Morgunblaðið - 18.12.2017, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.12.2017, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 8. D E S E M B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  297. tölublað  105. árgangur  Skyrgámur kemur í kvöld 6 jolamjolk.is dagar til jóla BRÝNT AÐ KOMA ÍSLENSKUNNI Í RAFTÆKIN OFVEIÐI Á STUTTNEFJU HVÍTA HÚSIÐ KOMIÐ Í JÓLA- BÚNINGINN STRÁFELLD VIÐ GRÆNLAND 16 FORSETAFRÚIN STJÓRNAR JÓLAHALDINU 12ÓLAFUR HAUKUR 26 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umsækjendur um vernd hér á landi fyrstu ellefu mánuði ársins voru orðnir 1.033. Í þessum hópi kváðust 24 vera fylgdarlaus ungmenni. Gerð- ar hafa verið 18 aldursgreiningar það sem af er þessu ári og reyndust fjórir hælisleitendur af þeim, eða 22%, vera yngri en 18 ára á grund- velli aldursgreiningar. Fjórtán hæl- isleitendur voru því eldri en þeir kváðust vera við komuna hingað. Er þetta meðal þess sem fram kemur í svörum Útlendingastofn- unar við spurn- ingum Morgun- blaðsins. Þórhildur Ósk Hagalín, upplýs- ingafulltrúi Út- lendingastofnun- ar, sagði fleiri hælisleitendur hafa farið í aldurs- greiningu á þessu ári en t.d. í fyrra og væri ýmislegt sem skýrði það. Gætu t.d. færri hafa verið með skil- ríki eða önnur gögn á sér til að gera grein fyrir því hverjir þeir væru og aldri sínum. Umsækjendur um vernd hér á landi eru einungis sendir í aldursgreiningu ef þeir geta ekki gert grein fyrir sér og vafi leikur á um aldur þeirra. Sé hins vegar aug- ljóslega um barn að ræða þarf ekki að senda viðkomandi umsækjanda í aldursgreiningu. Flestir ungir hælisleitendur eldri en þeir segjast vera  Fjórir af 18 sem prófaðir voru í ár reyndust yngri en 18 ára MHelmingur „ungmenna“ eldri »2 Hæli Mótmæli við Alþingi. Aron Þórður Albertsson Höskuldur Daði Magnússon Engin lausn var í sjónmáli í deilu flugvirkja og Icelandair seint í gær- kvöldi. Þegar Morgunblaðið náði tali af Gunnari Rúnari Jónssyni, formanni samninganefndar Flug- virkjafélags Íslands, hafði fundur staðið yfir í rúmlega 5 klst. Gunnar Rúnar vildi lítið tjá sig um málið þegar eftir því var leitað, en sagðist hins vegar eiga von á því að fundað yrði fram á nótt. Verkfall flugvirkja Icelandair hófst klukkan sex í gærmorgun eft- ir að fyrri samningafundi hafði ver- ið slitið. Aflýsa þurfti fjölda flug- ferða, en mikil óánægja var meðal flugfarþega sem kvörtuðu margir hverjir yfir slakri upplýsingagjöf frá félaginu. Þá lá símkerfi Ice- landair niðri um stund auk þess sem fyrirspurnum og kvörtunum rigndi yfir flugfélagið á samfélags- miðlum. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir að þrátt fyrir þetta hafi almennt gengið vel að finna lausn á málum farþega. „Við höfum bætt við flugferðum auk þess sem hluti farþega hefur verið sendur á hótel. Þá er unnið að því að finna ný flug fyrir farþega sem ætluðu sér að nota Keflavík- urflugvöll sem millilendingu,“ segir Guðjón. Lagasetning ekki möguleiki Verkfallið gæti haft áhrif á um 10.000 flugfarþega á degi hverjum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir lagasetningu þó ekki koma til greina og vonar að deilu- aðilar nái saman sem fyrst. „Eins og komið hefur skýrt fram hjá sam- gönguráðherra, sem fer með þenn- an málaflokk, þá höfum við ekki í hyggju að skipta okkur af þessari deilu. Deiluaðilar verða að leysa málin sjálfir og við vonum svo sann- arlega að það takist sem allra fyrst. Lagasetning kemur ekki til greina,“ segir Katrín. Morgunblaðið/Hari Öngþveiti Víða mátti sjá langar raðir inni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær og kvarta margir farþegar undan lítilli upplýsingagjöf vegna verkfallsins. Fundað fram á nótt  Verkfall flugvirkja hófst í gær  Setið var á sáttafundi fram á nótt í húsakynn- um ríkissáttasemjara  Lagasetning er ekki möguleiki, segir forsætisráðherra MMikil óánægja ... »4 og 8  Borgarráð hefur orðið við beiðni Valsmanna hf. um að fá að þinglýsa 4,4 milljarða tryggingabréfi vegna uppbyggingar við Hlíðarenda. Bréfið er gefið út á fyrsta veðrétt svonefnds F-reits. Þar áforma Vals- menn að byggja allt að 191 íbúð í samstarfi við fjárfesta. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er rætt um það meðal Vals- manna að söluverð íbúða við Vals- svæðið geti orðið allt að 100-200 milljónir. Vegna breytinga á skipu- lagi kemur til greina að byggja 880- 930 íbúðir á svæðinu. Fjárhæð tryggingabréfsins er vís- bending um að uppbygging íbúða við Hlíðarenda verði tuga milljarða verkefni á næstu árum. »6 Teikning/Alark arkitektar Hlíðarendi Reitur Valsmanna hf. er ská á móti Umferðarmiðstöðinni, BSÍ. 4,4 milljarða bréf í Vatnsmýrinni  „Það er ekki til nein altæk lýsing á þeim sem ger- ast uppvísir að svona hegðun, eða þeim fyrir- tækjum þar sem áreitni og ofbeldi viðgangast,“ seg- ir Jakob Gunn- laugsson, sál- fræðingur hjá Vinnuvernd, en að hans mati er vænlegast að skapa vinnustaða- menningu þar sem samskipti eru opin og traust. Þannig megi oft koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi í vinnunni. „Það hvílir líka á þeim sem verða vitni að einelti, áreitni eða ofbeldi að láta vita og láta í sér heyra, því með því að gera ekki neitt er í raun verið að samþykkja þessa hegðun,“ segir Jakob. »14 Opin og traust sam- skipti eru mikilvæg Áreitni Taka þarf á vandamálinu.  Til stendur að bjóða út fram- kvæmdir við viðbyggingu Grunn- skóla Borgarness fljótlega eftir áramót. Er þetta fjárfrekasta verk- efni Borgarbyggðar næstu árin. Reiknað er með 113 milljóna króna rekstrarafgangi hjá Borgar- byggð á komandi ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sem samþykkt var samhljóða af öllum bæjarfulltrúum. Mikið aðhald hefur verið í rekstri og framkvæmdum síðustu árin og hefur verið hægt að greiða niður skuldir vegna þessa. Ný viðbygging skólans verður á tveimur hæðum með 700 fermetra heildargólffleti. »10 Grunnskóli Borgar- ness stækkar mjög

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.