Morgunblaðið - 30.10.2017, Qupperneq 40
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 303. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Ríkisstjórnin tapar 12 þingsætum
2. Þóra Margrét og Logi í stuði
3. Bjarni eða Sigmundur fái umboðið
4. „Þessi ummæli eru ekki stóra málið“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk
flytur tónleikhúsverkið „Elisabeth og
Halldóra, Bach og Grallarinn“ í Hall-
grímskirkju í kvöld kl. 20. Sýningin er
liður í Lúthersdögum í Hallgríms-
kirkju, en verkið var samið í tilefni af
500 ára afmæli siðbótar í Evrópu og
er ætlað að varpa ljósi á þátttöku og
áhrif kvenna á mótunarárum siðbót-
arinnar. Verkið byggist á heimildum
um sögu tveggja kvenna, Elisabethar
Cruciger (1500-1535) og Halldóru
Guðbrandsdóttur (1574-1658).
Kammerhópinn skipa að þessu sinni
12 hljóðfæraleikarar sem allir leika á
upprunaleg hljóðfæri en auk þeirra
koma fram leikkonurnar María Ell-
ingsen og Steinunn Jóhannesdóttir
og söngvararnir Marta Guðrún Hall-
dórsdóttir, Jóhanna Halldórsdóttir,
Bragi Bergþórsson og Benedikt Ing-
ólfsson auk Barna- og unglingakórs
Hallgrímskirkju og dömukórsins
Auroru.
Tónleikhús um tvær
siðbótarkonur í kvöld
Jón Yngvi Jóhannsson, lektor í
íslenskum bókmenntum á mennta-
vísindasviði HÍ, fjallar um nýlegar
bækur Sørine Steenholdt og Niviaq
Corneliusen og um grænlenskar
nútímabókmenntir almennt í
Borgarbókasafninu í Spönginni í
dag kl. 17.15. Steenholdt og Corne-
liusen eru meðal ungra höfunda
sem þykja fjalla um grænlenskan
nútíma og hlutskipti ungs fólks á
ferskan og spennandi
hátt. Þótt Grænlend-
ingar eigi sér ríkulega
hefð munnlegra frá-
sagna, þjóðsagna og
ævintýra eiga græn-
lenskar bókmenntir
sér ekki langa
sögu.
Jón Yngvi fjallar um
grænlenskar bækur
Á þriðjudag Suðvestan 5-13 m/s og rigning með köflum, en léttir
til eystra. Hiti 5 til 10 stig. Norðlægari um kvöldið með slyddu
norðvestantil og kólnandi veðri.
Á miðvikudag Minnkandi norðanátt. Bjartviðri sunnan- og vest-
anlands, en él í fyrstu norðaustantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg átt, dálítil rigning með köflum
og hiti 5 til 10 stig, en þurrt á norðaustanverðu landinu.
VEÐUR
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
mun leika á tveimur af síð-
ustu þremur mótum LPGA-
mótaraðarinnar í golfi en
margt þarf að ganga upp til
að hún hljóti keppnisrétt á
lokamótinu í Flórída sem
fram fer 16.-19. nóvember.
Ólafía lék á sínu 24. móti á
mótaröðinni í ár þegar hún
varð í 59. sæti við erfiðar
aðstæður á Sime Darby-
mótinu í Malasíu um
helgina. »1
Margt þarf að
ganga upp
Íslenska landsliðið í handknattleik
karla náði ekki að endurtaka leikinn
og vinna Svía öðru sinni þegar lið
þjóðanna leiddu saman hesta sína
öðru sinni í Laugardalshöllinni á
laugardaginn. Á heildina litið voru
leikirnir afar kærkomnir fyrir marga
leikmenn. Geir þjálfari var óspar á að
tefla yngri og óreynd-
ari leikmönnum
fram. Þeir fengu
nauðsynlega
reynslu sem á eftir
að reynast þeim
dýrmæt. »4
Nauðsynleg reynsla
fyrir unga leikmenn
Valur og Haukar fara vel af stað í
Dominos-deild kvenna í körfubolta.
Þau eru saman í toppsæti deild-
arinnar með tíu stig. Valur lagði Snæ-
fell og Haukar höfðu betur gegn
Keflavík um helgina. Stjarnan tapaði
fyrir Skallagrími og mistókst að fara
upp að hlið þeirra. Liðin sem mætt-
ust í úrslitum á síðustu leiktíð; Kefla-
vík og Snæfell, fara illa af stað. »6
Valur og Haukar fara
mjög vel af stað
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Hugmyndin að þessu öllu kviknaði
þegar við pabbi fundum gamlar upp-
tökur og nótur frá þessari keppni í
skúrnum hjá honum, allt lög frá ár-
unum 1957 til 1971,“ segir Hulda Jón-
asdóttir, þjónustufulltrúi í Lágafells-
skóla í Mosfellsbæ, ættuð frá
Sauðárkróki, en hún stendur fyrir
tónleikum í Salnum í Kópavogi nk.
laugardagskvöld í tilefni þess að 60 ár
eru liðin síðan Danslagakeppni Kven-
félags Sauðárkróks hóf göngu sína.
Hulda hefur í grúski sínu undan-
farin þrjú ár fundið um 100 lög úr
keppninni en 20 þeirra voru valin til
flutnings á tónleikunum, sem fyrst
voru haldnir í Sæluviku Skagfirðinga
sl. vor. Vegna mikillar eftirspurnar
var ákveðið að endurflytja þá sunnan
heiða og er Salurinn nánast orðinn
fullur, aðeins örfáir miðar eftir. „Við-
tökurnar hafa farið fram úr björtustu
vonum og ég er hætt að hafa hnút í
maganum og áhyggjur af því að
dæmið muni ekki standa undir sér,“
segir Hulda.
Kvenfélagið átti frumkvæðið
Faðir hennar, Jónas Þór Pálsson,
málarameistari á Sauðárkróki, lék á
trommur í flestum danslagakeppnum
á þessum árum, 1957-1971. Og móðir
hennar, Erla Gígja Þorvaldsdóttir,
samdi mörg lög í keppnina þegar hún
var endurvakin 1994. Jónas lést fyrir
tæpu ári og náði ekki að vera við-
staddur 60 ára afmælistónleikana
sem dóttir hans skipulagði ásamt
fleiri.
Hljómsveitarstjóri er Þórólfur
Stefánsson, gítarleikari og tónlistar-
kennari í Svíþjóð, sem alinn er upp á
Sauðárkróki. Með honum spila Jón
Rafnsson á bassa, Halldór Hauksson
á trommur og Daníel Þorsteinsson á
píanó og hljómborð. Kynnir á tónleik-
unum er Valgerður Erlingsdóttir.
Söngvarar koma flestir úr Skagafirði,
m.a. þeir Geirmundur Valtýsson og
Óli Ólafsson, sem einnig komu fram í
Danslagakeppninni á sínum tíma.
Meðal annarra flytjenda má nefna
Álftagerðisbróðurinn Pétur Pét-
ursson, Hreindísi Ylfu (dóttir Huldu),
Maríu Ólafs, Eurovisionfara, og Guð-
brand Ægi Ásbjörnsson. Sum lögin
hafa orðið þekkt á landsvísu, eins og
Útlaginn, Nú kveð ég allt, Bílavísur
og Sjómannavísa. Höfundar laganna
á tónleikunum eru m.a. Geirmundur,
Jón Björnsson frá Hafsteinsstöðum,
Eyþór Stefánsson og dóttir hans,
Guðrún.
„Ég setti mig í samband við
fjöldann allan af fólki sem kom ná-
lægt þessu á sínum tíma. Ég fékk
ómetanlega hjálp frá svo mörgum,
þetta er búin að vera mikil vinna en
ótrúlega skemmtileg. Þórólfur hljóm-
sveitarstjóri er búinn að vera vakinn
og sofinn yfir þessu með mér. Hann
útsetti lögin og kom saman frábærri
hljómsveit,“ segir Hulda.
Kvenfélag Sauðárkróks stóð fyrir
danslagakeppninni, sem fjáröfl-
unarleið fyrir félagið. „Fremst í flokki
var kjarnorkukonan Guðrún Gísla-
dóttir, sem hrinti þessu af stað. Hún
sá bara sjálf um að semja texta við
lögin ef þá vantaði og stundum bæði
lag og ljóð. Ótrúleg kona. Það er líka
gaman að sjá hversu margar skag-
firskar húsmæður áttu lög í keppn-
inni, þeim er greinilega margt til lista
lagt,“ segir Hulda.
Hún vildi koma á framfæri sér-
stökum þökkum til þeirra sem hafa
aðstoðað við tónleikahaldið, bæði fyr-
ir norðan í vor, og nú í Salnum í
Kópavogi 4. nóvember.
20 danslög valin af um 100
Danslög úr
Skagafirði flutt
í Salnum 4. nóv.
Ljósmynd/Stefán Pedersen
Danslög Hljómsveit Hauks Þorsteinssonar, sem lengi lék undir í lögum Danslagakeppninnar á Sauðárkróki á sínum
tíma. Í neðri röð f.v. eru Sigurgeir Angantýsson, Haukur og Hafsteinn Hannesson. Í efri röð f.v. eru Jónas þór Páls-
son, faðir Huldu, og Sveinn Ingason. Hérna er hljómsveitin samankomin í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki.
Tónlistarunnandi Hulda Jónas-
dóttir skipuleggur tónleikana.