Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
Í
stjórnendaprógrammi Guðrúnar
er grunnurinn sjálfsþekking,
samskiptahæfni og verkfæri
markþjálfunar. „Ofan á það hef
ég síðan bætt vinnustofum sem snúa
að jákvæðri sálfræði, t.d. þraut-
seigjuþjálfun, styrkleikanálgun í
stjórnun, áhrif virkni-hvatningar og
tilgangs í starfi.
Að draga fram bestu eiginleika
manneskjunnar
„Bakgrunnur minn er úr stjórnun og
mannauðsráðgjöf en áður en ég hóf
störf sem sjálfstætt starfandi ráð-
gjafi þá vann ég í 12 ár sem stjórn-
andi og í mannauðsráðgjöf í 3 ár. Ég
útskrifaðist sem stjórnendamark-
þjálfi frá Háskólanum í Reykjavík
2014 og hef starfað sem slíkur síðan
þá.“
Aðspurð hvað sé að hennar mati
það áhugaverðasta úr jákvæðri sál-
fræði er hún fljót til svars.
„Hvar á ég að byrja! Að það sé til
vísindagrein sem einblínir á það að
draga fram bestu eiginleika mann-
eskjunnar byggt á rannsóknum,
hvað gerir lífið þess virði að lifa því
og hvernig við getum lært af þeim
sem að njóta farsældar í lífinu. Þetta
rannsakar jákvæða sálfræðin út frá
einstaklingum, hópum og sam-
félögum. Enda var það brennandi
áhugi minn á manneskjunni og að fá
tækifæri til að nýta stjórn-
unarreynslu mína og fræðin til að
styðja við aðra stjórnendur í vexti
sem fékk mig til að leggja þetta starf
fyrir mig.“
Hið fullkomna par
Hvað getur þú sagt mér um þá að-
ferðafræði sem þú notar til að tvinna
saman markþjálfun og jákvæða sál-
fræði?
„Markþjálfun og jákvæða sál-
fræðin hafa stundum verið verið
nefndar sem hið fullkomna par. Í
dag er jafnvel til það sem kallast
Positive psychology coaching (PPC)
eða markþjálfun með áherslum já-
kvæðrar sálfræði. Þessi tegund
markþjálfunar er byggð á rann-
sóknum og inngripum frá jákvæðri
sálfræði en er að öðru leyti sem
hefðbundin markþjálfun. Hjá mark-
þjálfa með þessar áherslur áttu von
á að fá verkefni sem beinast t.d. að
auknum velfarnaði [e. well-being],
mat og þjálfun styrkleika, aukinni
þrautseigju, sjálfstrú, von, virkni í
vinnunni og tilgangi í starfi. Mark-
þjálfinn sér marksækjandann, þ.e.
þann sem þiggur markþjálfun, sem
„heila manneskju“ og allt stuðlar
þetta að sjálfbærum vexti og aukinni
frammistöðu hjá viðkomandi.“
Hvað geturðu sagt mér um ACC
vottun og PCC vottun í markþjálfun
hjá ICF (International Coaching
Federation)?
„Það sem liggur þar að baki er sú
reynsla sem að markþjálfinn býr yf-
ir. Í dag eru þrjú stig á hjá vottuðum
markþjálfum hjá ICF: ACC – 100
tímar að baki, PCC – 500 tímar að
baki og MCC – 2500 tímar að baki
sem markþjálfi. Eftir minni vitn-
eskju þá er eingöngu einn vottaður
MCC markþjálfi á Íslandi og 5 vott-
aðir PCC markþjálfar og ég er um
þessar mundir að sækja um þá vott-
un og verð þá númer sex.“
Leikni og vöxtur stjórnandans
Hvernig námskeið ert þú að bjóða
upp á?
„Ég hef aðallega verið að fara inn
í fyrirtæki með lausnir fyrir stjórn-
endur, bæði einstaklinga og hópa.
Ég hef þróað stjórnendaprógramm
sem byggt er upp á þessum tveimur
áherslum, jákvæðri sálfræði og
markþjálfun þar sem grunnurinn er
sjálfsþekking, samskiptahæfni og
verkfæri markþjálfunar. Ofan á það
hef ég síðan bætt vinnustofum sem
snúa að jákvæðri sálfræði, t.d.
þrautseigjuþjálfun, styrkleik-
análgun í stjórnun, áhrifum virkni-
hvatningar og tilgangs í starfi. Ekki
má gleyma vinnustofunni um leið-
beinandi samtöl, þar sem að stjórn-
endur fá leiðsögn við að taka á erf-
iðustu starfsmannamálunum. Rauði
þráðurinn í gegnum allt prógrammið
er leikni og vöxtur stjórnandans og
um leið hvernig hann fær verkfæri
við að styðja við vöxt starfsmanna
sinna. Prógrammið er sniðið eftir
þörfum og áherslum fyrirtækisins
og er oftast í kringum 9 mánuðir,
þetta er eins og er að bera barn und-
ir belti!
Vantar fleiri sterka leiðtoga
Um viðtökurnar segir Guðrún:
„Ummælin sem ég hef fengið eru
framúrskarandi og núna liggur fyrir
að meta prógrammið, það verður
spennandi að fá niðurstöðurnar
staðfestar með mælingum. Fyrir ut-
an stjórnendaprógrammið þá hef ég
verið að koma inn í fyrirtæki með
styttri útgáfur eða námskeið á svip-
uðum nótum fyrir almenna starfs-
menn. Samstarfaðilar mínir eru
nokkrir og má þá helst nefna Endur-
menntun, Háskóla Reykjavíkur og
Dokkuna. Eitt af vinsælustu nám-
skeiðum Dokkunnar hefur verið
„Leiðbeinandi samtöl“ og er kominn
tími á það aftur þann 23. janúar
komandi. Nánari upplýsingar má
finna á www.dokkan.is“
Hver er að þínu mati helsta áskor-
unin í fyrirtækjarekstri á Íslandi?
„Fyrir utan þessar hefðbundnu,
þar á meðal fjórðu iðnbyltinguna,
áhrif aldamótakynslóðarinnar, sem
og ekkert atvinnuleysi og örar
tækniframfarir þá vil ég sérstaklega
nefna aukna þörf á stjórnendum
með framúrskarandi samskiptahæfi-
leika, háa tilfinningagreind og hæf-
leika til að auka sjálfræði starfs-
manna sinna. Okkur vantar fleiri
sterka leiðtoga.“
Auðvelt að nálgast sérfræðinga
Þar sem þú ert einn helsti sérfræð-
ingur landsins í jákvæðri sálfræði og
formaður félags um jákvæða sál-
fræði á Íslandi, getur þú sagt mér
hverjir eru helstu samstarfsfélagar
þínir á erlendri grundu?
„Núna er ég formaður félags um
jákvæða sálfræði á Íslandi, lítinn en
vaxandi hóp áhugafólks og sérfræð-
inga um jákvæða sálfræði. Ég hef
verið viðloðandi fagið síðan sumarið
2009 en það má segja að ég hafi orðið
„ástfangin“ af þessari vísindalegu
nálgun og aldrei litið um öxl. Það
skemmtilega við þetta samfélag á al-
þjóðavísu er að það er frekar lítið og
því auðvelt að nálgast helstu sér-
fræðingana með því að fara á ráð-
stefnurnar. Það er gaman að minn-
ast á það að næsta evrópska
ráðstefna verður n.k. sumar í Búda-
pest. Það er hægt að nálgast nánari
upplýsingar um hana á facebook-
síðu félagsins: félag um jákvæða sál-
fræði eða á heimasíðu evrópsku
samtakanna sem er svohljóðandi:
ecpp2018.akcongress.com
Síðan er auðvitað hægt að gerast
félagsmaður og taka þátt í skemmti-
legum félagsskap og komast á
spennandi fræðslufundi“.
Hvað ertu svo að fást við þessa
dagana?
„Ég er að vinna að mast-
ersritgerðinni minni sem mun fjalla
um mat á stjórnendaprógramminu
mínu. Einnig er ég að sækja um
PCC vottun sem markþjálfi og hlúa
að fyrirtækinu mínu. Einnig er í píp-
unum samstarf við erlenda aðila á
þessum vettvangi. Sem sagt, nóg að
gera en alltaf gaman.
„Ég hef það markmið að snerta líf
sem flestra með verkfærum já-
kvæðrar sálfræði og markþjálfunar.
Það er því langtímamarkmið að fara
með prógrammið mitt til útlanda,
jafnvel að byrja á því að stefna á
Norðurlöndin. Eins og sakir standa
er af nægu að taka á íslenskum
markaði.
Það eru svo mikil forréttindi að fá
að starfa við það sem maður elskar.
Ég er blessuð í bak og fyrir!“
Nánari upplýsingar um pró-
grammið má finna hér:
gudrun@gudrunsnorra.com
elinros@mbl.is
„Aukin þörf á hæfum stjórnendum“
Guðrún Snorradóttir
markþjálfari er einn
helsti sérfræðingur
landsins í jákvæðri sál-
fræði. Hún hefur verið
að fara inn í fyrirtæki
með lausnir fyrir stjórn-
endur, bæði einstak-
linga og hópa. Guðrún
hefur þróað stjórn-
endaprógramm sem að
byggt er upp á tveimur
áherslum – jákvæðri
sálfræði og markþjálfun.
Leiðtogaþjálfun Guðrún Snorradóttir býður upp á vinnustofur um leiðbeinandi samtöl, þar sem stjórnendur fá leiðsögn við að taka á erfiðustu starfsmannamálunum.
Hugsjón Guðrún Snorradóttir
er einn helsti sérfræðingur
landsins í jákvæðri sálfræði.
Íslenska fyrir útlendinga - öll stig
• Sérstakir málfræðiáfangar
• Enska öll stig
• Önnur tungumál eftir óskum nemenda
• Hraðnámskeið - litlir hópar - einkakennsla
• Kennum á Skype
Saga Akademía - málaskóli er viðurkenndur fræðsluaðili af
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Allir kennarar skólans
eru réttindakennarar. Eingöngu kennt í fámennum hópum eða
einkakennslu. Pólskumælandi kennarar kenna íslensku og ensku
fyrir Pólverja.
Saga Akademía-málaskóli
er viðurkenndur fræðsluaðili af
mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
sagaakademia@sagaakademia.is • daria@sagaakademia.is
www.sagaakademia.is • Sími 899 3961 / 771 5475 • facebook
Saga Akademia ehf.
Málaskóli • Language School
small groups / intensivecourses / private lessons