Morgunblaðið - 02.01.2018, Page 16
Sidekick health
Snjallforrit sem hjálpar til við að passa upp á
mataræðið, róar hugann og hvetur til líkams-
ræktar.
Félagslegt snjallforrit sem nýtir sér tölvu-
leikjatækni.
Forritið er búið til af íslenskum frumkvöðlum.
Clue
Snjallforrit sem hjálpar manni að halda ut-
an um tíðarhringinn sem og félagslega
hlutann. Að muna að ræða við vini og fjöl-
skyldu um stað í tíðahring, tengjast fólki
og fleira.
Fitbit
Snjallforrit sem heldur utan um
hreyfingu, svefn og mataræði.
Wapp
Snjallforrit með ýmsum gönguleiðum
um Ísland.
Íslenskt hugvit.
My fitness pal
Snjallforrit sem hjálpar manni að halda utan um
kaloríu-inntöku yfir daginn, heldur utan um hvað
maður hreyfir sig og er samfélag þar sem maður
deilir uppskriftum og hvernig manni gengur.
Ragnheiður mælir með Vefsvæðum
Heilsuvera.is
Vefsvæði sem hægt er að nálgast í tölvu og í
síma. Þar fær maður
upplýsingar, yfirlit yfir lyfseðla og hægt er að
panta tíma hjá heimilislækni.
Notandi getur átt samskipti við heilbrigð-
isþjónustuna og nálgast eigin sjúkragögn.
www.betrisvefn.is
Svefnmeðferð á netinu sem bætir heilsu, líðan og lífsgæði.
Ragnheiður mælir með sýndarveruleika
Flow VR
Sýndarveruleiki þar sem maður hugleiðir í náttúrunni. Íslenskt hugvit.
Ragnheiður mælir með snjallforritum
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
F
rumkvöðlar á sviði heilsu og tækni
eru að tala um hvernig hin helstu
heimilistæki, sem lengi vel hafa
verið eins, eru að snjalltæknivæð-
ast, og munu í nánustu framtíð
taka reglulega púlsinn á því hvað
maður gerir og hvernig maður mælist. Sem
dæmi er talað um að ískápurinn muni segja
manni hvað hefur farið úr honum í vikunni og
hvað vantar nýtt inn. Sýndarveruleiki er sagð-
ur verða vettvangur læknisins inni á
heimilinu, lyfin verða 3D prentuð
inni í stofu og ársskýrslur verða
gerðar tengt heilsu og heilsu-
fari.
Starf lækna að sjálf-
virknivæðast
„Með tilkomu síma og
snjallúra, erum við að fá
miklu meiri aðstoð en við
erum vön, við erum að safna
gögnum og næstu skref í
tæknibyltingunni er að starf
lækna sjálfvirknivæðist og snjall-
forritin byrja að mæla gildi í blóði
og gefa viðvaranir tengdar hjartasjúk-
dómum og fleiru miðað við venjur
okkar og gildi, líkamsþyngd o.fl,“ seg-
ir Ragnheiður og bætir við. „Crispr
verkefnið er einnig áhugavert í um-
ræðunni um framtíð heilsutækninnar. En
verkefnið snýst um genasplæsingar, þar sem
búið er að finna út leið til að lækna mýs af
MS-sjúkdómi. Talið er að þessi leið muni gera
okkur kleift að lækna ýmiskonar erfiða sjúk-
dóma sem við höfum nú þegar ekki fundið
neinar lækningar á,“ segir Ragnheiður en
bætir við að það séu ýmsar siðferðislegar
spurningar sem við þurfum að svara í þessu
samhengi. „Ætlum við að leyfa að foreldrar
panti hár- og augnlit á börnin sín? Hvar drög-
um við línuna í genasplæsingum?“
Þróun snjallúra
Hvaða þróun sérðu með snjallúrin?
„Með tilkomu snjallúra, sem við erum að
setja á okkur, verður ekki langt í það að við
sem sjúklingar komum með gögnin um okkur
sjálf til læknis, í staðinn fyrir að læknirinn
geri mælingarnar hjá sér. Maður hefur heyrt
margar frábærar hugmyndir tengdar þessu,
um að úrin muni geta mælt vítamínmagn úr
fæðunni á staðartíma. Einnig er verið að þróa
mjög hátæknilegar lausnir við að uppgötva
krabbamein í ristli, þar sem sjúklingur tekur
inn efni, og ef hann er með krabbamein verða
hægðirnar bláar, en ekki ef allt er í lagi í
kerfinu. Ábyrgðin er því að færast meira til
okkar og frá læknum, sem er jákvætt að mínu
mati.“ Ragnheiður útskýrir nánar. „Við erum
einnig að sjá breytingar verða á upplýs-
ingalöggjöfinni, þar sem heilsufarsupplýsing-
arnar eru manns einkamál, sem maður getur
selt áfram í skiptum fyrir þjónustu,
en fólk mun ekki græða leng-
ur á heilsufarsupplýs-
ingum manns eða þær
týnast í skápum hjá
læknum á heilsu-
gæslunni.“
Ísland fram-
arlega í svefn-
rannsóknum
Eru að verða
spennandi
tækniþróunarverk-
efni til á Íslandi um
þessar mundir, tengd
heilsu?
„Já, ekki spurning, Ísland
hefur um tíma verið fram-
arlega þegar kemur að
heilsutækni. Og má nefna
Nox Medical í því sam-
hengi. Ég man eftir áhugaverðu verkefni frá
Hjartavernd sem ég fylgist spent með þar
sem æð í hálsi á 35 ára einstakling gefur
forspágildi um kransæðastíflu í framtíðinni,“
segir Ragnheiður og það er greinilegt að fyr-
irbyggjandi aðgerðir eru henni að skapi.
„Svefnrannsóknir hafa einnig verið áberandi
hér á landi og snjallforrit í kringum það. Og
benda má á nýjustu snjallsímalausnina frá
Mayo Clinic sem býður upp á þjónustu í gegn-
um netið.“
Nýsköpun til að hagræða í heilbrigðiskerfinu
Ragnheiður segir að teikn séu á lofti með
nýjum stjórnarsáttmála um að beita nýsköpun
á allar greinar, og þar sé heilbrigðiskerfið
ekki undanþegið framþróun. „Tal um að við
ætlum að nota nýsköpun til að hagræða í heil-
brigðiskerfinu er mér að skapi, enda á Ísland
að vera miðstöð rannsókna og þróunar í heim-
inum. Slíkt gæti haft hliðaráhrif á svo margt í
samfélaginu. Skapað ný vellaunuð störf,
stækkað hagkerfið, aukið útflutningstekjur og
læknað fólkið okkar hér á landi.“
Tæknin og heilsan
Við lifum á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar. Tæknin virðist vera að taka yfir og valmöguleikar á sviði heilsu og tækni að stóraukast.
En eftir sitja mörg okkar sem eigum ennþá fullt í fangi með Instagram og Snapchat. Við fengum Ragnheiði H. Magnúsdóttur
formann tækninefndar Vísinda- og tækniráðs, varaformann Tækniþróunarsjóðs og formann Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins
til að útskýra byltinguna og færa okkur nær sannleikanum um hvað þessi bylting getur gert fyrir okkur.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ragnheiður H. Magnúsdóttir
er einn helsti sérfræðingur á
sviði tækni og nýsköpunar.