Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 1
LOKS AÐ LOSNAVIÐ EFTIRMÁLINVANTAR ERLENT FJÁRMAGN
fakandi og rafdrifið fjórhjól gæti nýst vel á Íslandi. 4
Brýnt er að renna enn sterkari stoðum
undir fjármögnun íslenskra sprota með
því að laða að erlent fjármagn. 15
VIÐSKIPTA
4
Kristrún Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku, telur
að íslenskt hagkerfi sé að þroskast í rétta átt, enda
loksins að losna við eftirmál kreppunnar.
Sjál
Unnið í samvinnu við
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Óvíst með þátttöku sjóðanna
Á næstu dögum munu stjórnir lífeyr-
issjóða hér á landi taka afstöðu til til-
boðs sem Kaupþing, stærsti eigandi
Arion banka, hefur gert þeim um
kaup á litlum hlut í bankanum. Í að-
draganda þess að tilboðið barst fengu
forsvarsmenn sjóðanna kynningu á
bankanum en sú kynning var í hönd-
um Kviku fjárfestingarbanka sem
halda mun utan um söluferlið.
Í samtölum við forsvarsmenn sjóð-
anna virðast ólík sjónarmið uppi um
hversu álitlegur kostur bankinn sé
um þessar mundir. Það virðist hins
vegar samdóma álit þeirra að ef verða
eigi af kaupum þeirra í bankanum,
áður en lagt verður af stað með
skráningu og útboð á bréfum í hon-
um, þá þurfi verðið að endurspegla þá
áhættu sem felist í því að koma að
bankanum fyrir útboð.
„Við höfum enga tryggingu fyrir
því að útboðið muni heppnast og við
höfum ekki áhuga á því að eiga hlut í
bankanum ef hann verður ekki skráð-
ur á markað.“ Með þessum orðum
lýsti einn viðmælenda Viðskipta-
Moggans stöðunni en viðkomandi
taldi ósennilegt að Kaupþing væri
tilbúið til að fallast á fyrirvara sem
fæli í sér tímafrest til skráningar. Sá
frestur fæli það í sér að ef ekki tækist
að skrá bankann innan tiltekins frests
myndi Kaupþing skuldbinda sig til að
kaupa hlutinn aftur af sjóðunum með
fyrirfram ákveðnu vaxtaálagi.
Þá er það einnig nefnt að ríkis-
stjórnin hefur boðað gerð sérstakrar
hvítbókar um bankakerfið. Því sé
uppi pólitísk óvissa um þá umgjörð
sem fjármálakerfinu verði búin til
framtíðar. Reikna verði þá óvissu inn
í verð bréfanna.
Í hópi stóru sjóðanna fjögurra sem
mestu ráða um framgang málsins eru
þau sjónarmið uppi að hver og einn
sjóður verði að taka til sín „tals-
verðan“ hlut ef þeir ætli á annað borð
að taka þátt. Ekki sé forsvaranlegt að
verja miklum tíma og mannskap í að
leggjast yfir málið nema líkur standi
til að sjóðirnir hafi teljandi áhrif á
bankann í framhaldinu.
Helguvík hefur áhrif á málið
Ljóst er að það fjárhagstjón sem
Arion banki og þrír lífeyrissjóðir hafa
orðið fyrir vegna greiðsluþrots kísil-
vers United Silicon í Helguvík, hefur
áhrif á afstöðu sjóðanna til bankans.
Þannig segja viðmælendur Viðskipta-
Moggans að það mál leiði til þess að
menn stígi varlega til jarðar og að
ganga þurfi úr skugga um að önnur
viðlíka vandræðamál komi ekki í bak-
ið á bankanum á komandi misserum.
Stjórnir sjóðanna munu funda í
dag og á komandi dögum um mögu-
leg kaup á bréfum í bankanum. Tíma-
fresturinn sem þeim hefur verið gef-
inn til að svara tilboðinu er fram í
miðjan febrúar, þegar bankinn birtir
ársuppgjör sitt. Þykir sá frestur afar
stuttur miðað við þá fjármuni sem
undir eru.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Lífeyrissjóðum barst tilboð
frá Kaupþingi í gær um
mögulega aðkomu þeirra
að Arion banka. Sjóðirnir
virðast misjafnlega spennt-
ir fyrir bréfum í bankanum.
Morgunblaðið/Eggert
Kaupþing stefnir að því að losa um eignarhlut sinn í Arion banka á árinu.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
25.7.‘17
25.7.‘17
24.1.‘17
24.1.‘17
1.792,29
1.768,48
130
125
120
115
110
123,35
125,75
Nýtt íslenskt sjávarsnakk með bjór-
bragði, Kaldi Beersnack, er væntan-
legt á markaðinn frá fyrirtækinu
Hjalteyri SeaSnack, á Hjalteyri við
Eyjafjörð. Snakkið er framleitt í sam-
starfi við bjórgerðina Kalda á Ár-
skógssandi. Rúnar Friðriksson verk-
smiðjustjóri, segist hafa gengið lengi
með hugmyndina í maganum. „Mér
hefur fundist vera gat á markaðnum
þegar kemur að vöru sem passar vel
með bjórsötri,“ segir Rúnar.
Hann segir að fyrir nokkru hafi
hann gengið á fund eigenda Kalda, og
fengið hjá þeim flestallar tegundir
bjórs sem þar eru framleiddar, til að
prófa. „Ég marineraði með bjórnum,
kryddaði síðan fiskinn og þurrkaði.
Til að gera langa sögu stutta þá
steinlá þetta. Ég hef gert ótal til-
raunir í þessum efnum síðustu fimm
árin, en aldrei fengið jafn sterk og já-
kvæð viðbrögð við nokkurri
vöru,“ bætir Rúnar við.
Bjór frá Kalda notaður í snakk
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Jóhannes Valgeirsson fram-
kvæmdastjóri Hjalteyri SeaSnack.
Fyrirtækið Hjalteyri Sea-
Snack framleiðir bragðbætt
sjávarsnakk og er bjór
blandað í nýjustu vöruna.
7
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
telur hagvaxtarhorfur í heim-
inum ekki hafa verið betri síð-
an árið 2010 en
raunsæis sé þörf.
Bjartsýni AGS um
hagvöxt eykst
10
Elon Musk hefur gert nýjan
tíu ára ráðningarsamning við
Tesla sem gæti fært honum
allt að 50 milljarða
dala í bónus.
Rafmagnaður
bónus Musk
11