Morgunblaðið - 25.01.2018, Side 10

Morgunblaðið - 25.01.2018, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018FRÉTTIR ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Samtímis því sem alþjóðaleiðtogar flykktust glaðbeittir á fund Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos á mánudaginn, lýsti Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn ánægju sinni með „víðtækustu samstilltu hagvaxt- araukningu á heimsvísu frá árinu 2010“. Efnahagsraunir síðastliðinna tíu ára virðast núna heyra sögunni til og samkvæmt nýjustu spám sjóðs- ins eru efnahagshorfur bjartari en þær hafa verið síðan í ársbyrjun 2010. Þessi aukna bjartsýni rímar við vaxandi trú forstjóra á að rekstrar- horfur verði jákvæðar fyrir fyrir- tæki, líkt og sjá má í árlegri könnun endurskoðunarfyrirtækisins PwC. Jákvæðara viðhorf stjórnenda Á fundinum í Davos á mánudag sagði Christine Lagarde, fram- kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins: „Allt bendir til þess að [hagvöxtur á heimsvísu] muni halda áfram að styrkjast bæði á þessu ári og því næsta. Þetta eru mjög ánægjuleg tíðindi.“ Hrun alþjóðlegra fjármálamark- aða er enn í fersku minni og Grikk- land er rétt byrjað að rísa úr kreppu, en viðhorf þeirra forstjóra sem komu til svissneska fjallabæj- arins í vikunni er jákvæðara en það hefur verið allt frá því efnahagslífið var á fljúgandi siglingu fyrir meira en áratug. „Bjartsýni forstjóra varðandi alþjóðahagkerfið er knúin áfram af sterkum hagvísum. Það er ekki skrítið að forstjórar skuli vera svona brattir á sama tíma og hluta- bréfaverð hækkar hratt,“ segir Bob Moritz, stjórnarformaður PwC. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hækkaði spár sínar fyrir hagvöxt á heimsvísu fyrir árin 2017, 2018 og 2019. Hagtölur frá í haust voru betri en búist var við sem olli því að hagvaxtarspár fyrir síðasta ár hækkuðu og berast áhrifin áfram inn í árið 2018, auk þess sem lægri skattar á fyrirtæki í Bandaríkj- unum munu hjálpa til. Er gert ráð fyrir því að alþjóða- hagkerfið vaxi um 3,9% á þessu ári og því næsta, sem er hækkun um 0,2 prósentustig frá fyrri spám, og skýrist það ekki hvað síst af betri horfum í Bandaríkjunum og á evru- svæðinu. Skattabreytingar auka vöxtinn Donald Trump Bandaríkjaforseti á að ávarpa ráðstefnuna á föstudag. AGS hefur hækkað havaxtarspá sína fyrir Bandaríkin úr 2,3% upp í 2,7% fyrir árið 2018 og bætt 0,6 prósentustigum við spána fyrir árið 2019, þannig að hún er nú í 2,5%. AGS telur líklegt að á árinu 2020 muni áhrifin af lækkun skatta á fyrirtæki geta aukið hagvöxtinn um 1,2%. Á árunum eftir það geti farið að gæta neikvæðra áhrifa enda muni þurfa að stokka upp fjármál hins opinbera vegna tekjumissisins. Kanada og Mexíkó munu líka njóta góðs af því að ríkissjóður Bandaríkjanna skuli taka minna til sín, að sögn AGS, enda mun út- flutningur þeirra til mikilvægasta hagkerfis heims aukast í takt við vaxandi eftirspurn. Þetta kann að valda enn meira álagi á fríversl- unarsamning Norður-Ameríku, sem Trump hefur reynt að endursemja um. Evrópa upp, Bretland niður AGS hækkaði einnig spár sínar fyrir Evrópu, um 0,3% fyrir bæði árin, upp í 2,2% árið 2018 og 2% ár- ið 2019 vegna jákvæðra hagtalna, meiri bjartsýni og vísbendinga um að efnahagsbati álfunnar sé sjálf- bær. Það var aðeins hagvaxtarspáin fyrir Bretland árið 2019 sem var lækkuð, um 0,1 prósentustig niður í 1,5%. Stafar það af því að óvissa um Brexit mun áfram koma í veg fyrir að Bretland fái að njóta góðs af vaxandi hagvexti á heimsvísu með sama hætti og aðrar þjóðir. Þó svo að þróuðu hagkerfin standi betur en búist var við, þá bendir AGS sérstaklega á að Asía er enn sá heimshluti sem vex hvað hraðast, og stýra þar risahagkerfin Kína og Indland ferðinni. „Áfram myndar þessi heimshluti meira en helminginn af öllum hagvexti í heiminum,“ segir sjóðurinn. Uppsveiflan ekki sjálfbær En Lagarde lagði á það áherslu að þó svo að henni þættu horfurnar „uppörvandi“ þá „ættum við ekki að láta þar við sitja“. Þrátt fyrir að AGS telji tiltölulega takmarkaða áhættuþætti til staðar á næstu tveimur árum, þá undirstrikaði framkvæmdastjórinn að eitt og ann- að geti ógnað því að uppsveiflan verði viðvarandi. Of margir hafi ekki fengið að njóta góðs af vaxandi hagsæld, megnið af hagvextinum stafi ein- faldlega af hagsveiflum, og frekari umbóta sé þörf til að geta haldið áfram á sömu braut inn í næsta ára- tug. Meiri verðbólga og hærri vext- ir gætu líka hleypt loftinu úr því já- kvæða viðhorfi sem ríkir gagnvart næstu tveimur árum, segir hún. Forstjórar bjartsýnir „Værukærð er stærsti áhættu- þátturinn,“ segir Maurice Obstfield, aðalhagfræðingur AGS. „Við gæt- um verið nær samdráttarskeiði en fólk heldur.“ Könnun PwC sýnir að 57% af þeim 1.300 forstjórum sem spurðir voru álits telja að alþjóðahagkerfið muni styrkjast á komandi ári. Um 87% telja að fyrirtæki þeirra muni vaxa og 42% segjast „mjög bjart- sýnir“, sem er hækkun frá í fyrra þegar hlutfallið mældist 38%. Bjartsýni fyrirtækja í Bretlandi fór minnkandi, sem er frávik frá þróuninni í heiminum almennt, og telur PwC að Brexit-ferlinu sé um að kenna. AGS fagnar auknum alþjóðlegum hagvexti Eftir Chris Giles í Davos Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn hefur hækkað spár sínar fyrir hagvöxt á heimsvísu fyrir árin 2017, 2018 og 2019, en varar um leið við því að horfurnar geti breyst hratt. AFP Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var mætt á fund Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos og greindi þar frá hagvaxtarspá AGS. Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is Hörku herslulyklar frá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.