Feykir


Feykir - 17.11.2011, Blaðsíða 7

Feykir - 17.11.2011, Blaðsíða 7
43/2011 Feykir 7 ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) berqlindth@feykir.is Elfa og Jón kokka Fyllt lambafille aó hætti húsbóndans Elfa Björk Sturludóttir og Jón Bjarnason frá Blönduósi urðu við áskorun Þorsteins og Hrefnu og buðu les- endum til veislu. Þau skoruðu á Ingibjörgu Jónsdóttur og Ingþór Kristmundsson á Gilá í Vatnsdal. „í forrétt bjóðum við uppá sjávarréttasalat sem er svona spari, spari, spari og er sá forréttur aðeins á boðstólnum á aðfangadagskvöld. Aðalrétturinn er íyllt lambafille að hætti húsbóndans og í eítirrétt er það jólaísinn sjálfur, Toblerone- ís." AÐALRÉTTUR Sjávarréttasalat fyrir 4-6 Intiihald 200gr. humar 200 gr. hörpuskel 200gr. rækjur Smá edik Salt 2-3 msk. majones 1 tsk. sykur V2 tsk. karrý 2 stk. ananashringir (skornir fínt) 1 msk. ananassafi 1-1 ‘/2 dós sýrður rjómi 1 rauttepli (flysjab og skorið í litla bita) 1 tsk. kókosmjöl Sítrónusafi Salt ogpipar Aromat Aðferð Humar, hörpuskel og rækjur sett saman í pott, suðan látin koma upp og smá edik og salt sett út í. Majones, sykur, karrý, ananas, ananassafi, sýrður rjómi, epli, kókosmjöl, humar, hörpuskel og rækjur sett saman í skál og blandað varlega saman. Kryddað með sítrónusafa, salti, pipar og Aromat eftir smekk. Mjög gott að bjóða uppá nýbakaðar brauðbollur með og einnig er gaman að ■K láaáfcM1"**1 skreyta forréttardiskinn með salatblaði, rauðri papriku og sjávarréttasalatinu. AÐALRÉTTUR Fyllt lambafille fyrir 4-6 Innihald 4 stk. lambafille (ekki með fiturönd) V2 stk. piparostur (rifinn) 1/3 dolla skinkumyrja V2 bakki sveppir 4 stk. hvítlauksgeirar Aðferð Lambafílle skorið í helming, hníf stungið inn í og vasi búinn til (gott að nota enda á sleif til að búa til vasann). Sveppirnir og hvítlauksgeirarnir skornir í litla bita og steikt í olíu á pönnu. Skinkumyrjan er sett í skál og hrært upp í henni með skeið. Piparosturinn skorinn í bita og settur út í skinkumyrjuna ásamt sveppunum og hvídauknum. Öllu hrært saman og stungið inn í vasann á kjötinu. Steikið á pönnu við háan hita og kryddið með salt og pipar, setjið næst í eldfast mót og inn í ofn við 180° í 20-25 mín. Borið fram með heitri rauðvíns- og rjómasveppasósu eða sósu eftir smekk hvers og eins og fersku salati með fetaosti og furuhnetum. Einnig er algjört gúmmelaði að skera sætar kartöflur í litla bita og setja í eldfast mót, strá salti (helst Maldon salti) yfir ásamt olíu og inn í ofn í rúma klst. EFTIRRETTUR Toblerone ís fyrir 4-6 Innihald 5 eggjarauður 5 msk. sykur 150 gr. brœtt Toblerone 5 dl. þeyttur rjómi 100 gr.fínsaxað Toblerone Aðferð Eggjarauðurnar og sykurinn eru þeytt vel saman í hrærivél í 3-4 mínútur eða þar til blandan er orðin ljós og létt. 150 gr. Toblerone er brætt yfir vatnsbaði, kælt lítiliega og helit út í eggjabiönduna í mjórri buni. Öllu blandað vel saman. Að lokum er þeytta rjómanum blandað varlega saman við með sleif. Blöndunni er hellt í fallegt mót og skreytt með söxuðu Toblerone. ísinn þarf að vera í a.m.k. fjórar klst. í frysti áður en byrjað er að gæða sér á honum.“ Verði ykkur að góðu! Starfsemi meðferðarheimilis fyrir unglinga í Skagafirði spannar yfir 18 ár en það var stofnsett árið 1993, pólitísk ákvörðun til að bregðast við ákveðnu ástandi í þjóðfélaginu. Fyrstu árin var það rekið að Stóru Gröf í Staðarhreppi og síðar á Bakkaflöt í Lýtingsstaðarhreppi en þróast í þá átt að sveitarfélögin í Skagafirði, sem þá störfuðu saman fyrir sameiningu í héraðsnefnd, byggja sérstaklega undir þessa starfsemi. Húsinu var valinn staður í landi Garðhúsa í Seyluhreppi og fékk nafnið Háholt og árið 1999 hefst starfsemin í nýju húsnæði. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkt heimili á vegum "TT2-',.I. . Barnaverndarstofu var byggt utan höfuðborgarsvæðisins en mikil þekking og reynsla hafði orðið til meðal heimamanna sem nýttist til reksturs nýja heimilisins. Hlutverk Háholts er að taka við þeim nemendum sem hafa glímt við hvað mestan vanda og má segja að séu erf- iðustu skjólstæðingar Barna- verndarstofu hverju sinni. f dag starfa á Háholti 17 manns í 13 stöðugildum en skjólstæðingar sem kallaðir eru nemendur eru fjórir til fimm hverju sinni. Að sögn forstöðumanna heimilisins þeirra Ara J. Sigurðssonar og Hinriks Más Jónssonar er starfsmannaveltan lítil og er það styrkur fyrir heimilið og stafsemina. Ýmis afþreying og tómstundastarf er sótt í næsta nágrenni og er af mörgu að taka og nýlega var gerður samningur við Varmahlíðar- skóla um að hann sjái um bóklega kennslu sem áður var sinnt af Brúarskóla í Reykja- vík. Strokiö aö heiman Skýrt er kveðið á um það að Háholt er rekið sem meðferðar- heimili en eleki fangelsi og því eru engir rimlar eða háir múrar umhverfis það og tiltölulega auðvelt að strjúka þaðan sé það ætlun þeirra er þar búa. Stundum kemur fyrir að nemendur ákveða strok af heimilinu og rata þær fregnir oftast í fjölmiðla ef það tekst. Þá vill sú umræða skapast í samfélaginu að hætta sé á ferðum fyrir aðra íbúa svæð- isins sem hugsanlega geta orðið fyrir barðinu á þeim. Ari og Hinrik segja að þeir hafi meiri áhyggjur af velferð nemend- anna sem taki slíkar ákvarðanir þar sem þau eru þá oft á ferð á nóttunni, kannski í vondum veðrum og reyna þá með einhverjum hætti að verða sér úti um far í höfuðborgina. Stundum kemur fyrir að bifreiðar eru teknar ófrjálsri hendi og þá er það yfirleitt bíleigandinn sem hefur ekki hirt um að taka bíllyklana með sér úr bílnum og hann ólæstur. Þeir Ari og Hinrik benda á að það sé sama hvort fólk sé statt í 101 Reykjavík, í sveitinni í Skagafirði eða hvar sem er annars staðar, að þá beri því að læsa bílum sínum. Ofbeldi hafa nemendur ekki sýnt fýrir utan heimilið á þessum ferðum sínum en vissulega beitt starfsfólk þvingunum innan heimilisins til að auðvelda sér strokið. Reglur kveða á um að starfsfólk Háholts er ekki heimilt að þvinga nemendurna til baka séu þeir komnir úr húsi heldur hafa samband við lög- reglu sem bregst við. Fyrr í vetur var björgunarsveit kölluð til aðstoðar við leit og segja þeir Ari og Hinrik að það hafi verið gert með hagsmuni einstakl- ingsins í huga þar sem starfs- menn Háholts bera ábyrgð á lífi og limum nemendanna og þótti ástæða til með tillit til veðurs og myrkurs. Þrátt fyrir að heimilið sé ekki skilgreint sem lokuð deild ríkir mikill agi og nemendurnir njóta ekki sama frelsis og jafnaldrar þeirra almennt gera. Hvert sem þeir fara eða gera utan heimilisins fylgir þeim starfsmaður sem ber ábyrgð á viðkomandi. Þessi agi og regla í meðferðinni veitir mörgum öryggistilfmningu og segja þeir Ari og Hinrik að tvær til fjórar vikur eftir að nemandi kemur í Háholt sé hann búinn að átta sig á því og nýtur þess. Á þessum fýrstu vikum meðferðarinnar eiga flest strokin sér stað og áhættan eykst ef fleiri en einn er á sama róli hvað varðar komutíma. Ef hægt er að stjórna innkomum þannig að einstaklingar komi á mánaðar millibili minnkar áhættan enda eru þeir nemendur sem lengur hafa dvalið duglegir við að leiðbeina þeim sem styttri vist eiga að baki. Ari segir að þeir sem lengraerukomnirímeðferðinni séu búnir að átta sig á því í flestum tilvikum að á Háholti fá nemendur tækifæri til að snúa lífi sínu til betri vegar frekar en álíta að um refsingu sé að ræða eins og þeir sem skemur eru komnir vilja gera. Hinrik segir að nemendur hafi möguleika, þó misjafnt sé hvort þau nýti hann, í þessu umhverfi að hugsa sinn gang og vinna í sínum málum. -Hérna í okkar lokaða umhverfi ná þeir heilsu og tækifæri til að komast af stað í námi og hugsanlega með áhugamál og hafa vonandi opnað augun gagnvart lífinu, segir Hinrik. /PF

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.