Morgunblaðið - 18.12.2017, Síða 4

Morgunblaðið - 18.12.2017, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017 GRAN CANARIA 16. janúar í 14 nætur Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Frá kr. 102.995 m/allt innifalið Verkfall flugvirkja Icelandair Aron Þórður Albertsson Höskuldur Daði Magnússon „Það væri ábyrgðarlaust að segja eitt- hvað að svo stöddu,“ segir Gunnar Rúnar Jónsson, formaður samninga- nefndar flugvirkja, í samtali við Morg- unblaðið, en þegar blaðamaður náði tali af honum seint í gærkvöldi var búið að gera stutt hlé á fundi samninga- nefnda Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair. Átti Gunnar Rúnar þá von á því að fundað yrði fram eftir nóttu vegna deilunnar. Sáttafundurinn hófst klukkan 17 í gær og fór hann fram í húskynnum ríkissáttasemjara. Gunnar Rúnar vildi lítið tjá sig um gang mála í viðræðun- um. „Ég þori ekki að segja neitt til um þetta. Menn eru að þreifa eitthvað fyr- ir sér, en ég held það sé best að segja sem minnst um það að svo stöddu,“ segir Gunnar. Verkfall flugvirkja hófst klukkan sex í gærmorgun eftir að fyrri samn- ingafundi hafði verið slitið á þriðja tím- anum. Aflýsa þurfti flugi til og frá Kaupmannahöfn, Chicago, Wash- ington DC, Brussel, Manchester, Zü- rich, Lundúnum, Stokkhólmi og tveim- ur ferðum til og frá Ósló. Þá þurfti að seinka ferðum til Boston, Tampa, New York, Toronto og Denver. Þegar var í gær búið að aflýsa flugferðum Ice- landair til Seattle og Parísar í dag. Til að bregðast við verkfallinu var farþegum sem ekki áttu flug fyrr en í dag, mánudag, komið fyrir á hóteli auk þess sem félagið bætti við flugferðum til Evrópu í gærkvöldi. Slök upplýsingagjöf Icelandair Mikil óánægja var meðal erlendra ferðamanna með afleiðingar verkfalls- ins. Símkerfi Icelandair lá niðri um stund og margir létu í ljós óánægju sína á samfélagsmiðlum. Kvartað var yfir skorti á upplýsing- um og hversu lítill fyrirvari hefði verið á því að ferðum var aflýst. Rósa Jó- hannesdóttir, umsjónarmaður far- þegaflutninga á Keflavíkurflugvelli, segir að farþegum hafi upphaflega ver- ið ráðlagt að hafa samband í gegnum samfélagsmiðla eða þjónustuver Ice- landair varðandi frekari upplýsingar. Álagið hafi þó verið slíkt að bið í sím- verinu hafi verið um 3 klukkustundir auk þess sem nær ómögulegt reyndist að svara öllum þeim fyrirspurnum og kvörtunum sem bárust í gegnum sam- félagsmiðla. Grunur um verkfallsbrot „Ég hef ekkert fengið staðfest, en mér skilst á mínum mönnum að það hafi einhverjir verið að sniglast þarna. Þeirra á meðal framkvæmdastjóri tæknideildarinnar,“ segir Óskar Ein- arsson, formaður Flugvirkjafélags Ís- lands. Gætt hefur óánægju meðal flug- virkja með að yfirmenn tæknideildar hjá Icelandair hafi verið á vellinum í gærmorgun og vildu sumir meina að þeir hefðu gengið í störf flugvirkja. „Það er auðvitað ekki hægt að banna manninum að vera þarna, hann hefur sama aðgengi og við, en hann hefur ekki heimild til að ganga í okkar störf. Ég hef ekkert rætt við þá sem hlut eiga að máli en við munum kanna lögmæti þessa í framhaldinu,“ segir Óskar ennfremur. Lítið svigrúm hjá WOW air Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsinga- fulltrúi WOW air, segir mjög mikið vera bókað í vélar félagsins nú þegar jólin nálgast, enda háannatími. „Við höfum séð að það er að seljast mjög hratt í vélarnar en það er mjög lítið svigrúm hjá okkur. Við vonum bara að þetta verkfall leysist sem fyrst. Þetta er erfiður tími og margir að ferðast,“ segir hún. Mikil óánægja meðal farþega  Verkfall flugvirkja Icelandair setti allt úr skorðum hjá félaginu  Um 3 klukkustunda bið var eftir þjónustufulltrúa í símaveri  Farþegar gagnrýna mjög skort á upplýsingum og hve seint þær bárust Morgunblaðið/Hari Aðstoð Starfsmenn Isavia sáu meðal annars um að dreifa vatni og vistum til þeirra sem biðu í óvissu á Keflavíkurflugvelli og mynduðust langar raðir víða. „Ég var á leið um borð í vélina þegar okkur var tjáð að verkfallið væri skollið á og við tæki enn meiri bið,“ segir John Oliveti, flugfarþegi frá Ohio í Bandaríkjunum, sem nýkom- inn var úr 9 klukkustunda stoppi í Boston á leið sinni til Keflavíkur. Það- an var förinni síðan heitið til München í Þýskalandi þar sem hann hugðist, ásamt fjölskyldu sinni, eyða jólafríinu um borð í skemmtiferðarskipi. Oliveti segir að sökum verkfallsins séu líkur á að ekkert verði úr ferð- inni, en hann er afar óánægður með vinnubrögð Icelandair í málinu. „Flugið okkar var klukkan 07.20 að morgni til, eftir að við fréttum að því yrði aflýst biðum við í röð í 3 klukkustundir, eða allt þar til starfs- maður flugvallarins sagði okkur að bíða róleg og fá okkur að borða enda myndi deilan að öllum líkindum leys- ast fljótlega. Við heyrðum síðan ekk- ert meira frá þeim og höfum þurft að bíða í margar klukkustundir,“ segir Oliveti og bætir við að þessi uppá- koma muni verða til þess að hann fljúgi ekki aftur með Icelandair. „Ef ég mun þurfa að millilenda aft- ur í Keflavík á næstu ferðalögum mun ég reyna að finna einhverja aðra kosti en Icelandair því ég vil ekki lenda í þessu aftur,“ sagði Oliveti að lokum. Jólafríið hugsanlega úr sögunni og fer ekki aftur með Icelandair Fastur John Oliveti missir hugsanlega af jólasiglingunni sinni vegna verkfallsins. Vanessa C, ein þeirra fjölmörgu sem áttu bókað flug með Icelandair til Chicago í Bandaríkjunum klukkan 15 í gær, segir flugfélagið hafa sent frá sér litlar sem eng- ar upplýsingar til sinna farþega. „Þetta er afleitt, ég bara hreinlega verð að komast heim í dag enda þarf ég að mæta til vinnu í fyrramálið,“ segir Vanessa í samtali við Morgunblaðið og bætir við að hún hafi fengið fyrstu fréttir af verkfalli flugvirkja félagsins seint í fyrrakvöld. „Þeir sendu á mig tilkynningu með tölvupósti daginn fyrir flug. Það er auðvit- að alltof stuttur fyrirvari og kemur í veg fyrir að maður geti komið sér upp vara- plani eða gert einhverjar ráðstafanir.“ „Ég bara hreinlega verð að komast heim“ Ósátt Vanessa C er ekki sátt við upplýsingagjöfina. „Við áttum pantað flug til Kaupmannahafn- ar, en í staðinn ætlum við til Dublinar með WOW air,“ segir Kelly McFadden, flug- farþegi frá Chicago, sem beðið hafði í um 10 klukkustundir þegar blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við hana í gær. Hún segir að litlar sem engar upplýs- ingar hafi borist frá Icelandair eftir að fluginu var aflýst og því hafi hún ásamt kærasta sínum brugðið á það ráð að fara í jólafrí til Dublinar í staðinn. „Við fengum tölvupóst frá þeim í gærkvöldi sem við sáum ekki fyrr en við vorum komin til Keflavíkur. Það gerði manni erfitt fyrir að finna eitthvað annað, en það tókst þó,“ seg- ir McFadden og bætir við að þetta verði til þess að að hún muni hugsa sig tvisvar um áður en hún velur Icelandair á nýjan leik. Ætla til Dublinar með WOW air í staðinn Beðið Kelly McFadden breytti plani og fann flug með WOW air. „Ég frétti fyrst af þessu þegar ég lenti og komst að því að tengiflug- inu mínu til Manchester hafði verið aflýst,“ segir Carter Pruetz frá Denver í Bandaríkjunum, en hann átti bókað flug með Icelandair til Manchester á Englandi þar sem hann áætlar að eyða jólunum með systur sinni. Hann segir verkfallið ekki setja mikið strik í reikninginn þótt það sé afar þreytandi að þurfa að bíða eftir langt flug frá Denver. „Ég er óánægður með að hafa ekki fengið að vita þetta fyrr því ef svo hefði verið hefði ég getað gert önnur plön,“ segir Pruetz, sem von- ar að óánægja farþega muni skila sér í því að deiluaðilar leysi næst málin áður en til verkfalls kemur. „Ég vil bara komast til systur minnar og ég veit að það eru marg- ir í svipuðum sporum. Vonandi læra þeir af þessu því þetta bitnar á sak- lausum almenningi.“ Bitnar mest á sak- lausum almenningi Tengiflug Carter Pruetz var í gær á leið til Englands frá Bandaríkjunum en festist hér.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.