Feykir - 17.11.2011, Side 2
2 Feyklr 43/2011
Skólavogin og Skólapúlsinn
Fræðslufundur
um gagnsemi
Kjötafurðastöð KS
Langstærsti útflytjandi
kindakjötsafurða
Upplýsinga- og fræðslu-
fundur um gagnsemi
matstækjanna Skólavogin
og Skólapúlsinn var haldinn
í sfðustu viku í fundarsal
Samstöðu á Blönduósi.
Talverður áhugi er á meðal
sveitarstjórnarmanna og
skólafólks á íslandi að taka
upp þetta kerfi og þarf
ákvörðun sveitarfélaganna
að liggja fyrir þann 15.
desember nk.
Skólavogin byggist á norsku
gæðastjómunarkerfi sem ísl-
ensku sveitarfélögunum býðst
nú að gerast aðilar að. Útgáfú-
félag norsku sveitarfélagssam-
bandanna, eða Kommunefor-
laget-KF, hefur frá árinu 2001
þróað og haldið út umræddu
gæðastjórnunarkerfi sem
norsku sveitarfélögin hafa
notað við mælingar á ýmsum
þjónustuþáttum í starfsemi
sinni og skoðar tengsl útgjalda,
árangurs og gæða á þeirri
þjónustu sem sveitarfélagið
veitir. Fyrir nokkrum árum
yfirtók norska ríkið þann hluta
kerfisins sem sneri að grunn-
skólunum og er öllum
grunnskólum þar í landi nú
skylt að nota þetta gæðakerfi.
Ávinningur af umræddu
gæðastjórnunarkerfi er m.a.
betri yfirsýn yfir rekstur og
nýtingu fjármuna, aukin
innsýn í skólabraginn, kerfið
auðveldar samanburð á eigin
frammistöðu yfir tíma og
samanburð á milli skóla og
sveitarfélaga, svo fleira mætti
upptelja. Nánari upplýsingar
um kerfið er að finna á síðunni
bedrekommune.no.
Fram kemur á vefmiðlinum
nordanatt.is að Gunnlaugur
Júlíusson og Valgerður Ágústs-
dóttir frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga kynntu matstækin
fyrir fundargestum, ásamt
Almari H. Halldórssyni frá
fyrirtækinu Skólapúlsinum.
Fundinnsóttuskólastjórnendur
og sveitarstjórnamenn frá
Skagafirði, Húnavatnssýslum
og Bæjarhreppi. /BÞ
Sláturtíð hjá Kjötafurðastöð
KS lauk 28. október sl. og
segir á heimasfðu KS að
aldrei hafi verið slátrað eins
miklu á átta vikum.
Afsetning hefur gengið afar
vel bæði á erlendum og
innlendum markaði.
Heildarslátrun Kjötafurða-
stöðvarinnar yfir árið er komin
yfir 114 þúsund fjár en gert er
ráð fyrir að sauðfjárslátrun
verði í byrjun desember, í einn
eða tvo daga. Meðalvigt dilka í
sláturtíð var 15,79 kg.
Almennir kynningarfundir
um tillögu að sameiningu
Bæjarhrepps og Húnaþings
vestra verða haldnir á
Borðeyri og Hvamms-
tanga, þriðjudaginn 22.
nóvember n.k.
Samstarfsnefnd um sam-
einingu Bæjarhrepps og
Húnaþings vestra hvetur íbúa
Bæjarhrepps og Húnaþings
vestra til að sækja fundina
sem verða sem hér segir:
í skólahúsinu á Borðeyri
þriðjudaginn 22. nóvember
Stofnstærðartalning á
landsel við ísiandsstrendur
fór fram í júlí til september
sl. á vegum Selaseturs
íslands. Rogið var yfir alla
landshluta og sjáanlegir
selir taldir en markmið
verkefnisins var að afla
upplýsinga um stöðu
íslenska landselsstofnsins.
Fram kemur á heimasíðu
Selaseturs íslands að þetta hafi
verið tíunda heildartalning
landsela úr lofti sem hefur farið
fram hérlendis, en slíkar
talningar hófust árið 1980.
Þótti það mjög brýnt að hafa
talningu í ár þar sem ekki hefur
verið ráðist í talningu frá því
árið 2006.
Á heimasíðu KS kemur
jafnframt fram að verulegt
magn af kjöti hafi verið selt út
fyrir landsteinana og var
Kjötafurðastöðin langstærsti
útflytjandi á kindakjöts-
afurðum í sláturtíðinni. Helstu
markaðir voru sem fyrr Spánn,
Asía og Bretland en einnig var
selt til Rússlands og Færeyja.
Hluti af gærunum fer í
innlenda framleiðslu hjá
Sauðskinni en að öðru leyti
voru þær að mestu seldar til
Tyrklands. /BÞ
n.k. kl. 16:00. I Félagsheimil-
inu Hvammstanga þriðju-
daginn 22. nóvember n.k. kl.
20:00.
Kynningarbæklingi um
sameiningu sveitarfélaganna
verður dreift um miðjan
nóvembermánuð á öll heimili
í sveitarfélögunum.
Nánari upplýsingar um
samantekt samstarfsnefndar
og KPMG er að finna á
heimasíðu Húnaþings vestra
og á strandir.is. /BÞ
Flogið var yfir alla land-
shluta allt að þrisvar sinnum
og fjöldi sjáanlegra Iandsela
talinn í öllum látrum. Hingað
til hefur aðeins verið flogið
einu sinni og talningin 2011 er
því sú viðamesta fram til
þessa.
Samkvæmt niðurstöðum
talninganna sáust að meðaltali
um 4512 landselir, en sú tala er
mitt á milli talningarniðurstöðu
áranna 2003 og 2006. Benda
þessar niðurstöður til þess að
landselsstofninn hafi ekki rétt
úr kútnum síðan árið 2003
þrátt fyrir síminnkandi veiðar.
Skýringar á því geta verið
margvíslegar, m.a. slysaveiðar á
sel i fiskinet. /BÞ
Skagafjörður
Aðalfundur
Sögufélags
Skagfirð-
inga
Aðalfundur Sögufélags
Skagfirðinga var haldinn
föstudaginn 4. nóvember
sl. í Safnahúsinu á
Sauðárkróki. Formaður
félagsins, Hjalti Pálsson,
fór yfir starfsemi félagsins
á árinu og rakti m.a.
bókaútgáfu á vegum þess.
Þá var ársreikningur
félagsins fyrir árið 2010
samþykktur.
Að þessu sinni voru útgjöld
félagsins svipuð og tekjurnar,
en á árinu kom aðeins út
ársritið Skagfirð-ingabók, auk
fimmta bindis Byggðasögu
Skagaíjarðar, en Byggðasagan
er sérstakt útgáfuverkefni sem
hefur sjálfstæðan fjárhag.
Áfram var unnið að ritun
þátta fýrir Skagfirskar ævi-
skrár og hefur Egill Bjarnason
unnið mikið þrekvirki við að
safna efni í fjölmarga þætti
sem bíða nú frekari úrvinnslu
og útgáfu. Stefnt er að útgáfu
æviskráa verði haldið áfram
árið 2013, en á næsta ári komi
út Skagfirðingabók venju
samkvæmt.
Stjórn félagsins var endur-
kjörin, en hana skipa Hjalti
Pálsson formaður, Sigríður
Sigurðardóttir, Sigríður Þor-
grímsdóttir, Sigfus Ingi Sig-
fusson og Unnar Ingvarsson./
sogufelag.skagafjordur.is
Contalgen Funeral
Átúr
Hljómsveitin Contalgen
Funeral heldur í tónleika-
ferð um Norðurland vestra
dagana 17. - 20. nóvem-
ber og spilar blússkotið
kántrýrokk.
í dag 17. nóvember hefst
túrinn í Félagsheimilinu á
Laugarbakka kl. 20:00.
Föstudaginn 18. nóvember
verður hljóm-sveitin stödd í
Eyvindarstofu á Blönduósi kl.
20:00 og í Kántrý-bæ á
Skagaströnd kl. 23:00.
Túmum lýkur svo sunnu-
daginn 20. nóvember í Sauðár-
krókskirkju kl. 20:00.
Aðgangseyrir er 500 kr. en
frítt verður inn í Sauðárkróks-
kirkju í tilefni þess að þetta
verða fyrstu tónleikar hljóm-
sveitarinnar í heimabæ, eins
og segir í tilkynningu ffá
sveitinni. /PF
LEIÐARI
Kreppa á undanhaldi
Það berast af því fréttir sunnan af höfuðborgarsvæðinu að
illa hafi verið hægt að fóta sig fýrir æstum múg um síðustu
helgi sem stóð í biðröðum eftir því að fá að koma peningum
sínum i lóg. í Smáralindinni opnaði nýr skemmtigarður
með allskyns tækjum og tólum og var biðröðin ansi löng
fram eftir degi. Á sama stað opnaði ný fataverslun og var
ekki að sökum að spyrja, myndaðist þar einnig mikil þröng
svo hleypa þurfti fólki inn í hollum. Þessi verslun er lokuð í
dag þar sem lagerinn kláraðist. Fleiri uppgangsfréttir hafa
verið sagðar í fjölmiðlum landsins og virðist sem íslendingar
séu komnir af stað aftur í góðærisgírinn. Gott er ef fólk hefur
aukið Ijármagn mfili handa og skriður að komast á hagkerfið.
En er búið að undirbúa kerfið til að takast á við nýja
uppgangstíma? Hafa leikreglur verið uppfærðar þannig að
skýrt sé hvað má og hvað má ekki í viðskiptum eða verður
þetta eins og var? Eins og var, segi ég því enn heyrist lítið frá
sérstökum saksóknara sem á í erfiðleikum með að vinna úr
sínum málum þremur árum eftir að hrunið átti sér stað. En
hverjum er ekki sama ef partýið er hafið á ný?
Páll Friðriksson, ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðárkrókur
Ritstjóri& ábyrgðarmaður.
Páll Friðriksson - palli@feykir.is © 455 7176,8619842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir-berglindth@feykir.is © 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson - oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur: KarlJónsson
Áskriftarverð: 317 kr. hverttölublað með vsk. Lausasöluverð: 350 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprentehf. Sími 4557171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð f réttablað á Norðuriandi vestra - alltaf á f immtudögum
1— 1
Sameining Bæjarhreppa og Húnaþings vestra
Kynmngarfúndir
Stofnstærðarmat á landsel
Niðurstöður fengnar