐIN GETUR VERIÐ KOSTUR Straumur Kattagosbrunnurinn sem varð til með skapandi fikti í Minecraft.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.