Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 18
Getty Images/iStockphoto glíma við áföll eða ofbeldi og nota mat eða matarleysi til að framkalla hugbreytandi ástand. Þegar viðkom- andi byrjar að nota matvæli sem í eðli sínu geta verið fíknivaldar, þróum við gjarnan efnalega ánetjun í þau. Og það eru í raun fáir að spá í hvað ligg- ur á bakvið að þú hámir í þig heilan kexpakka í einni lotu í stjórnleysi.“ Hún segir annan þátt þegar skjól- stæðingur er í hegðunarfíkn, s.s. vinnu-, spila-, skulda- eða eyðslufíkn þá sé hann að keyra upp adrenalín- framleiðslu með streituhormónum, að koma upp aðstæðum sem mynda efnahvörf í líkamanum sem eru eins og þau sem myndast þegar við borð- um sykur, sterkju o.fl.“ Sykur meira ávanabindandi en kókaín En hvað segja rannsóknir okkur um áhrif sykurs á heilann? „Sykur getur verið átta sinnum meira ávanabindandi en kókaín sam- kvæmt virtum rannsóknum á þessu sviði í dag. Neysla á sykruðum fæðu- M argir af skjólstæð- ingum okkar hafa notað sætindi eða mat til að breyta vanlíðan sinni. Ýmsar fæðuteg- undir virka einmitt eins og deyfilyf og vímuefni. Þetta gerist oft í kjölfar- ið á upplifun á áföllum eða ofbeldi sem viðkomandi verður fyrir,“ segir Esther sem er heilbrigðið uppmálað, grönn og heilsusamleg og maður veltir fyrir sér hvort skjólstæðingum stafi ekki ógn af því að leita aðstoðar til manneskju sem virðist svona frjáls viðvíkjandi mat. „Ég sjálf var 60 kg þyngri fyrir 15 árum og þekki því af eigin raun að vera matarfíkill.“ Frjáls í kringum mat Í dag segist Esther lifa góðu lífi og það sé rétt tilgetið hjá blaðamanni að hún er frjáls gagnvart mat. „Þegar við tökum út fæðutegundir sem eru ávanabindandi verður lífið ekki bara svart og hvítt. Ég gekk inn í nýtt líf í mínum bata þar sem ég fékk loksins að borða frábæran mat og mikið af honum. Ég er alla daga södd, blóð- sykurinn er í lagi og mér líður vel á líkama og sál. Ég veit að þetta hljóm- ar einkennilega en það sama gerist hjá einstaklingi í bata frá áfeng- isneyslu. Hann getur verið frjáls í hinum ýmsu aðstæðum, því hann upplifir ekki löngun í áfengi og er sáttur með þær ákvarðanir sem hann hefur tekið í lífinu.“ Esther segir að ef við eigum við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða sé það afmörkuð fíkn í ákveðin efni sem breyta líðan, en hægt er að taka alfarið út úr lífsstílnum, en varðandi mat þá erum við að glíma við miklu víðtækara mál. „Við getum ekki bara hætt að borða. Við þurfum öll nær- ingu og viljum og eigum að njóta þess að nærast. En áskorunin er að stór hluti þess sem við neytum í dag er verksmiðjuframleidd, tilbúin fæða, þar sem sykri, sterkju, fitu og salti er bætt við hana. En þetta geta allt ver- ið fíknvakar fyrir matarfíkla. Því meira sem fæða er unnin, því meiri líkur eru á að hún geti verið ánetj- andi. Sem dæmi þá getur þú borðað kókaín-lauf beint af trénu og fundið kannski smá breytingu, en þegar laufið hefur verið verksmiðjufram- leitt í duft þá er það orðið eitt af hættulegustu vímuefnum sem þekkj- ast.“ Vanlíðan afgreidd með mat En hver er munurinn á matarfíkn og t.d. áfengisfíkn? „Það er nákvæmlega það sama að gerast í höfðinu á matarfíklum og öðrum fíklum ef við skoðum heila- sneiðmyndir í þessu samhengi. Eitt frægasta dæmið er rannsókn á við- brögðum í heilastarfsemi þegar fíkni- efnafíkli var sýnd mynd af kókaín krakkpípu og matarfíkli var sýnd mynd af mjólkurhristingi. Niðurstöð- urnar voru sláandi eins.“ Esther segir fjölmarga vera að glíma við lystarstol, ofát og lotutengt át. „Sá sem glímir við átröskun, hefur oftar en ekki lært að glíma við líðan sína og tilfinningar með áti og neyslu á ákveðnum matartegundum. Margir tegundum er einnig talin valda 70% af þeim lífsstílssjúkdómum sem við glímum við. Heilbrigðisyfirvöld ættu því að mínu mati að taka þessi mál miklu fastari tökum. Svo ekki sé minnst á þá staðreynd að 60% lands- manna eru í yfirþyngd og þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir heil- brigðiskerfið okkar.“ En eru þá allir í yfirþyngd mat- arfíklar? „Nei, alls ekki. Þeir sem gleyma sér í vananum, og ákveða svo að taka sig á í lífinu og tekst það eru að öllum líkindum ekki fíklar. Matarfíklar hinsvegar reyna að létta sig eða tak- ast á við stjórnlausa áthegðun og lenda á vegg. Þeir ná árangri inni á milli en detta svo aftur í sama farið eða verra ástand og geta því þurft að- stoð rétt eins og aðrir sem glíma við fíknivanda. Það langar engan að vera yfir 100 kg Það er svo mikilvægt að við áttum okkur á því og samþykkjum að það langar engan að vera yfir 100 kg, eða yfirleitt að glíma við þyngdarvanda. En hjá mörgum gerist það þrátt fyrir að einstaklingurinn sé að gera allt sem hann getur til að stöðva þyngd- araukninguna. Því fyrr sem við átt- um okkur á að viljastyrkurinn virkar ekki þegar kemur að þessum vanda og leitum eftir ráðgjöf þar sem unnið er með þennan vanda sem fíkni- vanda, því fyrr fáum við tækifæri til að upplifa það frelsi sem í því felst að nota þær meðferðarleiðir sem í raun virka fyrir þennan sjúkdóm,“ segir Esther og tekur sjálfa sig sem dæmi. „Ég glímdi við mikla afneitun á vand- anum og upplifði mig t.d. aðeins sem pínulítinn matarfíkill þó að ég væri 60 kg yfir kjörþyngd og glímdi við gríðarlegt þunglyndi, þrátt fyrir að ég væri búin að reyna allt undir sól- inni til að takast á vanda minn og hann jókst alltaf og varð stöðugt verri viðfangs. Þegar mér hinsvegar lánaðist að fara eftir leiðbeiningum sem virka fyrir matarfíkla og upplifa þær jákvæðu breytingar á líðan bæði líkamlega og andlega, þá í raun áttaði ég mig á hversu alvarleg staða mín var orðin. Varð aldrei södd „Ég til dæmis þekkti ekki það ástand að vera södd, neyslan mín og áhrif hennar á heila- og taugamóttak- arana í heilanum svæfðu eðlilega til- finningu fyrir seddu og ollu stöðugri ílöngun (craving) sem stjórnaði lífi mínu. Í dag hef ég átt 5.420 daga þar sem ég hef haldið mig frá skaðlegum, ávanavekjandi fæðutegundum, borð- að hollan og góðan mat og finn fyrir eðlilegri seddutilfinningu og vellíð- an,“ segir hún og leggur áherslu á að það að átta sig á þætti afneitunar á vandanum sé stór þáttur í ráðgjöfinni og meðferðinni sem hún leiði skjól- stæðinga sína í gegnum og svo fræðslan um hvernig ákveðnar mat- artegundir valdi breytingum í heila- starfseminni. Mælikvarðinn á matarfíkn Hver er þá mælikvarðinn á hvort við glímum við matar- eða átfíkn? „Það er þrennt sem þarf að vera til Er löngun þín í sætindi eða mat stjórnlaus? Esther Helga Guðmundsdóttir er einn virtasti sérfræðingur landsins þegar kemur að matarfíkn. Hún er eftirsóttur fyrirlesari hér heima og erlendis og hefur í áraraðir veitt matarfíklum ráðgjöf og meðferðir í gegnum MFM Matarfíknarmiðstöðina. Hún hefur lagt sitt af mörkum við að fræða landsmenn um stjórnleysi tengt mat og áhrif þess á andlega og líkamlega heilsu fólks. Enda hefur vitundarvakning tengd matarfíkn stóreflst á undanförn- um árum, sem og skilningur almennings á málefn- inu. Eitt megineinkenni matarfíknar er afneitun og því eru margir að kljást við þessa fíkn einir og í einangrun. Við leitumst við að skilja vandamálið betur. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn „Varðandi mat þá erum við að glíma við mjög víðtæk mál. Við getum ekki bara hætt að borða,“ segir Esther Helga Guðmundsdóttir hjá Matarfíknarmiðstöðinni. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.