Fréttablaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 54
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Láru G.
Sigurðardóttur
BAKÞANKAR
Ávextir í áskrift kosta um 550 kr.
á mann á viku og fyrirhöfn
fyrirtækisins er engin.
á viku
á starfsmann
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Aðeins
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Þegar sólin loksins skín lifnar allt við. Líka mannsandinn. Sólin á stóran stað í hjartanu
enda gætum við ekki án hennar
verið. Og við á norðurhveli jarðar
höfum upplifað ýmsa kvilla í
sólarleysinu.
Sólarleysi var t.d. algeng ástæða
beinkramar áður en við fórum að
gefa börnunum okkar D-vítamín,
eða sólskins-vítamín eins og Theo-
bald Palm kallaði það þegar hann
uppgötvaði þessi tengsl.
Fólk forðaðist sólina hér áður fyrr
því það var talið fínt að vera sem
hvítastur. Sagt er að Coco Chanel
hafi fundið upp sólböðin þegar hún
mætti sólbrún til Cannes eftir sigl-
ingu á Miðjarðarhafinu árið 1923.
Sólböðin slógu rækilega í gegn og
náðu svo mikilli útbreiðslu að um
síðustu aldamót sagði helmingur
Breta að megintilgangur sólarlanda-
ferða væri að koma heim sólbrúnn.
En eins mikið og hægt er að elska
sólina þá er ástarsambandið ekki
gagnkvæmt. Á meðan húðin baðar
sig í heitum sólargeislum eru þeir í
fullri vinnu við að láta húðina eld-
ast hraðar. Húðin verður slöpp, fær
línur, æðaslit, bletti (m.a. krabba-
mein) og ójafna áferð. Það sem við
teljum stundum eðlilega öldrun er
oft á tíðum einfaldlega afrakstur
sólbaða. Prófaðu að bera saman
húðina sem sól skín sjaldan á (t.d.
handarkrika) og oft (t.d. handar-
bak). Þá sérðu hversu mikið sólin
hefur látið húðina eldast.
En ekki viljum við kúldrast í
skugganum þegar sólin lætur loks-
ins sjá sig. Ef við berum á okkur
sólarvörn í styrkleika 30 SPF þá
minnka líkurnar á húðkrabbameini
og húðin eldist ekki eins hratt. Sól-
gleraugu eru einnig góð fjárfesting
því sólin getur m.a. valdið skýi á
auga. Með slíkum vörnum getum
við haldið áfram þessu einhliða
ástarsambandi og notið sólarinnar.
Óendurgoldin
ást
0
4
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
F
C
-3
8
C
4
1
F
F
C
-3
7
8
8
1
F
F
C
-3
6
4
C
1
F
F
C
-3
5
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K