Morgunblaðið - 25.01.2018, Síða 4
Fjórhjólið yrði fáanlegt með aukahlutum og festingum til ólíkra nota.
gæti tækið m.a. nýst við viðhald
og viðgerðir í óbyggðum, til að
ferja fótbrotna ferðamenn niður af
hálendinu eða til að skutla stygg-
um sauðum rakleiðis í réttirnar.
Fjórhjólið er rafmagnsdrifið, og
þar sem þyngdarpunkturinn er
lágur og enginn ökumaður á 3E-
DI8 að komast á staði þar sem
venjuleg fjórhjól komast ekki.
ai@mbl.is
Honda með hugmynd
að nýjum vinnufélaga
FARARTÆKIÐ
Japanski ökutækjaframleiðandinn
Honda kynnti á dögunum nýtt
hugmynda-fjórhjól sem ætti að
nýtast vel á Íslandi.
Honda 3E-DI8 fjórhjólið á að
geta ekið sér sjálft á áfangastað
og því t.d. hjálpað til við að flytja
efni og áhöld á milli staða án þess
að hafa mann við stýrið. Á Íslandi
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018FRÉTTIR
Öryggismál eru samskiptamál
Námskeiðið Framúrskarandi öryggismenning (Behavior based safety leadership program) hefur áhrif á
viðhorf einstaklinga og eflir frumkvæði þeirra í að láta öryggismál sig varða. Það eykur ábyrgðartilfinningu
fyrir eigin öryggi og samstarfsmanna. Þátttakendur vinna að raunverulegu úrbótaverkefni er lýtur að því að
innleiða sýn fyrirtækisins í öryggismálum.
Hefst 14.mars • Nánar ádale.is
Copyright© 2018DaleCarnegie &Associates, Inc. All rights reserved. ad_sec_121317_iceland
Ávinningur:
• Skapar sýn á framúrskarandi árangur í öryggismálum
• Byggir upp sjálfstraust og hæfni til að sýna frumkvæði
• Styrkir samskiptahæfni til að bregðast við krefjandi aðstæðum
• Eflir tjáskipti til að höfða til ólíkra einstaklinga
• Þroskar hæfni í 360º stjórnun
• Eykur hæfni til að hafa áhrif á viðhorf til öryggismála
Kristrún er nýtekin við nýrri
stöðu aðalhagfræðings hjá Kviku.
Hún segist spennt fyrir komandi
árum hjá bankanum en í starfinu
mun hún fá tækifæri til að efla
efnahagsgreiningu fyrirtækisins.
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Við erum á áhugaverðum stað,
að koma út úr eins konar yfir-
spennu síðustu tveggja ára. Hag-
vaxtartölur upp á 2,5-3% kunna
að hljóma minna spennandi eftir
síðustu misseri, og staldra sumir
við tölur sem sýna fram á hægari
vöxt víðs vegar í kerfinu. Þetta
er þó jákvæð þróun, við viljum
miklu frekar sjá hægari og stöð-
ugan vöxt hér ár frá ár en svona
miklar sveiflur. Ég held að ís-
lenskt hagkerfi sé að þroskast í
rétta átt, enda mætti segja að
2018 sé fyrsta árið þar sem við
erum laus við allflest eftirmál
fjármálakreppunnar.
Hvaða hugsuður hefur
haft mest áhrif á hvernig
þú starfar?
Fyrst og fremst hafa ein-
staklingar sem ég hef unnið með
haft sterk áhrif á mig – get ekki
sagt að gömlu hagfræðikenning-
arnar og höfundar þeirra hafi
mótað mig sem hagfræðing þó ég
hafi lesið þar margt áhugavert.
Ég hef verið heppin að eiga ein-
staklega góða „mentora“ í gegn-
um tíðina, fólk sem hefur haft
óbilandi trú á mér en á sama
tíma vitað hvað ég megi gera
betur. Stephen Roach leiðbein-
andi minn við Yale og fyrrum að-
alhagfræðingur Morgan Stanley
er hér efstur á lista. Steve hafði
mikil áhrif á mig, hvernig ramma
eigi inn sögur og frásagnir. Hann
kenndi mér einnig að þú lærir
langmest af því að reyna að
skilja hvaðan þeir sem eru ósam-
mála þér koma.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Ég reyni að lesa eins mikið og
ég get, og alls ekki aðeins hag-
fræðibækur. Ég er rosalega hrif-
in af höfundum og bókum þar
sem tvinnuð er saman flókin
heimsmynd (t.d. Sapiens, Stran-
gers in Their Own Land) – þar
sem er skilningur á því að ekki
er hægt að toga í einn spotta án
þess að hreyfa aðra þætti.
Hugsarðu vel um líkamann?
Já, ég reyni að gera það. Mér
finnst best að fara bara út að
hlaupa, einföld hreyfing, og var
frekar virk þegar ég bjó erlendis
í lengri hlaupum og fór meðal
annars mitt fyrsta heila maraþon
í New York haustið 2016. Ég er
reyndar nýbyrjuð í jóga sem á að
vera allra meina bót. Svo tek ég
auðvitað alltaf stigann þegar það
er í boði.
Hvað myndirðu læra ef þú
fengir að bæta við þig nýrri
gráðu?
Ég hef verið frekar dugleg við
að safna gráðum, enda gæti ég
verið eilífðarnámsmaður og hef
alltaf notið mín í skóla. Annað
hvort færi ég aðeins yfir á annað
svið (félagsfræði, stjórnmála-
fræði, mannfræði) eða kláraði
kannski doktorinn.
SVIPMYND Kristrún M. Frostadóttir aðalhagfræðingur Kviku
Hægur en stöðugur
vöxtur betri en sveiflur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VINNUFERÐALAGIÐ
Það verður sífellt ódýrara að
fljúga, en lækkandi miðaverði
fylgir að glamúrinn minnkar: sæt-
in eru þröng, borga þarf fyrir
snarlið og drykkjaúrvalið er
óspennandi.
Þeir sem vilja ferðast með meiri
stæl ættu að skoða hanastéls-
dósirnar frá hönnunarfyrirtækinu
W&P á matarvefnum Punch. Þar á
bæ áttuðu menn sig á að þó svo að
áfengisúrvalið á flugfreyjukerr-
unni sé frekar takmarkað, þá þarf
ekki að bæta miklu við til að gera
prýðilegan kokkteil. Ef maður má
t.d. fá hjá flugþjóninum ögn af
vodka og ísmola þá þarf bara engi-
fersíróp, skeið og mæliglas til að
blanda ljúffengan Moscow Mule.
Þó ViðskiptaMogginn vilji ekki
ýta undir drykkju, þá er hér komin
agalega skemmtileg leið til að lífga
upp á flugið næst þegar skjótast
þarf á fund úti í heimi. ai@mbl.is
Hanastél í háloftunum
Ekki þarf mikið til að gera prýðilegan kokkteil í þröngu flugvélarsæti.
NÁM: Stúdent frá MR 2008; BS í hagfræði frá HÍ 2011; MA í hag-
fræði frá Boston háskóla 2013; MA í alþjóðafræðum frá Yale há-
skóla 2016.
STÖRF: Hagfræðingur í greiningardeild Arion banka 2011-12;
hagfræðingur í vinnuhópi hjá forsætisráðuneytinu og blaða-
maður á Viðskiptablaðinu 2013-14; sérfræðingur í greining-
ardeild Morgan Stanley 2015-17; hagfræðingur Viðskiptaráðs
Íslands 2017-18; aðalhagfræðingur Kviku frá 2018.
ÁHUGAMÁL: Hlaup og alls kyns tónlist, samverustundir með
fjölskyldu, borgarbrölt, góður bjór og lestur. Ég hlusta mikið á
útvarpið sem er minn uppáhalds miðill.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég er gift Einari B. Ingvarssyni viðskipta-
fræðingi.
HIN HLIÐIN
Kristrún hljóp sitt fyrsta heilmaraþon
2016 en er núna byrjuð í jóga sem á
að vera allra meina bót.