Morgunblaðið - 13.11.2017, Blaðsíða 32
„Við þökkuðum fyrir leikinn og þeir
voru bara frekar kjánalegir. Það var
eins og þeir hefðu vitað upp á sig
sökina,“ segir Einar Rafn Eiðsson,
leikmaður FH,
en liðið vann
hina marg-
umræddu
vítakeppni við
St. Petersburg
í Rússlandi um
helgina í EHF-
bikarnum.
»8
Skömmustulegir Rússar
báðu FH afsökunar
MÁNUDAGUR 13. NÓVEMBER 317. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Íslendingur handtekinn í Abú Dabí
2. Seld af móður í kynlífsánauð
3. „Er líkið ekki farið?“
4. Svaf hjá tvíburabróður kærastans
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Alþjóðlega sviðslistahátíðin Every-
body’s Spectacular, sem er hátíð
Reykjavík Dance Festival og Lókal,
hefst á miðvikudag og stendur til
sunnudags. Boðið verður upp á frum-
sýningar á íslenskum verkum, vinnu-
stofur og umræður um listina og líf-
ið. Íslenski dansflokkurinn sýnir No
Tomorrow eftir Ragnar Kjartansson
og Margréti Bjarnadóttur, sem hlutu
Grímuverðlaunin 2017 sem danshöf-
undar ársins auk þess sem sýningin
var valin sýning ársins, en það er í
fyrsta sinn í sögu Grímunnar sem
dansverk hlýtur þann titil. Sýningin
er hluti af sviðslistahátíðinni Fórn
sem Íd hefur sýnt víða um Evrópu á
síðustu mánuðum við góðar viðtökur.
No Tomorrow er sýnt á Stóra sviði
Borgarleikhússins á miðvikudag kl.
21. Aðeins verður þessi eina sýning.
Ljósmynd/Jónatan Grétarsson
No Tomorrow á Eve-
rybody’s Spectacular
Söngsveitin Fílharmónía heldur
hausttónleika sína í Langholtskirkju
á morgun, þriðjudag, kl. 20. Megin-
uppistaða þeirra er Messa í Es-dúr
eftir Josef Gabriel Rheinberger sem
samin er fyrir tvo kóra. Messan þyk-
ir meðal fegurstu kórverka 19. aldar
og fyrir hana hlaut tónskáldið
Gregoríusarverðlaunin úr hendi Leós
páfa XIII. árið 1879. Af öðrum verk-
um á efnisskránni má
nefna lög eftir Þor-
vald Örn Davíðsson
og Ola Gjeilo.
Stjórnandi Söng-
sveitarinnar Fíl-
harmóníu er
Magnús
Ragn-
arsson.
Tveggja kóra messa
í Langholtskirkju
Á þriðjudag Suðvestan 5-13 og él, en þurrt og bjart veður nyrðra
og eystra. Hiti um og undir frostmarki. Á miðvikudag Suðlæg átt
og lítilsháttar slydda eða snjókoma syðra og vestra, en léttskýjað
norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig syðst, annars víða 0 til 5 stiga frost.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða suðvestan 10-15 m/s og skúrir eða él,
en hægari vindur og léttir til austanlands. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐUR
Níunda umferð Olís-deildar
karla í handknattleik hófst í
gær með fjórum leikjum.
Stjarnan, Valur og Aftureld-
ing voru öll á sigurbraut þar
sem Mosfellingar unnu
meðal annars sinn þriðja
leik í röð eftir afleita byrjun
á tímabilinu. Óvæntustu úr-
slitin voru í leik Víkings og
Hauka þar sem liðin skildu
jöfn, en skyttan Egidijus
Mikalonis í liði Víkinga skor-
aði þá 17 mörk. »4-5
Þrír sigrar og ein
óvænt úrslit
Fjórar þjóðir bættust um helgina í
hóp með Íslendingum og öðrum þjóð-
um sem tryggt hafa sér sæti í loka-
keppni HM karla í knattspyrnu í Rúss-
landi næsta sumar. „Íslandsvinirnir“ í
Króatíu og Sviss lentu ekki í teljandi
vandræðum með sína mótherja, en
sú niðurstaða kemur sér illa fyrir Ís-
land. Marokkó og Túnis komust
áfram úr undankeppni Afríku. »2
Aðeins fjögur sæti laus
á HM í Rússlandi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Vinsældir Nonna haldast enn og sú
upphefð kemur ekki síst að utan. Hing-
að í Nonnahús koma á ári hverju um
það bil 5.000 gestir frá útlöndum, eink-
um Þýskalandi, gagngert til þess að
kynna sér sögusvið bóka Nonna sem
selst hafa í milljónum eintaka,“ segir
Haraldur Þór Egilsson, forstöðumaður
Minjasafnsins á Akureyri.
Bar hróður heimalands
Næstkomandi fimmudag, 16. nóv-
ember, verður þess minnst að 160 ár
eru liðin frá fæðingu rithöfundarins
Jóns Sveinssonar, Nonna. Í Nonnahúsi
í Innbænum á Akureyri verður sérstök
dagskrá af því tilefni og þar eru heima-
tökin hæg enda er Nonnahús, æsku-
heimili Nonna, í garði Minjasafnsins.
Sömuleiðis verður
tímamótanna
minnst í Köln í
Þýskalandi, en þar í
borg dvaldist
Nonni til dánar-
dægurs haustið
1944, eftir að hafa
farið um lönd og
álfur og borið hróð-
ur heimalands síns
með bókum sínum,
en sú fyrsta kom út árið 1913, en alls
urðu þær þrettán.
„Nonni hélt utan árið 1870, aðeins
tólf ára gamall og til sanns vegar má
færa að sú vegferð standi enn. Sam-
felld sigurför.
Bækur Nonna njóta enn vinsælda og
eru lesnar af nýjum kynslóðum til
dæmis í Norður-Evrópu, enda hefur
þýska forlagið sem á höfundarréttinn
endurútgefið bækurnar reglulega og
haldið nafninu þannig á lofti,“ segir
Haraldur.
Endurútgáfa bókanna er brýn
„Hjá þýsku ferðaskrifstofunni Stud-
ious er heimsókn í Nonnahús fastur lið-
ur í Íslandsferðum og núna rétt fyrir
helgina kom til dæmis einn hópur á
þeirra vegum til okkar,“ segir Har-
aldur. „Margir Þjóðverjar – og raun-
ar fleiri – hafa sagt okkur að Nonna-
bækurnar hafi orkað mjög sterkt á
sig í æsku og þá hafi þeir einsett sér
að koma til Íslands. Þá lifa sögur allt-
af meðal Japana, en þangað fór hann
til fyrirlestra og bækur hans eru enn
gefnar út þar í landi.“
Árið 2012 kom út ævisaga Nonna
sem Gunnar F. Guðmundsson skráði
og segir Haraldur Þór að áhugi Ís-
lendinga á höfundinum hafi aukist
eftir það. Nú sé reyndar orðið brýnt
að endurútgefa bækurnar, sem
Nonnahús á íslenska útgáfuréttinn
að. Síðast voru þær gefnar út fyrir
um áratug í endursögn – og svo eru til
enn eldri útgáfur sem Freysteinn
Gunnarsson þýddi úr þýsku.
Sigurför Nonna stendur enn
160 ár Tíma-
móta minnst á Ak-
ureyri og í Köln
Ljósmynd/Hörður Geirsson
Akureyri Nonnahús er fjölsótt. Fyrir helgi kom þessi hópur frá Þýskalandi, en þar eru Nonnabækurnar enn lesnar.
Haraldur Þór
Egilsson
Jón Sveinsson fæddist á Möðruvöllum í Hörgárdal
hinn 16. nóvember 1857, en fluttist á áttunda ári
með sínu fólki til Akureyrar þar sem fjölskyldan
settist að. Að föður Nonna látnum varð móðir hans
að leysa fjölskylduna upp og þekktist boð fransks
aðalsmanns sem vildi kosta nám tveggja íslenskra
drengja til náms. Því varð úr að í ágúst hélt Nonni
handan um höf hvar hann dvaldist upp frá því, mest
í Frakklandi, Belgíu og Hollandi. Í háskólum las hann
bókmenntir og guðfræði, en árið 1878 gekk Nonni í
jesúítaregluna og vígðist til prests. Hann skóp sér
nafn með bókum sínum – þar sem hann sveipaði Ís-
land ævintýraljóma. Bækurnar hafa verið þýddar á
um 40 tungumál og gefnar út í milljónum eintaka. Sjónvarpsþættirnir
Nonni og Manni sem gerðir voru um 1990 byggjast á efni þeirra.
Sveipaði Ísland ævintýraljóma
BÆKURNAR HAFA VERIÐ ÞÝDDAR Á UM 40 TUNGUMÁL