Morgunblaðið - 18.12.2017, Page 29

Morgunblaðið - 18.12.2017, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2017 Hversdagsleikinn er ekkivinsælt yrkisefni í skáld-skap. Þá er frekar að gertsé út á drama og spennu, glæpi og óvæntar uppákomur. Megin- ástæðan fyrir þessu er sennilega hvað hversdagsleikinn getur verið hvers- dagslegur. Málið er hins vegar að hversdagsleikanum er ekki alls varn- að. Hann getur bæði verið fáránlegur og spaugilegur. Formaður húsfélagsins eftir Frið- geir Einarsson er væn demba af hversdagsleika. Friðgeir hefur áður gefið út smásagnasafn, en hefur verið meira áberandi í sviðslistum. Hann stofnaði leikhópinn Kriðpleir, sem mun vera afbökun á nafninu Friðgeir. Hann hefur samið fyrir svið og á bók- arkynningu ný- verið sagði hann að einn kosturinn við að vera rithöf- undur væri að hann hefði fulla stjórn á sögunni og persónum hennar. Í leikhús- inu þyrfti að kljást við leikstjóra og leikara, sem allir hefðu sínar skoðanir á verkinu. Söguhetja bókarinnar er jafnframt sögumaður og er aldrei nefndur á nafn. Hann er ungur maður í millibils- ástandi í lífinu. Hann ákveður að leigja blokkaríbúð systur sinnar tíma- bundið og hefst sagan þegar hann flytur þar inn og brátt verða ýmsar breytingar á lífi hans. Við lesturinn er ekki ljóst hvort eitthvað amar að sögumanni. Frá- sögnin er skýr, en þó er eitthvað þokukennt í sögunni. Eitt dæmi um það er að hann fer út í sjoppu og lend- ir í vandræðum þegar hann ætlar að rata til baka. Blokkina sína finnur hann ekki fyrr en eftir dúk og disk. Þessi skortur á fundvísi verður þó kannski skiljanlegur þegar skoðuð er bráðvel hönnuð kápa Ólafs Unnars Kristjánssonar þar sem einingar í fjöl- býlishúsi renna saman í belg og biðu. Augljóst er að söguhetjan er ekki að springa af metnaði. Nær væri að segja að hann liði í gegnum lífið. Hann fær hlutverk sem bakgrunnsleikari í kvikmynd. Þegar tökum lýkur hrósar leikstjórinn honum, kallar hann „al- gjört náttúrutalent“ og segir að sig langi til að vinna meira með honum. Þetta vekur með honum væntingar um frekari frama í kvikmyndum. Hann fer líka að leggja sig eftir frammistöðu slíkra leikara. Síðar í bókinni er sögumaðurinn að velta fyr- ir sér mynd sem hann hefur séð. „Auk þess finnst mér bakgrunnsleikararnir frekar lélegir,“ lýkur hann hugleið- ingum sínum. Í blokkinni er vitaskuld húsfélag og innan þess eru átök um völd og áhrif eins og við má búast. Það þekkja þeir, sem hafa búið í fjölbýlishúsum og munu ugglaust kannast við margt í bókinni. Lýsingar af starfsemi þess og nábýli við kenjótta og sérlundaða ná- granna eru bráðfyndnar, sérstaklega frásögn af húsfundi þar sem rækilega er farið ofan í það hvernig kostnaði skal deilt þegar skipt er um glugga. Sú lýsing er í einu og öllu í sam- ræmi við gildandi reglur og sagði höf- undur bókarinnar á áðurnefndri bók- arkynningu að þeir, sem leiddist bókin, gætu nýtt hana sem leiðarvísi um hvað teldist sameign og hvað sér- eign þegar skipta þyrfti um glugga. Það þarf hins vegar talsvert húm- orsleysi til að skemmta sér ekki við lestur Formanns húsfélagsins. Stíll Friðgeirs er frekar dempaður og lág- stemmdur. Það dettur hvorki af hon- um né drýpur þegar hann segir frá hinum ýmsu atvikum, sem fyrir vikið verða fyndnari og furðulegri en ella. Það kemur líka í ljós að hversdags- leikinn er síður en svo tilbreytingar- laus, heldur fullur af uppákomum og kryddi í tilveruna. Morgunblaðið/Eggert Hver sagði að hversdagsleik- inn væri tilbreytingarlaus? Skáldsaga Formaður húsfélagsins bbbmn Eftir Friðgeir Einarsson. Benedikt bókaútgáfa 2017. 205 blaðsíður. KARL BLÖNDAL BÆKUR Húmor „Það þarf hins vegar talsvert húmorsleysi til að skemmta sér ekki við lestur Formanns húsfélagsins,“ segir í rýni um bók Frið- geirs Einarssonar. „Í hans augum var ég ekki lista- maður. Ég var ekki einu sinni manneskja. Ég var ekkert nema skrokkur,“ skrifar Salma Hayek um samskipti sín við kvikmynda- framleiðandann Harvey Weinstein í aðsendri grein sem birtist í New York Times í vikunni. Weinstein stjórnaði á sínum tíma Miramax sem framleiddi kvikmyndina Frida árið 2002 í leikstjórn Julie Taymor þar sem Haeyk fór með titilhlut- verkið. Í greininni lýsir Hayek því hversu mikil upphefð sér hafi þótt að Weinstein vildi framleiða mynd- ina, en sú gleði hafi horfið þegar hann fór að gera kröfu um að hún færi með honum í sturtu, leyfði honum að nudda sig og sleikja sköp sín. Þegar Hayek reyndi að losna undan samningnum við Miramax hótaði Weinstein að skipta henni út í hlutverki Fridu, en Hayek gat ekki hugsað sér að missa kvik- myndina úr höndum sér. Í fram- haldinu gerði Weinstein kröfu um að handritið yrði endurskrifað, fenginn yrði frægur leikstjóri og stjörnuleikarar í aukahlutverkum, sem Hayek tókst. „Um leið og tökur myndarinnar hófust hætti kynferðislega ofbeldið, en reiði hans jókst,“ skrifar Hayek og rifjar upp að Weinstein hafi gert athugasemdir við að Hayek væri ekki nógu kynæsandi í hlut- verki Fridu. Hann óskaði eft- ir því að hún yrði ekki sambrýnd og hætti að haltra í hlutverk- inu. „Hann tjáði mér að kynþokk- inn væri það eina sem ég hefði upp á að bjóða sem leikkona og hann skorti í myndinni. Í framhaldinu hótaði hann að hætta við fram- leiðslu myndarinnar,“ skrifar Hayek og rifjar upp að Weinstein hafi sett sér þá úrslitakosti að hún yrði að leika í nektarsenu með ann- arri leikkonu í myndinni, annars myndi framleiðslu hennar vera hætt. Hayek segist hafa séð þann eina kost að láta undan til að kasta ekki vinnu samstarfsfólksins á glæ. „Í fyrsta og eina skiptið á ferli mínum fékk ég taugaáfall,“ skrifar Hayek þegar hún rifjar upp töku- daginn sem nektarsenurnar voru myndaðar. „Líkaminn skalf stjórn- laust, ég var andstutt, kastaði upp á milli þess sem ég grét látlaust,“ rifjar Hayek upp og segir ljóst að konur muni verða fyrir valdbeit- ingu karla meðan valdajafnvægi kynjanna er jafnskakkt og raun ber vitni. „Ég var ekkert nema skrokkur“ Salma Hayek Barítóninn Bryn Terfel hefur dreg- ið sig út úr uppfærslu Metropolitan- óperunnar á Toscu þar sem hann átti að syngja hlutverk Scarpia. Samkvæmt frétt BBC þarf söngv- arinn að hvíla sig vegna radd- þreytu. Terfel er þriðji söngvarinn í aðalhlutverki sem neyðist til að draga sig út úr uppfærslunni sem ætlunin er að frumsýna eftir tvær vikur. Fyrst þurfti Jonas Kaufmann að hætta og tók þá Vittorio Grigolo við hlutverki Cavaradossi. Síðan varð Kristine Opolais að hætta og Sonya Yoncheva tók við titilhlut- verkinu. Stuttu síðar varð hljóm- sveitarstjórinn Andris Nelsons, eig- inmaður Opolais, að segja sig frá verkinu og við tók James Levine, sem síðan var rekinn vegna ásak- ana um kynferðislegt ofbeldi. Sam- kvæmt upplýsingum frá Metropolit- an-óperunni stendur ekki til að fresta frumsýningu. Emmanuel Villaume tekur við tónsprotanum og Zeljko Lucic leysir Terfel af. Bryn Terfel hættir við Toscu Morgunblaðið/Þorkell Hvíld Bryn Terfel þarf að hvíla röddina. Sýnd kl. 10.15 Sýnd kl. 5, 8 Miðasala og nánari upplýsingar 5% Sýnd kl. 2, 4 NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 2, 10.20 í 3D Sýnd kl. 3, 6, 9 í 2D Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 6 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Þýska merkið Greiff framleiðir hágæða fatnað með áherslur á nútíma hönnun, þægindi og fjölbreytt vöruúrval. Góð þjónusta byrjar með flottum fatnaði. STARFSMANNAFATNAÐUR FYRIR HÓTEL OG VEITINGAHÚS. ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.