Morgunblaðið - 25.01.2018, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018 9VIÐTAL
„Það er mjög jákvætt fyrir fyrirtæki að fá
verðlaun og hrós. Það er ekki nógu mikið um
hrós í íslensku atvinnulífi. Við erum því mjög
ánægð með að fá nú þetta hrós fyrir vel unnin
störf,“ segir Eggert Þór Kristófersson, for-
stjóri N1, í samtali við ViðskiptaMoggann, en
fyrirtækið fær viðurkenningu Creditinfo í ár
fyrir framúrskarandi samfélagslega ábyrgð.
Þetta er í fyrsta skipti sem viðurkenningin er
veitt, en Creditinfo og Festa, miðstöð um sam-
félagsábyrgð, standa saman að viður-
kenningunni.
Dómnefnd, sem skipuð var þeim Hönnu
Valdísi Þorsteinsdóttur sérfræðingi á sviði
samfélagsábyrgðar, sem var formaður dóm-
nefndar, Þorsteini Kára Jónssyni og Sæmundi
Sæmundssyni úr stjórn Festu, horfði í vali
sínu til stefnu fyrirtækisins um samfélagslega
ábyrgð og hvaða þáttum stefnan tekur á, svo
sem umhverfismálum, félagslegum þáttum og
ábyrgum stjórnarháttum. Einnig skoðaði
dómnefndin hvort fyrirtækin settu sér mæl-
anleg markmið og frammistöðu þeirra við að
ná þeim markmiðum. Ennfremur var litið til
þess hvort samfélagsleg ábyrgð væri tengd
inn í kjarnastarf fyrirtækisins og menningu
og hvort fyrirtækið gæti talist fyrirmynd fyrir
önnur fyrirtæki.
Útnefningin kom á óvart
Eggert telur að áhersla sem félagið hefur
sett á samfélagið í gegnum tíðina sé það sem
hafi skilað því þessari viðurkenningu. Hann
segir að útnefningin hafi þó komið sér á óvart.
„Forverar mínir í forstjórastólnum sinntu
þessum málaflokki vel. N1 hefur alltaf stutt
vel við samfélagsleg verkefni og hefur sýnt
mikla ábyrgð víða um land. Við gerum mikið
af því að styðja við nærsamfélagið á hverjum
stað. Við erum hinsvegar ekkert sérstaklega
dugleg að segja frá því sem við erum að gera,“
segir Eggert.
Spurður að því hvernig starfið við mála-
flokkinn fari fram innan félagsins, segir Egg-
ert að ferlar skipti þar miklu máli. „Við erum
með gæðastjóra sem heldur utan um verk-
efnið og dregur að sér þá starfsmenn sem til
þarf. Við höfum „ferlað“ félagið vel upp með
tilliti til samfélagslegrar ábyrgðar. Við erum
með vottanir frá Michelin á dekkjaverk-
stæðum okkar og ISO-gæðavottanir á bensín-
stöðvunum. Þessir ferlar voru teiknaðir upp
fyrir nokkrum árum, og við fylgjum þeim vel
eftir. Ennfremur birtum við árlega samhliða
ársskýrslu okkar, svokallaða GRI (Global Re-
porting Initiative) skýrslu. Hana má sjá á
heimasíðu okkar. Þannig að það má segja að
við séum með handrit þar sem hvert ár í
rekstri fyrirtækisins er tekið fyrir í þessum
efnum.“
Minnka sóun og flokka sorp
Spurður um ný verkefni í málaflokknum,
segir Eggert að undanfarin misseri hafi þem-
að verið öryggis- og umhverfismál. „Við erum
að minnka sóun, og varðandi sorphirðu til
dæmis þá erum við að flokka allt sorp sem fell-
ur til, bæði á skrifstofunni og eins á þjónustu-
stöðvunum. Við höfum líka innleitt Lean-
straumlínustjórnun sem snýst um að draga úr
sóun alls staðar. Við munum auka fókusinn á
þetta á næstu árum.“
Spurður sérstaklega um skoðun sína á því
hvort atvinnulífið sé á réttri leið almennt í
þessum efnum, segist Eggert telja að svo sé.
„Mér fannst þetta fyrst snúast mikið um
almannatengsl og ímyndaruppbyggingu, að
menn væru mest að berja sér á brjóst bara til
að auglýsa sig. Við ákváðum að gera það ekki
heldur fara í þessa vinnu og láta hana seytla
um félagið. Við höfum verið skömmuð fyrir það
af okkar sérfræðingum í almannatengslum að
við séum ekki nægjanlega dugleg að segja frá
því sem erum að gera, en það sem við höfum
gert er þó að skila okkur þessari viðurkenn-
ingu Creditinfo,“ bendir Eggert réttilega á og
brosir.
Hann nefnir sem dæmi að N1 sé eina fyrir-
tækið sem styrki mæðrastyrksnefnd Kópa-
vogs, en hafi ekki sagt neitt frá því hingað til.
„Þetta er kannski íslenskt vandamál, að vilja
ekki vera of mikið að monta sig af hlutum, eða
tala um allt sem gert er.“
Hann segir að samfélagslega ábyrg stjórnun
skili sér í meira virði til allra hlutaðeigenda,
hluthafa, starfsmanna og samfélagsins al-
mennt. „Um leið og menn fóru að vinna skipu-
lega í þessu, þá fóru þeir að sjá tilganginn með
þessu.“
Komu með eigin ruslapoka
Allir í fyrirtækinu eru með á nótunum þegar
kemur að samfélagslegri ábyrgð, að sögn Egg-
erts. „Við fórum í stefnumótun árið 2013 og
fengum þá tækifæri til að hitta starfsfólk á
vinnufundum á öllum starfsstöðvum. Þá nýtt-
um við tækifærið til að koma þessu að, og svo
tókum við þetta aftur upp fyrir einu ári. Við
höfum því nýtt okkur öll þau tækifæri sem gef-
ast til að koma þessu að, sérstaklega þegar við
höfum verið að vinna í svona stærri málum. Ég
sé ekki annað en að fólk taki þessu mjög vel.“
Eggert nefnir eitt dæmi til gamans: „Fyrst
þegar við fjarlægðum allar ruslafötur af skrif-
stofum þá voru einhverjir sem komu með
ruslapoka að heiman og fóru svo bara með rusl-
ið heim til sín. En í dag finnurðu engan mann
með ruslafötu hjá skrifborðinu sínu.“
Annað dæmi sem Eggert nefnir er Grill-
skálinn á Þórshöfn á Langanesi sem brann í
desember 2016. Ráðist var í endurbyggingu
skálans, og verður hann tilbúinn með vorinu.
„Við erum svo mikið út um landið með þjón-
ustu, 110 stöðvar. Við erum mikið í grasrótinni
og nærumhverfinu. Styrkjum BUGL (Barna-
og unglingageðdeild) og golfklúbba um land
allt til dæmis. Þegar skálinn brann á Þórshöfn
kom í ljós að þetta var í raun félagsheimili bæj-
arins, og menn voru ekki ánægðir með að við
ætluðum ekki að endurbyggja skálann. En við
skiptum um skoðun. Þó að það þjónaði kannski
ekki tilgangi rekstrarlega, þá myndi það aftur
á móti gera mikið fyrir þetta litla samfélag.“
Spurður um tilvonandi samruna N1 og Fest-
ar, sem rekur 27 verslanir undir merkjum
Krónunnar, ELKO, Nóatúns og Kjarvals, og
hvort fyrirtækin séu samstiga í samfélagslegri
ábyrgð, segir Eggert að félögin séu á sama
stað hvað það varði. „Festi leggur mikla
áherslu á að minnka sóun og er jafnvel dug-
legra en við að segja frá sínum afrekum á þessu
sviði. Hugsunarhátturinn er svipaður, þannig
að ég held að þetta smellpassi.“
Vantar meira traust
Eggert segir að áhyggjuefni sé, burtséð frá
verðlaununum, hve atvinnulífið njóti lítils
trausts hjá fólki. Honum finnst það skjóta
skökku við, þegar flestir vinni jú í þessu sama
atvinnulífi. „Það er það sem er oft erfitt við að
vera starfsmaður N1, þegar fólk þarf að hlusta
á ýmsar glósur um það hvað N1 sé að standa
sig illa, en að nýir aðilar eins og Costco séu svo
frábærir, til dæmis. Fólk er því miður oft of
fljótt að dæma, og það mætti vera meira um-
burðarlyndi. Ég heyrði af könnun í Danmörku
um að 80% fólks bæri traust til vinnuveitenda
sinna, en hér á Íslandi er sama tala 30%. Það er
skrýtið að mæta í vinnu en bera ekki traust til
sinna vinnuveitenda,“ segir Eggert að endingu.
Það er ekki nógu mikið um
hrós í íslensku atvinnulífi
Morgunblaðið/Eggert
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Olíu- og smásölufyrirtækið N1
hlýtur viðurkenningu Creditinfo
fyrir framúrskarandi samfélagslega
ábyrgð. Forstjórinn segir að félagið
sinni ýmsum verkefnum í nær-
umhverfi sínu.
”
Þegar skálinn brann á Þórshöfn kom í ljós að þetta
var í raun félagsheimili bæjarins, og menn voru ekki
ánægðir með að við ætluðum ekki að endurbyggja.
Allir í fyrirtækinu eru með á nótunum þegar
kemur að samfélagslegri ábyrgð, að sögn
Eggerts Þórs. „Við höfum nýtt okkur öll þau
tækifæri sem gefast til að koma þessu að,
sérstaklega þegar við höfum verið að vinna
í svona stærri málum. Ég sé ekki annað en
að fólk taki þessu mjög vel.“