Morgunblaðið - 18.12.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.12.2017, Blaðsíða 10
Teikning/Borgarbyggð Framtíðarsýn Samkvæmt upplýsingum Gunnlaugs A. Júlíussonar sveitar- stjóra verður viðbyggingin á tveimur hæðum með 700 fm heildargólffleti. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir við viðbyggingu Grunnskóla Borgarness verða boðn- ar út fljótlega eftir áramót. Er þetta fjárfrekasta verkefni Borgar- byggðar næstu árin. Reiknað er með 113 milljóna króna rekstrarafgangi hjá Borg- arbyggð á komandi ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sem samþykkt var samhljóða af öllum bæjarfulltrúum. Mikið aðhald hefur verið í rekstri og framkvæmdum síðustu árin og hefur verið hægt að greiða niður skuldir. Í bókun sveitarstjórnarfulltrúanna kemur fram að nú hafi skapast svig- rúm til að ráðast í langþráðar fram- kvæmdir. Framkvæmt verður fyrir 564 milljónir og það án þess að ráð- ast í nýjar lántökur. Stærsta einstaka framkvæmdin er viðbygging við Grunnskóla Borg- arness og endurbætur á eldra hús- næði hans. Samkvæmt upplýsingum Gunnlaugs A. Júlíussonar sveit- arstjóra verður viðbyggingin á tveimur hæðum með 700 fermetra heildargólffleti. Þar verður fjölnota matsalur, eldhús og önnur aðstaða sem vantað hefur í skólann. Jafn- framt er stefnt að verulegum end- urbótum á eldra húsnæði sem Gunn- laugur segir að orðin sé þörf á. Áætlað er að þessar framkvæmdir taki þrjú ár og á framkvæmdaáætl- un til fjögurra ára er miðað við að varið verði samtals 560 milljónum til þeirra. Gunnlaugur segir að þegar framkvæmdum lýkur verði stærstur hluti húsnæðis grunnskólans orðinn eins og ný bygging. Leikskóli fluttur Næst stærsta framkvæmdin hjá Borgarbyggð á næsta ári er flutn- ingur leikskólans Hnoðraborgar í Reykholtsdal á Kleppjárnsreyki. Kostar nýtt húsnæði um 160 millj- ónir og dreifist á tvö ár. Stærsta nýja verkefnið í framkvæmdaáætlun er lagning ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins. Borgarbyggð mun verja allt að 100 milljónum árlega í verkefnið á næstu þremur árum, til viðbótar stuðningi Fjarskiptasjóðs. Endurbyggja Grunnskóla Borgarness  Byggður verður fjölnota matsalur Brúin til framtíðar » Verkefnið Brúin til framtíðar sem sveitarstjórn sameinaðist um á árinu 2015 hefur skilað þeim árangri að hagur Borgar- byggðar hefur ekki verið betri frá því sveitarfélagið varð til í núverandi mynd, eða frá árinu 2006. » Rekstrarafgangur er áætl- aður 113 milljónir á næsta ári. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Skipulagsstofnun telur sérstaka ástæðu til að nýta möguleika sem eru fyrir hendi til að leggja þá kafla Kröflulínu 3 í jörð þar sem mestra neikvæðra áhrifa er að vænta á landslag, ferðaþjónustu og útivist og fugla. Stofnunin viðurkennir þó það takmarkaða svigrúm sem er til lagn- ingar jarðstrengja af raftæknilegum ástæðum. Landsnet telur nauðsyn- legt að nýta svigrúmið til að leggja jarðstreng við flugvöllinn á Akureyri en sú framkvæmd hefur áhrif á Kröflulínu 3 þótt hún sé ekki á línu- leiðinni. Skipulagsstofnun hefur gefið álit á áhrifum Kröflulínu 3 á umhverfið en Landsnet hyggst leggja 220 kV há- spennulínu, aðallega loftlínu, frá Kröflu í Fljótsdal. Línan er liður í að styrkja byggðalínuhringinn eins og fyrirhugaðar línur frá Blöndustöð að Kröflu. Takmarkað svigrúm Fram kemur í áliti stofnunarinnar að ekki er unnt að leggja Kröflulínu 3 án þess að raska svæðum sem njóta verndar vegna votlendis, jarð- myndana og vatnsverndar. Sér- staklega er tiltekið votlendi á Jök- uldals- og Fljótsdalsheiði, nútíma- hraun á vestasta hluta leiðarinnar og vatnsvernd í Mývatnssveit. Allir þessir þættir njóta verndar sam- kvæmt náttúruverndarlögum og má ekki skerða nema brýna nauðsyn beri til. Skipulagsstofnun bendir á að áhrifin eru bundin við tiltekna kafla á leiðinni. Draga megi verulega úr neikvæðum áhrif framkvæmdarinn- ar með því að leggja línuna í jörð. Í matsskýrslu Landsnets kemur fram að hámarks strengjalengd í jarðstrengjum í Kröflulínu 3 sé 15 kílómetrar og 12 kílómetrar í Hóla- sandslínu 3 sem liggur á milli Akur- eyrar og Kröflu. Jafnframt er það upplýst að ekki er hægt að reka báð- ar þessar línur með þessar strengja- lengdir samtímis. Landsnet telur rétt að leggja áherslu á að leggja jarðstreng í ná- grenni við flugvöllinn á Akureyri og vísaði þar meðal annars til flug- öryggis sem er eitt af forgangs- málum í ályktun Alþingis um jarð- strengjamál. Þó sá kafli sé í Hóla- sandslínu útilokar það langar jarðstrengjalagnir í Kröflulínu 3. Skipulagsstofnun fellst á þetta. Hún beinir því hinsvegar til sveitar- stjórnar Fljótsdalshrepps að taka afstöðu til valkosta um jarðstrengi í Fljótsdal en þeir eru á lægri spennu og ekki háðir þeim takmörkunum sem Landsnet tilgreinir. Samráðsferli hafið Samkvæmt upplýsingum Stein- unnar Þorsteinsdóttur, upplýsinga- fulltrúa Landsnets, verður nú rætt frekar við sveitarfélög og landeig- endur á línuleiðinni um undirbúning verksins, meðal annars um skipu- lagsbreytingar. Sett hefur verið á fót verkefnaráð og þar sitja fulltrúar helstu hagsmunaaðila. Ráðið verður hluti af samráðsferlinu sem fram- undan er. Jarðstrengjasvigrúm notað við flugvöllinn  Kröflulína hefur áhrif en erfitt að koma við jarðstrengjum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Háspenna Nýja byggðalínan á Norðurlandi verður öflugri en núverandi lína. Hún verður lögð að mestu samsíða þeirri gömlu. Byggðalínan » Landsnet vinnur að styrk- ingu byggðalínuhringsins til að bæta þjónustu við Norðlend- inga. Það á að gera með nýjum 220 kV háspennulínum frá Blönduvirkjun að Fljótsdals- stöð. Þær verða að mestu samsíða núverandi byggðalínu en mun öflugri. » Allar línurnar eru í skipu- lags- og umhverfismatsferli. » Blöndulína 3 á að liggja frá Blönduvirkjun að Akureyri. Hólasandslína 3 á að liggja frá Akureyri til Kröflu og Kröflu- lína 3 þaðan til Fljótsdals- stöðvar. Gert er ráð fyrir tæplega 30 milljóna króna afgangi fyrir fjármagnsliði af rekstri Grundarfjarðarbæjar á næsta ári, en heildartekjur sveitarfélagsins verða skv. fjárhagsáætlun 1.034 m. kr. Af þeim fer tæplega helmingur í laun. Fjármagnsgjöld eru áætluð 70,3 millj- ónir króna. Ráðgert er á næsta ári að verja 16,9 m.kr. í framkvæmdir vegum Grund- arfjarðarbæjar. Lagfæra á skólahús, bæta íþróttaaðstöðu, lagfæra tjald- stæði og kaupa búnað fyrir skóla, áhaldahús og slökkvistöð. Þá er ráð- gert að hefjast handa um byggingu viðbyggingar við svokallaðan Norð- urgarð hafnarinnar, fáist til slíks fé frá ríkissjóði. Fjárfestingar bæjarsjóðs Grundarfjarðar á ári komanda verða skv. áætlun 116,9 m.kr., afborganir lána 106,9 m.kr. og tekin verða ný lán að fjárhæð 60 milljónir króna. Íbúar í Grundarfirði eru í dag, skv. tölum Hagstofunnar, 869 og hefur fækkað um þrjátíu frá því á síðasta ári. sbs@mbl.is Ljósmynd/Sverrir Karlsson Grundarfjörður Þrjú skemmtiferðaskip í höfn á fallegum sumardegi Framkvæmdir á döfinni  Fjárhagsáætlun samþykkt í Grund- arfirði  Afgangur og fjárfestingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.