Fréttablaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 20
Þetta er þörfin fyrir að vera úti og hreyfa sig en líka ákveðið rótleysi. Ég þarf alltaf að vera að og ef ég er ekki hjólandi fer ég í fjallgöngur. Hjólið er samt númer eitt. Ég hef alltaf verið hjólandi og man eftir öllum mínum hjólum. Sextán ára fékk ég 3-gíra hjól og var gert mikið grín að mér því þá, árið 1981 voru allir á racerum,“ segir Guðrún Hreinsdóttir, sjúkra- liði og fararstjóri hjá Útivist, spurð út í áhugamálið. Hún segist ekki geta setið kyrr og á óteljandi ferðalög að baki á reiðhjóli, bæði innanlands og utan. Hún þurfi nánast að beita sig hörðu til að taka því rólega. „Ég reyni að hafa einn rólegan dag í viku og kalla hann „hreyf- ingarlausa daginn“, en ef veðrið er gott get ég ekki staðið við það,“ segir hún og upplýsir að fram undan sé hjólatúr frá Stóru-Mörk inn að Básum, um nótt. „Það er svakalega skemmtilegt að hjóla um nótt. Í fyrra hjólaði ég að heiman frá mér úr Grafarvoginum og inn í Bása, það tók nóttina og nánast allan daginn, um 160 kílómetrar. Ég var auðvitað þreytt en þetta er svakalega skemmtilegt.“ Guðrún hefur verð virk í Hjóla- rækt Útivistar frá árinu 2011. Hópurinn hjólar aðra hvora helgi frá Toppstöðinni í Elliðaárdal og oft í samfloti við Fjallahjóla- klúbbinn. Hún segir allt að fjörutíu manns mæta í hjólaferðirnar. „Við hjólum allt árið. Á vorin förum við út fyrir Reykjavík í dagsferðir og förum einnig í sumarleyfisferðir. Í fyrra til dæmis frá Brjánslæk yfir í Stykkishólm og aðra ferð yfir Tröllatungu og Steinadalsheiði. Í ferðinni yfir í Brjánslæk vorum við með allt á hjólunum og gistum í tjöldum. Það er ótrúlega skemmtilegur ferðamáti. En ég fer líka mikið ein í hjólaferðir. Í fyrra hjólaði ég til dæmis ein frá Stokkhólmi til Kaup- mannahafnar. Þar hitti ég félaga mína og saman hjóluðum við til Berlínar. Þetta var þriggja vikna ferð og mjög skemmtileg.“ Til að æfa sig fyrir þessa ferð hjólaði Guðrún ein frá Stykkis- hólmi til Patreksfjarðar, á þremur dögum. „Það voru langir dagar því þegar maður er einn nennir maður ekki að stoppa og tjalda klukkan sex og bíða þar til klukkan verður tíu til að fara að sofa. Ég hélt bara áfram fram á kvöld og dagleiðirnar náðu kannski 130 kílómetrum. Í sumar stefni ég á fjögurra landa ferð með þremur félögum og tvær fjallahjóla- ferðir innanlands, með Útivist.“ Guðrún er þaulvön að hjóla á þjóðvegunum en segir nauðsynlegt að gæta að örygginu. „Oft er mjög mikil umferð. Við erum öll með hliðarspegla á hjólunum og alltaf í skærgulum jökkum. Það þýðir ekkert annað þó mér finnist þeir ekkert fallegir,“ segir Guðrún. Á síðunni fjallahjolaklubburinn. is má lesa um hjólaævintýri Guð- rúnar frá Stokkhólmi til Kaup- mannahafnar. Það er svakalega skemmtilegt að hjóla um nótt. Í fyrra hjólaði ég að heiman frá mér úr Grafarvoginum og inn í Bása. Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is Guðrún Hreinsdóttir sjúkraliði hjólar hverja lausa stund. Hún er fararstjóri hjá Útivist og ferðast á reiðhjóli bæði innanlands og utan. MYND/EYÞÓR Guðrún hjólaði frá Stokkhólmi til Kaupmannahafnar í fyrrasumar. Veðurguðirnir gerðu Guðrúnu ekki alltaf auðvelt fyrir á ferðalaginu. MYNDIR/GUÐRÚN HREINSDÓTTIR Guðrún segir skemmtilegast að ferðast með tjald og allan búnað á hjólinu. Gaman að hjóla á nóttunni Guðrún Hreinsdóttir reynir að halda einn hreyfingarlausan dag í viku. Það tekst ekki alltaf, hún getur ekki verið kyrr. Hún stundar fjallgöngur og útivist en hjólreiðar eiga hug hennar allan. Þann 14. júní n.k. mun stórglæsilegt sérblað um HM í knattspyrnu fylgja Fréttablaðinu. Áfram Ísland Blaðið kemur út sama dag og flautað er til leiks á mótinu. Fyrsti leikur Íslands er tveim dögum síðar, gegn ljón sterku liði Argentínu. Í blaðinu er að finna eitthvað fyrir alla. Gallharðir fótboltaáhugamenn fá sinn skammt af áhugaverðum viðtölum og fróðleik. Auk þess er slegið á léttari strengi fyrir þá sem hafa almennt minni áhuga á boltanum en eru að sjálfsögðu gallharðir stuðningsmenn íslenska liðsins. Í blaðinu verður einnig að finna stórt leikjadagatal sem auðvelt er að kippa út úr blaðinu og færa inn úrslit leikja jafnóðum á meðan á mótinu stendur. Áhugasamir auglýsendur geta fengið nánari upplýsingar í síma 512 5402 eða með því að senda póst á netfangið serblod@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú N Í 2 0 1 8 M Á N U DAG U R 0 4 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F F C -5 B 5 4 1 F F C -5 A 1 8 1 F F C -5 8 D C 1 F F C -5 7 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.