Morgunblaðið - 18.12.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.12.2017, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017 Guðmundur Arason kom frá Vestmannaeyjum ásamt foreldrum sínum og eldri bróður til Reykjavíkur á kreppuárunum. Fjölskyldan var gjaldþrota, þjóðfélagið stóð á brauðfótum og framtíðin allt annað en björt. Í höfuðborginni vann hann við sendisveinastörf en 12 ára varð hann að hætta í skóla til að leggja sitt af mörkum við kaup á lítilli íbúð fyrir fjölskylduna. Í bókinni skrifar Guðmundur um lífshlaup sitt, bernskuárin í Eyjum og lífið í Reykjavík. Hann lærði járnsmíði sem markaði upphafið að langri og farsælli starfsævi framkvæmdamanns, sem með framsýni og dugnaði byggði upp fyrirtækið GA smíðajárn, sem í dag er eitt stærsta járninnflutningsfyrirtæki á Íslandi. Ævisaga framkvæmdamannsins Guðmundar Arasonar NÝ BÓ K Fæst í Hagkaupi í Garðabæ og Skeifunni og Eymundsson /Pennanum. Þegar Sjálfstæð- isflokkur og Vinstri grænir hafa fallist í pólitíska faðma og myndað ríkisstjórn undir forystu róttæks sósíalista, í fyrsta skipt- ið í stjórnmálasögu Ís- lands, bregður eðlilega mörgum í brún. Já, hvað er að gerast í ís- lenskum stjórnmálum? spyr margur sig þegar pólitísk umpólun verður með slíkum afgerandi hætti, og nú hefur gerst. Því þessi staða og þróun er þvert á það sem er að gerast í stjórnmálun á Vest- urlöndum og í helstu nágrannalöndum okkar að undanförnu. Sú staðreynd að þrjú æðstu emb- ætti íslenska lýðveldisins skipa nú allt róttækir vinstrisinnar hlýtur að segja sína sögu. Þannig skipar mjög alþjóðasinnaður sósíaldemókrati for- setaembættið, róttækur sósíalisti for- sætisráðherraembættið, og kommú- nisti af gamla skólanum stól forseta Alþingis. Halló Íslendingar! Þvert á pólitíska þróun Þessi einstaka lykilstaða vinstri- manna í æðstu embættum þjóð- arinnar í dag, og ekki bara í lands- stjórn og á Bessastöðum, heldur líka í sjálfri höfuðborginni þar sem borg- arstjórinn er líka sósíaldemókrati, hlýtur að eiga sér eða kalla á skýr- ingar. – Því þetta er þvert á þá póli- tísku þróun sem nú á sér stað víðast erlendis. Þar sem vinstrimennska er á undahaldi ásamt fjölmenningar- marxisma og pólitískum rétttrúnaði, gagnvart framsæknum þjóðhyggju- öflum, nú síðast í þingkosningunum í Þýskalandi og þar áður í Austurríki þar sem Frelsisflokk- urinn þar bar góðan sig- ur úr býtum. Varðstaða Sjálfstæð- isflokksins brást Sá stjórnmálaflokkur sem í upphafi 20. aldar var stofnaður af borg- aralegum öflum gegn vinstrimennsku og upp- gangi kommúnisma, já, fyrir þjóðlegum gildum og viðhorfum, stóð í ístað- inu framan af öldinni. En eftir að hafa tapað fyrir hræðslu- bandalagi vinstrimanna Í Reykjavík, R- listandum, og að Davíð Oddsson yfirgaf skútuna, fór verulega að halla undan fæti hjá flokknum. Varðstaða Sjálf- stæðisflokksins brást svo endanlega við hrunið mikla 2008 og hefur hann ekki borið sitt barr síðan. – Í raun hefur ver- ið átakanlegt að horfa á hvernig hann hefur borist með straumi vinstri- mennskunnar og hins pólitíska rétt- trúnaðar og það svo að fjölmenning- armarxisminn blómstrar nú sem aldrei fyrr. Það hefur sem sagt gerst í fyrsta sinn að leiðtogi róttækra sósíalista hef- ur verið krýndur sem forsætisráðherra lýðveldisins í boði Sjálfstæðisflokksins. Minna mátti það ekki vera! – Þar með er engin varðstaða eða viðspyrna leng- ur gegn vinstriöflunum! Ekki einu sinni varðandi „No borders“-öfgaöflin, um nánast galopin landamæri og svo síðast varðandi öfgastefnu Vinstri grænna í umhverfismálum. Jafnvel erlendir vog- unarsjóðir skulu nú enn og aftur fá náð og miskunn. Frelsisflokkurinn til varnar og sóknar Þegar svo aumlega er komið í ís- lenskum stjórnmálum hlýtur að koma fram nýtt þjóðlegt stjórnmálaafl sem segir hingað og ekki lengra! Flokkur með nýjar áherslur og nýja framtíð- arsýn. Flokkur byggður á þjóðríkja- hugsjóninni, fullveldi og frelsi þjóða og einstaklinga. Flokkur sem vill koma til varnar og sóknar íslenskri þjóðmenningu og tungu. Já, íslenskri þjóð í eigin landi! Ekki síst til hjálpar húsnæðislausum Íslendingum, m.a. í Laugardalnum. Flokkur sem slær í takt við ný evrópsk stjórnmál og evr- ópsk þjóðhyggjuöfl í dag og hafnar þess vegna blindri alþjóðavæðingu, EES, og galopnum landamærum sbr. Schengen, og skipulegrar íslamsvæð- ingu Evrópu og Íslands. Frelsisflokkurinn býður fram Því miður tókst hinum nýja Frels- isflokki ekki að bjóða fram í síðustu al- þingiskosningum sökum tímaskorts. En býður nú fram í komandi borgar- og sveitarstjórnarkosningum í vor. Þess vegna ákallar hann hin þjóðlegu borgaralegu öfl og aðra þjóðholla Ís- lendinga að koma nú til liðs við flokk- inn. Á heimasíðu Frelsisflokksins www.frelsisflokkur.is er hægt að nálg- ast allar upplýsingar um flokkinn og stefnu hans. Þá er hægt að hringja í formann flokksins, Gunnlaug Ingva- son. Já, baráttan um Ísland er hafin! Frelsisflokkurinn ætlar að vera þar til varnar og sóknar! – Áfram Ísland! Eftir Guðm. Jónas Kristjánsson » Þegar svo aumlega er komið í íslenskum stjórnmálum hlýtur að koma fram nýtt þjóðlegt stjórnmálaafl sem segir hingað og ekki lengra! Höfundur er bókhaldari og situr í flokksstjórn Frelsisflokksins. gjk@simnet.is Guðm. Jónas Kristjánsson Frelsisflokkur til varnar og sóknar Í grein sem Sigurjón Þórðarson líffræðingur ritar (Doktor að blekkja, Mbl. 12. des- ember sl.) leggur hann út af grein minni um vel heppnaða endur- reisn íslenska þorsk- stofnsins (sjá vefinn www.sfs.is og 200 mílur á mbl.is). Sigurjón hafnar frásögn minni og niðurstöðu og spyr síðan hvers vegna ég beiti blekk- ingum til að halda því fram að árang- ur hafi náðst við stjórn fiskveiða þeg- ar reynslan sýni augljósleg annað. Til að leggja eigið mat á reynsluna af stjórnun þorskveiða ber Sigurjón síð- an meðal ársafla þorsks á Íslands- miðum á árunum eftir 1992 saman við meðalaflann á sambærilegu árabili þar á undan og kemst að því að aflinn var meiri á árum áður. Af þessu ályktar hann að fiskveiðistjórnunin á seinna tímabilinu hafi verið til tjóns. Frá mínum bæjardyrum séð er Sigurjón þarna augljóslega á villigöt- um. Ég mun ekki elta ólar við ein- staka missagnir og vantanir í sam- hengi skrifa Sigurjóns hér, bæði líffræðilegar og efnahagslegar. Ég læt mér nægja að benda á, að að baki þessarar hugsunar Sigurjóns býr ein einföld villa. Villan sú er auðútskýrð fyrir öllum þeim sem kunna lagið um Gleðibankann. Samhengið er einfald- lega það að ekki dugir að taka bara út heldur þarf líka að leggja inn. Á tímabilinu fyrir 1992 var tekið út, aflinn var mikill og sjálfur höfuðstóll- inn, þorskstofninn, minnkaði mjög. Sérstaða ársins 1992 er fyrst og fremst sú að þá voru farin að vera síð- ustu forvöð að stíga á bremsuna ef ekki átti illa að fara fyrir þorskstofninum sakir of- veiði. Eftir 1992 tókum við Íslendingar á vand- anum, fikruðum okkur áfram til úrbóta í ljósi reynslunnar og þróuð- um stjórntækin sem þurfti og beittum þeim síðan með þeim árangri sem ég geri grein fyrir í stærra samhengi í grein minni. Það er síðan ekki fyrr en árið 2007 – og þar á eftir með form- legum hætti frá árinu 2009 – sem við náum að gera það sem gera þurfti, í samræmi við það sem vísindamenn ráðlögðu stjórnvöldum að gera með tillögum sínum að aflareglu á árunum 1993-1994. Núverandi staða þorsk- stofnsins og fyrirkomulag veiðistjórn- unar hafa alla yfirburði yfir fyrri stöðu hvað varðar minnkun áhættu, sjálfbærni og efnahagslegan ávinning. Ég hygg að skynsamir menn muni átta sig á samhenginu ef þeir skoða lýsingar sérfræðinga á þessari sögu í öllum sínum margbreytileika með opnum huga. Því vil ég þakka Sigur- jóni Þórðarsyni fyrir að vekja athygli á umræddum skrifum mínum, en þau eiga erindi við alla. Gleðibanki Sigurjóns Eftir Kristján Þórarinsson Kristján Þórarinsson »Ég hygg að skyn- samir menn muni átta sig á samhenginu ef þeir skoða lýsingar sér- fræðinga á þessari sögu í öllum sínum margbreyti- leika með opnum huga. Höfundur er stofnvistfræðingur SFS. kristjan@sfs.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.