Morgunblaðið - 15.01.2018, Síða 2
Í SPLIT
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslendingar þurfa að bíða enn um
sinn eftir fyrsta sigrinum gegn Kró-
atíu á stórmóti karla í handknatt-
leik. Króatar slitu sig frá íslenska
liðinu í síðari hálfleik og sigruðu,
29:22, þegar liðin mættust í A-riðli
EM í Split í gærkvöldi. Framundan
er úrslitaleikur á morgun gegn
Serbíu um hvort liðið kemst áfram í
milliriðilinn í Zagreb ásamt Króöt-
um og Svíum.
Vert er að geta þess að Íslend-
ingar léku mjög vel í fyrri hálfleik
við erfiðar aðstæður í Spaladium-
höllinni þar sem um 11 þúsund Kró-
atar studdu lið sitt með tilheyrandi
látum. Króatía er geysilega erfiður
andstæðingur. Ekki einungis vegna
þess að liðið spilar iðulega um verð-
laun á stórmótunum heldur einnig
vegna þess að leikmenn liðsins eru
einstaklega klókir. Í vörninni reyna
þeir að koma andstæðingunum úr
jafnvægi með fjölbreyttum varn-
arleik og bíða eins og hýenur eftir
því að komast inn í sendingar þegar
andstæðingur lendir í ógöngum.
Okkar mönnum tókst að forðast það
að mestu leyti með góðri frammi-
stöðu í sókninni í fyrri hálfleik en
staðan að honum loknum var 14:13.
Janus Daði Smárason skoraði fyrsta
markið í síðari hálfleik og jafnaði því
leikinn.
Þá kom hins vegar kafli þar sem
Króatar skoruðu fimm mörk í röð.
Þeir tóku upp á því að taka mark-
vörðinn út af og bæta við manni í
sóknina. Þeir voru snjallir að nýta
yfirtöluna sem skapast við það. Guð-
jón Valur Sigurðsson fékk reyndar
tækifæri til að jafna 15:15 en hitti
ekki markið þegar hann freistaði
þess að skjóta yfir völlinn í opið
markið. Í síðari hálfleik reyndist
erfitt að verjast Króötum og þeir
voru mjög agaðir í sínum sóknum.
Markvarsla Björgvins Páls Gúst-
avssonar var ekki í líkingu við það
sem hann kallaði fram gegn Svíum
og Ágúst Elí Björgvinssyni gekk
ekki betur þegar hann kom inn á
eftir 40 mínútur.
Nánast er útilokað að Ísland geti
unnið Króatíu á útivelli þegar mark-
varslan er ekki betri. Þar er ekki
einungis við markverðina að sakast
því vörnin átti erfitt með að hemja
útileikmenn Króata. Ásgeir Örn
Hallgrímsson kom sterkur inn í
bakvarðastöðuna í vörninni undir
lok fyrri hálfleiks en þar hafði Janus
átt erfitt uppdráttar. Janus var hins
vegar ógnandi í sókninni og þar lék
Aron Pálmarsson einnig mjög vel
lengst af. Þá átti Ómar Ingi Magn-
ússon góða spretti í fyrri hálfleik.
Ljósmynd/Uros Hocevar
Markahæstur Aron Pálmarsson er hér að skora eitt af fimm mörkum sínum gegn Króötum í gærkvöld.
Króatar of snjallir í Split
Biðin eftir fyrsta sigrinum á Króötum lengist frekar Góð frammistaða Íslands
í fyrri hálfleik Fimm mörk í röð frá Króötum lögðu grunninn að sigri þeirra
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Spaladium-höllin í Split, lokakeppni
EM karla 2018, A-riðill, sunnudaginn
14. janúar 2018.
Gangur leiksins: 2:2, 5:4, 7:7, 8:8,
12:9, 14:13, 17:14, 21:15, 22:16,
24:18, 27:20, 29:22.
Mörk Króatíu: Luka Cindric 7, Igor
Karacic 4/1, Luka Stepancic 4,
Manuel Strlek 4, Marko Mamic 4, Iv-
an Cupic 2, Denis Buntic 2, Igor Vori
1, Marko Kopljar 1.
Varin skot: Ivan Stevanovic 8, Mirko
Alilovic 2.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Íslands: Aron Pálmarsson 5,
Arnór Þór Gunnarsson 4/3, Ólafur
Andrés Guðmundsson 3, Ómar Ingi
Magnússon 3, Janus Daði Smárason
3, Rúnar Kárason 2, Arnar Freyr Arn-
arsson 1, Guðjón Valur Sigurðsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson
9, Ágúst Elí Björgvinsson 3.
Utan vallar: 0 mínútur.
Dómarar: Evgeny Zotin og Nikolay
Volodkov, Rússlandi.
Áhorfendur: 11.000.
Króatía – Ísland 29:22
Pierre-Emerick
Aubameyang,
framherjinn öfl-
ugi í þýska liðinu
Borussia Dort-
mund, var ekki í
leikmannahópi
liðsins þegar það
gerði markalaust
jafntefli við
Wolfsburg á
heimavelli í gær.
Í þriðja sinn á tveimur síðustu leik-
tíðum var Aubameyang settur í
agabann. Gabonmaðurinn, sem hef-
ur skorað 13 mörk í 18 deildar-
leikjum með Dortmund á tíma-
bilinu, mætti ekki á liðsfund degi
fyrir leik og ákvað þjálfari liðsins
að velja hann ekki í hóp sinn. „Hann
sagðist hafa gleymt fundinum en
við vitum allir að það var ekki
ástæðan,“ sagði Peter Stöger, þjálf-
ari Dortmund, við fréttamenn.
gummih@mbl.is
Enn og
aftur settur
í agabann
Pierre-Emerick
Aubameyang
Körfuknattleiks-
deild Skalla-
gríms hefur slitið
samstarfi sínu
við Richardo
Gonzáles Dávila,
þjálfara meist-
araflokks kvenna
og yngri flokka
hjá félaginu.
Gonzáles var
gagnrýndur fyr-
ir framgöngu sína þegar liðið tap-
aði fyrir Njarðvík í undanúrslitum
Maltbikars kvenna í körfubolta, en
hann þótti helst til harður í gagn-
rýni sinni á leikmenn sína.
Þá lét Cameron Tyson-Thomas
hafa það eftir sér eftir leik liðanna
að hún teldi að sú leið sem Gonzáles
viðhafði við að stýra Skallagríms-
liðinu í leiknum hefði orðið til þess
að liðið laut í lægra haldi í leiknum.
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
vinnur að ráðningu nýs þjálfara
liðsins, sem er í harðri baráttu um
sæti í úrslitakeppni fjögurra efstu
liða í Dominos-deild kvenna í körfu-
bolta.
Skallagrímur
rak Gonzáles
Ricardo
Gonzáles
A-RIÐILL:
Ísland – Króatía.................................... 29:22
Svíþjóð – Serbía................................... 30:25
Kristján Andrésson er þjálfari Svíþjóð-
ar.
Staðan:
Króatía 2 2 0 0 61:44 4
Ísland 2 1 0 1 48:53 2
Svíþjóð 2 1 0 1 54:51 2
Serbía 2 0 0 2 47:62 0
Leikir á morgun:
17.15 Ísland – Serbía
19.30 Króatía – Svíþjóð
B-RIÐILL:
Austurríki – Frakkland ...................... 26:33
Patrekur Jóhannesson er þjálfari Aust-
urríkis.
Noregur – Hvíta-Rússland.................. 33:28
Staðan:
Frakkland 2 2 0 0 65:57 4
Noregur 2 1 0 1 64:60 2
Hvíta-Rússland 2 1 0 1 55:59 2
Austurríki 2 0 0 2 52:60 0
C-RIÐILL:
Þýskaland – Svartfjalland ....................32:19
Makedónía – Slóvenía ...........................25:24
Staðan:
Þýskaland 1 1 0 0 32:19 2
Makedónía 1 1 0 0 25:24 2
Slóvenía 1 0 0 1 24:25 0
Svartfjallaland 1 0 0 1 19:32 0
D-RIÐILL:
Spánn – Tékkland................................. 32:15
Danmörk – Ungverjaland.................... 32:25
Staðan:
Spánn 1 1 0 0 32:15 2
Danmörk 1 1 0 0 32:25 2
Ungverjaland 1 0 0 1 25:32 0
Tékkland 1 0 0 1 15:32 0
EM 2018 Í KRÓATÍU
Það er ljóst eftir úrslitin í A-riðli
Evrópumótsins í handknattleik í
gær að Ísland og Serbía mætast í úr-
slitaleik um sæti í milliriðli í loka-
umferðinni á morgun. Lærisveinar
Kristjáns Andréssonar hjá Svíþjóð
svöruðu tapinu gegn Íslandi í fyrsta
leik með því að skella Serbum í gær,
30:25, og bæta þar með stöðu sína í
riðlinum.
Svíar voru sex mörkum yfir í hálf-
leik, 16:10, en Serbar virtust ætla að
geta hleypt spennu í leikinn á ný eft-
ir hlé. Þeir voru tveimur fleiri um
tíma en fóru illa að ráði sínu og Svíar
unnu öruggan sigur og kræktu í sín
fyrstu stig í riðlinum. Serbar eru án
stiga en eygja enn von um milliriðla
með sigri gegn Íslandi.
Annað tap Patreks
Patrekur Jóhannesson er í vand-
ræðum með lærisveina sína hjá
Austurríki eftir annað tap í B-riðli,
nú fyrir heimsmeisturum Frakka
33:26. Austurríki var undir allan
tímann, meðal annars fimm mörkum
í hálfleik 17:12, og mátti að lokum
sætta sig við sjö marka tap. Aust-
urríki verður nú einfaldlega að vinna
Noreg í lokaumferð riðilsins á morg-
un, en Frakkar eru hins vegar
komnir áfram í milliriðil.
Austurríki mætir Noregi í loka-
leiknum á morgun og dugir ekkert
nema sigur til þess að eiga mögu-
leika á því að komast áfram í milli-
riðil.
Noregur vann öruggan sigur á
Hvíta-Rússlandi 33:28 og nældi í sín
fyrstu stig. Austurríki er því eina
þjóðin án stiga í riðlinum.
AFP
Austurríki Patrekur Jóhannesson á
hliðarlínunni gegn Frökkum í gær.
Ísland er eina von Serba
Serbía fer í úrslitaleik gegn Íslandi Patrekur í vanda