Morgunblaðið - 02.01.2018, Qupperneq 4
Ásdís Halldórsdóttir heldur námskeiðið „Styrkjum beinin –
Kjarnakonur“ sem er styrktarþjálfun fyrir konur með bein-
þynningu eða í áhættuhópi. Halldóra Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Beinverndar, sér um fræðslu á námskeiðinu.
„Það er gríðarlega mikilvægt að fræða konur um mik-
ilvægi og áhrif styrktarþjálfunar.
Eftir tíðahvörf aukast líkurnar á beinþynningu en mark-
viss styrktarþjálfun spornar gegn beinþynningu og bein-
brotum auk þess sem styrktaræfingar hægja á áhrifum og
einkennum öldrunar.
Margar konur stunda of einhæfa hreyfingu, td. einungis
gönguþjálfun alla daga, en það flokkast ekki undir styrkt-
arþjálfun,“ segir Ásdís.
„Ein af hverjum þremur konum yfir fimmtugu er með
beinþynningu og einn af hverjum átta körlum. Þar sem lífs-
líkur fólks eru stöðugt að aukast er fyrirsjáanlegt að fleiri
og fleiri munu í framtíðinni fá beinþynningu.
Kostnaður samfélagsins af beinbrotum er gífurlegur að
ekki sé talað um þjáningarnar sem þau valda. Áætlað er
að hér á landi megi rekja um 1000 – 1200 beinbrot á ári til
beinþynningar,“ segir á vef beinverndar.is
Komdu í veg fyrir beinþynningu
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
Nýjar vörur frá geoSilica
Kísill Íslenskt kísilsteinefni
Recover Fyrir vöðva og taugar
Renew Fyrir húð, hár og neglur
Repair Fyrir bein og liði
Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum,
Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
Hvað varð til þess að þú
fórst í heilsuátak?
„Upphafið að því að ég breytti til var í lok
árs 2016. Ég var búin að vera undir miklu
álagi bæði í vinnu og heima. Ég hafði þyngst
mjög hratt og fann að mér leið ekki nógu vel.
Ég man að þetta var algjör uppgjöf við
ástandið sem var í gangi hjá mér, ég vissi að
mig langaði að ná tökum á því að komast í
form. Ekkert af því sem ég hafði gert virkaði.
Ég fór inn á skrifstofu til Erlu Kristínar
vinnufélaga míns sem er frábær fyrirmynd að
þessu leyti, settist hjá henni og sagði hingað
og ekki lengra og bað hana um aðstoð. Hún
benti mér á einstakan þjálfara í World Class,
hana Agnesi Kristjónsdóttir. Og þar hófst
ferðalagið mitt í átt að heilbrigðara lífi.“
Hvað gerir þú vikulega til að
halda þér í formi?
„Ég fer þrisvar til fjórum sinnum í viku í
ræktina. Fer til Agnesar einkaþjálfara tvisvar
í viku, fer svo sjálf einu sinni í viku og brenni/
lyfti. Svo erum við með hlaupabretti í
vinnunni og nokkur önnur tæki og reyni ég að
nýta þau einu sinni í viku. Yfirmaður minn,
hann Páll Winkel, hefur mikinn skilning á
mikilvægi hreyfingar og hvetur okkur áfram í
því sambandi.“
Hver er ein helsta breytingin
andlega við að komast í form?
„Mér líður svo mikið betur. Hér áður var
ég að sligast úr þreytu, átti erfitt með að
halda mér vakandi á heimleið í bílnum, kom
heim og bara beið eftir því að klukkan yrði
22:00 á kvöldin til að fara að sofa. En sama
hvað ég svaf mikið þá var ég alltaf þreytt. Ég
þurfti að breyta öllu, mataræðinu líka. Það
var erfitt að koma sér af stað í fyrstu og ég
get ekki sagt að mér finnist ræktin alltaf
skemmtileg en mér líður svo sannarlega vel á
eftir og það skiptir öllu máli. Nú upplifi ég
miklu minni streitu en áður, ég er sterkari á
taugum, sem hentar mér í þeirri vinnu sem ég
er í og ekki síður að vera upp á mitt besta
heima fyrir með fjölskyldunni.“
Hver er helsta breytingin líkamlega?
„Líkamlega, þá líður mér svo mikið betur.
Áður var mér illt hér og þar og þessi vanlíðan
smitaðist yfir í allt annað í mínu lífi. Ég komst
ekki lengur í fötin mín. Núna er ég með meiri
vöðvamassa, minna ummál og mér líður vel í
fötunum mínum og er farin að kaupa minna
númer.“
Hvaða merkingu hefur það fyrir þig að vera
í góðu formi?
„Það eflir sjálfstraustið mitt og sjálfsvirð-
ing eykst. Það skiptir mig miklu máli að vera
heilbrigð fyrir börnin mín og fjölskylduna og
lífið framundan. Ég er frjálsari þó ég sé í að-
haldi í mataræði og ég trúi að það komi síður
upp sjúkdómar hjá mér í framtíðinni og ég vil
að líkaminn sé í góðu formi út allt lífið.“
Hvernig er mataræðið þitt?
„Í fyrstu sendi ég á Agnesi matseðilinn yfir
daginn, í nokkrar vikur. Hún fór yfir hann og
gaf mér upplýsingar um hverju ég þyrfti að
breyta. Ég borðaði mikið kolvetni og nammi á
laugardögum sem náði kannski yfir á sunnu-
dag, mánudag og þriðjudag. Í dag borða ég
nánast engin kolvetni. Ég tók út nánast allt
hveiti, hrísgrjón o.þ.h. og fæ mér frekar bak-
að grænmeti í staðinn. Ég leyfi mér helling,
en geri það sjaldnar en áður. Ég hef minnkað
sykur töluvert enda sé ég það núna að ég hef
verið mikill nammifíkill, gæti lifað á sælgæti
alla daga. Í dag fæ ég mér stöku sinnum
orkustykki, og ef ég fer í veislu þá borða ég
kannski fjórðung af þeim sykri sem ég var
vön að gera. Maður þarft svolítið að tala við
heilann, t.d. ákvað ég að sleppa öllum sætind-
um í vinnunni, sem eru nánast á boðstólum
daglega og það truflar mig ekki neitt þó að
hinir séu að fá sér.“
Hvert stefnir þú heilsufarslega á nýju ári?
„Ég ætla að halda áfram að koma mér í
gott form. Mig langar að prófa eitthvað meira
og nýtt því mér finnst mikilvægt að hreyf-
ingin sé fjölbreytt. Ég hef notið einstakrar
leiðsagnar Agnesar í heilt ár og mun alltaf
búa að því og er henni ævinlega þakklát. Ég
hef áhuga á að lyfta lóðum og hef gaman að
því að skora á sjálfa mig. Ég stefni að því að
taka þyngri lyftur á þessu ári, sérstaklega í
hnébeygju.“
Morgunblaðið/Eggert
Líkaminn í
góðu formi
út lífið
Brynja Rós Bjarnadóttir er sérfræðingur hjá
Fangelsismálastofnun. Hún er gift Guðmundi
Birgissyni og saman eiga þau tvö börn, þau Birgi
og Lydíu Líf. Brynja hefur vakið athygli síðustu
misseri fyrir að hafa tekið heilsuna í gegn. Okkur
lék forvitni á því hvað hún er að gera.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Brynja Rós hefur náð góðum árangri í hné-
beygjunni.