Morgunblaðið - 25.01.2018, Síða 16
Settu starfsfólkið í fyrsta sæti
WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn
í vélina. Innifalið er hraðferð um borð,máltíð, forfallavernd og sömuleiðis
BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni
til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz
kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða.
WOW Biz
Sumir þurfa einfaldlega
meira WOW en aðrir.
BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
er
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Vilja fá greiddan uppsagnarfrest
Húsnæði 365 sett á leigu
Selur dótturfélög fyrir 10 milljarða
Þremur sagt upp hjá N4
Telur að Apple hætti framleiðslu á X
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
40 „snjöll“ reiðhjólastæði, þar af
sex með rafmagnshleðslu, verða
sett upp með vorinu við Ráðhús
Reykjavíkur og við skrifstofur
Reykjavíkurborgar á Höfðatorgi.
Stæðin eru 99% örugg og eru með
innbyggðu öryggiskerfi. Að sögn
Jónasar Björgvinssonar, fram-
kvæmdastjóra Hjólalausna, sem
eru með umboð fyrir stæðin, er
samsetningu að ljúka í Tallinn í
Eistlandi og stutt í að stæðin verði
send til Íslands.
Jónas segist finna mikinn meðbyr
við hugmyndinni sem er nýjung á
Íslandi, bæði frá opinberum aðilum
og einkaaðilum. „Þetta er ný tækni,
örugg og aðgangsstýrð hjólastæði
fyrir almenning sem koma frá fyrir-
tækinu Bikeep í Tallinn. Þessar
lausnir eru nú þegar komnar upp í
mörgum löndum í Evrópu og
Bandaríkjunum,“ segir Jónas í
samtali við ViðskiptaMoggann.
Kristinn Jón Ólafsson, verkefna-
stjóri hjá snjallborgarteymi
Reykjavíkurborgar, sem hefur það
hlutverk að ýta undir nýsköpun inn-
viða og finna lausnir sem einfaldað
geta líf borgarbúa og aukið skil-
virkni, segir að stæðin séu sett upp
til prufu til að átta sig betur á virkni
þeirra. „Við viljum ýta undir um-
hverfisvænni samgöngumáta hjá
starfsfólki borgarinnar til að byrja
með. Við erum að fara að kaupa 10
rafmagnshjól sem staðsett verða í
Ráðhúsinu og á Höfðatorgi. Nýju
stæðin einfalda allt ferli við
geymslu og utanumhald, enda hafa
þau reynst nær fullkomlega örugg,
þar sem hjóli hefur aldrei verið stol-
ið úr þessum stæðum,“ segir Krist-
inn í samtali við ViðskiptaMoggann.
Hann segir að hægt verði að nota
hefðbundin starfsmannakort til að
opna og læsa stæðunum. Hann seg-
ir að almenningi verði einnig frjálst
að nota stæðin, með t.d. rafræna
sundkortinu og Bikeep-appinu, en
eftir prufutímann kemur í ljós hvort
ráðist verður í frekari útbreiðslu
stæðanna í borginni.
Notendur Bikeep eru yfir milljón. Engu hjóli hefur verið stolið frá 2013.
99% örugg
hjólastæði
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ef ný tegund „snjallra“ hjól-
reiðastæða reynist vel á
prufutíma verður þeim
dreift víðar í höfuðborginni.
Stæðin eru örugg og bjóða
upp á rafhleðslu.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Lífeyrissjóðir landsmanna hafalengst af verið bundnir af fjár-
magnshöftum og því ekki getað
hagað fjárfestingum að vild. Tíma-
bilið sem þeir og aðrir landsmenn
hafa haft til þess að fjárfesta
erlendis er afar stutt. Það var ein-
ungis á árunum 1994-2008 og loks
aftur frá árinu 2017.
Hlutfall erlendra fjárfestingalífeyrissjóða var 23% árið
2016. Æskilegt er að hlutfallið væri
í það minnsta 50%. Viðmiðið bygg-
ist á því að innflutningur er um 40-
50% af einkaneyslu hér á landi og
mögulega er hlutfallið hærra ef
tekið er mið af innflutningi sem ís-
lensk fyrirtæki nýta í framleiðslu
sína.
Með þeim hætti er leitað leiðatil að eyða gjaldeyrisáhættu
sem skapast við lífeyristöku eftir
fjöldamörg ár. Það eru til að
mynda 32 ár í að ég verði löggilt
gamalmenni. Ómögulegt er að
segja hvert gengi krónu verður að
þeim tíma liðnum miðað við helstu
myntir. Og þar með hversu hátt
hlutfall af lífeyrinum fari í kaup á
erlendri vöru. Skynsamlegt er að
draga úr þeirri gjaldeyrisáhættu.
Önnur ástæða til þess að fjár-festa lífeyrissparnað á
erlendum mörkuðum er áhættu-
dreifing. Íslenska hagkerfið er lít-
ið, tiltölulega einhæft og fá skráð
fyrirtæki á hlutabréfamarkað. Af
þeim sökum getur samdráttur haft
víðtæk áhrif. Það gæti sömuleiðis
bitnað á lífeyrisgreiðslum.
Áhætta með
sparnað
S orgarsaga kísilmálmverksmiðj-unnar í Helguvík á sér fáar hlið-
stæður, einkum sökum umfangsins og
allra þeirra blekkinga sem uppbygg-
ingunni tengdust. Eftir sitja margir
með sárt ennið en það er huggun
harmi gegn að atvinnulíf á Reykjanesi
þarf í engu að stóla á viðgang verk-
smiðjunnar. Þegar ráðist var í upp-
bygginguna var aðra sögu að segja og
má raunar halda því fram að áformin
hafi að mestu byggst á þeirri ósk að
koma fleirum til starfa og glæða að
nýju hálflamað atvinnulíf á svæðinu.
En ásamt samfélaginu sitja lífeyr-issjóðir uppi með stórkostlegt
tap af fjárfestingu í verkefninu. Þeir
voru leiddir að svikamyllunni af Arion
banka sem einnig stendur uppi með
Svarta-Pétur. Mesta ábyrgð í málinu
hlýtur bankinn að bera, sem burðarás
í íslensku fjármálakerfi. Hann skil-
greinir sig í „forystuhlutverki hér á
landi“ á sviði fjárfestingarbanka-
starfsemi og að hann veiti „víðtæka
ráðgjöf og þjónustu í tengslum við
fjárhagslega umbreytingu fyrirtækja
á innlendum og erlendum vettvangi,“
svo vitnað sé í heimasíðu bankans.
Bankinn og forsvarsmenn þeirralífeyrissjóða sem horft hafa upp
á fjármuni umbjóðenda sinna fuðra
upp í reykháfi verksmiðjunnar hafa
vísað til þess að þeir sem standi í
fjárfestingum hljóti að lenda í því að
tapa peningum við og við – það sé
ekki alltaf hægt að græða. Og það
eru orð að sönnu. En alveg eins og
það skiptir máli hvernig menn
„græða peninginn“ eins og Góði úlf-
urinn syngur svo listilega um, þá
skiptir einnig máli hvernig menn
tapa honum.
Fjárfestingarbanki sem skiparsjálfum sér í forystuhlutverk á
að þekkja þá sem hann á í við-
skiptum við og kanna áreiðanleika
þeirra, hann á að leita tryggra veða
og láta ekki loddara taka á sér snún-
ing.
Hætt er við að sárt muni áframsvíða undan kísilmálminum
sem aldrei brann í Helguvík. Þar
brennur helst á lífeyrisþegum. Mun-
urinn á þeim og hluthöfum Arion
banka er sá að síðarnefndi hópurinn
hefur borð fyrir báru.
Það skiptir máli hvernig
menn tapa peningunum
Norvik Timber Indus-
tries í Eistlandi, Lett-
landi og Bretlandi verða
seld til sænska félags-
ins Bergs Timber.
Selur félög fyrir
um 10 milljarða
1
2
3
4
5