Morgunblaðið - 13.11.2017, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 2017
GRAN CANARIA
28. nóvember í 21 nótt
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
129.995
m/allt innifalið
Njóttu sólarinnar á
Frá kr.
84.995
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Engin niðurstaða liggur fyrir um
hvort Vinstri grænir muni fara í
formlegar viðræður við Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokk. Fundi verður
framhaldið klukkan 13 á morgun en
þetta var niðurstaða þingflokks
Vinstri grænna eftir um 5 klukku-
stunda fundarhöld í Alþingishúsinu í
gærkvöldi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er þingflokkurinn klofinn í
afstöðu sinni en enn er hluti þing-
manna afar andsnúinn því að halda í
formlegar viðræður um samstarf við
Sjálfstæðisflokk.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, segir ólíkar ástæður
geta legið þar að baki en hún telji
sjálf að flokkurinn eigi að láta reyna á
formlegar viðræður við Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokk. „Að mínu viti er
ekki hægt að vera andsnúinn þessu
fyrr en við sjáum hverju við getum
náð fram málefnalega. Öðruvísi tel ég
ekki hægt að taka afstöðu í þessu
máli,“ segir Katrín sem telur vel ger-
legt að ná samkomulagi sem flokks-
menn Vinstri grænna gætu vel við
unað.
Hluti Sjálfstæðisflokks efins
Ekki hefur verið boðað til þing-
fundar hjá Sjálfstæðisflokki í dag en
þeir þingmenn sem Morgunblaðið
ræddi við í gærkvöldi gerðu fastlega
ráð fyrir því að það yrði gert fyrr en
síðar. Þingmennirnir segja að enn sé
langt á milli Sjálfstæðisflokks og
Vinstri grænna í ýmsum stórum mál-
um sem leysa þurfi úr. Þar vegi þungt
breytingar á skattkerfinu og kom-
andi kjarasamningar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ríkir efi meðal sumra sjálf-
stæðismanna um samstarfið sökum
þess hversu illa Katrínu Jakobsdótt-
ur hefur gengið að fá flokksmenn til
að fylkja sér að baki flokksforystunni
í viðræðunum. Þeir binda þó vonir við
að það takist og eru bjartsýnir á að
hægt verði að ná samkomulagi.
Framsókn hist nánast daglega
Ráðgert er að þingmenn Fram-
sóknarflokksins muni hittast í dag og
funda um stöðu viðræðna við Sjálf-
stæðisflokk og Vinstri græna.
Líneik Anna Sævarsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins, segir
flokksmenn hafa hist reglulega und-
anfarnar vikur. Hún á von á því að
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður
Framsóknarflokksins, muni halda
áfram að halda þingflokknum upp-
lýstum. „Við höfum verið að hittast
ýmist annan hvern dag eða daglega.
Ég á von á því að heyra eitthvað í dag
en eins og staðan er núna er Sigurður
með umboð frá okkur og það heldur
áfram nema eitthvað verulegt breyt-
ist,“ segir Líneik.
Óeining innan
VG um framhaldið
Hluti Sjálfstæðisflokks efins sökum baklands Vinstri grænna
Morgunblaðið/Eggert
Fundahöld Vinstri grænir sátu lengi á fundi í Alþingishúsinu í gær.
Í gær var lögð fram tillaga til þings-
ályktunar á kirkjuþingi þar sem lagt
er til að þeim tilmælum verði beint
til borgarstjórnar Reykjavíkur að
séð verði til þess að horfið verði frá
fyrirhugðum byggingarfram-
kvæmdum í hinum forna kirkjugarði
Reykvíkinga, Víkurgarði.
Flutningsmaður tillögunnar er
Hreinn Hákonarson fangaprestur en
að hans sögn var tekið vel í tillög-
una. „Fyrstu umræðu lauk og tillög-
unni var vísað til allsherjarnefndar.
Síðan er bara að sjá hverju fram
vindur,“ segir Hreinn.
Með tillögunni segist Hreinn vilja
styðja við bakið á þeim sem mótmælt
hafa framkvæmdunum og vekja at-
hygli á málinu. „Jafnframt er þetta
hvatning til manna að virða helgi
kirkjugarða sem er mjög mikilvæg,
sér í lagi í þéttbýli.“
Skora á borgaryfirvöld að virða grafarró
Gísli Rúnar Gíslason
gislirunar@mbl.is
Kirkjuþing var sett í 56. skipti með
setningarathöfn í Vídalínskirkju í
Garðabæ á laugardagsmorgun en að
setningarathöfninni lokinni hófust
þingstörf sem hafa staðið yfir síðan
og lýkur á miðvikudaginn.
Fyrir þinginu liggja 20 mál en þar
af er helst að nefna nýtt frumvarp til
þjóðkirkjulaga auk þess sem lögð er
fram tillaga að breytingu á starfs-
reglum um val og veitingu prests-
embætta.
„Þetta hefur gengið ljómandi vel
og byrjaði með góðri setningarat-
höfn þar sem fluttar voru góðar ræð-
ur,“ segir Magnús E. Kristjánsson,
forseti Kirkjuþings. „Dómsmálaráð-
herra flutti skínandi fína ræðu á
laugardag og Jóhanna Guðrún Jóns-
dóttir flutti söng sem setti fallegan
svip á athöfnina. Síðan hafa þing-
störf staðið yfir og við höfum afgreitt
tólf mál úr fyrri umræðu til síðari
umræðu þannig að þetta hefur geng-
ið mjög vel.“
Aðspurður hvaða mál hafi verið
fyrirferðarmest segir Magnús að
viðamesta umræðan hafi farið fram
um tillögu að nýjum þjóðkirkjulög-
um. „Auðvitað hafa menn skiptar
skoðanir í mörgum málum og eink-
um umræðunni um ný þjóðkirkjulög.
Málið hefur verið til umræðu á vett-
vangi Kirkjuþings frá árinu 2008 en
það voru þó allir sammála um að
málið hefði þroskast vel og að sú til-
laga sem nú væri til umfjöllunar
væri best af þeim sem komið hefðu
fyrir kirkjuþing.“
Góður hljómgrunnur
Vinnan við endurskoðun
þjóðkirkjulaganna hófst árið 2007 og
er í níunda sinn sem tillaga um frum-
varp til nýrra þjóðkirkjulaga er lögð
fram á kirkjuþingi. Flutningsmaður
tillögunnar er Steindór R. Haralds-
son, formaður löggjafarnefndar
kirkjuþingsins, en sjálfur hefur hann
flutt tillögu um ný þjóðkirkjulög
tvisvar sinnum. „Það er verið að ein-
falda lögin og færa meira af ákvörð-
unum um kirkjuleg málefni til
kirkjuþingsins,“ segir Steindór.
„Meginþáttur frumvarpsins er að
taka ákvörðunarvald frá ríkinu um
málefni þjóðkirkjunnar til kirkjunn-
ar sjálfrar þannig að hún beri ábyrgð
á sjálfri sér og sé ekki háð ríkinu á
nokkurn hátt,“ segir Steindór og
bætir við að frumvarpið sem lagt var
fram í gær hafi verið kynnt mjög vel
fyrir öllum hagsmunaaðilum.
„Það er búið að kynna þetta á ell-
efu stöðum um landið á árinu og búið
að kalla marga fyrir nefndina, þar á
meðal biskup, prófasta, djákna, sér-
þjónustupresta og fleiri og
löggjafarnefndin hefur tekið tillit til
sjónarmiða allra. Það virðist vera
mjög góður hljómgrunnur fyrir
frumvarpinu en ágreiningurinn
snýst um hvort það eigi að leggja
frumvarpið fram eða ekki. Í umræð-
unum á þinginu fundu menn ekkert
efnislega að frumvarpinu en það eru
ákveðnir aðilar, þar á meðal biskup,
sem vilja ekki að lögin nái fram að
ganga heldur telja þau óþörf og
segja kirkjuna ekki þurfa að vera
sjálfstæðari en hún er.“
Þjóðkirkjulög til um-
ræðu á kirkjuþingi
Tuttugu mál liggja fyrir kirkjuþingi sem var sett á laugardag
Morgunblaðið/Kristinn
Trúmál Kirkjuþing var sett í Vída-
línskirkju á laugardagsmorgun.
Formaður Sjálfstæðisflokks lét þau orð falla að þetta
snerist ekki um málefni heldur um að mynda sterka rík-
isstjórn. Þetta segir Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Miðflokksins, sem telur að ef sam-
komulag næst milli flokkanna þriggja muni taka við
tímabil stöðnunar. „Mér finnst þetta fyrst og fremst snú-
ast um að menn nái sér í nógu marga stóla en á sama
tíma er málefnunum ýtt út af borðinu. Ég held að þessir
flokkar geti aldrei komið sér saman um stóru málefnin
og þess vegna mun þetta ekki vera stjórn framfara held-
ur stöðnunar,“ segir Gunnar og bætir við að Miðflokk-
urinn sé einungis tilbúinn að fara í ríkisstjórn með flokkum sem vilji ná
samkomulagi um málefni fremur en ráðherraembætti.
EF FLOKKARNIR NÁ SAMAN MUN TAKA VIÐ TÍMABIL STÖÐNUNAR
Gunnar Bragi
Sveinsson
Snýst um ráðherraembætti en ekki málefni
Spurð um gang stjórnarmyndunarviðræðnanna segir
Þorgerður Katrín að það verði einfaldlega að leyfa þeim
að klárast til að sjá hvort tekin verði ákvörðun um að fara
í formlegar viðræður. „Það er augljóst að Vinstri græn
eru í erfiðri aðstöðu, þau standa frammi fyrir öðrum val-
kostum en þriggja flokka mynstri. Þetta gengur réttilega
út á málefnin líkt og Katrín hefur sagt. Málefnalega hefði
ég talið að aðrir valkostir lægju VG nær og best væri því
fyrir forystu VG að segja það hreint út að þau vilji fara í
viðræður með Sjálfstæðisflokki og Framsókn.“
BEST VÆRI AÐ KOMA HREINT FRAM
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Aðrir valkostir málefnalega nær VG
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í
samtali við mbl.is í gær að Katrín Jakobsdóttir hefði
skýran valkost til hægri eða vinstri. „Hún er afburða-
stjórnmálakona og auðvitað í því hlutverki að gera það
besta fyrir sinn flokk og mun örugglega leggja sig alla
fram þar. Ég treysti henni bara til þess.“
Aðspurður hvort hann hefði sjálfur rætt við Katrínu
Jakobsdóttir um helgina sagði Logi að hún væri í við-
ræðum núna og að hann vildi ekki blanda sér inn í þær.
„Mér finnst það dónalegt,“ sagði Logi í samtali við mbl.is.
DÓNALEGT AÐ BLANDA SÉR Í VIÐRÆÐURNAR
Logi Einarsson
VG hafa skýran valkost til vinstri eða hægri
Ólafur Ísleifsson, þingflokksformaður Flokks fólksins,
segir tímann verða að leiða í ljós hver útkoma viðræðn-
anna sem nú eru í gangi verður.
„Ég bara tek eftir því eins og aðrir að Vinstri grænir
telja sig greinilega þurfa meiri tíma heldur en þennan
fund í dag til að komast að niðurstöðu um þær spurn-
ingar sem liggja fyrir þeim fundi.“
Fyrir helgi var greint frá því á mbl.is enginn formað-
ur hefðu verið í sambandi við Ingu Sæland í síðustu viku
en i gær átti hún fund með Loga Einarssyni.
TÍMINN LEIÐIR ÚTKOMUNA Í LJÓS
Ólafur Ísleifsson
hagfræðingur
Tekur eftir því sama og aðrir
„Vinstri grænir gera sér væntanlega grein fyrir því að
það verður erfitt gagnvart baklandi flokksins að fara í
samstarf við Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Þórhildur
Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata. Hún segir að það
hljóti að vera mjög erfitt fyrir konur innan flokks
Vinstri grænna að kyngja þessari niðurstöðu ef af verð-
ur. „Það veldur mér áhyggjum ef femínískir kollegar
mínir í Vinstri grænum eru tilbúnir í samstarf við Sjálfs-
stæðisflokk sem hefur að mínu mati ekki stundað fem-
ínisma að neinu ráði í sínum röðum,“ segir Þórhildur.
TELUR AÐ FEMÍNÍSKIR KOLLEGAR GETI EKKI VERIÐ ÁNÆGÐIR
Verður erfitt gagnvart baklandi VG
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir