Feykir - 17.11.2011, Blaðsíða 5
43/2011 FeykJr 5
Soroptimistaklúbburinn Viö Húnatlöa.
Nýr Soroptimistaklúbbur
Við Húnaflóa
//
//
Soroptimistakúbburinn „Við
Húnaflóa“ var stofnaður
þann 5. nóvember sl. og
samanstendur af 23 konum
búsettum í Austur- og
Vestur-Húnavatnssýslu og í
Bæjarhreppi.
Stofnfundur klúbbsins fór
fram að Reykjum í Hrútafirði
og var samþættur haustfundi
Soroptimista og mættu því
150 konur víðsvegar af landinu
til að vera viðstaddar stofn-
hátíðina.
Fundað vítt og breitt
viö Húnaflóann
Boðið var til móttöku í
Byggðasafninu að Reykjum en
fundirnir fóru fram í Reykja-
skóla og sjálf hátíðin í Félags-
heimilinu á Hvammstanga.
Formaður hins nýja klúbbs er
Sigríður Hjaltadóttir, heil-
brigðisfulltrúi Norðurlands
vestra, og sagðist hún vera
alsæl með stofnun klúbbsins
sem hefur haft þónokkurn
aðdraganda. „Það var haldinn
kynningarfundur á starfsemi
Soroptimista í Gauksmýri í
febrúar 2010 og hófst þar með
undirbúningur að stofnun
klúbbsins. Fundurinn var
öllum opinn og mætti þangað
fjöldi af áhugasömumkonum,“
sagði Sigríður.
Ingunn Ásdís Sigurðardót-
tir landsforseti Soroptimista á
íslandi var einnig viðstödd
vígsluna: „Móttökur nýju
systranna við Húnaflóa voru
með miklum myndarbrag og
stofnhátíðin tókst mjög vel.
Veðrið lékvið gestina sem fóru
í skoðunarferð um nærliggj-
andi svæði með góðri leiðsögn
heimamanna.“
Við Húnaflóa er 18. Sor-
optimistaklúbburinn á land-
inu og með tilkomu þeirra
kvenna sem þá gengu í
samtökin urðu félagsmenn
um 580 talsins. Að sögn
Sigríðar eru störf þeirra þegar
að komast í fastar skorður en
þær funda mánaðarlega vítt og
breitt við Húnaflóann.
Siffíöur Hjaitadóttir formaður „ Við Húnafióa", Helga Sigurbjörnsdóttir formaður útbreiðslunefndar,
Ingunn Ásdís Sigurðardóttir forseti Soroplimstasambands Islands og loks Uila Madsen frá Danmörku
sem vígði klúbbinn.
Um alþjóðasamtök
Soroptimista
FyrstiSoroptimistaklúbburinn
var stofnaður í Kaliforníufylki
í Bandaríkjunum árið 1921 en
á íslandi þann 19. september
1959. Samtökin fagna því 90
ára afmæli í ár.
Alþjóðasamtök Soropti-
mista eru framsækin alþjóða-
samtök fyrir konur í stjórnun
og öðrum sérhæfðum störfum.
Soroptimistar vilja stuðla að
heimsmynd þar sem konur og
stúlkur ná í sameiningu fram
því besta sem völ er á, bæði
sem einstaklingar og sem
hópur. Jafnframt að þær geti
látið drauma sína rætast til
jafns við aðra og skapað sterk
og friðsöm samfélög um allan
heim.
Markmið samtakanna eru
að vinna að bættri stöðu
kvenna og gera háar kröfur til
siðgæðis. Einnig að vinna að
mannréttindum öllum til
handa og vinna að jafnrétti,
framförum og friði, með
alþj óðlegri vináttu og skilningi.
Soroptimistar beita sér fyrir
aðveitaþjónustuíheimabyggð,
heimalandi og á alþjóða-
vettvangi. /BÞ
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 558
Heilir og sælir lesendur góðir. Gaman að
byrja á fallegum vetrarvísum sem mig minn-
ir að séu eftir skáldið Sigurð Breiðfjörð.
Norðnr loga Ijósin hú
lofts um boga dregin.
Himinsvogum iða á
afvindflogum slegin.
Sem gullreimuð blœja blá
breidd sá eimi viður.
Ljósin streyma ofan á
okkar heima niður.
Þorlákur Kristjánsson sem mun hafa verið
kennari, veit ekki hvar, orti svo eitt sinn er
hann var á heimleið úr messu.
A éghlýddi orðin tóm
yfirféllu skuggar.
Herrans voru í helgidóm
hélaðir allir gluggar.
Trúlega hef ég áður í þessum þáttum birt
þessa landskunnu vísu Einars Andréssonar
sem meðal annars var kenndur við Bólu.
Var hann á térð til Sauðárkróks með einn
hest að sækja björg fyrir sitt bú. Mætti þá
sveitunga sínum sem var með lest klyfjaðra
hesta, sem segir við Einar, þú flytur þá á
einum. Þá orti Einar.
Auðs þó beinan akir veg
œvin treinist meðan.
Þúflytur á einum eins og ég
allra seinast héðan.
Meira sem tengist Skagfirðingum. Sá kunni
kaupmaður á Króknum ísleifur Gíslason
yrkir svo um kunnan fjáröflunarmann þar
í sveit.
Yfir bárur ágirndar
elligrár ogslitinn.
Réri árum rógburðar
rann afhárum svikinn.
Kunn er flestum íslandsbörnum sú
brjálæðislega byggingarlist sem bankar
hafa tileinkað sér yfir sína starfsemi.
Guðmundur Illugason sem er íbúi á
Seltjarnarnesi gekk fram hjá einni slíkri
höll og orti svo.
Eru að byggja upp á stáss
yfir banka þjóna.
Alltafþarfhún aukiðpláss
okkar litla króna.
Ef ég skil rétt mun vera til sjónvarpsstöð
sem heitir Sýn. Einhverju sinni munu þeir
kunningjar Ómar og Bubbi hafa verið þar
að lýsa bardagahetjum sem mig minnir
að hafi heitið Tyson og Holyfield. Fór svo
í hita leiksins að annar beit í eyrað á hinum.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson horfði á þetta
svínarí og orti limru.
Við að sjá þessa lemjandi lubba
miglangaði mest til aðgubba.
Það var orrusta heit
en hvers vegna beit
ekki Ómar í eyrað á Bubba.
Guðmundur Sigurjónsson frá
Valbjarnarvöllum í Borgarfirði hefur
skilning á nýtingarmöguleikum
Morgunblaðsins og yrkir svo fallega.
Yfir okkur laumast lœgðir
leiðum veðrum stýra þær.
En nú verð égað hafa hægðir.
Hvar er Mogginnfrá í gær.
Kunn var sú frásögn, þegar
Reykjarvíkurborg keypti á sínum
tíma höggmynd Nínu Sæmundsson,
Hafmeyna, og var listaverkið sett niður
í hólma í Reykjarvíkurtjörn. Næsta
gamlárskvöld skeði það að hafmeyja
þessi var gjöreyðilögð með sprengingu.
Sjálfstæðiskonan Auður Auðuns sem þá
var borgarstjóri í Reykjavík flutti pistil
í útvarp og kvartaði sáran yfir þessum
skaða. Karl Kristjánsson alþingismaður
hlustaði á pistil Auðar og orti.
Ómynd býður eyðingheim
-Auður brást með vörnina.
Enginn hefur upp á þeim
sem afmeyjaði Tjörnina.
Áður hefur lagt til með vísum sínum,
þessum þætti, Jóhann Ólafsson sem
kenndur hefur verið við Miðhús í
Óslandshlíð. Hann telur að þorskar geti
verið á landi víðar en á skreiðarhjöllum.
Verðmœtið þótt virðist smátt
vera í spyrðubandi,
þá er stundum þokað hátt
þorskunum á landi.
Næst kemur falleg haustvísa eftir Jóhann.
Hrönn við ósa vaggar vær
vakir rósöm blíða.
Norðurljósa - leifturskær
loftið rósum prýða.
Jóhann áttaði sig á því einhvern tímann á
lífsleið að syndin gæti verið skemmtileg.
Þá varð þessi til.
Oft ersyndin svala lind
semfrá hrindir trega.
Hennar skyndi - mörg er - mynd
máluð yndislega.
Þá er nú góðu vinir, komið haust í þessum
þætti, ef svo mætti að orði komast. Gleður
okkur að leita til hins snjalla hagyrðings
og höfðingja Jóhanns Magnússonar frá
Mælifellsá með lokavísuna.
Tíminn kallar, lækka Ijós
lífs er fallvalt gengi.
Hefur fjallafögur rós
fól að hallast vengi.
Verið þar með sæl að sinni.
/ G uðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum, 541
Blönduósi
Sími 452 7154