Fréttablaðið - 04.06.2018, Side 54

Fréttablaðið - 04.06.2018, Side 54
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Láru G. Sigurðardóttur BAKÞANKAR Ávextir í áskrift kosta um 550 kr. á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins er engin. á viku á starfsmann www.avaxtabillinn.is avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110 Aðeins Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum Þegar sólin loksins skín lifnar allt við. Líka mannsandinn. Sólin á stóran stað í hjartanu enda gætum við ekki án hennar verið. Og við á norðurhveli jarðar höfum upplifað ýmsa kvilla í sólarleysinu. Sólarleysi var t.d. algeng ástæða beinkramar áður en við fórum að gefa börnunum okkar D-vítamín, eða sólskins-vítamín eins og Theo- bald Palm kallaði það þegar hann uppgötvaði þessi tengsl. Fólk forðaðist sólina hér áður fyrr því það var talið fínt að vera sem hvítastur. Sagt er að Coco Chanel hafi fundið upp sólböðin þegar hún mætti sólbrún til Cannes eftir sigl- ingu á Miðjarðarhafinu árið 1923. Sólböðin slógu rækilega í gegn og náðu svo mikilli útbreiðslu að um síðustu aldamót sagði helmingur Breta að megintilgangur sólarlanda- ferða væri að koma heim sólbrúnn. En eins mikið og hægt er að elska sólina þá er ástarsambandið ekki gagnkvæmt. Á meðan húðin baðar sig í heitum sólargeislum eru þeir í fullri vinnu við að láta húðina eld- ast hraðar. Húðin verður slöpp, fær línur, æðaslit, bletti (m.a. krabba- mein) og ójafna áferð. Það sem við teljum stundum eðlilega öldrun er oft á tíðum einfaldlega afrakstur sólbaða. Prófaðu að bera saman húðina sem sól skín sjaldan á (t.d. handarkrika) og oft (t.d. handar- bak). Þá sérðu hversu mikið sólin hefur látið húðina eldast. En ekki viljum við kúldrast í skugganum þegar sólin lætur loks- ins sjá sig. Ef við berum á okkur sólarvörn í styrkleika 30 SPF þá minnka líkurnar á húðkrabbameini og húðin eldist ekki eins hratt. Sól- gleraugu eru einnig góð fjárfesting því sólin getur m.a. valdið skýi á auga. Með slíkum vörnum getum við haldið áfram þessu einhliða ástarsambandi og notið sólarinnar. Óendurgoldin ást 0 4 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :3 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F F C -3 8 C 4 1 F F C -3 7 8 8 1 F F C -3 6 4 C 1 F F C -3 5 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.