Feykir - 17.11.2011, Blaðsíða 6
6 Feykir 43/2011
Útivistar- og sportsýning
á Sauóárkróki
Kraftur í
reióhöllinni
Um 1000 manns lögðu leið sína í
reiðhöllina Svaðastaði á Sauðárkróki um
sl. helgi en þar mátti skoða gríðarlega
fjölbreytt úrval af allskyns tryllitækjum
og tólum.
„Við vorum mjög ánægðir með helgina og
mér skilst að fólkið sem þangað kom hafi
einnig verið rosalega ánægt,“ sagði Eyþórs
Jónasson framkvæmdastjóri sýningarinnar.
Tíu klúbbar í Skagafirði stóðu fyrir útivistar-
og sportsýningunni og settu hana saman í
sameiningu. „Við erum búin að vera að
undirbúa sýninguna í u.þ.b. tvo mánuði.
Hver klúbbur útvegaði tæki og tól sem gaf
sýningargestum hugmynd um hvað þeir eru
að fást við.“
Samkvæmt Eyþóri er Kraftur einstök
sýning sinnar tegundar á landinu. „Það eru
engar aðrar sýningar sem sýna jafnmikla
flóru á þessu sviði. Þarna mátti meðal annars
skoða mótorhjól, torfærubíla, snjósleða,
rallý- og spyrnubíla, báta og ýmsan búnað
frá björgunarsveitunum. Þar voru einnig til
sýnis framandi uppstoppuð dýr, hægt fá að
prófa að skjóta af alvöru boga og alveg
einstök byssusýning. Þarna var ótrúlegt
magn af byssum og fólst mikil vinna í því að
setja þetta saman. Byssurnar voru allt frá því
fyrir 1900 til dagsins í dag, allar í eigu
Skagfirðinga, eins og annað á sýningunni.“
Kraftur var haldinn í fyrsta sinn fyrir
tveimur árum en þá var ákveðið að sýningin
yrði haldin annað hvert ár. „Það kom okkur
á óvart þegar við héldum sýninguna í fyrsta
sinn hve mikið var til, en það sem hefur
ratað á sýningarnar er aðeins brotabrot af
því sem klúbbarnir og félagsmenn þeirra
búa yfir. Þar sem búnaðurinn tekur ekki
miklum breytingum frá ári til árs þótti henta
betur að sýningin yrði haldin á tveggja ára
fresti. Það var mj ög gaman að sjá fullsmíðaða
bíla á sýningunni í ár sem voru kannski
hálfkláraðir fyrir tveimur árum,“ sagði
Eyþór. /BÞ
Miklu fleiri myndir frá Krafti 2011 er hægt að sjá á Feykir.is
sem og myndband á FeykirTV.
( TÓN-LYSTIN )
oli(a)feykir.is
Kristján Baldvinsson býr á
Akranesi um þessar mundir.
Kappinn er fæddur 1968 og
ólst upp í gamla bænum á
Sauðárkróki. Hljóðfærið hans
Kidda er trommur.
Helstatónlistarafrek?Sennilega
að hafa sungið Kauðann, aka
Lónlý blú bojs, á 1000 manna
samkomu í Hafnarfirði með
míkrófón í hendi fremst á sviðinu
alveg bláedrú, minnir mig. Þetta
varð til þess að þetta lag, sungið
af Engilbert Jenssen, fór á play-
lista Aðalstöðvarinnar í nokkra
daga :-)
Uppáhalds tónlistartímabil? Ég
á mér ekkert sérstakt uppáhalds
tónlistartímabil, mér finnst eigin-
lega öll tónlist skemmtileg,
þannig séð, nema óperutónlist.
Ef ég yrði einræðisherra á Islandi
þá mundi ég banna hana með
öllu og líka fiðlur.
Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
Þessa dagana er rapp í eyunum
á mér oftast og mér líkar það
vel. Rapptónlist er nefnilega
geysilega mögnuð þegar maður
fer að spá í hana.
Hver var fyrsta platan/
diskurinn/kasettan/niðurhalið
sem þú keyptir þér? Fyrsta
platan varsafnplata með öllu því
heitasta ítónlist á fermingarárinu
mínu, man ekki hvaða ár það
var en mér þótti þessi plata
alveg geðveik. Keypti hana í
Radíóbúðinni á Sauðárkróki.
Hvaða græjur varstu þá með?
Thosiba plötuspilari/ kasettuspil-
ari/útvarp, alveg magnað helvíti.
Wham! eða Duran? Duran
Duran að sjálfsögðu, miklu meira
rokk í því.
Hvað syngurðu í sturtu?
Kauðann að sjálfsögðu.
Þú heldur dúndurpartí 1 kvöld,
hvað læturðu hljóma í græj-
unum til að koma öllum í stuð?
U2 Greatest hits.
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu
helst heyra? Mugison einan með
gítarinn.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella
þér á tónleika. Hvert færirðu, á
hvaða tónleika og hvern tækirðu
með þér? Ég mundi fara þangað
sem Prince er að halda tónleika
og tæki hana Karen mína með
mér.
Hvaða tónlistarmann hefur þig
dreymt um að vera? Regínu
Ragnars. Annars hefur mig
ekki beinlínis dreymt um að
vera einhver annar en ég er en
það hefði örugglega ekki verið
leiðinlegt að vera í hljómsveitinni
The Beatles.
Hver er að þínu mati besta
plata sem gefin hefur verið út?
Sgt. Peppers Lonely Heart Club
Band með The Beatles.
Kristján Baldvinsson / trommari
ópem-
tónlist og fiölur
' gg §pf | m
Feykir spyr...
UU ilf\d! 1 D" Aids Jónsdattin Hsfcis Ohfsdóttiir: Róss Adoastmúr. Dm N'Baadfíwee.
rækt? [spLit á Sauöérkróki], Já, égfer ísund og Já, heilmikið! Ég er í Já, égfermikiðútað Já, égfer út
útivist. Zumha, Betri líðan og Body pump. ganga með hundana. að lahha.