Morgunblaðið - 15.01.2018, Qupperneq 5
Í HÖLLINNI
Kristófer Kristjánsson
sport@mbl.is
Með þolinmæðina að vopni tókst
Keflvíkingum að leggja baráttuglaða
og þrjóska nágranna sína í Njarðvík
að velli, 74:53, í úrslitaleik Maltbik-
ars kvenna í körfubolta í Laug-
ardalshöllinni á laugardaginn var.
Þó heil 20 stig skilji liðin að í úrvals-
deildinni var leikurinn lengst af
spennandi, Keflvíkingar voru yfir
allan tímann en þeim tókst seint að
slíta sig frá baráttuglöðum Njarð-
víkingum sem eygðu að klára ótrú-
legt Öskubuskuævintýri.
Reyndist of stór biti
Njarðvík hefur tapað hverjum
einum og einasta deildarleik sínum í
vetur, 15 talsins, en í bikarnum urðu
þrjú sterk úrvalsdeildarlið Njarð-
víkingum að bráð. Ríkjandi Íslands-
og bikarmeistarar frá því í fyrra og
nágrannarnir í Keflavík reyndust þó
einum of stór biti fyrir hugaða
Njarðvíkinga sem geta verið stoltir
af sínu liði. Þetta hefði þó getað ver-
ið allt öðruvísi leikur ef Shalonda R.
Winton hefði ekki verið að sýna all-
ar sínar bestu hliðar. Sú bandaríska
skoraði 37 stig og átti 23 fráköst
fyrir Njarðvík í leiknum og hrein-
lega kjöldró mótherja sína á löngum
köflum en það var henni að þakka að
grænklæddir voru nokkrum sinnum
hársbreidd frá því að komast yfir.
Njarðvíkingum tókst að jafna metin
rétt fyrir hálfleik og svo aftur í
þriðja leikhluta en aldrei kom þessi
mikilvæga karfa til að koma liðinu í
forystu. Í fjórða leikhluta var róð-
urinn svo einfaldlega orðinn of
þungur er lið Njarðvíkur varð
þreytt og þunglamalegt.
Mikil breidd hjá Keflvíkingum
Á meðan Njarðvík spilaði á sömu
leikmönnum allan tímann sást ber-
sýnilega hve mikil breidd er í liði
Keflavíkur, þrátt fyrir að mikilvægir
leikmenn sitji hjá vegna meiðsla
ásamt því að veikindi herjuðu á leik-
mannahópinn nýlega. Hin banda-
ríska Brittanny Dinkins er yfirleitt í
brennidepli þegar liðið spilar, enda
frábær leikmaður, en hún hafði
hægt um sig framan af í gær. Mik-
ilvægi hennar skein þó í gegn í síð-
ari hálfleik en hún átti ótal varn-
arfrákasta á ögurstundum.
Keflvíkingar voru fyrst og fremst
þolinmóðir og biðu tækifæris til að
koma sér í afgerandi stöðu og þar
var það Embla Kristínardóttir sem
bar af að lokum í liði meistaranna;
hún stjórnaði leiknum vel og setti
niður mikilvægar körfur í fjórða
leikhlutanum til að skilja liðin end-
anlega að.
Embla aftur á heimaslóðir
Stór skörð hafa verið höggvin í lið
Keflavíkur undanfarið vegna
meiðsla og kom liðið nokkuð breytt
til leiks eftir jól en brugðist var við
áföllunum með því að fá Emblu aft-
ur heim til uppeldisfélagsins. Hún
var ekki lengi að finna taktinn hjá
sínu gamla liði en leikurinn á laug-
ardaginn var aðeins hennar þriðji
fyrir Keflavík í vetur. Embla lék
stórt hlutverk í liði Keflavíkur sem
vann tvöfalt árið 2013 og með hana
innanborðs gæti liðið afrekað það
enn einu sinni en Keflavík vann auð-
vitað bæði deild og bikar í fyrra. Að-
spurð hvað hefði skapað þennan sig-
ur sagði Embla uppskriftina
einfalda;
„Barátta, liðsheild og þolinmæði.
Við undirbjuggum okkur fyrir erf-
iðan leik og fengum hann,“ sagði
hún í viðtali við Morgunblaðið milli
fagnaðarstunda í Laugardalshöllinni
í gær.
„Við náðum svo að koma betur
stemmdar út í seinni hálfleikinn og
þá gekk okkur betur,“ bætti hún við.
Embla segir það vera gífurlega sætt
að snúa aftur á heimaslóðir og vinna
bikarinn en að nú þurfi að snúa
spjótum að deildinni:
„Þetta er alveg ótrúlega sætt, ég
varla trúi þessu en þetta er frábært.
Nú þurfum við að nýta reynsluna
sem við fengum hérna til að reyna
við deildina líka.“
Þolinmæði og breidd
gerði gæfumuninn
Keflavík varði bikarmeistaratitil sinn og varð bikarmeistari í 22.sinn
að
að
inn
þeg-
hús.
int
gn
ra
m.
að fá
eik í
ið
s
a
im
a í
Það
et
-
aði
r
sta
a-
Axel Morgunblaðið/Hari
Bikarmeistarar Helgi Rafn Viggósson lyftir bikarnum á loft eftir sigur Tindastóls gegn KR-ingum í úrslitaleik Maltbikarsins.
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018
Spánn
Real Madrid – Villarreal.......................... 0:1
Real Sociedad – Barcelona ...................... 2:4
Eibar – Atlético Madrid........................... 0:1
Girona – Las Palmas ................................ 6:0
Deportivo La Coruna – Valencia ............ 1:2
Levante – Celta Vigo ............................... 0:1
Alavés – Sevilla......................................... 1:0
Espanyol – Athletic Bilbao...................... 1:1
Staðan:
Barcelona 19 16 3 0 52:9 51
Atlético Madrid 19 12 6 1 28:8 42
Valencia 19 12 4 3 40:19 40
Real Madrid 18 9 5 4 32:17 32
Villarreal 19 9 4 6 26:21 31
Sevilla 19 9 2 8 23:28 29
Eibar 19 8 3 8 24:31 27
Getafe 19 7 5 7 23:18 26
Girona 19 7 5 7 28:28 26
Celta de Vigo 19 7 4 8 33:27 25
Athletic Bilbao 19 6 7 6 21:20 25
Leganés 17 7 3 7 13:14 24
Real Betis 18 7 3 8 30:34 24
Espanyol 19 6 6 7 16:22 24
Real Sociedad 19 6 5 8 33:34 23
Levante 19 3 9 7 15:26 18
Alavés 19 6 0 13 14:27 18
Dep. La Coruna 19 4 4 11 21:37 16
Málaga 19 3 2 14 13:33 11
Las Palmas 19 3 2 14 14:46 11
Vináttulandsleikur karla
Indónesía – Ísland.................................... 1:4
Ilham Udin 29. – Albert Guðmundsson 45.,
66., 71., Arnór Smárason 58.
Reykjavíkurmót karla
B-riðill:
KR – Leiknir R. ........................................ 3:2
Víkingur R. – Þróttur R........................... 1:2
KR 3 stig, Þróttur 3, Víkingur 0, Leiknir
R. 0.
Reykjavíkurmót kvenna
A-riðill:
KR – Fjölnir.............................................. 2:1
B-riðill:
HK/Víkingur – Valur ............................... 0:2
Kjarnafæðismót karla
Tindastóll – Magni ................................... 0:2
KA – Völsungur ........................................ 8:1
Leiknir F. – Þór........................................ 0:2
Fótbolti.net mót karla
ÍA – ÍBV.................................................... 3:1
Breiðablik – Stjarnan............................... 0:1
FH – Grindavík......................................... 1:1
KNATTSPYRNA
Maltbikar karla
Úrslitaleikur:
KR – Tindastóll..................................... 69:96
Tindastóll varð bikarmeistari í fyrsta
sinn í sögu félagsins.
Maltbikar kvenna
Úrslitaleikur:
Keflavík – Njarðvík.............................. 74:63
Þetta var 22. bikarmeistaratitill Keflvík-
inga.
1. deild karla
Gnúpverjar – Fjölnir............................ 66:95
Staðan:
Skallagrímur 13 11 2 1320:1162 22
Breiðablik 13 10 3 1174:1051 20
Snæfell 13 9 4 1308:1220 18
Vestri 13 9 4 1183:1125 18
Hamar 13 9 4 1204:1173 18
Fjölnir 15 7 8 1297:1318 14
Gnúpverjar 14 4 10 1218:1318 8
FSu 14 1 13 1168:1292 2
ÍA 12 0 12 943:1156 0
Spánn
Valencia – Zaragoza ......................... 103:58
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 3 stig og
tók 2 fráköst fyrir Valencia.
B-deild:
Picken Claret – Leganés ................... 43:61
Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 9
stig, tók 11 fráköst og gaf eina stoðsend-
ingu fyrir Leganés.
Frakkland
Le Mans – Chalons-Reims .................. 90:84
Martin Hermannsson skoraði 29 stig,
gaf 7 stoðsendingar og tók 2 fráköst fyrir
Calons-Reims.
Pau-Orthez – Cholet .......................... 70:78
Haukur Helgi Pálsson skoraði 4 stig fyr-
ir Cholet en hann lék í 23 mínútur.
Danmörk
Virum – Hörsholm .............................. 59:66
Sandra Lind Þrastardóttir skoraði 3 stig
fyrir Hörsholm og tók eitt frákast.
NBA-deildin
SA Spurs – Denver............................. 112:80
Toronto – Golden State 125:127
Chicago – Detroit 107:105
Washington – Brooklyn 119:113
Charlotte – Oklahoma........................ 91:101
Dallas – LA Lakers .......................... 101:107
LA Clippers – Sacramento .............. 126:105
KÖRFUBOLTI
Pétur Rúnar Birgisson Flest stig, flestar
stoðsendingar og flest fráköst í liði Tinda-
stóls. Bestur á vellinum, alveg sama hvert
er litið. Hann má vera stoltur af sinni
frammistöðu.
Moggamaður leiksins
Laugardalshöll, Maltbikar kvenna,
úrslitaleikur, laugardaginn 13. janúar
2018.
Gangur leiksins:: 4:1, 6:6, 10:9,
15:12, 22:17, 25:20, 33:26, 35:35,
37:37, 44:39, 44:43, 51:46, 61:51,
63:58, 71:63, 74:63.
Keflavík: Embla Kristínardóttir
20/6 fráköst, Thelma Dís Ágústs-
dóttir 16/9 fráköst/5 stoðsendingar,
Brittanny Dinkins 16/11 fráköst/8
stoðsendingar/5 stolnir, Irena Sól
Jónsdóttir 6, Erna Hákonardóttir 6,
Birna Valgerður Benónýsdóttir 5/6
fráköst, Kamilla Sól Viktorsdóttir 5.
Fráköst: 27 í vörn, 9 í sókn.
Njarðvík: Shalonda R. Winton 37/
23 fráköst/3 varin skot, Erna Frey-
dís Traustadóttir 7, Björk Gunn-
arsdótir 6/4 fráköst, Hrund Skúla-
dóttir 5/4 fráköst, Hulda
Bergsteinsdóttir 4, Aníta Carter
Kristmundsdóttir 3, María Jóns-
dóttir 1/4 fráköst.
Fráköst: 30 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Davíð Tómas Tómasson,
Jóhannes Páll Friðriksson, Eggert
Þór Aðalsteinsson.
Keflavík – Njarðvík 74:63