Feykir - 17.11.2011, Page 3
43/2011 Feyklr 3
Magnaðir krakkar að loknu góðu verki.
Sauðárkrókur
Tombóla fyrir lítil
böm í Malaví og
Hvíta-Rússlandi
Rmm krakkar úr 6. bekk
IS í Árskóla á Sauðárkróki
tóku sig til og héldu
tombólu.
Þau seldu íyrir kr. 15.390
og ákváðu að færa Rauða
krossinum peningana til að
nota fyrir prjónahópinn sem
útbýr gjafa pakka fyrir lítil
börn í Malaví og Hvíta-
Rússlandi.
Krakkarnir heita Sólveig
Birta Eiðsdóttir, Daniel Ingi
HaUdórsson, Mikael Alf
Óttarsson, Hjörtur Ragnar
Atlason og Gunnar Ásgríms-
son. Á myndina vantar Dan-
íel Inga.
Krökkunum eru færðar
innilegar þakkir fyrir hugul-
semina. /Rauði krossinn
Rafsókn
Persónuleg þjónusta
Fyrir um mánuði sfðan var
nýju fyrirtæki, Rafsókn ehf,
ýtt úr vör á Sauðárkróki þar
sem gert er út á
raffnagnsmarkaðinn.
Svavar Björnsson eigandi
þess og eini starfsmaður segir
að hann muni sinna allri
almennri rafmagnsvinnu allt
frá því að skipta um ljósaperu í
það að sjá um nýlagnir í húsum.
Þar sem hann sé eini starfs-
maðurinn segir hann að þjón-
ustan verði meira persónuleg
en ella.
Svavar, sem er ungur að
árum, segir að það að fara út í
sjálfstæðan atvinnurekstur hafi
verið eitthvað sem hann hafi
alltaf langað til að prófa og fólk
hafi hvatt hann til þess enda
alltaf gott þegar fólk hefur val
hvar það verslar. Reksturinn
fór vel af stað en þennan stutta
tíma sem Svavar hefur starfrækt
fýrirtækið hefur verið mjög fínt
að gera. Hvað framtíðarútlit
snertir er erfitt að sjá enda
þannig starfsemi en Svavar er
bj artsýnn og segir að auk þeirra
verkefna sem bíða sé jólaver-
tíðin að skella á með tilheyrandi
ljósum og framkvæmdum.
-Svo þegar skammdegið er
hvað svartast er upplagt að
huga að útiljósunum enda
réttur tími núna fýrir jólin,
segir Svavar.
Starfssvæði Rafsóknar er í
Skagafirði og Húnavatnssýslum
og er hægt að ná í Svavar í síma
699-6677 eða á netfangið
rafsokn@gmail.com. /PF
Svavar lýsir upp skammdegið.
Bókaútgáfa á Norðurlandi vestra
Nokkur lauf og ÞórcKs
Töfrakonur/Magic Women ehf, hafa gefið
út smásagnasafnið „Nokkur lauf að norðan
II”. í fyrra kom út smásagnasafnið „Nokkur
lauf að norðan” og nú er leikurinn
endurtekinn.
Á bókarkápu stendur : I þessu smásagnasafni
birtast sögur eftir íslenska höfunda sem tengjast
norðrinu okkar sterkum böndum á einn eða
annan hátt.
Nú stíga á stokk: Sigurbjörg Árdís Indriða-
dóttir, Bóthildur Halldórsdóttir, Þórarinn Torfa-
son, Anna Bryndís Sigurðardóttir, Valdemar
Ásgeirsson, Hilmar Örn Óskarsson, Jóhanna
Helga Halldórsdóttir, Ivar Snorri Halldórsson,
Guðrún Angantýsdóttir, Sæunn Jóhannesdótt-
ir, Elín S. Sigurðardóttir, Birgitta Hrönn
Halldórsdóttir, Bylgja Guðrún Brynjólfsdóttir,
Lilja Gunnarsdóttir og Jóhanna Kristín
Atladóttir.
Sögurnar eru margbreytilegar og spanna flest
svið mannlífsins. Töfrakonur óska þess að
lesendur njóti laufanna að norðan.
Þá er búið að gera bók um Þórdísi spákonu sem
kallast „Sagan sem síðast var rituð.“ Þórdísar er
getið í Landnámu og því fýrsti nafntogaði
Skagstrendingurinn sem gæti hafa numið land á
Skagaströnd.
Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagastrandar
máfmnalýsinguábókinni:„Iformálabókarinnar
er gerð grein fýrir þeim sagnabrotum sem stuðst
var við þegar sagan var rituð. Þar kemur fram að
álykta megi að Þórdís hafi verið kvenskörungur
mikill og sýnt rausn og skörungsskap í hvívetna.
Hún hafi ýmist verið talin hin mesta fordæða,
framsýn og fýlgin sér, sáttasemjari eða fjöl-
kunnug og búin mikilli spádómsgáfu. Ráðist
hafi verið í ritun þáttar um ævi Þórdísar til að
bæta fýrir sleggjudóma sögualdar. Með ritun
sögu Þórdísar sé reynt að draga fram kosti
hennar ekki síður en galla og sýna fram á áhrif er
hún hafði í héraðinu/
Höfundar bókarinnar eru Dagný Marín
Sigmarsdóttir, Svava G. Sigurðardóttir og Sigrún
Lárusdóttir og hana er hægt að nálgast í
Spákonuhofinu á Skagaströnd. /BÞ
Aukum virkni og
þátttöku í samfélaginu
HVERNIG FÖRUM VIÐ AÐ?
Haldið í Húsi frítímans Sauðárkróki
22. nóvember 2011 klukkan 12:00 -16:00
Byrjað verður ásúpu kl. 12 og frá kl. 12:30 verða fyrirlestrar. Eftir fyrirlestrana kemur
kaffi og svo hópavinna eftir kaffi. Samantekt og fundarslit klukkan verða kl. 16.
ALLIR VELK0MNIR
Hlutverkasetur, Háskólinn á Akureyri, Sveitarfélagið Skagafjörður, Virk starfsendurhæfingarsjóður og Starfsendurhæfing Norðurlands vestra
standa fyrir málþingi til að ræða mikiivægi virkni og þátttöku, gagnvart heilsu, veitiðan og samfélaginu íheild sinni. Þátttakendur munu
skoða í hópavinnu hvort hægt sé að efla virkni þeirra sem ekki eru i námi eða vinnu eða hafa ekki getu eða tækifæri til að sinna hlutverkum
sem hafa þýðingu og gildi fyrirþá. Hvernig væri það best gert, hvernig og hvar nálgumst við þessa einstaklinga?
mm
Skagafjörður
tfVlRK
SrARFSENOURW^FINGARSJÓÐUH
Háskólinn,
áiAkureyrii
Er lögheimili þitt rétt skráð í þjóðskrá?
Til þess að íbúaskrá 1. desember 2011 verði sem réttust, minnum við á
nauðsyn þess að tilkynna aðsetursskipti, einnig þau sem fyrirhuguð
eru til 1. desember nk., til afgreiðslu sveitarfélagsins í Ráðhúsinu
sem allra fyrst og í síðasta lagi 30. nóvember 2011.
Hvað er lögheimili?
Samkvæmt lögheimilislögum er lögheimili sá staður, þar sem maður hefur fasta búsetu.
Hvað er föst búseta?
Föst búseta er á þeim stað þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum,
hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera þar
sem hann býr á hverjum tíma.
Hvenær og hvar skal tilkynna flutning?
Breytingu á lögheimili ber að tilkynna innan 7 daga frá flutningi til skrifstofu þess sveitarfélags sem
flutt er til. Ennfremur má tilkynna flutning beint til Þjóðskrár. Eyðublað vegna flutningstilkynninga
er að finna á slóðinni http://www3.fmr.is/pages/1017.
Sveitarstjóri
www.skagafjordur.is
Skagafjörður