Morgunblaðið - 30.10.2017, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 30.10.2017, Qupperneq 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2017 Gunnar sefur við hliðina áRóberti, nýja kærast-anum sínum, þegar sím-inn hringir. Í símanum er Einar, fyrrverandi kærastinn hans. Þau dularfullu orð sem Einar segir í símann vekja ugg hjá Gunnari og hann óttast að hann kunni að svipta sig lífi. Gunnar ákveður því að halda af stað um niðdimma nótt til að vitja Einars en hann dvelur í sumar- bústað fjölskyldunnar sem ber hið ógnvænlega nafn „Rökkur“. Þegar Gunnar mætir reynist Einar vera stráheill, fyrir utan að vera haldinn depurð og áfengisfíkn, líkast til af völdum sambandsslitanna. Það líður ekki á löngu þar til mann fer að gruna að ekki sé allt með felldu, það eru undarlegir svipir á ferli í myrkrinu og einhver bankar upp á í bústaðnum um miðja nótt. Gunnar og Einar reyna í samein- ingu að komast að því hver eða hvað situr um þá, meðan þeir reyna að greiða úr tilfinningum sínum og ást- arsambandinu sem fór í vaskinn. Rökkur er lítil framleiðsla, það koma ekki margir að gerð mynd- arinnar og hún er gerð af takmörk- uðum efnum. Miðað við það verður að segjast að hér hefur tekist vel til og myndin hlýtur að teljast til betur heppnaðra íslenskra indímynda. Þá getur maður ekki annað en dáðst að dugnaði Erlings leikstjóra við að koma myndinni á kortið en hún hef- ur verið sýnd á fjölda kvikmynda- hátíða og fengið mikla umfjöllun. Það sem heldur myndinni uppi er frammistaða aðalleikaranna. Björn og Sigurður Þór túlka Gunnar og Einar af fagmennsku og tilfinninga- næmi sem skilar sér í margslungn- um og áhugaverðum persónum. Sambandið á milli þeirra er vel byggt. Gunnar er eldri og upplifir sig sem verndara Einars, hann hef- ur áhyggjur af honum og ætlast til þess að hann segi sér allt af létta um tilfinningar sínar, bernsku og einka- líf. En það kemur á daginn að það er e.t.v. Gunnar sem þarf að taka til í sínu einkalífi og opna sig þar sem hann hefur tilhneigingu til að grafa vandamál sín frekar en horfast í augu við þau. Leikararnir tveir ná sterkri kemestríu sín á milli og þess vegna voru samtalsatriði þeirra inni í sumarbústaðnum mínir eftirlætis- kaflar í myndinni, þrátt fyrir að samtölin séu misvel skrifuð og eigi mismikið erindi inn í myndina. Ég hef áður tekið fram í þessum miðli að það hafi lengi verið sár vöntun á hrollvekjum í íslensku kvikmyndasamhengi. Nú virðist vera hrollvekjuvakning og ég fagna því heilshugar en Íslendingar eru samt sem áður að stíga sín fyrstu skref í greininni. Að sama skapi er Erlingur að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð og því ýmsir þættir sem á eftir að þróa og rækta. Í Rökkri er unnið með sígild hryllingsmyndaminni; ekki er ljóst hvort það sem ásækir piltana er af þessum heimi, bregðuatriði og draugalegar barnsraddir eru á sín- um stað og ekki vantar skerandi og spennuaukandi strengjaútsetningar. Þetta hafði tilætluð áhrif, áhorf- endur æptu upp yfir sig af geðs- hræringu og ung kona lýsti því yfir stundarhátt að hún ætlaði aldrei framar að fara í sumarbústað. Hollvekjan er um margt íhalds- söm kvikmyndagrein og maður býst ekki endilega við ærandi frumleika þegar maður sækir slíkar myndir, öllu heldur sækir maður í þær því maður veit hvað stendur til. Að því sögðu þá er Rökkur afar hlaðin ólík- um hrollvekjuþáttum, sem fram- kalla undantekningarlaust spennu en þjóna söguþræðinum ekki og af- vegaleiða hann jafnvel. Fjölmörg at- riði og möguleikar eru kynnt til sög- unnar sem eru aldrei fyllilega til lykta leidd. Þess vegna er fléttan og niðurstaða hennar heldur laus í sér. Hugsanlega hefðu skarpari klipping og niðurskurður hjálpað til í þeim efnum, sum atriði eru endurtekn- ingasöm og myndin er talsvert lengri en hún þyrfti að vera. Kvikmyndatakan er prýðileg, bæði inni- og útitökur eru vel úr garði gerðar og sviðsmyndin fær að njóta sín. Hljóðmyndin er sömuleið- is í stakasta lagi. Það má þó koma auga á nokkra tæknilega vankanta, til dæmis eru myndgæðin áberandi minni í sumum senum sem gerast í myrkri. Maður er vissulega til- búnari til að fyrirgefa slíkt þegar um sjálfstæða framleiðslu er að ræða en þetta er engu að síður nokkuð meinlegt. Þá er litaleiðrétt- ingin fremur ýkt, stundum minnir áferð myndarinnar á instagram- filter. Þessi fagurfræði höfðar tak- markað til mín en hún er í tísku um þessar mundir og virðist njóta mik- illar hylli. Það liggur ekki ljóst fyrir hvað það er sem ásækir Einar og Gunnar; hvort það er undarlegur bóndi í ná- grenninu sem hefur orð á sér fyrir að vera „fjölþreifinn“ eða jafnvel eitthvað úr handanheimum. Jafnvel má gera sér í hugarlund að upp- sprettan sé óuppgerð áföll sem þeir hafa gengið í gegnum. Þessi marg- ræðni skapar spennuþrungið and- rúmsloft en engu að síður hefði þurft að þétta myndina svo úr yrði hnitmiðaðri frásögn. Smárabíó, Borgarbíó og Háskólabíó Rökkur bbmnn Leikstjórn, handrit og klipping: Erlingur Thoroddsen. Kvikmyndataka: John Wakayama Carey. Aðalhlutverk: Björn Stefánsson, Sigurður Þór Óskarsson, Aðalbjörg Árnadóttir, Guðmundur Ólafsson, Jóhann Kristófer Stefánsson og Böðvar Óttar Steindórsson. 111 mín. Ísland, 2017. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Úr Rökkri „Það sem heldur myndinni uppi er frammistaða aðalleikaranna. Björn og Sigurður Þór túlka Gunnar og Einar af fagmennsku og tilfinninganæmi sem skilar sér í margslungnum og áhugaverðum persónum.“ Úti bíður andlit á glugga Stjórnendur framleiðslufyr- irtækisins HBO hafa hætt við fyrirhugaða sjónvarps- þáttaröð um síð- ustu forseta- kosningarnar í Bandaríkjunum eftir að hópur kvenna sakaði Mark Halperin, handritshöfund þáttanna, um kyn- ferðislega áreitni. Þáttaröðin átti að byggjast á væntanlegri bók Halperin um kosningabaráttu Trump og Clinton. Þegar ásak- anirnar komu fram ákváðu stjórn- endur Penguin Press hins vegar að hætta við útgáfu bókarinnar. Halperin sendi í liðinni viku frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafn- aði ásökunum fimm kvenna sem CNN hefur rætt við, en afsakaði hegðun sína í garð samstarfs- kvenna hjá ABC News fyrir um áratug. „Á þeim tíma reyndi ég að stofna til kynna við samstarfs- konur mínar, sem sumar hverjar voru miklu yngri en ég. Ég sé núna að þessi hegðun mín var óviðeigandi og olli vanlíðan. Ég biðst afsökunar á því,“ sagði m.a. í yfirlýsingunni. Hætt við út af kynferðislegri áreitni Mark Halperin Bandarísku leikkonurnar Selma Blair og Rachel McAdams hafa bæst í hóp þeirra kvenna sem sakað hafa kvikmyndaleikstjórann James Toback um kynferðislega áreitni en konurnar eru nú orðnar yfir 200 talsins sem hafa gert það. Blair sagði í viðtali við tímaritið Vanity Fair að Toback hefði áreitt hana kynferðislega, að því er fram kem- ur á vef BBC, og ógnað henni svo hún þegði yfir því. McAdams segir leikstjórann hafa leitað á hana á hótelherbergi þegar hún var enn í leiklistarnámi. Blair segir Toback hafa fengið hana til þess að fara úr að ofan og flytja einræðu á hótelherbergi árið 1999 og þvínæst hafi hann nuddað sér upp við fótlegg hennar og sagt að illa færi fyrir henni ef hún segði frá atvikinu. McAdams segir leik- stjórann hafa boðið henni upp á hótelherbergi í leikprufu en fljót- lega barst talið að kynlífi og To- back gerði henni ljóst hvað hann vildi í raun og veru. McAdams seg- ist hafa áttað sig á því að eitthvað óeðlilegt væri á ferðinni og vera fegin að Toback beitti hana ekki of- beldi. Toback verst öllum ásök- unum en upphaflega fjallaði dag- blaðið L.A. Times um þær. Fyrir rúmri viku birti blaðið yfirlýsingar 38 kvenna um brot Tobacks. Fleiri konur saka Toback um áreitni AFP Ásakanir James Toback hefur nú verið sakaður um kynferðislega áreitni og brot af yfir 200 konum. SÝND KL. 8, 10.10SÝND KL. 8, 10.25 SÝND KL. 5.50 SÝND KL. 10 SÝND KL. 5.50, 8 SÝND KL. 5.50 Miðasala og nánari upplýsingar 5% FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Við komum víða við í ár, heimsækjum fjölda fólks og verðummeð fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa. Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 1. desember Jólablað PÖNTUN AUGLÝSINGA: til 27. nóvember. SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.